Morgunblaðið - 03.11.1993, Side 11
11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993
Kristbjörg Kjeld og Róbert Arnfinnsson í hlutverkum sínum.
Allir synir mínir frum-
sýndir í Þjóðleikhúsinu
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýnir
eitt af merkustu leikritum Art-
hurs Miller „Allir synir mínir“ í
nýrri þýðingu Hrafnhildar G.
Hagalín, fimmtudaginn 4. nóv-
ember.
Arthur Miller sló í gegn í heima-
landi sínu, Bandarikjunum, árið
1947 með leikritinu „Allir synir
mínir“. í kjölfarið kom síðan hvert
meistaraverkið á fætur öðru: „Sölu-
maður deyr“, „í deiglunni", „Eftir
syndafallið", „Gjaldið" og fjöldi
annarra verka.
Atburðarás leikritsins fer fram á
heimili Keller-fjölskyldunnar á ár-
unum eftir seinni heimsstyijöld. Joe
Keller er verksmiðjueigandi og hef-
ur lifað af því að framleiða véla-
hluti í flugvélar. Á stríðsárunum
hafði fyrirtæki hans framleitt gall-
aðar herflugvélar og leiddi það til
dauða fjölda flugmanna. Keller var
dreginn fyrir rétt og sýknaður af
öllum ákærum, en meðeigandi hans
hlaut hinsvegar dóm og situr nú á
bak við lás og slá, réttlaus og rúinn
allri virðingu. Eftir stríð hefur Kell-
er tekist að koma rekstri fyrirtækis
síns aftur á fót og nýtur nú fyrri
virðingar í samfélaginu.
„Allir synir mínir" er nú í fyrsta
skipti tekið til sýninga í Þjóðleikhús-
inu, en leikhúsið hefur áður sýnt
flest önnur verk Millers. „Allir syn-
ir mínir“ var sýnt af Leikfélagi
Reykjavíkur í Iðnó árið 1958 og
voru þá Brynjólfur Jóhannesson og
Helga Valtýsdóttir í hlutverkum
Keller-hjónanna. í sýningu Þjóðleik-
hússins fer Róbert Árnfínnsson með
hlutverk Joe Keller og Kristbjörg
Kjeld leikur Kate Keller konu hans.
Hjálmar Hjálmarsson leikur son
þeirra og Erla Ruth Harðardóttir
leikur unnustu hans. í öðrum stór-
um hlutverkum eru Magnús Ragn-
arsson, sem nú þreytir frumraun
sína á sviði Þjóðleikhússins, Sigurð-
ur Skúlason, Lilja Guðnln Þorvalds-
dóttir, Randver Þorláksson og Ólaf-
ía Hrönn Jónsdóttir. Leikstjóri er
Þór H. Tulinius og er það frumraun
hans sem leikstjóri í Þjóðleikhúsinu,
leikmynd gerir Hlín Gunnarsdóttir,
búninga hefur Þórunn Elísabet
Sveinsdóttir hannað og Björn Berg-
steinn Guðmundsson annast lýs-
ingu.
Nýr hljómdiskur
Bryndís Halla Gylfa-
dóttir leikur fimm verk
ÚT ER kominn hljómdiskur sem
íslensk tónverkamiðstöð hefur
gefið út í samvinnu við Ríkisút-
varpið og með stuðningi frá Sjóvá-
Almennum. Þar leikur Bryndís
Halla Gylfadóttir sellóleikari
fimm verk eftir íslensk tónskáld.
Diskurinn er gefinn út í tilefni af
því að Bryndís bar sigur úr býtum
í Tónvakanum, tónlistarkeppni
Ríkisútvarpsins, 1992.
í fréttatilkynningu frá útgefanda
segir: „Bryndís Halla Gylfadóttir er
löngu orðin landskunn fyrir sellóleik
sinn. Hún útskrifaðist frá Tónlistar-
skóla Reykjavíkur 1984, en aðal-
kennari hennar þar var Gunnar
Kvaran. Þá hélt hún til náms í Banda-
ríkjunum og lauk masters-gráðu frá
New England Conservatory í Boston,
1989.
Bryndís hefur haldið fjölda tón-
leika innanlands sem utan, bæði sem
einleikari og i samspili. Hún var ráð-
in fyrsti sellóleikari í Sinfóníuhljóm-
sveit íslands 1990. Hún fékk leyfi
frá þeirri stöðu þegar henni voru
veitt þriggja ára starfslaun frá ís-
lenska ríkinu vorið 1993.
Verkin á diskinum eru: Hrím eftir
Áskel Másson, Eter eftir Hauk Tóm-
asson, Dal regno del silenzio eftir
Atla Heimi Sveinsson, Psychomachia
eftir Þorstein Hauksson, Flakk eftir
Hróðmar lnga Sigurbjömsson,
Myndir á þili eftir Jón Nordal.
Fyrir utan elsta verkið, sem er
Hrím eftir Áskel Másson sem er sam-
ið 1978, eru öll verkin samin á bilinu
1987-1992. .
Marta Guðrún Halldórsdóttir sópr-
ansöngkona syngur með Bryndísi í
Psychomachia eftir Þorstein Hauks-
son og píánóleikarinn Snorri Sigfús
Bryndís Halla Gylfadóttir.
Birgisson leikur með henni í verkinu
Myndir á þili eftir Jón Nordal.
Marta Guðrún Halldórsdóttir lauk
burtfararprófi í píanóleik frá Tónlist-
arskólanum í Garðabæ 1987 og ein-
söngvaraprófí frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík 1988. Þá hélt hún til
framhaldsnáms við Tónlistarskólann
í Múnchen þaðan sem hún lauk
diploma-prófi vorið 1991. Marta var
við framhaldsdeild skólans næstu tvö
ár.
Snorri Sigfús Birgisson nam
píanóleik og tónsmíðar við Tónlist-
arskólann í Reykjavík. Hann hélt síð-
an til framhaldsnáms og lærði í
Bandaríkjunum, Noregi og Hollandi.
Snorri starfar sem píanóleikari,
kennari og tónskáld.
Hljómdiskinum fylgir bæklingur á
þremur tungumálum, íslensku, ensku
og þýsku. Myndverk á bæklingi gerði
Erlingur Páll Ingvarsson myndlistar-
Bach-fj ölskyldan
________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Johann Sebastian Bach var
snillingur og ekki nóg með það,
heldur einstakur meðal þeirra sem
með réttu geta borið þá nafngift.
Það er og athyglisvert að margir
í fjölskyldu hans, bæði forverar,
frændur og afkomendur voru
miklir listamenn á sviði tónlistar.
Orgelleikur varð snemma mikil-
vægur þáttur í lúthersku mess-
unni og var auk þess bæði ódýr
og áhrifamikill í hljóman. Þessi
hagkvæma lausn er talin hafa
haft mikil áhrif á þá þróun í orgel-
tækni, sem reis hvað hæst í
Þýskalandi. Johann Sebastian
Bach er „síðasti" arftaki þessa
orgelríkis og mestur snillingur
þeirra, sem þar réðu áður ríkjum.
Tónskáldskapur hans er af aug-
ljósum ástæðum orðinn efni til
mikilla vísindarannsókna, bæði
snilldarverk hans og þau sem síðri
eru og jafnvel verk ranglega eign-
uð honum. Svo sem hann var ein-
stakur tónlistarmaður, er og saga
fjölskyldu hans stórmerkileg og
einstök, því margir stórsnillingar
hafa í reynd átt erfítt með að
vera samtímis uppalendur og
listamenn. Nótnahefti Önnu
Magdalenu, sem var seinni kona
meistarans, er sérkennilegt fjöl-
skyldualbúm og þó lítið sé með
vissu vitað um einstök tónverk í
heftinu eru þar nokkur sem ekki
leikur vafi á, að eru eftir Bach.
Síðstliðinn sunnudag var boðið
upp á skemmtilega (fjölskyldu)-
tónleika í félagsheimilinu Kirkju-
hvoli í Garðabæ, en þar léku og
sungu Anna Margrét Magnús-
dóttir semballeikari og Erna Guð-
mundsdóttir sópransöngkona verk
úr Nótnabók Önnu Magdalenu
Bach og Reynir Axelsson greindi
frá ýmsu sem vitað er um bókina
og þau tónverk sem leikin voru á
tónleikunum. Flestir sem lært
hafa á píanó þekkja nokkur lög
úr þessu hefti og mörg þeirra
hafa verið eignuð Bach, en síðari
athuganir hafa leitt í ljós, að lík-
lega sé þar eitthvað til skáldað.
Nokkur verk eru þar, sem víst er
að eru eftir meistarann, eins og
t.d. partítur og aríur, sem Bach
notaði í ýmsum verkum og til eru.
Flutningur Önnu og Ernu var
mjög vel framfærður og Reyni
tókst að draga fram ýmislegt, sem
fella má inn í þá sérstæðu fjöl-
skyldumynd, þar sem þessi bók
liggur frammi á borðstofuborðinu
gestum og fjölskyldu til ánægju.
Mestur vegur var í leik Önnu
Margrétar í þáttum úr annarri af
tveimur partítum, sem eru fremst
í síðara heftinu, þætti úr franskri
svítu og stefinu úr Goldberg-til-
brigðunum. Erna söng mjög vel
það sérstæða lag, Bist du bei mir
og sömuleiðis tónles og aríu,
Schlummert ein, úr kantötunni
Ich habe genug, sem er nr. 82
og var fyrst flutt 2. febrúar 1727.
Þessi kantata er upphafleg samin
fyrir bassarödd, óbó, strengi og
basso continuo, en er einnig til
umrituð fyrir sópran og alt. Þrátt
fyrir að tónleikarnir væru óform-
legir og gestum ætlað sæti við
kaffiborð með tilheyrandi meðlæti
í kökum og góðgæti, voru þetta
sérlega skemmtilegir tónleikar,
vel uppfærðir og um margt fróð-
legir.
Jólamatur, gjafír og föndur
í byrjun aöventu, mibvikudaginn 1. desember nkv fylgir blaöauki Morgunblaöinu sem
heitir Jólamatur, gjafir og föndur. í þessu blaöi veröur fjallaö um matargerö, bakstur fyrir
jólin og birtir hátíöamatseölar frá kunnum matreiöslumeisturum. Þá veröa viðtöl við
nokkra vel valda heimiliskokka sem leyfa lesendum að líta í uppskriftabækur sínar.
Uppskriftir í blaöaukanum eru fengnar frá fagfólki og margar samdar sérstaklega fyrir
hann. Jólaföndur af öllu tagi verður að finna á síðum blaðaukans, bæði fyrir litlar hendur
og stórar, gjafir og heimilisskraut. Þá verður ýmislegt annað í blaðaukanum, sem kemur
lesendum til góöa í undirbúningi jólanna.
Þeim sem áhuga hafa á að auglýsa í þessum blaöauka er bent á ab tekib er vib
auglýsingapöntunum til kl. 17.00 mánudaginn 22. nóvember.
Nánari upplýsingar veita Agnes Erlingsdóttir, Helga Gubmundsdóttir og Petrína
Ólafsdóttir, starfsmenn auglýsingadeildar, í síma 691111 eða símbréfi 691110.
fWurgttiiMúMlí
- kjarni málsins!