Morgunblaðið - 10.10.1993, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1993
19
og biluð. Þegar skrúfað var frá
krana til að bursta tennurnar vall
út kolbrúnt og ógeðslegt vatn.
Ekki mátti gleyma tannhirðunni
og því keyptu félagarnir kampavín
á 120 krónur flöskuna til að skola
munninn eftir tannburstunina. í
herberginu var lagnastokkur á milli
hæða og var honum illa lokað.
Þessi lagnastokkur reyndist vera
hlaupabraut fyrir fjölda fastagesta
á hótelinu, þótt ekki væri hún
manngeng.
„Fyrsta kvöldið gafst ég upp á
að traðka á kakkalökkunum eftir
að sá sautjándi lá í valnum," segir
Þorgeir. „Eftir það sætti maður sig
bara við ástandið.“ Á hverri hæð
sátu gangaverðir nótt og dag til
að gæta öryggis hótelgesta. Þrátt
fyrir gæsluna urðu tveir íslending-
ar fyrir því að eina nóttina var
farið nákvæmlega í gegnum allan
farangur þeirra og allt hirt sem
hægt var að
koma í verð.
Líklega hafa
föggur þeirra
verið teknar
út úr herberg-
inu meðan
gramsað var í
þeim. Ferða-
félögunum
þótti líklegast
að hótel-
starfsmenn
væru í vitorði
með þjófun-
um, því eng-
inn óviðkom-
andi átti að
komast inn á
herbergin.
Þorgeir var
með ýmsan
fríhafn-
arvarning með sér, snyrtivörur o.fl.
sem freistar. Hann ákvað því að
fela varninginn. Engar læstar hirsl-
ur voru í herberginu og ljóst að
ferðatöskur voru opnaðar eftir
hentugleikum. Þrautalendingin var
að fela dótið undir rúmdýnunni.
Þegar Þorgeir lyfti dýnunni varð
hann þess áskynja að hann deildi
rúmi með fleirum en hann kærði
sig um. Undir rúmbotninum hafði
rotta gert sér hreiður og dregið
þangað ýmsar vistir. Greiður vegur
var undan rúminu í lagnastokkinn
sem þjónaði rottum og kakkalökk-
um. Þorgeir átti ekki annars kost
en að breiða plastpoka yfir hreiðr-
ið, til að loka fyrir ilminn úr bústað
Olgu í brúna pelsinum, eins og
þeir nefndu rottuna, og lagði síðan
dýnuna aftur yfir rottuhreiðrið.
Stórkostleg flugsýning
Flugsýningin á Súkovskí-flug-
velli var sú stærsta sem haldin var
í Rússlandi í ár. Flugvöllurinn
stendur á bökkum fljótsins Moskvu,
um 60 km austan við höfuðborg-
ina. Þeim félögum var sagt að flug-
vélahönnuðurinn Túbolev hafí
þjáðst af ólæknandi stangveiðidellu
og því hafi verið ákveðið að byggja
tilraunaflugvöll fyrir hann nálægt
fljótinu. Völlurinn er gríðarstór, eða
eins og Þorgeir segir: „Þótt braut-
irnar séu ekki nema 120 metra
langar eru þær 5.400 metra breið-
ar!“ Við flugbrautarendana eru
steinsteyptar brautirnar meira en
metersþykkar, enda lenda þarna
stærstu flugvélar í heimi. Aragrúi
flugvéla af öllum gerðum var til
sýnis og á hverjum degi sem sýn-
ingin stóð voru sýnd stórkostleg
flugatriði á öllum gerðum flugvéla.
Á flugbrautunum voru til sýnis
heimasmíðaðar vélar, svifdrekar og
vélknúin fis, tilraunaflugvélar, svif-
flugur, þyrlur af öllum gerðum,
vélflugur, farþegaþotur, geimferja
og mikið af herflugvélum og víg-
búnaði, þar á meðal eldflaugum.
Þorgeir varð heillaður af mörg-
um vélum sem hann sá. Honum
verður tíðrætt um svifflugurnar,
sem sýndar voru í mörgum gerðum,
enda er hann svifflugmaður og á
gamla svifflugu sem hann gerði
upp. Svifflug er mikið stundað í
Rússlandi og ekki óalgengt að
drengir hefji svifflugnám 10 ára
gamlir. Þeir bestu eru valdir úr og
fara 12 til 13 ára gamlir að fljúga
vélflugum. Þeim bestu úr þeirra
hópi býðst síðan að fá orustuflug-
Rúmfélagi
Rottan Olga átti sér hreiður und-
ir rúmi Þorgeirs. Hótelið var
vægast sagt tæplega boðlegt.
þjálfun í flughernum.
Mikil gróska er í smíði tilrauna-
flugvéla og voru sýndar margar
merkilegar nýjungar, bæði í hönn-
un og efnisnotkun. Verðlag í Rúss-
landi hefur verið mun lægra en á
Vesturlöndum. Þess vegna hefur
verið hagstætt að kaupa flugvélar
að austan, en vegna vaxandi vin-
sælda þeirra hefur verðið hækkað.
Margar smávélar, til dæmis Súkoj
31 listflugvélin, þykja með því
besta sem fæst í heiminum í dag.
Reykjavik - ótla stjörnu
borg
Ferðafélagarnir höfðu leigt sér
túlk meðan á dvölinni stóð en hann
var illa mæltur á ensku og fékk
fljótlega frí. Þeir kynntust ungum
manni sem talaði ágæta ensku og
var alveg til í að gerast fylgdarmað-
ur og túlkur á sýningunni.
íslendingarnir höfðu talsverðan
áhuga á að
skoða her-
tækjadeildina
enda ekki á
hverjum degi
sem tækifæri
gefst til að
skoða rúss-
nesk hertól í
návígi. Þarna
Stóðu „Birn-
ir“, sem oft
flugu upp að
lofthelgi ís-
lands á árum
áður, og fleiri
þekktar flug-
vélar. Þorgeir
fékk að setjast
undir stýri á
MiG-29 orr-
ustuþotu,
flugvél sem
hernaðarsérfræðingar hafa talið
mjög fullkomna. Félagarnir fengu
einnig að fara um borð í nýtísku
skriðdreka.
Þarna voru sýndar varnarflaugar
gegn eldflaugum, líkar bandarísku
Patriot-flugskeytunum. Túlkinum
tókst að fá leyfi fyrir tvo Islendinga
að stíga inn í færanlega stjórnstöð
fyrir eldflaugarnar. Stjórnstöðin
var pökkuð af tækjum og tólum
og þar inni sátu tveir hermenn.
Yfirforinginn spurði hvaðan gest-
irnir væru og hváði þegar þeir sögð-
ust vera frá íslandi. „Eigum við
að líta á ísland," spurði hann og
settist við tölvuborð. Hann sló á
lyklaborðið og innan skamms birt-
ist íslandskort á skjánum. „Hvar
búið þið á íslandi?" spurði hann
næst. „í Reykjavík,“ var svarið.
„Reykjavík,“ sagði foringinn og sló
aftur á borðið. Reykjavíkursvæðið
stækkaði út úr kortinu og fyllti
skjáinn. Það vakti athygli Islend-
inganna að á kortinu voru átta
stjörnur merktar með hring og
spurðu þeir hvaða merki þetta
væru. „Þetta eru miðunarpunktar
fyrir kjarnorkuflaugar,“ sagði for-
inginn. Síðan grautaði hann meira
í tölvunni og útskýrði að ein flaug-
in væri úr kjarnorkukafbáti norður
í hafí, önnur frá Kolaskaga og síð-
an röðin niður með Finnlandi. Hann
gat kallað skotbrautir eldflauganna
fram á skjánum og sagði að það
tæki um fimm sekúndur að kalla
fram stöðuna og þrjár sekúndur
að senda ræsimerkið. Þorgeir segir
að sér hafí runnið kalt vatn milli
skinns og hörunds við að sjá þetta.
Þótt það ætti ekki að koma á óvart
að hernaðarveldin hefðu gert við-
búnað við öllum mögulegum uppá-
komum í ófriði, hefði það snert sig
illa að sjá að austur í Rússlandi
hefðu menn haft fyrir því að reikna
út stöðu Reykjavíkur með tilliti til
eldflaugaárásar. íslendingarnir
tveir ræddu stríð og frið við foringj-
ann og sögðu honum að íslending-
ar hefðu verið vopnlaus þjóð í 700
ár. Foringinn sagðist vilja óska að
hann gæti sagt það sama um sína
þjóð, en svo væri aldeilis ekki.
Rússar hefðu orðið að verjast inn-
rásum úr austri og vestri. Á þá
hefðu ráðist tatarar, Mongólar,
Svíar, þýskir krossferðariddarar,
Pólverjar, Napóleon og síðast Hitl-
er. Því teldu þeir nauðsyn að geta
varið hendur sínar, þótt hann sjálf-
ur og eflaust allir óskuðu þess að
til þess kæmi aldrei.
Glæsilegt
tilboð til Kanarí
6. janúar
6 viðbótarhús á Turbo Club
Heimsferðir bjóða glæsilegan aðbúnað á Kanarí 6. janúar í nýjum smáhýsum, Turbo
Club í Maspalomas. Við höfum nú fengið 6 viðbótarhús á þessum frábæra gististað, en
öll gisting okkar þar seldist upp í síðustu viku. Bókaðu strax og tryggðu þér frábært
vetrarfrí með Heimsferðum á Kanarí.
6. janúar - 3 vikur
Verð kr. 42.300,-
pr. mann m.v. hjón með 2 börn, 2-14 ára, Turbo Club.
Verð kr. 59.700,-
pr. mann m.v. 2 í íbúð. Turbo Club.
18. des. - lólaferð
SIÐUSTU SÆTIN
Verð kr. 59.800,-
pr. mann m.v. hjón með 2 börn, 2—14 ára. Las Isas.
Verð kr. 75.200,-
pr. mann m.v. 2 í íbúð, Las lsas.
HEIMSFERÐIR hf.
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600
Brottfarir:
18. desember
6. janúar
27. janúar
17. febrúar
10. mars
24. mars
Flugvallaskattar og forfallagjald
fullorðinna kr 3.630 barna kr. 2.375.
air europa
i TURAUIA
John Fraser-Robinson
í febrúar sl. fengu yfir 200 íslendingar að kynnast
kenningum þessa heimsþekkta og eftirsótta
markaðsmanns og óskuðu eindregið eftir frekari
fræðslu hans.
Stjómunarfélagið býður nú tvær námsstefnur
sem JFR nefnir.
, ,The Secrets of Effective Direct Mail“
19. október nk. kl. 9—17
JFR mun fjalla nánar um ýmsa þætti beinnar
markaðssóknar (Direct Marketing), með aðaláherslu
á MARKPÓST (Direct Mail). Þetta er námsstefna
sem hlotið hefur miklar vinsældir víða um heim og
hefur verið aðalnámsefnið á alþjóölegri ráðstefnu
um beina markaðssókn í London undanfarin ár.
Verð kr. 15.000,-
og
„The JFR Masterclass“
21. október nk. kl. 9—17.30
Hér verður fjallað ítarlega um aðferðafræði beinnar
markaðssóknar þar sem JFR mun sjálfur vinna með
þátttakendum að raunhæfum verkefnum þeirra í
vinnuhópum.
Verð kr. 18.000,-
Staöur: Hótel Saga, Þingstofa A
Fjöldi takmarkaður
Skráning og nánari upplýsingar í síma 621066