Morgunblaðið - 05.09.1993, Síða 45

Morgunblaðið - 05.09.1993, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5:.SEPTEMBER 1993 Dansskólí Jóns Péturs og Köru byrjar 5. starfsár Erna Einarsdóttir og Óttar Guðmundsson Ný bók um ungt fólk og kynlíf BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur sent frá sér bók sein raunar eru tvær bækur í einni: Annars vegar Það sem máli skiptir og hins vegar Orðabók ástarinnar. Höfundar eru hjónin Óttar Guðmunds- son læknir og Erna Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur. í kynningu Forlagsins segir: „Undir heitinu Það sem máli skiptir er flallað um ástina, tilfinningar og kynlíf ungs fólks, hið sársaukafulla en yndislega tímabil þegar barn breytist í fullorðna mannveru. Þar er rætt um sambönd ungs fólks, vandamál tilfinningalífsins, kynlíf, getnaðarvarnir, ýmis tilbrigði ástar- lífsins, barneignir og kynsjúkdóma. Höfundarnir lýsa efninu á lifandi hátt með því að kveikja líf í tveimur ungum sögupersónum á síðum bók- arinnar, þeim Adda og Evu, og fylgja þeim eftir í blíðu og stríðu þroskaár- anna. Hinn hluti bókarinnar ber heitið Orðabók ástarinnar og hefur að geyma um 800 uppflettiorð sem lúta að ástarlífi og kynhegðun manna. í hana má sækja margháttaðan fróð- leik um sögu kynlífsins, læknisfræði- legar útskýringar sem og gömul og ný orð um ástir og kynlíf. Það sem máli skiptir - Orðabók ástarinnar er 240 bls. innbundin. Eiður Snorri Eysteinsson tók ís- lensku ljósmyndimar sem eru í bók- inni. Grafít hf. hannaði kápu. Prent- smiðjan Oddi hf. prentaði. Verð kr. 1.995 á tilboðsverði sem „Bók mán- aðarins" í bókabúðum í september, en eftir það kr. 2.850. DANSSKÓLI Jóns Péturs og Köru hefur nú í haust sitt fimmta starfs- ár. Boðið er upp á danskennslu fyrir fólk á öllum aldri og á öllum stigum, þ.e. byrjendur, framhalds- hópar og keppnispör. Fyrir yngstu nemendurna, 4-6 ára, er boðið upp á dans, söng og leik og þessu fléttað saman við tón- list svo börnin fái útrás fyrir þá miklu hreyfiþörf sem þau hafa. Við þetta bætast síðan samkvæmisdansar, s.s. cha, cha, cha, samba og enskur vals. Hjá eldri bömum er strax byrjað að kenna samkvæmisdansa, þ.e. suð- ur-ameríska dansa og sígilda sam- kvæmisdansa svo og helstu gömlu dansana. Kennsla í fullorðinshópnum fyrir byijendur hefur það að markmiði að kenna fólki dansa sem nýtast á dans- leikjum og eru það dansar eins og jive, tjútt, cha, cha, cha, foxtrot og vals ásamt gömlu dönsunum. f fram- haldshópnum er haldið áfram að byggja upp dansinn á þeim grunni sem fyrir er og er þá bætt inn fleiri dönsum og spomm. í skólanum er aðstaða fyrir þá sem stunda dansinn sem keppnisíþrótt. Fyrir utan almenna kennslu í hóptím- um og einkatímum er í skólanum æfíngasalur sem er opinn alla daga vikunnar fyrir alla nemendur skól- ans. Erlendir gestakennarar heim- sækja skólann reglulega í vetur og aðstoða keppendur fyrir danskeppni vetrarins. Skólinn býður upp á danssýningar fyrir alls konar skemmtanir og sam- komur þar sem bæði nemendur og kennarar sýna. Innritun á dansnám- skeið skólans stendur yfír þessa dag- ana til 8. september kl. 12 tii 19 alla dagana. Kennsla hefst föstudag- inn 10. september. Sjómannafélag Reykjavíkur Varað við fiskiskip- um undir hentifánum Chevrolet Stepside 1500 Z-71 ofl road Af sérstökum ástæðum er þessi glæsilegi vagn til sölu. Árgerð 1991, ekinn 49.000 km. Vél 350, sjájfskiptur, ABS bremsur, loftlæsing að aftan, 35“ dekk á álfelgum, aukaljós og margt, margt fleira. Verð 2.300.000. Ath.: Mjög góður staðgreiðsluafsláttur. Uppl. i síma 676689 og í Bílahöllinni, sími 674949. Hjartans þakkir sendi ég öllum þeim, sem glöddu mig á 95 ára afmœli mínu 30. ágúst sl. meÖ heimsóknum, heillaskeytum, blómum og gjöfum. Guð blessi ykkur öll. Sigurjón Jóhannsson, Skeggjagötu 6, Reykjavík. Borðtennisdeild Víkings auglýsir Spennandi vetrarstarf að hefjast í borð- tennis í TBR-húsinu við Gnoðarvog. Toppþjálfarar. Innritun unglinga og fullorð- inna er hafin hjá borðtennisdeild Víkings í símum 35935 og 36717 á daginn. Á kvöldin í símum 36862 Pétur, 51775 Sigurður, 641316 Kristján, 72324 Aðalbjörg. NÝR SJÁLFVIRKUR OFNHITASTILLIR VETRARSKOÐUN Hefur þú hugleitt að fá pípulagningamanninn til að stilla hitakerfið í húsinu fyrir veturinn? Þannig gætir þú komist hjd óþœgindum og Lekkað orkureikninginn. 'w = HCCNfiN S VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260 MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur: „Á undanförnum árum hefur Sjó- mannafélag Reykjavíkur átt í úti- stöðum við íslenskar kaupskipaút- gerðir sem takmarkalaust hafa viljað nota erlend kaupskip undir þægind- afánum til reglubundinna siglinga að og frá landinu. Alþjóðaflutningaverkamannasam- bandið (ITF) hefur um langan tíma barist fyrir réttarstöðu áhafna þess- ara skipa, enda aðbúnaður, öryggi og kjör oft með þeim hætti að með ólíkinum er. Fiskiskip undir þægindafána er nýtt fyrirbrigði hér við land sem Sjó- mannafélagið hefur jú bent á áður, og varað við þeirri þróun sem nú er orðin staðreynd. Fjölmörg verkalýðsfélög hafa fagnað komu þessara þægindafána- skipa og telja hag sinna umbjóðenda borgið hvað varðar atvinnu. Hér er um stundarhagsmuni að ræða sem aðgát skal höfð á. Hafa verkalýðsfélögin kynnt sér kaup og kjör hinna erlendu sjó- manna? Hafa fulltrúar Siglingamálastofn- unar ríkisins í löndunarhöfnum þæg- indafánafiskiskipanna kannað að- búnað og öryggi um borð? Stéttarfélög sjómanna verða að halda vöku sinni hvað þetta mál varð- ar enda eru íslenskir útgerðarmenn að skrá fiskiskip undir þægindafána. Verði áframhald á þessari þróun, hvað þá með atvinnuöryggi íslenskra fiskimanna?" JONS PETURS og KORU BOLHOLTI6 REYKJAVÍK s. 91-36645 og 685045 fax 91-683545 riHP Samkvæmisdansar: standard og suður-amerískir Gömludansarnir - Tjútt Barnadansar (yngst 4 ára) Byrjendur - Framhald - Hóptímar - Einkatímar Allir aldurshópar velkomnir: Barnahópar - Unglingahópar - Fullorðinshópar (einstaklingar, pör og hjón) Kennsla á landsbyggðinni auglýst síðar Seljum hina frábæru Supadance dansskó Fjölskylduafsláttur Systkinaafsláttur SPORI RETTA ATT! KENNSLA HEFST Skírteini afhent í Bolholti 6: fimmtudaginn 9. sept. kl. 14-21 INN I SIMUM: Faglærðir danskennarar - betri kennsla FÍD Félag islenskra Danskennara - DÍ Dansráð Islands Æfingasalur opinn sjö daga vikunnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.