Morgunblaðið - 10.10.1993, Síða 39

Morgunblaðið - 10.10.1993, Síða 39
MORGUNBLÁÐIÐ ÍÞRO Í 'i ÍR SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1993 \ ) ) > I í » > > I n I i I I h orð að sönnu og erfitt er að vor- kenna manni, sem á síðasta leik- tímabili fékk greiddar fjórar millj- ónir dollara (280 milljónir kr.) fyrir að rekja bolta og troða honum gegnum gjörð með neti og allt að því 50 milljónir (3.500 milljónir kr.) að auki í auglýsingatekjur fyrir það eitt að vera frægur. Fylgif iskar f rægðarinnar Hins vegar er frægðin ekki alltaf tekin út með sældinni. Jordan getur hvergi farið án þess að flykkist að honum aðdáendur, hvort sem hann er staddur í Chicago eða Tókýó. Hann verður að fara í verslanir eft- ir að þeim hefur verið lokað og yfirlýsingar ýmissa um að hann væri fánaberi bandarísks körfu- knattleiks juku þrýstinginn. Charles Barkley, sem margir segja að sé arftaki Jordans, sagði að hann hygðist ekki láta „ýta sér út í fiskabúr" þar sem hann yrði öllum til sýnis _ef hann fengi ein- hveiju ráðið. „Ég vil aldrei vera í sömu stöðu og Michael þar sem ég get ekkert gert,“ sagði Barkley, sem leikur með Phoenix Suns og var tekinn fram fyrir Jordan þegar valinn var mikilvægasti leikmaður deildarinnar síðasta kjörtímabil. En Jordan hefur ekki aðeins orð- ið fyrir barðinu á trylltum aðdáend- um. Fjölmiðlar hafa einnig verið honum misnáðugir og á blaða- mannafundinum á miðvikudag lét hann blendnar tilfinningar sínar í þeirra garð hvað eftir annað í ljós. Undanfarin tvö ár hefur verið reynt að höggva skarð í brynju konungs háloftanna. Fyrir einu ári kom út bókin Jordan Rules, sem bæði mætti þýða Jordan ræður og Reglur Jordans, þar sem honum var lýst sem einræðisherra í búnings- klefanum. Víst er að nokkur óánægja var meðal leikmanna og Jordan gagnrýndi félaga sína meira að segja opinberlega fyrir að treysta um of á að hann myndi ávallt koma til bjargar. Hins vegar tókst liðinu greinilega að skilja þessar deilur eftir utan vallar. Ánnars hefði Chicago Bulls ekki tekist að krækja í meistaratitil þtjú ár í röð. Vafasamir vinir Þrálátar ásakanir um sjúklega veðmálafíkn hafa verið öllu lífseig- ari. Jordan er greinilega til í að veðja um hvað sem er og hefur þessi árátta hans komið honum í vafasaman félagsskap. Árið 1992 fundu yfirvöld ljósrit af ávísunum gefnum út af Jordan að andvirði 104 þúsund dollara í fórum Eddies Dows, ábyrgðarmanns fyrir fólk, sem fær að ganga laust gegn trygg- ingu. Dow hafði verið myrtur. Bróð- ir Dows og lögfræðingur sögðu hvor tveggja að ávísununum hefði verið ætlað að greiða spilaskuldir. I fýrra varð einnig uppvíst um tengsl Jordans við James „Slim“ Bouler, dæmdan kókaínsala og sí- brotamann. Bouler og Jordan léku golf saman, en nú situr sá fyrr- nefndi í fangelsi fyrir ijárþvott og vopnaskak. Jordan neitaði í fyrstu að hafa greitt þessum manni krónu, en viðurkenndi í réttarhöldunum yfir Bouler í október fyrir ári að hafa skrifað ávísun upp á 57 þús- und dollara til að borga golf- og pókerskuldir. Ef vinskapur Jordans við þessa tvo reyndist hæpinn keyrði vinátta hans við Richard Esquinas, kaup- sýslumanns frá San Diego, um þverbak. Esquinas mat vináttu sína við Jordans svo mikils að hann ákvað að gefa út bók, sem var titl- uð Michael og ég: Fjárhættuspila- fíkn okkar . .. kall mitt á hjálp og kom út í júni. Þar kveðst Esquinas hafa leikið golf upp á peninga við Jordan á nokkurra mánaða tímabili árið 1991 og eitt sinn hafi Jordan skuldað sér 1,25 milljónir dollara eftir tíu daga spilamennsku. Þeir hafi síðan samið um að Jordan greiddi 300 þúsund dollara og hann hafi fengið 200 þúsund greidda. Jordan viðurkenndi að hafa spil- að upp á peninga við Esquinas, en sagði þær fjárhæðir, sem hann nefndi, fráleitar. Enn fremur kvaðst Jordan harma að meintur vinur sinn „skuli notfæra sér nafn mitt á svo ósvífinn hátt“. Esquinas neitaði vitaskuld að hafa gróðasjónarmiðið eitt að leið- arljósi. Hann kvaðst hafa tekið á spilafíkn sinni og vildi einfaldlega hjálpa „vini sínum“ til að gera slíkt hið sama. NBA hefur engar reglur sett um leikmenn og fjárhættuspil, en í klásúlu deildarinnar um eiturlyf segir að taka verði hart á neyslu þeirra vegna þess að þau geti leitt til fjárhættuspila. Deildin hóf rann- sókn á því hvort Jordan hefði eitt- hvað brotið af sér, en henni var slegið á frest þegar faðir háns fannst myrtur í ágúst. Heyrst hefur að sú rannsókn verði til lykta leidd hvort sem Jordan sé hættur eða ekki, en hann hefur sjálfur hent gaman að rannsókninni og fyrst hann tekur hana ekki alvarlega gera það víst fáir aðrir. Viðbrögð almennings virtust vera á þann veg að ekki bæri að gera úlfalda úr mýflugu. Spilaskuldir Jordans jöfn- uðust á við það að verkamaður keypti sér lottómiða. Umræðan um Jordan og.fjár- hættuspilin fékk hins vegar byr undir báða vængi þegar hann brá sér eina kvöldstund frá New York til spilavítanna í Atlantic City með- an á úrslitaviðureign Chicago Bulls og New York Knicks um besta lið Atlantshafsdeildarinnar stóð í vor. Nú spruttu áhugasálfræðingar alls staðar fram í dagsljósið og kváðust greina öll einkenni spilasýki. Jordan svaraði þessu með því að veita Knicks rothöggið, sem tryggði þeim réttinn til að spila við Phoenix Suns og greiddi götuna til þriðja meistaratitilsins. Föðurmissir James Jordan var myrtur í kyrr- stæðri bifreið sinni í Norður-Karól- ínu 23. júlí. Lík hans fannst 3. ágúst en kennsl voru ekki borin á föður Jordans fyrr en 13. ágúst. Hafði fjölskylda Jordans ekki látið vita að hans væri saknað og í fjöl- miðlum var talað um að hann ætti til að láta sig hverfa um leið og ýjað var að því að hann hefði gam- an af fjárhættuspilum. Dularfullar kringumstæður gátu af sér alls kyns vangaveltur og var því meira að segja haldið fram að morðið tengdist veðmálum og spilaskuldum sonarins. Nú er komið í ljós að tveir átján ára drengir frömdu morðið og það komi hvorki spilaskuldum né skipulagðri glæpastarfsemi við. Þetta mál herti hins vegar af- stöðu Jordans til íjölmiðla og á títt- nefndum blaðamannafundi sínum sagði hann að þeir hefðu „ekki sam- úð með venjulegu fólki“. Faðir Jordans var jafnframt besti ráðgjafi hans og vinur. Faðir hans var aldrei langt undan þegar Jordan kleif hæstu tinda íþróttar sinnar. Jordan sagði að það væri sér mik- ils virði að faðir sinn hefði séð sinn síðasta leik og vitnaði nokkrum sín- um til þeirra ráða, sem faðir hans hefði gefið sér. Föðurmissirinn hef- ur sennilega haft meiri áhrif á ákvörðun Jordans um að hætta en hann lætur í veðri vaka. Umfjöllun- in um spilaskuldirnar hefur ugg- laust haft einhver áhrif líka, sem og það að geta ekki komið fram á almannafæri án þess að eiga á hættu að vera rifinn á hol af geggj- uðum aðdáendum. Einhvern veginn er erfitt að trúa því að maður, sem sýnt hefur slíka yfirburði á leikvellinum, skuli geta hamið sig og ákveðið að hætta. Hann kvaðst vilja hætta áður en hann færi að dala. Ef til vill óttað- ist hann að geta ekki leitt lið sitt til sigurs í fjórða skiptið í röð. Jord- an ' getur hins vegar ekki vænst þess að nú slokkni á sviðsljósinu eins og hendi væri veifað og hann geti farið sinna ferða óáreittur. Þótt Jordan hætti á besta aldri skilur hann eftir sig metaslóð og, sem meira er um vert, var hann fær um að gera hluti, sem enginn gat leikið eftir, en allir vildu geta gert. Hann gat stokkið upp við vítateig, snúið sér í heilhring og troðið bolt- anum í körfuna; hann lék vörn sem engill, stal boltanum af andstæð- ingnum eins og refur og var óstöðv- andi eins og eimreið. „Ég get ekki stöðvað hann, bara reynt að vera fyrir,“ var viðkvæðið hjá þeim, sem fengu það verkefni að gæta hans á vellinum. Vilji hans til sigurs var sagður óbilandi (nú er hann víst bilaður) og félagar hans sögðu að hann lyfti þeim upp á hærra plan. Jordan hefur niðurlægt margan andstæð- inginn með yfirburðum sínum og sagt er að hann hafi lagt varamann sinn Rodney McCray í rúst á æfing- um. „Hann öskrar á hann „þú ert aumingi, þú hefur alltaf verið aum- ingi!“ og Rodney þorir varla að skjóta lengur,“ sagði ónefndur leik- maður Bulls á síðasta keppnistíma- bili. En Jordan hefði aldrei komist áfram án þessa vilja og nú er spurn- ingin hvort viljinn til sigurs er horf- inn með öllu eða Jordan þurfi að- eins að safna kröftum áður en hann heldur til nýrra afreka. Reutcr Jordan hefur m.a. verið líkt við Babe Ruth, hornaboltaleikmann, en körfu- boltahetjan kastaði síðasta boltanum í hornaboltaleik Chicago og Torontó s.l. þriðjudag og hér undirbýr hann kastið. Innilegustu þakkir, til allra sem glöddu mig með margvíslegum hœtti á 90 ára afmceli mínu 23. september sl. Guðrún Auðunsdóttir frá Stóru-Mörk. Hjartans þakkir til allra þeirra sem glöddu mig á 80 ára afmœli minu 28. september sl. meÖ nœrveru sinni, blómum, gjöfum oggóÖum kveÖjum. GuÖ blessi ykkur öll. Ragna Jónsdóttir. Ég þakka af alhug, þeim fjölmörgu sem sýndu mér hlýju og glöddu mig á 100 ára afmceli mínu hinn 28. september sl. GuÖ blessi ykkur öll. Stefanía Einarsdóttir, Suðurgötu 85, Hafnarfirði. O © JAFNRÉTTISRÁÐ BÝÐUR TIL JAFNRÉTTISÞINGS Á HÓTEL SÖGU DAGANA 14. OG 15. OKTÓBER 1993 fró kl. 10.00-17.00 bóðo dagono Fimmtudagur: Kl. 10.15 Setning - Lára V. Júlíusdóttir, formaður Jafnréttis- ráðs. Avarp félagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurðar- dóttur. Jaf nrétti i atvinnulif inu - ávarp frá aáilum vinnumarkaóarins. Magnús Gunnarsson, formaður Vinnuveitenda- sambands Islands og Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambands Islands. Orðið frjálst - almenn skoðanaskipti. Kl. 13.15 Staáa kvenna á vinnumarkaði. Erindi: Kynskipt verkalýðsfélög - árangursrík leið fyrir konur? Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, félagsfræðingur. Hugleiðingar: Elínbjörg Magnúsdóttir, formaður fiskvinnsludeildar Verkalýðsfélags Akraness og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þingkona Kvennalist- ans. Orðið frjálst - almenn skoðanaskipti. Kl. 15.45 Konur - stjérnmál - áhrlf - völd. Erindi: Staða kvenna í stjórnmálum - þörf á nýjum leiðum? Siv Friðleifsdóttir, bæjarfulltrúi og Olína Þorvarð- ardóttir, borgarfulltrúi. Hugleiðing: Olafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins. Ávarp: Davíð Oddsson, forsætisráðherrra. Orðið frjálst - almenn skoóanaskipti. Föstudagur: Kl. 10.00 Fjölskyldan, hlutverk kvenna. Erindi: Hagsmunir og hollustubönd. Dr. Sigrún Júlíusdóttir, lektor. Hugleiðingar-. Árni Sigfússon, borgarfulltrúi og Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur. Orðið frjálst - almenn skoðanaskipti. Kl. 13.15 Leiðlr í jafnréttisbaráttunni - Hvaó nú? Elsa S. Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri skrifstofu jafnréttismála. Inga Jóna Þórðardóttir, formaður Kvenréttinda- félags Islands. Þorsteinn Antonsson, rithöfundur. Telma L. Tómasson, fréttamaður. Orðið frjálst - almenn skoðanaskipti. Kl. 17.00 Þingslit. JAFNRÉTTiSÞING IR ÖUUM OPIÐ OG ERU ÞEIR, SEM HAFA ÁHUGA Á AÐ KOMA OG HLUSTA Á ATHYGLISVERÐ ERINDI, TAKA ÞÁTT Í UMRÆÐUM OG HAFA ÁHRIF Á ÞRÓUN ÞESSA MÁLAFLOKKS, HVATTIR TIL AÐ SKRÁ SIG. SKRÁNING Á SKRIFSTOFU JAFNRÉTTISMÁLA ÍSÍMA 91-27420.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.