Morgunblaðið - 04.11.1993, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1993
Fullt hús á fundi
hjá borgarstjóra
HÁTT í 300 manns komu á opinn fund Markúsar Arnar Antonsson-
ar borgarstjóra í Árseli í Árbæjarhverfi í gærkvöldi. Markús Orn
gerði í upphafi fundarins grein fyrir uppbyggingu siðustu ára í
Reykjavík, og gerðu fundarmenn góðan róm að máli hans. Að
lokinni framsögu svaraði hann fyrirspurnum fundarmanna, en
fram kom nokkuð hörð gagnrýni á strætisvagnasamgöngur í hverf-
inu og skort á leikfimikennslu vegna tafa við byggingu íþróttahúss.
Borgarstjóri hóf mál sitt með
því að fara yfir eigna- og skulda-
stöðu borgarinnar, og gat hann
þess þá meðal annars að tekjur
borgarinnar hefðu orðið rúmir 12
milljarðar á þessu ári. Hann sagði
skuldastöðuna vera góða saman-
borið við önnur sveitarfélög, og
þannig væru skuldir á hvern íbúa
73 þúsund krónur í Reykjavík en
t.d. 162 þúsund í Kópavogi og
120 þúsund í Hafnarfirði.
400 ný leikskólapláss
Að þessu loknu vék borgar-
stjóri að þeim umbótum sem unn-
ar hefðu verið í miðbænum, og
sagðist þá meðal annars reikna
með að Ingólfstorg yrði tilbúið í
bytjun desember og fyrirhugaðar
væru miklar framkvæmdir á
Skólavörðuholti. Hann sagði að
bráðlega yrði komið fyrir bíla-
stæðum á þaki Faxaskála og þá
væri framkvæmdum við Arnarhól
að ljúka. Þá vék hann að
uppbyggingu í félagsþjónustu
fyrir aldraða og sjúka og sagði
að leikskólaplássum hefði fjölgað
um 1.326 á kjörtímabilinu og á
næstunni myndu bætast við 400
pláss.
Morgunblaðið/Sverrir
Húsfyllir
HÁTT í 300 manns sóttu opinn fund Markúsar Arnar Antonssonar borgarstjóra sem haldinn var í
Árbæjarhverfi, en á fundinum svaraði borgarstjóri fyrirspurnum varðandi framkvæmdir I hverfinu.
VEÐUR
VEÐURHORFUR 1DÁG, 4. NOVEMBER
YFIRLIT: Yfir Skandinavíu er 1025 mb hæð og önnur álíka milli Norður-
Grænlands og Svalbarða. Um 300 km vestur af Reykjanesi er 980 mb
lægð sem þokast NV og önnur um 1500 km suðvestur í hafi hreyfist
norðaustur en síðar norður.
SPA: SA-átt, víða stinningskaldi eða allhvass en fer að lægja vestantil
á landinu undir hádegi. Rigning víða um land, síst þó austantil á Norður-
landi. Snýst í suðvestan kalda með skúrum eða slydduéljum vestan-
lands undir kvöld. Hiti verður víðast 8-11 stig en kólnar dálítið vestantil
á landinu þegar líður á daginn.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Nokkuð hvöss SV átt. Skúrir eða slydduél
sunnanlands og vestan en víða léttskýjað NA til. Hiti verður á bilinu 1-5
stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: SA strekkingur um allt land. Súld eða rigning
sunnanlands og vestan en skýjað að mestu og úrkomulítið NA til. Hiti
verður á bilinu 6-11 stig, hlýjast norðanlands.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 10.30,
22. 30. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 900600.
▼
Heiðskírt
r r r
r r
r r r
Rigning
Léttskýjað
* / *
* r
r * r
Slydda
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað Alskýjað
v $ ý
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnirvindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
:tig.,
FÆRÐ Á VEGUM: iki. 17.301 gær>
Greiöfært er um alla þjóðvegi iandsins, en víða er unnið að vegagerð
og getur vegur á þeim stöðum verið grófur og seinfarinn og eru öku-
menn beðnir að gæta varúðar og aka samkvæmt merkingum. Um færð
á hálendinu er ekki vitað.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðln.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjev/k biti 10 10 voður skýjað þokumóða
Bergen 5 léttskýjað
Helsinkl 2 alskýjað
Kaupmannahöfn 7 þokumóða
Narssaresuaq +5 skýjað
Nuuk ■fS snjókoma
Osló 2 alskýjað
Stokkhólmur 3 skýjað
Þórshöfn 7 þokumóða
Algarve 17 Iétt8kýjað
Amsterdam 8 þokumóða
Barcelona 17 rigníng
Berlín 3 þokumóða
Chicago 3 þokumóða
Feneyjar 14 þokumóða
Frankfurt 6 þokumóða
Glasgow 0 skýjað
Hamborg 3 þokumóða
London 12 mistur
Los Angeles 15 léttskýjað
Lúxemborg 11 skýjað
Madríd 12 alskýjað
Malaga 17 rigning
Mallorca 17 rigning
Montreal 0 skýjað
NewYork 7 skýjað
Orlando 14 þokumóða
París 10 léttskýjað
Madelra 20 skýjað
Róm 21 skýjað
Vín 9 skýjað
Washington 6 alskýjað
Wlnnípeg 4-2 alskýjað
2 Vj árs fang-
elsi fyrir rán
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær 29 ára mann, Gauta
Ólafsson, í 2‘/2 árs fangelsi fyrir rán með því að hafa 2. ágúst sl.
ógnað starfsstúlku í gestamóttöku Hótels Reykjavíkur með hnífi
og fengið hana til að afhenda sér 185 þús. kr. í reiðufé og ferða-
tékkum.
Fékk hníf að láni en ekki
peninga
Maðurinn játaði brot sitt. í dóm-
inum kemur fram að hann hafi
hálfum mánuði fyrir ránið fengið
reynslulausn á eftirstöðvum fang-
elsisdóms og verið peningalítill og
kunningjar hans og félagsmála-
stofnun hafi ekki veitt honum um-
beðna aðstoð. Einn kunningi hans
sem hann hafi hitt á veitingastaðn-
um Keisaranum daginn sem ránið
var framið hafi ekki getað lánað
honum peninga en sá hafi hins veg-
ar lánað honum hníf til þess að
útvega sér sjálfur peninga.
Eftir að hafa snúið frá og hætt
við rán á íjórum stöðum kom mað-
urinn að Hótel Reykjavík við Rauð-
arárstíg, fékk að fara þar á sal-
erni, gekk þaðan út fyrir en inn á
hótelið aftur þar sem starfsstúlkan
hafi verið alein. Hann hafi ógnað
stúlkunni með hníf og sagt henni
að láta sig fá peninga sem hann
síðan fór með á brott.
Einbeittur brotavilji
í niðurstöðum dómsins segir að
brotavilji mannsins hafi verið styrk-
ur og einbeittur og það verki til
refsiþyngingar enda hafi maðurinn
kannað aðstæður á fjórum stöðum
áður en hann framdi ránið og feng-
ið hnífinn lánaðan gagngert í því
skyni. Maðurinn hefur þegar hafið
afplánun á fyrrgreindum eftirstöðv-
um fangelsisdóms og voru þær því
ekki dæmdar með þegar refsing
mannsins var talin hæfileg 2,'h árs
fangelsi auk þess sem hann var
dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar
og málsvarnarlauna auk 106 þús-
und króna í skaðabætur til eiganda
hótelsins sem hafði endurheimt um
80 þúsund krónur af_ ránsfengnum
við handtöku mannsins nokkrum
dögum eftir ránið.
Guðjón St. Marteinsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn.
Reglugerð um Byggingasjóð ríkisins
300 milljónir kr.
í skuldbreytingu
Félagsmálaráðherra hefur gefið út reglugerð um skuldbreytingar
á lánum á vegum Byggingasjóðs ríkisins, og er um að ræða tíma-
bundnar aðgerðir í þágu lántakenda sem vegna langvarandi at-
vinnuleysis eða alvarlegs heilsubrests hafa lækkað svo í launum
að til vandræða horfir um afborganir á lánum vegna íbúða. Til
skuldbreytingalánanna er varið samtals 300 milljónum króna.
í fréttatilkynningu frá félags-
málaráðuneytinu kemur fram að
ráðuneytið, Húsnæðisstofnun rík-
isins, Búnaðarbanki íslands, ís-
landsbanki, Landsbanki íslands og
Samband íslenskra sparisjóða hafi
gert með sér samkomulag í sam-
starfi við samtök lífeyrissjóða um
skuldbreytingar til að leysa
greiðsluvanda fólks sem á í erfið-
leikum með að standa í skilum
með lán til íbúðarkaupa vegna
tekjulækkunar sem stafar af at-
vinnumissi eða veikindum. Gert
er ráð fyrir að viðskiptabanki eSa
sú lánastofnun þar sem viðskipti
eða vanskil eru mest hafi forgöngu
um að aðstoða umsækjanda með
því að reikna út greiðslubyrði lána
og greiðslugetu og kanni til hvaða
ráða þurfi að grípa til að draga
úr greiðslubyrði og koma í veg
fyrir greiðsluvanda.