Morgunblaðið - 03.11.1993, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993
Reykingum
úthýst í San
Francisco
REYKINGAR á öllum 4.000
veitingahúsum San Francisco-
borgar verða bannaðar frá og
með árinu 1995 og frá 1. des-
ember nk. verða reykingar á
vinnustöðum bannaðar. Sú
undantekning er þó á veitinga-
húsabanninu, að leyft verður
að reykjá á börunum. Hér er
um að ræða ströngustu reglur,
sem samþykktar hafa verið um
reykingar í bandarískri borg.
Kosið á Nýja
Sjálandi
ÞRJÁR skoðanakannanir, sem
birtar voru í gær, benda til,
að stjórn Þjóðarflokksins á
Nýja Sjálandi haldi velli í kosn-
ingunum á laugardag. Sam-
kvæmt þeim hefur hann
þriggja til sjö prósentustiga
forskot á Verkamannaflokk-
inn. Þjóðarflokkurinn, sem er
hægriflokkur, hefur beitt sér
fyrir mjög ströngum aðhalds-
aðgerðum allt kjörtímabilið og
honum er þakkað, að nú virðist
níu ára löngu samdráttarskeiði
í nýsjálenskum efnahagsmál-
um vera að ljúka. Hefur hann
haft mikinn meirihluta á þingi,
um tvo þriðju þingmanna, en
nú stefnir í að meirihlutinn
verði aðeins átta til tólf þing-
menn.
Grænfriðung-
ar ákærðir
NORSKA lögreglan hefur
ákært tvo grænfriðunga, sem
hlekkjuðu sig við olíuborpall í
Barentshafí en með því vildu
þeir mótmæla borunum þar.
Eru viðurlögin allt að tveggja
ára fangelsi en talið er líkleg-
ast, að þeir verði sektaðir. Þá
hafa Gfænfriðungasamtökin
sjálf verið kærð en samkvæmt
norskum lögum má ekki fara
inn fyrir 500 metra öryggis-
svæði í kringum hvern borpall.
Yiðræður við
Air France
FULLTRÚUM franska ríkis-
flugfélagsins Air France og
starfsmanna tókst ekki að
komast að niðurstöðu í deilu
sinni í gær. Flestir starfsmenn
hafa tekið upp vinnu að nýju
en harðlínumenn úr þeirra röð-
um eru enn í verkfalli og skutu
flugeldum á bygginguna þar
sem viðræðurnar fóru fram.
Air France ætlar að reyna að
fjölga flugum frá Orly og Char-
les de Gaulle í dag.
Sýknaður af
nauðgun
TUTTUGU og eins árs gamall
breskur námsmaður, Matthew
Kydd, var á mánudag sýknaður
af ákæru um að hafa nauðgað
átján ára skólasystur sinni.
Kydd neitaði öllum sakargift-
um og sagði stúlkuna hafa
verið samþykka samförum
þeirra. Þetta er annað málið
af þessu tagi í Bretlandi á inn-
an við mánuði. Verjendur
Kydds bentu einnig á að stúlk-
an hefði verið kjörin „Dræsa
ársins“ af samnemendum sín-
um í Norwich-háskóla þar sem
hún hefði átt mök við flesta
pilta sem byggju á stúdenta-
görðunum. Þá viðurkenndi hún
að hafa farið á næturklúbb
kvöldið eftir að hin meinta
nauðgun átti sér stað óg haft
mök við annan pilt tveimur
dögum eftir „nauðgunina".
Reuter
Ekkja forsetans
BÓK með nektarmyndum af Dewi Sukarno, ekkju Sukarno Indónesíu-
forseta, rennur út í bókaverslunum í Tókió. Bókin ber nafnið Shuga,
eða Æðri fegurð, og er meðfylgjandi mynd úr henni.
Nektarmyndir af
ekkju Sukarnos
Jakarta. Reuter.
BÓK með nektarmyndum af Dewi Sukarno, ekkju fyrrum Indónesíu-
forseta, rennur út eins og heitar lummur í heimalandi hennar Jap-
an. Líklegt þykir að bókin verði bönnuð í Indónesíu. Hún heitir
Shuga, eða Æðri fegurð.
Yfirvöld í Indónesíu hafa lítið vilj-
að um bókina segja enda er hún
ekki komin þar í verslanir, en líklegt
þykir að sala henna verði bönnuð.
Tvö dagblöð hafa skýrt frá útkomu
bókarinnar og birt myndir úr henni
en gætt þess þó vandlega að má út
beru bijóstin.
Ýmsir þingmenn í Indónesíu létu
í gæri í ljós gremju yfir framferði
forsetafrúarinnar fyrrverandi. Al-
menningur virtist hins vegar ekki
kippa sér neitt upp við tíðindin.
„Ætli hún hafi ekki verið orðin aura-
laus,“ sagði indónesískur ritari.
Dewi Sukamo er 53 ára, fædd og
uppaiin í Japan. Þar starfaði hún sem
geisha og hét fullu nafni Naoko
Nemoto en er hún gekk að eiga
Sukarno forseta árið 1962 tók hún
sér nýtt nafn að beiðni hans, Ratha
Sari Dewi. Hún var síðust í röð sex
eiginkvenna Sukarnos sem dó árið
1970; islam er ríkjandi trú í Indónes-
íu og mega karlar því eiga fleiri en
eina konu.
Eftir andlát Sukarno lagðist Dewi
í ferðalög. Ber hún sig illa undan
þeirri meðferð sem hún kveðst hafa
hlotið af hálfu indónesískra yfirvalda
og sagðist fyrir rúmum mánuði vera
að íhuga að sækja aftur um japansk-
an ríkisborgararétt. í fyrra var hún
dæmd í fangelsi fyrir að veita öðru
þotuliðskvendi, Victoriu Osmena,
svöðusár í andliti. Atvikið átti sér
stað í veislu í skíðabænum Aspen í
Colorado-ríki í Bandaríkjunum og
varð Dewi að dúsa 34 daga í steinin-
um.
*. ..... «
Frásagnir verjenda Hvíta hússins í Moskvu af flóttanum
Stauluðust um neðan-
jarðargöngin undir
leiðsögn hellakönnuða
Vígið brennur
SKRIÐDREKAR fyrir utan Hvíta húsið í Moskvu 4. október sl.
Þinghúsið er gríðarstórt og undir því kjallari með mörgum dyrum
er liggja að neti neðanjarðarganga undir miðborginni. Er talið
að þar geti enn verið hundruð vopnaðra uppreisnarmanna í felum.
Moskvu. Reuter.
ÞJÁLFAÐIR hellakönnuðir að-
stoðuðu skelfingu lostna hers-
höfðingja úr stuðningsliði rúss-
neska þingsins er flúðu niður í
leynileg undirgöng til að koma
mikilvægum skjölum úr Hvíta
húsinu þegar sérsveitarher-
menn Borís Jeltsíns forseta
gerðu áhlaup á þinghúsið, að
sögn tímaritsins Moskvufrétta.
Enn hefur ekki verið gefið upp
hve margir féllu í Hvíta húsinu
af þeim sem voru til varnar.
Orðrómur er á kreiki um að
allt að 1.500 lík hafi fundist
þar. Búið er að fjarlægja flest
ummerki eftir bardagana við
þinghúsið og viðgerð hafin á
sjálfu húsinu.
Tveir grafarar í Khovan-kirkju-
garði segja að nokkrum dögum
eftir átökin hafí yfírmanni þeirra
verið skipað að láta grafa 300 lík
en hann hafí talið að starfsmenn-
irnir kæmust ekki yfir svo mikið
starf. „Brennsluofninn var í gangi
stanslaust í þijá sólarhringa. Við
vitum ekki hve marga við gróf-
um,“ sögðu mennirnir í viðtali við
Novaja Jesjednevnaja Gazeta.
Annað blað birti bréf frá liðs-
foringja í sérsveitum stjómvalda
er tók þátt í áhlaupinu. Hann
sagði að 1.500 lík hefðu fundist.
„Þau voru flutt á brott um neðan-
jarðargöng og áfram út úr borg-
inni þar sem þau voru brennd.
Ekki var reynt að bera kennsl á
fólkið“, segir í bréfínu. Ýmis blöð
hafa reynt að kanna málið og eru
öll sammála um að mun fleiri
hafi fallið en yfírvöld hafa gefíð
í skyn.
Skelltílás
Neðanjarðargöngin umræddu
eru samanlagt tugir kílómetra að
lengd, geysilega flókin og ramm-
byggileg. Voru þau m.a. ætluð
valdamönnum ef til heimsstyijald-
ar kæmi og þeir þyrftu að geta
komist klakklaust milli helstu
stjórnarbygginga. Arftaki KGB,
sovésku öryggislögreglunnar al-
ræmdu, mun hafa neitað að láta
stjórnvöldum í té nákvæmar
teikningar og kort af gangakerf-
inu. Enn er verið að leita þar að
uppreisnarmönnum en gengur
erfiðlega.
Heimildarmaður Moskvufrétta
segir að nokkrir sérsveitarmenn
sem gætt hafí öryggis Rúslans
Khasbúlatovs þingforseta, er nú
situr í fangelsi, hafí greinilega
haft kort undir höndum. „Þeir
hurfu sjónum eftir að hafa læst
á eftir sér rammgerðum dyrum
og hindrað þannig för hóps manna
sem hafði hlaupið af stað á eftir
þeim“.
Ottast hryðjuverk
Sérsveitaforingjar segja að víða
séu vandlega j'alin byrgi þar sem
hægt er að komast í vatn, matar-
birgðir á staðnum dugi hundruð-
um manna til viðurværis í mörg
ár og auk þess sé þar mikið af
vópnum. Sumir óttast að enn sé
ljöldi liðsmanna afturhaldssinna
þar í felum og hyggist laumast
upp á yfirborðið síðar, t.d. er kos-
ið verður 12. desember. Þá muni
þeir reyna að trufla kosningarnar
með - hryðjuverkum. Talsmaður
Jeltsíns forseta segir að fundist
hafi sem svarar um 280 milljónum
króna í hirslum þingsins en vildi
ekki tjá sig um orðróm þess efnis
að Saddam Hussein íraksforseti
hefði sent uppreisnarmönnum fé.
Frásögn Moskvufrétta er höfð
eftir liðsforingja sem ekki vildi
láta nafns síns getið. „Við fórum
niður í kjallarann, brutum upp
jámdyr og komumst niður á
næstu hæð undirganganna",
sagði hann. „Við gengum af stað
og rákumst á ijöldann allan af
vandræðalegu fólki ... dauð-
skelkuðum hershöfðingjum og
fjölda ofursta sem vissu ekki hvað
þeir áttu að gera“. Næsta morgun
komst hópurinn, 43 alls, að nokkr-
um útgöngudyrum sem voru í
miðborginni. Vopnaðir njósnarar
voru sendir af stað og sáu að sér-
sveitarhermenn með vélbyssur
voru á verði við ristarnar yfir
göngunum. „Við stauluðumst
áfram í mittisdjúpu, heitu vatni.
Gufan var blönduð klórlykt og það
var bókstaflega ekki hægt að
anda loftinu að sér“. Eftir margra
kílómetra ferð sást loks op í
fjarska og fólkið komst út. Leið-
togarnir afhentu öllum nokkurt
skotsilfur og töldu best að reyna
að fela sig hjá ættingjum og vin-
um.
Reuter
Fylgt til grafar
FÓRNARLÖMB hermdarverka-
manna borin til grafar í Greyste-
el á N-írlandi í gær.
Norður-Iriand
Breska
stjórnin
vill nýjar
viðræður
London, Dublin. Reuter, The Daily Te-
legraph.
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, hefur ákveðið að eiga
fund með pólitískum leiðtogum
mótmælenda og kaþólikka á
Norður-írlandi með það að mark-
miði að reyna að stöðva pólitískt
ofbeldi og koma friðarviðræðum
í gang á ný. Embættismenn í
breska forsætisráðuneytinu
sögðu að á fimmtudag myndi
Major eiga fund með John Hume,
leiðtoga Jafnaðar- og verka-
mannaflokksins norður-írska.
Tuttugu og fjórir hafa látist í
átökum mótmælenda og kaþó-
likka á síðustu dögum.
Hume hefur um nokkurt skeið
reynt að fá að eiga fund með Major
en hann hefur ásamt Gerry Adams,
leiðtoga Sinn Fein, hins pólitíska
arms írska lýðveldishersins, undir-
búið leynilegar friðartillögur. Hume
kvartaði yfir því f breska þinginu á
mánudag að Major hefði hafnað til-
lögunum án þessa að ræða um þær
við hann fyrst.
Major ætlar einnig að eiga fund
með James Molyneux, leiðtoga Sam-
bandsflokks mótmælenda. Flokkur-
inn berst fyrir því að viðhalda sam-
bandi Bretlands og Norður-írlands.
Embættismenn sögðu að Major hefði
einnig rætt við séra Ian Paisley, leið-
toga Lýðræðislega sambandsflokks-
ins, sem er harðlínuflokkur mótmæl-
enda. Voru þeir báðir sammála um
að nauðsynlegt væri að þeir ættu
lengri viðræður á næstu dögum.