Morgunblaðið - 03.11.1993, Side 32

Morgunblaðið - 03.11.1993, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 VINNINGSNUMER Nú liggja fyrir úrslit í LEGO getrauninni á sýningunni Hugspil, leikföng og tómstundir. Sá sem komst næst þeim fjölda LEGO kubba sem TÖFRADREKINN er samsettur úr er: Erla Eðvarðsdóttir Lyngbarði 3, Hafnarfirði Hún fær í verðlaun LEGO öskju að eigin vali, að verðmæti kr 10.000,- Handhafar eftirtalinna 50 LEGO og Leikbæjar hlutu númera í Töfradrekanum, Lukkuleik LEGO bakpoka í vinning: 0 0 0 0 6 7 . , o 0 0 0 00 8 , o 0 0 4 0 2 . , o 0 0 5 6 0 , o 0 0 6 6 5 0 0 0 7 5 2 , , 0 0 0 8 1 4 , o 0 0 8 7 1 , o 0 0 9 6 6 , o 0 1 0 4 4 0 0 l 1 6 0 . , o 0 1 2 3 0 , , 0 0 1 3 1 1 , 0 0 1 4 1 6 , , 0 0 1 5 2 0 0 0 1 6 4 5 . , o 0 1 6 9 6 , o 0 1 7 8 7 , o 0 1 8 9 9 , o 0 1 9 5 1 0 0 1 9 9 5 . , o 0 2 0 5 7 , o 0 2 0 8 6 , o 0 2 1 9 9 , o 0 2 4 1 8 0 0 2 4 6 1 , . 0 0 2 5 2 1 , o 0 2 6 3 9 . , o 0 2 9 3 1 , o 0 3 1 6 0 0 0 3 2 0 6 . , o 0 3 2 1 3 , o 0 3 3 3 0 . , o 0 3 4 1 0 , o 0 3 8 2 9 0 0 3 9 3 2 , , o 0 3 9 3 5 , o 0 4 1 1 6 , , 0 0 4 1 6 3 . , o 0 4 3 5 5 0 0 4 4 3 7 . , o 0 4 5 6 5 , o 0 4 7 2 4 , , o 0 4 7 5 9 , 0 0 4 9 8 8 0 0 5 0 2 7 , , o 0 5 2 7 5 , 0 0 5 3 4 8 . , o 0 5 6 3 5 , o 0 5 9 1 0 Handhafar eftirtalinna 100 númera í Töfradrekanum, Lukkuleik LEGO og Leikbæjar hlutu LEGO smáöskju í vinning: 0 0 0 0 1 0 0 0 2 4 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 1 0 0 1 0 0 1 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 5 0 0 0 6 0 0 0 8 0 0 0 9 0 0 1 0 0 1 0 0 1 1 8 0 5 0 8 5 1 8 3 1 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 4 1 4 2 9 8 3 4 7 4 1 6 4 9 6 8 0 0 0 0 0 0 0 5 0 0 0 7 0 0 0 8 0 0 0 9 0 0 1 0 0 1 0 0 3.9 0 0 4 3 0 0 4 7 0 0 4 9 0 0 5 3 0 0 5 7 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 1 1 2 2 3 3 3 3 0 0 4 4 8 0 0 4 7 7 0 0 5 0 4 0 0 5 4 7 0 0 5 8 6 7 9 1 5 9 1 4 6 6 7 7 1 0 0 2 4 7 4 2 9 9 0 0 0 1 0 0 0 5 0 0 0 7 0 0 0 9 0 0 11 0 0 1 0 0 1 0 0 1 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 1 0 0 1 0 0 1 0 0 1 0 0 2 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 4 0 0 4 0 0 4 0 0 5 0 0 5 0 0 5 8 0 0 9 4 5 8 5 Vinninga má vitja í einhverja af eftirtöldum verslunum LEIKBÆJAR Laugavegi 59 - Mjódd - Faxafeni 11 Reykjavíkurvegi 50. - Þökkum þátttökuna auglýsingar . FELAGSUF I.O.O.F. 7 = 175113872 = I.O.O.F. 9 = 175113872 = 9. II. O HELGAFELL 5993110319 VIW Frl. □ GLITNIR 5993110319 III 1 Frl. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. REGLA MUSTERISRIDDARA RM Hekla 3.11. - VS - FL Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Skrefið kl. 18.00 fyrir 10-12 ára krakka. Biblíulestur kl. 20.30. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Allir hjartanlega velkomnir. Þögnin eftirÁrna R. Árnason Lítil voru tilþrif talsmanna stjórnarandstöðunnar á Alþingi í umræðu utan dagskrár um við- ræður íslands og Bandaríkjanna um varnarsamstarfið hinn 19. okt- bóber sl. vegna frétta Morgun- blaðsins laugardaginn áður. Fyrst- ur fór siðbótarprédikarinn Ólafur Grímsson. Hann þóttist finna svo mörg meginatriði í fréttinni, að tilkynning utanríkisráðuneytis um fjögur þeirra nægði hvergi nærri. Var þó fréttin öll aðeins sex máls- greinar. Síðar komu aðrir tals- menn Alþýðubandalags og töluðu sem næst gegn formanninum. Annar fór Steingrímur Hermanns- son sem kvaðst frekar trúa orðum ritstjóra Morgunblaðsins en utan- ríkisráðherra um efni viðræðn- anna. Augljóslega vildi hann koma höggi á ráðherrann, en ummæli hans eru fáránleg því ritstjórarnir komu þar hvergi nærri. í ritstjórnargrein Morgunblaðs- ins þennan dag var fréttin leið- rétt. Þar kemur skýrt fram hver mistök blaðinu höfðu orðið á. Eitt er að flytja fréttir af hugmyndum innan bandaríska stjórnkerfisins, annað að staðhæfa að þær hafí Bandaríkjarnenn lagt fram í við- ræðum við ísland. Stórmannlegt var ekki í ritstjórnargrein að klykkja leiðréttingu út með því að hreyta ónotum í íslensk stjórnvöld. Höldum trúnað Ahugi Morgunblaðsins á örygg- is- og vamarmálum og dugur þess við að upplýsa lesendur um áhrif breytinga og umskipta í alþjóða- samskiptum á hagsmuni íslands er lofsverður. Ekki síst elja þess við að upplýsa um álitaefni varð- andi varnarsamstarf okkar og Bandaríkjamanna. Afstaða rit- stjórnar blaðsins til stefnu íslands í utanríkismálum er ábyrg. Slík viðhorf til álitaefna á sviði þjóð- mála hafa einkennt starf og rit- stjórn blaðsins, og þeirra vegna hefur það áunnið sér og verðskuld- ar traust lesenda. Fréttir um svo mikilvæg og við- kvæm efni þurfa að vera nákvæm- ar og umfjöllun yfirveguð. Ella skaðar hún málefnið, málstað ís- lands og okkar eigið mat og skiln- ing á honum, og síðast en ekki síst það fólk sem á jafnvel lífsaf- komu undir. Af sömu ástæðum er brýnt að fulltrúar ríkjanna ræði viðfangsefni og viðhorf á þessu sviði í fyllsta trúnaði. Einnig að trúnaður haldi um viðræður, sem geta leitt til verulegra breytinga á gæslu öryggishagsmuna okkar og haft afdrifarík áhrif á kjör fólks, en er enn ólokið. Á hinn bóginn er trúnaður um viðræður ríkjanna nú orðinn alltof langur vegna tafa Bandaríkja- manna. Þögnin hefur skaðað málið er orðin of löng Árni R. Árnason „Áhugi Morgunblaðsins á öryggis- og varnar- málum og dugur þess við að upplýsa lesendur um áhrif breytinga og umskipta í alþjóðasam- skiptum á hagsmuni ís- lands er lofsverður.“ og brýnt að bæta það andrúmsloft getsaka, efasemda og gróusagna sem hún hefur skapað. Nýjar aðstæður Á fáum árum hafa mikil um- skipti orðið í öryggis- og varnar- málum við norðanvert Atlantshaf. Hætta á allsheijarófriði í nágrenni íslands hefur minnkað, sem hefur áhrif á viðbragðsstöðu varnar- sveita. Ekki er þó unnt að álíta að allir öryggishagsmunir okkar séu tryggðir til frambúðar. Afur á móti hefur komið til harðra átaka meðal, og á milli, nýfijálsra þjóða í Mið- og Austur- Evrópu. Þegar þær losnuðu undan járnhæl gömlu kommúnistanna blossuðu upp gömul og ný deilu- mál, en ný stjórnvöld eru ótraust í sessi og máttvana. Umrótið hafa ofstækisfullir valdhafar, þar og í öðrum heimshlutum, notfært sér til landvinninga og aukinna yfír- ráða með árásum og stríðsrekstri. í ljósi þessara breytinga á sviði öryggis- og varnarmála eru Bandaríkjamenn og fleiri þjóðir að meta frá grunni þarfir sína fyrir öryggisgæslu og vamarvið- búnað heima og erlendis. Stór svæði innan ríkja Atlantshafs- bandalagsins eru nú öruggari fyrir árás en fyrr. Á hinn bóginn er meiri þörf en áður fyrir öryggis- gæslu eða varnarviðbrögð vegna átaka og svæðisbundinna styijalda í öðrum heimshlutum, jafnvel margra í senn. Það kallar á við- bragðsflýti og hreyfanleika örygg- is- og varnarsveita. í samfélagi þjóðanna er gjarnan litið til Banda- ríkjanna og Atlantshafsbanda- lagsins um slíkar úrlausnir. Þessar nýju aðstæður sýnast benda til breytinga á umsvifum varnarstöðvarinnar á Keflavíkur- flugvelli í framtíðinni. Líklega með minna fastaliði að jafnaði, breyti- legri samsetningu sveita þar stað- settra, meiri liðsflutningum að og frá stöðinni og um hana. Með varnarsamningum hafa Bandaríkin tekið að sér að tryggja öryggi íslands. Við höfum sjálfír metið hagsmuni okkar og stefna Islands í öryggis- og varnarmálum liggur fyrir í opinberum skjölum. Endurskoðun lauk á síðasta ári, niðurstaðan var lögðð fram og rædd á Alþingi og í utanríkismála- nefnd. Ekki er ástæða til að endur- skoða stefnu okkar þó að ekki fari saman hugmyndir eða áhersl- ur okkar og Bandaríkjamanna á einhveijum tíma. Úr slíku er unn- ið á grundvelli stefnunnar, ekki með nýrri stefnumótun. Fólkið Mál þess fólks sem á lífsafkomu undir niðurstöðum viðræðnanna er viðkvæmt og vandasamt. Marg- ir starfsmenn varnarliðsins og annarra við umsvif þess eiga þar Iangan starfsaldur að baki og mikla sérhæfingu. Verði samdrátt- ur svo mikill að komi til fækkunar íslenskra starfsmanna er brýn nauðsyn að réttindi þeirra verði tryggð á viðejgandi hátt. Undirrit- aður lagði fram á Alþingi á tveim- ur síðustu þingum þingsályktunar- tillögu um réttindi og skyldur ís- lenskra starfsmanna varnarliðsins, en hún varð ekki útrædd. í grein- argerð með henni var m.a. bent á að varnarliðið er í raun erlend opinber stofnun á íslandi og starfsskyldur margra íslenskra starfsmanna þess sambærilegar við skyldur opinberra starfsmanna hérlendis, en réttarstaða verri. Öll ákvæði um kjör þeirra og skyldur eru byggð á kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Ekki er unnt að fallast á að það eigi rétti- lega við, einkum um þá sem nefnd- ir eru hér að framan. Kjaramál þeirra heyra undir kaupskrár- nefnd. Þess verður að krefjast að nefndin taki kjara- og réttindamál þeirra til meðferðar og með úr- skurði bæti stöðu þeirra, í líkingu við kjör hinna sem gegna sam- bærilegum stöðum hér á landi. Annað er óviðunandi. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Reykjaneskjördæmi. RAÐAUGÍ YSINGAR Frá Flensborgarskólanum Innritun dagskólanema fyrir vorönn 1994 lýkur 19. nóvember nk. Skrifstofa skólans er opin alla virka daga kl. 8.00-16.00, nema föstudaga kl. 8.00-14.00. Nánari upplýsingar í síma 650400. Innritun í öldungadeild fer fram í byrjun janúar og verður nánar auglýst síðar. Skólameistari. Aðalfundur skíðadeildar Fram verður haldinn í Fram- heimilinu við Safamýri 10. nóvember kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. Málverkauppboð Málverkauppboð á Hótel KEA, Akureyri, sunnudaginn 7. nóvember. Tekið er á móti verkum í Gallerí Borg við Austurvöll frá kl. 12-18, og Listhúsinu Þingi, Hólabraut 13 (sími 96-11477), kl. 17-20, í dag og á morgun. Listhúsið BÖRG Þing

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.