Morgunblaðið - 03.11.1993, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 03.11.1993, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 Morgunblaðið/Rúnar Þór Framkvæmdir í miðbænum FRAMKVÆMDIR við byggingu fjögurra hæða verslunar- og skrif- stofuhúss við Skipagötu 9 eru hafnar. Lóðin var veitt A. Finnssyni hf. í mars árið 1991 og var þá afar eftirsótt. Af ýmsum ástæðum hafa framkvæmdir tafist og bókaði bygginganefnd á fundi í byijun síð- asta mánaðar að dagsektum yrði beitt risi húsið ekki fyrir 1. mars á næsta ári. Byggingamenn eru kátir mjög þessa dagana enda hægt að vinna úti við eins og að sumarlagi og reyndar má segja að heldur sé hlýrra nú en var iðulega síðastliðið sumar. * Ný félagsmiðstöð fyrir unglinga opnuð á Olafsfirði HILDIGUNNUR Halldórsdóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir. Hildignmim' og Helga Bryndís með tónleika ÞÆR Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari halda tónleika í sal Tónlistarskólans á Akureyri annað kvöld, fimmtudagskvöldið 4. nóvember kl. 20.30. Á efnisskránni eru verk eftir Alfred Schnittke, Leos Janácek og Witold Lutoslawski. Hildigunnur lauk einleikara- prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík haustið 1987 og hélt þá til náms í Bandaríkjunum við Eastman tónlistarháskólann í Rochester. Hún lauk meistara- prófi vorið 1992 og leikur nú í Sinfóníuhljómsveit Islands. Að loknu píanókennara- og einleikaraprófí nam Helga Bryn- dís í Vínarborg hjá Leonid Brum- berg sem um árabil var aðstoðar- kennari Heinrich Nauhaus. Einn- ig stundaði Helga Bryndís fram- haldsnám við Sibeliusar Akadem- íuna í Helsinki. Hún kennir nú við Tónlistarskólann á Akureyri. (Fréttatilkynning.) Fyrirlestur Tími: Miðvikudaginn 3. nóvember kl. 17.15. Staður: Háskólinn á Akureyri við Þingvallastræti, stofa 24. Flytjandi: Dr. Steven Cronshaw, prófessor við Guelph háskólann í Kanada. Efni: STARFSGREINING - Nýting slíkrar greiningar við stefnumótun og starfs- mannastjórnun. Öllum er heimill aðgangur Sjá sjálf um reksturinn OPNUÐ hefur verið í Ólafsfirði ný félagsmiðstöð fyrir unglinga. Hún er til húsa á 2. hæð í félags- heimilinu Tjarnarborg þar sem áður var fundarsalur bæjar- stjórnar og önnur aðstaða til fundarhalds. Félagsmiðstöðin bætir úr brýnni þörf, enda hafa unglingar bæjarins ekki átt í mörg hús að venda fram til þessa. Um ajllangt skeið hafa bæjaryfirvöld í Ólafsfirði leitað að hentugu húsnæði fyrir unglingastarf og á endanum var ákveðið að taka boði stjórnar Tjamarborgar um af- not af efri hæð félagsheimilisins, en dregið hefur úr starfsemi félags- heimilisins ár frá ári og húsið nú lítið notað. Samkeppni um nafn Rúnar Guðlaugsson félagsmála- stjóri í Ólafsfirði sagði í samtali við fréttaritara Morgunblaðsins í Ólafs- fírði að unglingarnir hefðu sjálfir haft veg og vanda að endurbótum á húsnæðinu. Smiðir hafa að vísu ver- ið fengnir til að setja upp skilrúm og parket á gólf en krakkarnir hafa málað og séð um frágang. I félags- miðstöðinni er rúmgóður diskósalur með setbásum og borðum, sjón- varps- og leikherbergi og sjoppa og er ætlunin að unglingarnir sjái sem mest um reksturinn sjálfír. Rúnar sagði að fljótlega yrði efnt til sam- keppni um nafn á félagsmiðstöðina. Hann sagði það hafa verið sérlega gaman að vinna með krökkunum að þessu verkefni. Unglingarnir sem fréttaritari Morgunblaðsins talaði við tóku und- ir með félagsmálastjóranum að það hefði verið gaman að vinna að því að koma félagsmiðstöðinni upp. Til að byija með verður opið 2-3 í viku og Iíklega verður diskó tvisvar í mánuði. ÍMIHlIilÍiil* $B Morgunblaðið/Sigurður Bjömsson Ný félagsmiðstöð Á EFRI hæð Tjarnarborgar í Ólafsfirði er búið að innrétta félagsmið- stöð fyrir unglinga, en hún var formlega opnuð fyrir skömmu. Félag- verslunar- og skrifstofufólks Stjómvöld standi við öll gefin fyrirheit STJÓRN Félags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og ná- grenni krefst þess af ríkisstjórn íslands að hún standi í einu og öllu við þau fyrirheit sem hún gaf við undirritun kjarasamninga í maí síðastliðnum og hverfi alfarið frá öllum hugmyndum um frekari álögur á láglaunafólk í landinu. Þetta kemur fram í áskorun sem samþykkt var á fundi Félags versl- unar- og skrifstofufólks um helg- ina. Þá kemur einnig fram að stjórn félagsins ætlast til þess af stjórn- völdum að þau taki nú þegár af öll tvímæli um að staðið verði við gef- in loforð í þessu sambandi, að öðr- um kosti telur stjórnin óhjákvæmi- legt að kjarasamningum verði sagt ,UPP- ; , Formaður Neytendafélags Akureyrar og nágrennis Telur víst að verðstríð leiði til lokanna verslana „ÉG ER sannfærður um að þetta verður til þess að einhverjar verslanir hér í bænum muni loka, það er alveg á hreinu,“ sagði Vilhjálmur Ingi Árnason formaður Neytendafélags Akureyrar og nágrennis um samkeppnina á matvörumarkaðnum á Akur- eyri. Einni verslun hefur þegar verið lokað, Sælandi við Móa- síðu, en í húsnæðinu er áfram rekin sjoppa þaðan sem afgreidd- ar eru vörur úr versluninni. Bónus opnar verslun á Akureyri á laugardaginn og hafa forráðamenn þeirrar verslunar sem og KEA-Nettó gefið út að þeir ætli sér að bjóða lægsta vöruverðið. Vilhjálmur Ingi Árnason formað- ur Neytendaféiagsins sagði það sitt mat á því verðstríði sem í uppsigl- ingu væri að verslanimar myndu keyra einhveijar vörur undir kostn- aðarverði og við slíkar aðstæður orkaði tvímælis að gera verðkann- anir. Fjör færist í leikinn Hann nefndi að tilkoma Bónus og verðstríð milli verslana á Akur- eyri gæti haft þær afleiðingar fyrir verslanir í nágrannabyggðum að þær nánast liðu undir lok. Færi fólk almennt að versla á Akureyri minnkuðu umsvifín í heimaverslun- um í kjölfarið. „Fólk verður auðvit- að að gera upp við sig hvernig það vill hafa þessa hluti. Auðvitað er gott fyrir þá sem em að nota síð- ustu krónurnar sínar að verðlag sé lágt, en fyrir aðra skipta þjónusta og gæði meira máli. Það var komin ró á markaðinn hér, Hagkaup ein- beitti sér að lengri opnunartíma og meiri þjónustu en Nettó bauð lægra vömverð og litla þjónustu. Nú má búast við að fjör færist í leikinn að nýju, en það endar örugglega með því að einhveijar verslanir munu loka, það lætur eitthvað undan,“ sagði Vilhjálmur Ingi. Júlíus Guðmundsson verslunar- stjóri í KEA-Nettó sagðist lítið kvíða væntanlegri samkeppni við Bónus og stefna verslunarinnar væri áfram sú að bjóða lægsta vöm- verðið. í verðkönnunum undanfarna mánuði hefði verslunin verið að ná Bónus hægt og sígandi, enda væru * búið að fara í saumana á öllum köstnaðariiðum með það fyrir aug- um að hagræða sem allra mest í versluninni. „Jóhannes í Bónus lýsti því yfir á fundi Kaupmannasamtak- anna hér á Akureyri einu sinni að það væri hneykslanlegt að Hagkaup væri að bjóða sama verð í Reykja- vík og á Akureyri, Sunnlendingar væru þar með að greiða niður vöru- verðið fyrir Norðanmenn. Við bíðum spenntir eftir hvort hann er enn sama sinnis,“ sagði Júlíus. Sælandi við Móasíðu var lokað um helgina og sagði Kristján Þor- valdsson einn eigenda að lokunin tengist óbeint því verðstríði sem í uppsiglingu væri í bænum. Messinn sem rekin var í tengslum við Sæ- land verður áfram opinn og vömr afgreiddar úr sjoppunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.