Morgunblaðið - 03.11.1993, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993
9
Fransklr
flríaáii'Kf ólar
TESS
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
622230.
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
Þú getur líka tekib
þátt í vikulegum
útbobum á
ríkisverbbréfum
Einstaklingar eins og aðrir geta
ávaxtab peningana sína í vikulegum
útboðum á ríkisvíxlum, ríkisbréfum og
spariskírteinum ríkissjóðs.
Útboðin fara þannig fram að löggiltum
verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa-
miðlurum, bönkum og sparisjóðum
gefst kostur á að gera tilboð í bréfin
samkvæmt tilteknu tilboðsverði, en
aðrir sem óska eftir að gera tilboð í
bréfin geta haft samband við
ofangreinda aðila sem munu annast
tilboðsgerð fyrir þá.
Fjárfesting í ríkisvíxlum og ríkisbréfum
er tilvalin fyrir einstaklinga sem eru t.d.
á milli fjárfestinga og vilja ávaxta
peningana sína til skemmri eða lengri
tíma á meðan.
- Lánstími ríkisvíxla er 3, 6 og 12 mánubir.
- Lánstími ríkisbréfa er 2 ár.
Der falsche Mann,
das falsche Signal
Deilt um Heitmann
Hefð er fyrir því að litlar deilur séu í kring-
um forsetakosningar í Þýskalandi. Flokk-
arnir hafa í gegnum tíðina oftast komið
sér saman um einn heppilegan frambjóð-
anda, sem allir geta sætt sig við. Nær
undantekningalaust hefur hann komið frá
þeim flokki, sem fer með völdin hverju
sinni. Ef forsetanum verða ekki á nein
stórvægileg mistök á fyrsta fimm ára
kjörtímabilinu, hefur hann líka allt að því
sjálfkrafa verið endurkjörinn á því næsta.
Á þessu hefur nú orðið breyting. Richard
von Weiszácker, Þýskalandsforseti und-
anfarinna tíu ára, lætur af embætti á
næsta ári og hefur Kristilegi demókrata-
flokkurinn, CDU, útnefnt Steffen Heit-
mann, dómsmálaráðherra í Saxlandi í
austurhluta landsins, sem forsetaefni
sitt. Forystumenn annarra stjórnmála-
flokka hafa lýst yfir mikilli óánægju með
það val og einnig hefur borið á gagnrýni
innan CDU.
Mistök Kohls
í nýlegn heftí vikurits-
ins Die Zeit ritar einn
þingnianna Kristílega
demókrataflokksins, Fri-
edbert Pfliiger, grein, þar
sem hann segir Heitmann
ekki vera rétta frambjóð-
andann. Pfluger, sem
var blaðafulltrúi forseta-
embættísins 1981-1989,
segir Kohl hafa gert mi-
stök og nefnir nokkur
dæmi um að skoðanir
Heitmanns gangi þvert á
skoðanir Kohls. CDU hef-
ur markað sér stöðu í
þýskum sljórnmálum sem
hinn „sígildi Evrópu-
flokkur" og Maastricht-
samkomulagið er einn af
hornsteinum hins póli-
tiska ævistarfs Helmuts
Kohls. Yfirlýsingar Heit-
manns hafa margar
hverjar gengið þvert á
þessa stefnu.
Forsetaefnið tilvonandi
hefur einnig gefið í skyn
að hann hafi hug á að
einbeita sér sérstaklega
að málefnum kvenna og
þá með það að markmiði
að vinna gegn ýmsum við-
teknum skoðunum. „Frá
og með kvennaflokks-
þinginu í Essen árið 1985
er CDU flokkur, sem
berst fyrir jafnrétti kynj-
anna,“ segir þingmaður-
inn. „Helmut Kohl hefur
allt frá því lagt áherslu á
ýmis atriði sem enn há
konum á vinnumarkaðin;
um í ræðum sínum. í
ræðu hjá kvennasam-
bandinu þann 14. janúar
1989 kvartaði hann meira
að segja yfir að ekki væri
að finna nógu margar
konur í æðstu stöðum
þjóðfélagsins. Steffen
Heitman telur hins vegar
að konur geti ekki tekið
yfir „þjóðfélagskerfi okk-
ar sem karlmenn hafa
ráðið yfir í þúsundir ára“
og krefst þess í staðinn
að „móðurhlutverkið
verði aftur að þunga-
miðju samfélagsins“.
Spurt hefur verið:
Hvað mælir gegn því að
leggja áherslu á móður-
hlutverkið? Börn þarfn-
ast, þegar öllu er á botn-
inn hvolft, umhyggju af
hálfu foreldra. Það er al-
veg rétt. En einmitt þess
vegna telur CDU að þetta
eigi við um feður jafnt
sem mæður. Af hveiju
ekki að styrkja föðurhlut-
verkið? Og það má líka
spyija hvort að kristilegir
demókratar hafi nokkurn
timann vanmetíð mikil-
vægi mæðra?“
Pfluger nefnir einnig
ummæli Heitmanns um
útlendinga. Er haim
heimsóttí Stuttgart árið
1990 lét hann þau orð
falla að hann efaðist um
að hann „væri enn heima
lýá sér“ vegna mikils
fjölda litra innflytjenda á
götunum. Þremur árum
siðar segist hann standa
við þessi orð en að hann
hafi vissulega „vanist“
innflytjendum. Þingmað-
urinn viðurkennir að
vissulega endurspegli
þessi ummæli Heitmanns
þær tílfinningar sem búi
í bijóstí margra Þjóð-
veija. Hins vegar megi
spyija hvort að það hæfi
verðandi forseta að gera
slíkar tílfinningar að sín-
um eigin. Hann segir
Helmut Kohl hafa brugð-
ist þveröfugt við. Hann
hafi reynt að grípa tíl
aðgerða til að draga úr
straumi innflytjenda en
samtímis reynt að sefa
ótta fólks, taka fram að
bera eigi virðingu fyrir
öllum mönnum óháð litar-
hættí og benda á að án
erlendra verkamanna
myndu Þjóðverjar ekki
búa við þau lífskjör sem
raun bæri vitni.
Einstæð sögn-
túlkun
Sögutúlkanir Heit-
manns hafa loks valdið
mikilli reiði í Þýskalandi.
Hann hefur lýst þeirri
skoðun að menn eigi ekki
endalaust að vera að velta
sér upp úr nasistatiman-
um og að Þýskaland eigi
ekki að hafa einhveija
sérstöðu til eilífðar.
Vissulega hafi morðin á
tveimur milljónum gyð-
inga verið „einstæður"
atburður. „Það eru samt
tíl fjölmargir einstæðir
sögulegir atburðir. Hins
vegar er ekki tíl söguieg
endurtekning," sagði
Heitmann.
Pfliiger telur að með
þessu hafi hann gert Iítíð
úr helförinni gegn gyð-
ingum. Þar sem hann telji
alla sögulega atburði ein-
stæða verði ummæli hans
marklaus.
Alls staðar
mótsögn
„Evrópumál, kvenna-
mál, innflytjendamál, nas-
istafortíðin. Alls staðar
er Heitmann í greinilegri
mótsögn við Helmut
Kohl. Og ekki bara það:
Skoðanir hans ganga
þvert á þá almennu sam-
stöðu sem ríkt hefur í
gamla Sambandslýðveld-
inu,“ segir þingmaðurinn.
Vissulega krefjist samein-
ing Þýskalands þess að
menn hugsi hlutina upp á
nýtt, en það þýði hins
vegar ekki að snúa eigi
þeim á hvolf og hverfa
frá þeim gildum sem ein-
kennt hafa Þýskaland frá
könslurunum Adenauer
og Brandt til Kohls og
forsetunum Heuss og
Heinemann til Weizsáck-
ers.
Hann segir Heitmann
vissulega geta átt hlut-
verki að gegna innan
CDU, en hann henti ekki
sem forseti allra Þjóð-
veija. Hann getí ekki ver-
ið fulltrúi þjóðarinnar,
hvorki inn á við né út á
við. Hann sameini ekki
þjóðina heldur sundri.
Pfliiger segir að spurt
hafi verið hvort ekki sé
hreinlega verið að gera
lítið úr óreyndum sfjórn-
málamanni úr austurhlut-
anum. Á það beri samt
að líta að forsetaembætt-
ið sé engin þjálfunarmið-
stöð. Verðandi forsetí
verði frá upphnfi að gera
hlutína rétt.
Lánstími spariskírteina er 5 og 10 ár.
Hafðu samband við starfsfólk
Þjónustumiðstöðvarinnar og það veitir
þér nánari upplýsingar um vikuleg
útboð á ríkisverðbréfum.
ÞJONUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040
ORYGGI, STOÐUGLEIKI
OG GÓÐ ÁVÖXTUN
Á TÍMUM LÆKKANDIVAXTA
Sjóðsbréf 5 henta best þeim sem leggja
áherslu á öryggi, stöðugleika og góða
ávöxtun. Avöxtun sjóðsins hefur verið
mjög stöðug og hefur raunávöxtun hans
síðastliðin tvö ár verið 8,1% á ársgrund-
velli. Lækkandi vextir undanfarið stuðla
jafnframt að áframhaldandi góðri
ávöxtun sjóðsins. Eignir sjóðsins eru
eingöngu ávaxtaðar í verðbréfum með
ábyrgð Ríkissjóðs íslands. Auk þessa eru
Sjóðsbréf 5 eignarskattsfrjáls.
Hægt er að innleysa bréfin hvenær
sem er án innlausnargjalds. Þess í stað er
greitt 2% upphafsgjald við kaup í
sjóðinn. Bréfin eru fáanleg í hvaða
einingum sem er.
Sjóðurinn hentar best til ávöxtunar
sparifjár í eitt ár eða lengur.
Ráðgjafar VÍB veita frekari
upplýsingar um Sjóðsbréf 5 og einnig er
hægt að fá sendar upplýsingar í pósti.
Verið velkomin i VÍB!
/ síma 91 - 681530 er hægl ab fá uppljsingar um Sjódsbréf 5.
ÓÐSBRÉF 5
Já takk, ég vil fá smdar upplýsingar um Sjóbsbréf 5.
Nafn: ___________________________________■
Heimili:
Póstfang:
Sími:-----
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
------- Armúla 13a, 155 Reykjavik.
LJ