Morgunblaðið - 05.09.1993, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1993
3T1
Gárur
eftir Elínu Pálmadóttur
Að borða eða
ekkí borða
Að borða eða ekki borða, það
er stóra málið! Spurningin
ekki síður óræð en sú enska um
að vera eða ekki vera. Svarið
ætlar að verða álíka þvælið.
Spumingin mikla: Af hverju
borðuðu íslenskir stjórnmála-
menn eða borðuðu ekki með
Shimon Peres frá ísrael? Ein-
hverjir sjálfsagt eins og þessi
skrifari af því að þeir voru ekki
boðnir. Sumir af því að þeir voru
að mótmæla aðgerðum ísraela,
aðrir nú farnir að segja að það
hafí ekki verið alveg að marka.
Einn flokksforingi að hann hafi
hvort eð er verið að fara úr
bænum og ÓRG dásamar norska
utanríkisráðherrann fyrir að
hafa boðið Peres að borða heima
hjá sér til að hlusta á hann og
finna flöt á friðarmálum, þótt
hann fussaði sjálfur við að borða
með honum. En í 50 ár hefur
það verið kjarninn í viðleitni
Sameinuðu þjóðanna til að halda
frið og koma í veg fyrir stríð,
að sitja og halda áfram að tala
saman. Hlusta líka á hina,
hversu andstyggilegir sem
manni finnst þeir vera.
Árangurinn af slíkum sam-
fundum varð í þetta sinn óvænt-
ur og stórkostlegur, Palestínu-
aröbum og ísraelum tókst raun-
verulega að opna glufu til samn-
inga um sambýli í einu landi.
Sjálf varð ég enn ruglaðri og
vonminni um að nokkur flötur
fyndist á að brjóta ísinn eftir því
sem ég var meira á þeim slóðum,
í hitteðfyrra í Sýrlandi og Gólan-
hæðum og í fyrra í ísrael og
Suður-Líbanon. Ótti hvors aðila
um sig við hinn er orðinn að svo
miklu hatri. Viðvarandi hræðsla
er hjá öllum aðilum byggð á bit-
urri reynslu og orðin að sannfær-
ingu um að veija sig og sína
með öllum tiltækum ráðum eða
farast ella. í slíkri stöðu séu öll
örþrifaráð gild, beiting hervalds,
hryðjuverk og gíslataka. Á vett-
vangi fer manni gjarnan svo að
samúðin er öll með þeim sem
maður er hjá þá stundina og
heyrir hörmungarsögur hans.
Og á staðnum eygist engin
lausn.
Þess vegna er þessi opnaða
glufa svo stórkostleg, þótt ekki
sé sopið kálið o.s.frv. Hugsa sér
ef ísraelar viðurkenna nú upp-
hátt PLO og fjarlægja hermenn
sína af sjálfstjórnarsvæðum
þeirra og ef Palestínuarabar
ætla að hætta hryðjuverkum og
ekki lengur að hrekja alla íraela
úr landinu, þá er strax blábrodd-
urinn úr þessum skelfilega ótta
sem venjulegt fólk hefur búið
við daglega. Óttinn við að her-
maður skjóti eða hryðjuverka-
maður stingi í bakið. Ef ekki
þyrfti lengur að senda ísraelsku
bömin í hermannafylgd með
hríðskotabyssu á söfnin og ekki
að búa við óttann við að Palest-
ínubörnin verði skotin þó þau
fari út og kasti gijóti. En til
þess eins að ganga fram fyrir
skjöldu og segja það upphátt
hafa forustumenn beggja þurft
gífuriegt hugrekki, enda hætta
þeir við það eitt lífi sínu, í ljósi
þeirra stóru hópa öfgamanna
beggja megin. Svosem óvíst
hvort þeir komast upp með það.
Þó er það einkum bak-
grunnurinn sem er breyttur.
Mátti glöggt skynja það meðal
hugsandi fólks og ráðamanna á
svæðinu í fyrrahaust. Fall Sovét-
ríkjanna og Flóastríðið hafa ger-
breytt myndinni og gert aðila
auðsærðari og óöruggari. Eftir
fall Sovétríkjanna geta Sýrlend-
ingar, öflugasta arabaríkið, ekki
treyst á fé og vopnabúnað frá
Rússum, PLO fær ekki eftir
Flóastríðið þennan mikla fjár-
stuðning frá Saudi-Aröbunum
sér til uppihalds og ísraelsmenn
geta eftir sama stríð ekki treyst
á að vöm sé í þessum þjálfaða
her þeirra og herbúnaði til að
veija landið. Þá kom nefnilega
í ljós að írakar gátu skotið eld-
flaugum til Tel Aviv og Haifa
og hefðu þeir þá átt kjamorku-
sprengjur í þær hefði enginn
vopnabúnaður eða her dugað
hætis hót. Þetta gerðii skynsam-
ir menn sér ljóst. Áhrifaríkast
er þó eflaust að nú eiga þeir
allir — ísraelar, Jórdanir, Palest-
ínuarabar, Sýrlendingar og Líb-
anir — í fyrsta sinn sameiginleg-
an óvin, íran. Kannski verður
það afdrifaríkast til að neyða þá
til samkomulags. íran stýrir
heittrúarflokkum í öllum löndun-
um, sem beitt er með sívaxandi
ofsa íslamstrúar. Allir óttast for-
ustumennimir þá kvislinga undir
erlendri stjórn innan sinna raða.
Skyldi það duga? Hvað veit ég?
Manni leyfíst þó kannski að
blaðra eins og hinum þegar slík
stórtíðindi gerast. Koma andar-
tak í hlaðvarpann hjá okkur
héma norðurfrá í mynd Shimon-
ar Peresar.
Peres er sá áhrifamanna í
ísrael, sem lengi hefur verið
grunaður um að vilja setjast að
samningaborði, missti fyrir það
forustuna í flokki sínum og for-
sætisráðherraembættið yfír til
hins harðari Rabins. Missir
kannski meira. Hvort einhveijir
vilja borða með honum uppi á
íslandi markar varla djúpt í ljósi
þess.
En hér er líka komin upp ný
staða fyrir þá sem vilja liðsinna
Palestínumönnum í _ raun.
Norðurlöndin, þarmeð ísland,
em að stofna hjálparsjóð til
stuðnings þessu hijáða fólki á
svæðunum sem nú losna úr
kverkataki. Þar veitir svo sann-
arlega ekki af allri hjálp sem
hægt er að veita þessu bláfá-
tæka fólki og Ianghrakta til upp-
byggingar og aðhlynningar.
Gazasvæðið er rétt sunnan við
Ackhelon, þar sem hópur íslend-
inga er við hafnargerð. Þaðan
koma kvölds og morgna verka-
menn yfír. Og nú hafa menn
vonandi innan skamms tækifæri
og möguleika á að sýna með
myndarlegum framlögum beint
til þessa hijáða fólks að þeim
hafí raunverulega ekki staðið á
sama hvernig um það fer.
BALLETT
Kennsla hefst
16. september
Byrjenda- og framhalds-
flokkar frá 4 ára aldri.
Afhending skírteina fer fram
í skólanum miðvikudaginn 15.
sept. kl. 18.00-20.00 og fyrir
4-6 ára laugardaginn 18. sept.
kl. 12.00-14.00.
BALLETTSKÓLI
Guðbjargar Björgvins,
íþróttahúsinu, Seltjarnarnesi.
Ath.
Kennsla fyrir
eldri nemendur
byrjendur og
lengra komna.
Innritun og allar
upplýsingar í síma
620091 kl. 10.00-
16.00 daglega.
Félag ísl. listdansara.
DAGTIMAR I MÆTTI
Vegna aukinnar eftirspurnar höfum vib fjölgab
dag- og morguntímum.
Dagtímar í
MÆTTI '93 -'94:
A - Léttir tímar
B - Miölungs léttir tímar
C - Erfiöir tímar
SALURA
Mánudagar og mibvikudagar:
Kl. 07:00 Morgunleikfimi B
Kl. 09:00 Þolfimi B - C
Kl. 10:00 Leikfimi
Kl. 12:05 Þrekhringur C
Kl. 13:45 Leikfimi, pallatími
Þribjudagar og fimmtudagar:
Kl. 09:15 Leikfimi B
Kl. 10:15 Kvennaleikfimi A - B
Kl. 12:05 Pallahringur B - C
Kl. 13:15 Kvennaleikfimi A - B
. Föstudagar:
Kl. 07:00 Morgunleikfimi B
Kl. 09:00 Þolfimi B - C
Kl. 10:00 Leikfimi
Kl. 12:05 Þrekhringur C
Kl. 13:15 Kvennaleikfimi A - B
Laugardaggr:
Kl. 10:00 Palla pub B - C
Kl. 11:00 Vaxtarmótun og styrking B
Kl. 12:15 ÞrekhringurC
SALUR B
Mánudagar og mibvikudagar:
Kl. 10:15 "Bak, magi, rass, lœri" A - B
Kl. 12:15 Sjúkraþjálfun, gigtarhópur
Kl. 13:15 "Hjartans vegna"
Kl. 15:00 Sjúkraþjálfun, stubningst.
Þribjudagar og fimmtudagar:
Kl. 13:00 Sjúkraþjálfun, gigtarhópur
Kl. 14:00 Konur meb börn á brjósti
Föstudagar:
Kl. 12:15 Sjúkraþjálfun, gigtarhópur
Kl. 15:00 Sjúkraþjálfun, stubningst.
Laugardagar:
Kl. 10:15 Barnshafandi konur og
konur meb börn á brjósti
Kl. 11:15 "Þolfimifjör" B - C
Kl. 12:15 "Hjartans vegna"
Frí barnagœsla! Aukiö aöhald!
Öll kennsla í MÆTTI er í höndum
fagfólks:
ÁSA FÖNN FRIÐBJARNARDÓTTIR
íþróttakennari - Þolfimi og tækjakennsla.
GILLIAN SVEINSSON
íþróttafræ&ingur - Þolfimi.
ELÍAS NÍELSSON
íþróttafræðingur - Umsjón hjartaþjálfunar.
GUÐMUNDUR HELGASON
íþróttakennari - Þrekhringir og tækjaþjálfun.
JENNY ÓLAFSDÓTTIR
Þolfimikennari - Þolfimi og kjörþyngdarhópar.
HLYNUR JÓNASSON
íþróttafræbingur - Þrekhringir og tækjaþjálfun.
MARGRÉT GARÐARSDÓTTIR
Sjúkraþjálfari - Stu&ningstímar.
SÓLRÚN ÓSKARSDÓTTIR
Sjúkraþjálfari - Stu&ningstímar.
ÁSLAUG DÍS ÁSGEIRSDÓTTIR
íþróttakennari - Leikfimi fyrir barnshafandi
konur og eftir barnsburð.
S5SVEGNA
FAXAFEN114 SÍMI 689915