Morgunblaðið - 03.11.1993, Side 52

Morgunblaðið - 03.11.1993, Side 52
Gæfan fylgi þér í umferðinni SJOVADnoALMENNAR NÝÚTGÁFA! AU»JÓOLEGT !3A SÍMAKOIT ÍNÆSTA BANKA £DA SPARISJÓDI ■aep VISA ÍSLAND MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. r~v Viðræður í Washington Nýr fund- ur ákveð- inn í dag FIMMTI fundur viðræðunefnda bandarískra og íslenskra stjórn- valda var haldinn í utanríkisráðu- neyti Bandaríkjanna í Washington í gær, án þess að niðurstaða feng- ist um hvernig framtíðarvömum Isiands yrði háttað. Að sögn Þor- steins Ingólfssonar, ráðuneyt- isstjóra utanríkisráðuneytisins, sem er formaður íslensku nefnd- arinnar, var ákveðið á fundinum í gær, að nýr fundur yrði haldinn í dag. Þorsteinn kvaðst í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi ekki geta upplýst um neitt sem fram kom á fundinum í gær. Aðilar hefðu bund- ist sammælum um að greina ekki efnislega frá því sem fram kom á fundinum. Þorsteinn kvað engar áiyktanir hægt að draga af því að aðilar ákváðu að hittast á nýjan leik á fundi í dag. Þorsteinn sagði jafn- framt að útilokað væri að segja til um það, þegar rætt var við hann, hvort einungis yrði annar fundur í dag, eða hvort áframhaldandi funda- höld yrðu í Washington á miili aðila. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið aflaði sér úr banda- ríska varnamrálaráðuneytinu (Pentagon) í gærkveldi, lögðu full- trúar bandarískra stjórnvalda, þ.e. varnarmála- og utanríkisráðuneytis- ins fram tillögur bandarískra stjórn- valda um framtíðarfyrirkomulag varnarstöðvarinnar á Keflavíkurflug- velli, en fulltrúar íslands tjáðu sig ekki um afstöðu sína til tillagnanna. Embættismaður Pentagon, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- kveldi, að hann hefði upplýsingar um að viðræður íslensku og bandarísku sendinefndarinnar hefðu verið gagn- legar og vinsamlegar. Fulitrúar ís- lensku viðræðunefndarinnar hefðu tekið við tillögum Bandaríkjamanna. Þeir hefðu óskað eftir að fá að fara yfir tiilögur Bandaríkjamanna í sín- um hóp áður en aðilar hittust á nýj- an leik og það hefði orðið niðurstaða þessa fundar. Morgunblaðið/Sverrir Nýja Sjáland *-------------- Islenskur frumkvöð- ull í rækju NETAGERÐ Kristjáns Ó. Skag- fjörðs og Hampiðjan eru nú að setja upp tvö rækjutroll fyrir Is- land Fisheries i Timoru á Nýja Sjálandi. Framkvæmdastjóri og einn af eigendum Island Fisheries er Islendingurinn Jóhannes Ara- son, en hann hefur ásamt meðeig- endum sínum fest kaup á græn- lenzkum rækjutogara og hefur leyfi til rækjuveiða innan lögsögu Nýja Sjálands. Þetta verður í fyrsta sinn sem rækja verður veidd á þessum sióðum, en hennar hefur orðið mikið vart á búraslóðinni. Rækjan þarna gengur undir tegundarheitinu omega og samkvæmt heimildum Versins er hún afar svipuð kaldsjávarrækjunni, sem hér veiðist, Pandalus Borealis, nema að hún er um tvöfalt stærri. Sjá nánar í Ur verinu bls. B1 Að loknum fundi BENEDIKT Davíðsson, formaður Sambands almennra lífeyrissjóða, kveður Davíð Oddsson forsætisráð- herra eftir fund fulltrúa lífeyrissjóðanna með forsætis- og viðskiptaráðherra. Forsætisráðherra ánægður eftir fundi með forsvarsmönnum lífeyrissjóða og banka Til greina kemur að hætta við útboð ríkisbréfa eftir helgi FORSVARSMENN samtaka lífeyrissjóðanna lýstu þeirri skoðun sinni á fundi með forsætis- og viðskiptaráðherra í gær að ekki væri skynsamlegt að vera með útboð á ríkisbréfum á mánudag og húsnæðisbréfum á þriðjudag. Ekki væri víst að markaðurinn réði við þetta og þau kynnu að ganga gegn markmiðum stjórn- valda um vaxtalækkun. Forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna segir að ef þessi útboð verði haldin eftir helgi og fjárfestum stæði til boða jafn góð bréf á betri kjörum bæri þeim skylda til að kaupa þau. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði að til greina kæmi að hætta við annað eða bæði útboðin, til dæmis með því að fara með annað útboðið á erlendan markað og fresta hinu. Davíð og Sighvatur Björgvinsson viðskiptaráðherra lýstu yfir mikilli ánægju með viðbrögð bankastjóra viðskiptabankanna og forystumanna lífeyrissjóðanna eftir fundi með þeim í gær. Gráa svæðið á miðlínunni milli íslands og Færeyja Ekki komi til árekstra HAFT hefur verið samband við Kjartan Hoydal, fiskimálastjóra Færeyinga, og sendiráð Dana á íslandi vegna tregðu færeyskra skipa að fara að tilmælum Landhelgisgæslunnar á hinu svokaliaða „gráa svæði“ á miðlínunni milli íslands og Fær- eyja. Hörður H. Bjarnason, starfandi ráðuneytis- stjóri í utanríkisráðuneytinu, segir að í samtalinu við Kjartan hafi komið fram fullur vilji hans tii að koma í veg fyrir árekstra á svæðinu. Hörður sagðist hafa haft beint samband við Kjartan vegna málsins í gær. „Hann hafði ekki skýringar á reiðum höndum á því hvað hefði breytt hefð undanfar- inna ára á svæðinu. Ekki hefur náðst samningur um svæðið en þegar færeysk fiskiskip hafa verið staðin að veiðum innan þess hafa þau farið að fyrirmælum, híft upp veiðarfæri og fært sig útfyrir. Hvernig stæði á því að eftir þessu hefði ekki verið farið í einstökum tilfellum að undanförnu vissi hann sem sé ekki. Hjá honum kom hins vegar fram fullur vilji til að forðast árekstra á þessu svæði. Báðir aðilar voru sammála um að reyna að koma í veg fyrir að úr þessu yrði meiri háttar ágreiningur," sagði Hörður. Hann sagði aðspurður um aðgerðir að Kjartan hefði ; Morgunblaðið/HalldórB. Nellett Fönix á gráu svæði SKIPSTJÓRNARMENN á færeyska togaranum Fönix fóru ekki að þeim tilmælum Landhelgisgæsl- unnar að færa sig út af gráa svæðinu á mánudag fyrir rúmri viku. Af því tilefni var ákveðið að leita eftir skýringum færeyskra og danskra yfirvaida á viðbrögðum Færeyinganna. Að sögn Kristjáns Þ. Jónssonar, skipstjórnarmanns í Gæslunni, voru fimm önnur skip á svipuðum slóðum og Fönix en ekkert annað innan gráa svæðisins. Hann kvað al- gengt að á bilinu tvö til sex skip væru við miðlín- una og væri þar m.a. veiddur karfi og þorskur. ætlað að ráðfæra sig við samstarfsmenn sína og hann hefði sagst vonast til að friður yrði á svæðinu í fram- tíðinni. Hörður sagði að jafnframt hefði verið haft samband við danska sendiráðið og því skýrt frá samtal- inu við Kjartan. Forsætis- og viðskiptaráðherra boðuðu forráðamenn Landsbank- ans, Búnaðarbankans, sparisjóð- anna og lífeyrissjóðanna á fund sinn í gær. Stjórnendur Islandsbanka hitta ráðherrana síðan í dag. „Það er sameiginlegt álit allra þessara manna að vaxtalækkunaraðgerðir ríkisstjórnar og Seðlabanka hafi gengið hraðar fram á eftirmarkaði heldur en björtustu vonir hefðu gefið tilefni til. Það kemur glöggt fram hjá þessum aðilum að þeir eru að vinna að breytingum á málum hjá sér og munu vera í stakk búnir til að gera grein fyrir áformum um lækkun vaxta um eða eftir helgina og sumir jafnvel fyrr. Þá er ljóst að lífeyrissjóðirnir munu leggja sitt af mörkum,“ sagði Davíð eftir fundahrinuna í gær. „Þetta segir mér það að það séu allar líkur á því að vextir muni halda áfram að lækka næstu daga og verði eftir helgina nálægt því markmiði sem ríkisstjórnin setti sér,“ sagði for- sætisráðherra. Sighvatur Björgvinsson við- skiptaráðherra kvaðst einnig vera ánægður eftir fundinn með fulltrú- um lífeyrissjóðanna. „Þeir lýstu yfír afdráttarlausum stuðningi við það sem við erum að gera og fögnuðu þeim árangri sem við höfum náð... Meginatriðið er að tryggja þann árangur sem nú hefur náðst og við verðum að fara mjög varlega í sam- bandi við þær ákvarðanir sem tekn- ar verða um útboð nýrra bréfa á næstunni til að raska ekki þeirri stöðu sem nú þegar er komin. Síðan verðum við að feta okkur eitthvað áfram,“ sagði viðskiptaráðherra. Ber skylda til að kaupa ódýrari vöruna Benedikt Davíðssori, formaður Sambands almennra lífeyrissjóða, sagði að það væri á valdi hvers ein- staks lífeyrissjóðs hvernig hann ávaxtaði fjármuni sína en sjálfur sagðist hann reikna með að þeir tækju þátt í úboðum ríkisins eftir helgina og þá á þeim kjörum sem þá giltu. Vextimir væru að ganga niður og ekki hægt að fullyrða ná- kvæmlega hvar þeir yrðu staddir á mánudag. Þorgeir Eyjólfsson, formaður Landssambands lífeyrissjóða, benti á að óheppilegt væri að vera með ríkisbréfaútboð dag eftir dag og í ljósi væntinga um vaxtaþróunina væri það enn verra nú. Heppilegra væri að markaðurinn fengi aðeins lengri tíma til að jafna sig. Þorgeir sagði að ef lífeyrissjóðunum byðust húsbréf eða spariskírteini á eftir- markaði með hærri ávöxtunarkröfu en stefnt væri að á uppboðum ríkis- ins bæri þeim skylda til að kaupa fyrrnefndu bréfin. „Vonandi nást þessi markmið og við stígum skref- in eins hratt og markaðurinn leyfir. Mér fannst ráðherrarnir sýna þessu ríkan skilning,“ sagði Þorgeir. Kalkúnalær- in til Færejja KALKÚNALÆRIN sem verslunin Bónus flutti inn en ekki fékkst innflutningsleyfi fyrir verða send til Færeyja í næstu viku og seld þar í verslun fyrirtækisins. Að sögn Jóhannesar Jónssonar verslunarstjóra verða kalkúnalærin sett í gám í næstu vikur og send áleiðis til Færeyja, þar sem þau verða seld í versiun fyrirtækisins eftir 20. nóvember. íslendingar sér á báti Jóhannes sagði að íslendingar væru alveg sér á báti í heiminum hvað verslun snerti, dæmið kæmi hins vegar vel út fyrir Bónus sem hefði keypt verslun í Færeyjum m.a. til að seija kalkúnalæri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.