Morgunblaðið - 10.10.1993, Side 29
29
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1993
Pétur Ingi Þorgils
son - Minning
Pétur, minn kæri vinur. Nú ert
þú horfinn á vit hins óþekkta, en
minninguna úm þig mun ég ávallt
geyma í brjósti mér. Það er sárt
að sjá á eftir þér, þú sem varst
svo hjartahlýr og einlægur. Fyrir
þér voru tilfinningar og skoðanir
allra jafn merkilegar, og gerði það
persónuleika þinn sérstaklega
aðlaðandi.
Þótt ég hafi aðeins þekkt þig í
fjögur ár, kynntist ég vel hæfíleik-
um þínum á sviði tónlistar og
myndlistar og bera teikningar þín-
ar í Faunu og lögin þín á árshátíð-
arplötunum því vitni að listagyðjan
átti hug þinn allan.
Þrátt fyrir þínar framúrskar-
andi listagáfur minnist ég þín bezt
sem sanns og góðs vinar. Vinar
sem alltaf hafði lag á að gleðja
aðra með einstakri kímnigáfu og
græskulausum galsa.
Ég votta aðstandendum Péturs
mína dýpstu samúð. Ég þakka
guði fyrir að hafa kynnst Pebba
og tel mig auðugri mann á eftir.
Þín verður sárt saknað.
Þinn vinur,
Brynjar Agnarsson.
Vinarkeðja
Ef sérð þú bros sem blítt um vanga leikur
blik í augum eins og stjörnur Ijóma
ef finnur þú ást sem guðleg áhrif hefur
þá er þér hollt að kjósa tryggan vin
svo verði létt að bera lífsins byrði
blíðu miðla þeim sem hjarta ann
án vina oft er lífið erfitt en ljúft
við munum ætíð bróðurkærleikann.
Með þökk fyrir stutt en yndisleg
kynni.
Hörður Sigurðsson.
Mig langar til þess að minnast
vinar míns, Péturs Inga Þorgils-
sonar, með nokkrum orðum.
Pétur var einlægasta og ijúfasta
manneskja sem ég hef kynnst, það
vita allir sem til hans þekktu. Ég
man hvað hann var hamingjusam-
ur yfir því að hafa komist inn í
Myndlista- og handíðaskólann. Þú
teiknaðir svo vel, Pétur.
Hann sagði mér eitt sinn, en tók
það skýrt fram að hann vildi ekki
vera með nein merkilegheit, að
hann væri einn af bestu teiknurun-
um í skólanum. Það dró ég ekki
í efa. Pétur kom fram við alla sem
jafningja. Allir elskuðu hann.
Pétur hafði yndi af að spila á
gítar og píanó. í MR var hann,
oftar en ekki, fenginn til þess að
semja, ásamt æskuvini sínum
Krissa, Árshátíðarlög eða fyrir
leiklistarklúbb MR, Herranótt. Ein
fallegasta tónlist sem ég hef heyrt
eru tónsmíðar Péturs og Krissa
fyrir Herranótt í leikverki sem hét
Drekinn. Allt sem kom frá Pétri
var sérstakt.
Pétur minn. Ég mun aldrei
gleyma þér né þeim minningum
sem þú gafst mér. Það er sárt að
hafa þig ekki hjá okkur.
Ég vil votta aðstandendum Pét-
urs mína dýpstu samúð um leið
6g ég kveð vin okkar með hans
eigin orðum:
Andartaksins augnablik
líður hjá í gepum tímann
safnast saman inn í mér,
fer með mig inn í eilífðina.
nú er komin stóra stundin
og allir eru eins
já, allir nema ég.
Jón Indriðason.
Glókollur, ég hef aldrei getað
sagt þér hve vænt mér þótti um
þig og þykir enn. Að leiðarlokum
er ekkert sem ég get sagt,,_brott-
nám þitt lamar hugann. Ég bið
góðar vættir að vernda þig, vinur
minn, og vonast til að hitta þig
einhvern tíma aftur.
Kristín Vilhjálmsdóttir.
Líf hans var fagurt, allir eðlis-þættir
spunnir af slíkum næmleik Náttúrunnar
að hún má segja hnarreist öllum heimi:
Þetta var maður!
(William Shakespeare ísl./þýð. Helgi
Hálfdanarson)
Elsku Pétur okkar.
Takk fyrir skóladagana og helg-
arnar sem við áttum saman í MR.
Takk fyrir árshátíðirnar, nem-
endatónleikana, söngvakeppnirn-
ar, skíðaskálaferðir, Portúgalsferð
og allar uppákomur sem þú
skemmtir okkur vinum þínum á.
Takk fyrir lögin þín, ljóð og
myndir.
Takk fyrir brosið þitt og hlátur.
Takk fyrir að þú varst til.
Þú varst engill.
Við vottum foreldrum Péturs,
ömmu, ættingjum og öllum vinum
hans okkar innilegustu samúð.
Guð styrki ykkur öll í þessari miklu
sorg.
Linda, Kristbjörg Kari,
Margrét, Hulda, Helga.
Pétur Ingi Þorgilsson var nem-
andi í Hagaskóla 1986-1989, þar
af var hann nemandi í umsjónar-
bekk mínum fyrstu tvö árin. Þetta
var duglegur, líflegur og litríkur
bekkur, sem ég mun seint gleyma.
Átti Pétur sinn þátt í því að gera
hann svo eftirminnilegan.
Það sem ber hæst í minningunni
um Pétur er ljúfmennið og listmað-
urinn. Pétur var hvers manns hug-
ljúfi, ávallt elskulegur og bros-
andi. Og svo var hann sífellt teikn-
andi. Hann teiknaði m.a. frábæra
forsíðu á skólablaðið Hugin 1989
og gerði snilldarlega auglýsingu
fyrir jólagleði skólans, svo góða
að hún er enn varðveitt í skólan-
um. Ég gladdist því þegar ég frétti
að Pétur væri orðinn nemandi í
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands. Þar hefði honum farnast vel
ef honum hefði enst aldur til.
Nú er Pétur horfinn frá okkur
en minningin um góðan dreng mun
lifa áfram í huga okkar. Ég votta
aðstandendum innilega samúð
mína.
Margrét Matthíasdóttir.
Það var á sunnudaginn 26. sept-
ember er ég frétti af þessu hrika-
lega slysi. Þetta var og er mikið
áfall, maður er enn það ungur að
svona mikill ástvinamissir er sem
högg á tilveru manns.
Ég kynntist Pétri í átta ára bekk
í Melaskóla og var þá nýr í bekkn-
um og í skólanum. Strax í Mela-
skóla var Pétur þekktur fyrir
myndlistargáfur sínar. í tólf ára
bekk teiknaði hann andlitsmyndir
af mér sem enn þann dag í dag
svipar svo til mín að allir sem
þekkja mig í sjón þekkja mig á
myndinni.
Áfram varð ég þeirrar ánægju
aðnjótandi að fylgja Pétri í skóla
og nú var það Hagaskóli. Á þessum
þremur árum var Pétur farinn að
finna sig í tónlistinni og safna sam-
an ótrúlegu safni af hljóðfærum.
Snemma sýndi hann fram á
óvenjulega gáfu í þessum hluta
listaheimsins líka.
Síðan var ég þrjú ár í MR sam-
hliða honum og þar fylgdist ég
með honum þar sem hann þroskað-
ist bæði í myndlist og tónlist.
Ljóst er að Pétur skilur eftir sig
stórt skarð í hugum allra sem hann
þekkti. Sannur gleðigjafi og yndis-
leg persóna. Mun ég heiðra minn-
ingu hans um ókomna tíð.
Vil ég ljúka -með að votta Ás-
laugu og öðrum ættingjum Péturs
dýpstu samúð mína.
Olafur Tryggvason.
Sú hörmulega frétt barst okkur
sunnudaginn 26. september að
æskuvinur okkar, Pétur Ingi Þor-
gilsson, hefði látist af slysförum
um nóttina. Missir þvílíkrar perlu
sem Pétur var er þung byrði að
bera og engin orð geta lýst harmi
okkar yfir grimmd örlaganna.
Vinskapur okkar hófst á barna-
heimilinu Hagaborg þegar við vor-
um þriggja ára gamlir og höfum
við verið eins og bræður síðan.
Pétur var ákaflega góðlyndur og
tryggur vinur. Frá unga aldri var
hann listrænn með afbrigðum og
hæfileikar þans á þeim sviðum
duldust engum. Hann vildi engum
illt og fór ekki í manngreinarálit.
Af þeim sökum var hann ákaflega
vinsæll og vel liðinn. Hann var
mikill gleði- og ævintýramaður og
þegar hann fékk góða hugmynd
framkvæmdi hann hana án tafar.
Engan, sem til hans þekkti, lét
hann ósnortinn af hugmyndaauðgi
sinni. Hann hafði einstaka hæfi-
leika til þess að skapa létt og glað-
vært andrúmsloft og lét einskis
ófreistað til að skemmta sjálfum
sér og öðrum.
Betri og skilningsríkari vin en
Pétur er ekki hægt að hugsa sér,
ósérhlífinn og ávallt til fyks þegar
til hans var leitað. Það voru mikil
forréttindi að hafa fengið að
þekkja hann á hans stuttu ævi.
Hann var einstakur á allan hátt
og fór ótroðnar slóðir í öliu sem
hann tók sér fyrir hendur. Pétur
mikla kallaði hann stundum sjálfan
sig í gríni, en í okkar huga mun
hann ávallt vera mikill. Hvað um
okkur mennina verður eftir dauð-
ann vitum við ekki en vonum af
öllu hjarta að Pétur hafi það gott
og að hans einstöku hæfileikar fái
að njóta sín. Við kveðjum vin okk-
ar Pétur með þeirri einlægu ósk
að handan móðunnar miklu liggi
leiðir okkar saman aftur.
„Það er afar fallegt þarna fyrir
handan.“ — Thomas Edison á
banasænginni.
Þínir vinir,
Ulfar og Sigurður Freyr.
Til sölu Barónsstígur 20
Gamalt og hlýlegt timburhús
í miðbæ Reykjavíkur ásamt
frístandandi verslunarrými.
Húsið, sem býður upp á mikla
mögul., verður öllum áhuga-
sömum til sýnis í dag sunnu-
dag frá kl. 13.00-18.00.
Áhvílandi hagstæö lán 3,6
millj. Verð aðeins 5,6 millj.
Líttu inn!
hOLl
FASTEIGIMASALA
BORGARTÚNI 18 3 H. (Húsl Spsrlsjóös vélstjóra)
® 10090
-
Skyndibitastaður - ísbúð
Til sölu skyndibitastaður og ísbúð í hjarta borgarinnar.
Kjörið fyrir þá sem vilja skapa sér sjálfstæðan atvinnu-
rekstur. Gott verð. Nætursala um helgar.
Fasteignamarkaðurinn hf.,
Óðinsgötu 4, símar 11540 og 21700.
Sumarbústaður við Þingvallavatn
Vorum að fá í sölu mjög vandaðan og vel byggðan 65
fm sumarbústað á undurfögrum stað suður af Valhöll.
Bústaðurinn stendur á 3100 fm landi sem liggur að
Þingvallavatni á einum eftirsóttasta stað innan Þjóð-
garðsins. Mikill trjágróður. Einstakt tækifæri að eign-
ast sumarbústað á þessum stað.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Fasteignamarkaðurinn hf.,
Óðinsgötu 4, símar 11540 og 21700.
J
HÚSNÆÐISNEFND
KÓPAVOGS
Fannborg 4 - 200 Kópavogi - sími 45140
[fl
m tKHE mm mm
m mor iL k Kim mK mm)
m Fþm
UMSOKNIR
Húsnæðisnefnd Kópavogs óskar eftir
umsóknum um kaup á:
Félagslegum eignaríbúðum.
Félagslegum kaupleiguíbúðum.
Almennum kaupleiguíbúðum.
Félagslegum og almennum kaup-
leiguíbúðum, ætluðum öldruðum.
Um er að ræða 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúð-
ir sem eru í byggingu við Lindarsmára og
Arnarsmára í Kópavogi. Umsóknirnar gilda
einnig fyrir eldri íbúðir, sem koma til endur-
sölu á árunum 1993 og 1994.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu
Húsnæðisnefndar Kópavogs, Fannborg 4,
alla virka daga milli kl. 9-15 og þar verða
einnig veittar allar almennar upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember nk.
Athugið að allar eldri umsóknir falla úr gildi.
Husnæðisnefnd Kópavogs.
íbúðir fyrir 60 ára og eldri
í Árskógum 6 og 8 í Suður-Mjódd
1 w
£É'
!*i' m • I k
1 ® ■ W' *
■lí*
‘ *;f * ÍÍ - § r
5:- ■ ~
■:
Enn eru til nokkrar 4ra herb. íbúðir sem eru 104 fm
nettó og 130 fm brúttó að stærð á hinum ýmsu hæðum.
Sérgeymsla í kjallara. Frábært útsýni. Stutt í verslanir.
Fullkomin þjónustumiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar.
íbúðirnar eru til afh. nú þegar.
Allar upplýsingar gefur Svan Friðgeirsson á skrifstofu
Félags eldri borgara, Borgartúni 31, á virkum dögum
kl. 9-12 og frá 14-16.00.
WAAC,
i:u )ui
HOIKiARV
Söluskrifstofa,
Borgartúni 31, sími 621477.