Morgunblaðið - 04.11.1993, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1993
Helga Helgadótt-
ir — Minning
Fædd 1. júní 1906
Dáin 29. október 1993
Er kennaraskólanemar gengu frá
gamla Kennaraskólanum og niður
Laufásveginn á fyrri hluta sjötta
áratugarins varð mörgum þeirra oft
litið til austasta hússins sunnan
megin götunnar. Hús þetta var niðri
í lóð lengra frá götunni en önnur
hús, lét lítið yfir sér með fallegum
blómagarði fyrir framan. Að sunn-
anverðu voru gróðurhús og'minntu
byggingamar mann á snyrtilegan
bóndabæ. Allir vissu að þetta var
gamla Gróðrarstöðin, sögufrægt
hús. Fyrsta gróðrarstöðin í Reykja-
vík. Þar hafði Þórbergur Þórðarson
meðal annars dvalist og getur um
það í verki sínu Ofvitanum. Færri
vissu að þama bjuggu þau Eiríkur
Einarsson arkitekt og Helga Helga-
dóttir með bömum sínum og öðrum
skyldmennum því að heimilið var
stórt og gestkvæmt. Örlögin hög-
uðu því nú þannig að sá sem þetta
ritar, einn þessara áðurnefndu nem-
enda, eignaðist þessi ágætu hjón
sem tengdaforeldra og átti annað
heimili í Gróðrarstöð um árabil.
Eiríkur var virtur arkitekt hér í
borg, sonur Einars Helgasonar
garðyrkjustjóra, stofnanda Gróðr-
arstöðvarinnar, og Kristínar Guð-
mundsdóttur. Hann lærði arkitekt-
úr í Þýskalandi fyrir stríð og rak
um árabil teiknistofu með Sigurði
Guðmundssyni arkitekt og teiknuðu
þeir félagar margar byggingar, sem
öllum ber saman um að beri vitni
um góðan arkitektúr. Eiríkur lést
1969. Helga tengdamóðir mín, sem
er til moldar borin í dag, fæddist
vestur á ísafirði 1906, dóttir Helga
Sveinssonar bankastjóra íslands-
banka og Kristjönu Jónsdóttur frá
Gautlöndum, dóttur Jóns alþingis-
forseta Sigurðssonar. Kristjana
móðir Helgu lést árið 1908, aðeins
38 ára gömul, frá þeim átta systkin-
um. Þá hafði systir Helga, Margrét
Sveinsdóttir, komið frá Kanada og
tekið við rekstri heimilisins. Helga
minntist oft á lífíð á ísafirði þegar
hún var að alast upp.
Systumar voru sex, þær Guðný,
Guðrún, Sólveig, Nanna, Margrét
og Helga, en bræðumir tveir,
Sveinn og Þorlákur. Fjölskyldan bjó
í sama húsi og íslandsbanki við
Pólgötu. Það var auðheyrt er Helga
sagði frá æskuárum sínum á
Isafirði að þau voru henni mikils
virði. Helgi faðir hennar var mikill
áhugamaður um félagsmál og sér-
staklega um bindindismál og leik-
list. Hann lék oft í leikritum á staðn-
um. í endurminningum Karls Olufs
Bang, æskuvinar Helgu, stendur
m.a. um ársfagnað ungmennafé-
lagsins og barnastúkunnar: „Helgi
Sveinsson flutti erindi og hvatti alla,
jafnt unga sem aldna, til reglusemi
á vín og tóbak, til að temja sér
drengskap í samskiptum hver við
annan og stunda íþróttir til að halda
líkamanum heilbrigðum."
Er flett var bókum úr eigu Helgu
fyrir stuttu komu í ljós Ljóðmæli
eftir frænda hennar Kristján Jóns-
son Fjallaskáld, en á titilblaði henn-
ar stóð: „Helga Helgadóttir. Viður-
kenning fyrir iðni og siðprýði frá
Barnaskóla Ísaíjarðar 14. maí
1920.“
Helga fer síðan suður til Reykja-
víkur 1921, þá fimmtán ára gömul,
til náms í Kvennaskólanum. Dvald-
ist hún þá um hríð hjá föðurbróður
sínum, Kristjáni Jónssyni, háyfir-
dómara og fyrrum ráðherra, sem
bjó við Tjarnargötu, en fluttist því
næst í heimavist skólans. Fyrr á
þessu ári 1993 bauð Helga öllum
Kvennaskólastelpunum, eins og hún
kallaði þær, heim til sín til að fagna
að 70 ár voru liðin síðan þær út-
skrifuðust. Þá sungu þær einum
rómi „Hvað er svo glatt, sem góðra
stelpna fundur", en ein Kvenna-
skólastelpan hafði ort textann í til-
efni dagsins við þekkt lag.
Á þessum árum flyst fjölskylda
Helga Sveinssonar til Reykjavíkur
og átti lengst af heima í Garða-
stræti 13. Helga minntist oft á
Garðó eins og hún kallaði það.
Þarna var menningarheimili sem
iðaði af lífi og fjöri. Systurnar voru
einkar glæsilegar, tískudömur þess
tíma. Þær gengu í tískufötum, sem
þær saumuðu sjálfar eftir að hafa
fengið nýjustu sniðin send frá
Kaupmannahöfn.
Helga fór til Kaupmannahafnar
og lærði fatasaum. Stofnaði síðan
saumastofu, sem var til húsa í
Hafnarstræti og rak hana þar til
þau Eiríkur giftu sig 1937 og hófu
búskap í Gróðrarstöðinni. Eiríkur
hafði komið frá námi árið áður.
Kristín tengdamóðir hennar rak
gróðrarstöðina því að Einar Helga-
son hafði látist nokkrum árum áð-
ur. Gróðrarstöðin var eins og stórt
sveitaheimili. Þar var stanslaus
straumur fólks alla daga, fólk að
kaupa blóm, fólk sem vann við
ræktunina, ættingjar og vinafólk
utan af landi sem gisti í Gróðrar-
stöð, svo og börn ættingja utan af
landi sem höfðu þar vetursetu, er
þau voru hér í skóla. Þess var gætt
að húsið væri alltaf opið um nætur
fyrstu árin, því að alltaf gat verið
von á næturgesti.
Nú fæddust börnin eitt af öðru.
Elst er Kristín, eiginkona þess er
þetta skrifar, Margrét Helga, Einar
og Helgi, sem er yngstur. Þá voru
það vinir og nágrannar þeirra hjóna.
Minnisstæðastar eru fjölskyldur
þeirra Ásmundar Guðmundssonar
biskups og frú Steinunnar, sem
bjuggu beint á móti norðanmegin
við Laufásveginn og Guðmundar
Kristins og frú Ragnhildar, sem
bjuggu þar fyrir ofan við Berg-
staðastræti. Milli þessara fjöl-
skyldna var mikill samgangur.
Eiríkur var. áhugasamur bóka-
safnari og átti fágætt safn bæna-
og guðsorðabóka, sem voru allar í
miklum bókaskáp úr eik í suðurstof-
unni. Manni varð starsýnt á bæk-
umar og bókaskápinn sökum feg-
urðar. Þungt eikarborð gamalt var
fyrir framan bókaskápinn og er
Eiríkur mér minnisstæður sitjandi
við það með allt fornprentið á bak
við sig.
Helga var á þönum allan daginn
því að heimilið var stórt. Var hún
einatt hlaupandi úr eldhúsinu og
niður í blómabúð til að afgreiða
viðskiptavini, sem flestir héldu
tryggð við Helgu og Gróðrarstöð
og komu aftur og aftur.
Jólin og undirbúningurinn fyrir
þau var einkar hugljúfur tími, en
að sama skapi erfiður fyrir húsmóð-
urina. Unnið var fram á nótt við
að útbúa skreytingar og skreyta
skálar. Húsið ilmaði af grenilykt.
Allt seldist upp og ekki er víst að
verðlagið hafí alltaf fylgt verðlags-
þróuninni.
Fjölskyldan var stór og kom oft
saman. Systurnar voru glaðar og
kátar, reyttu af sér brandara og
minntugt gamalla daga. Helga var
í essinu sínu og ljómaði af lífs-
gleði. Minnisstæðir úr þessum boð-
um voru Brynjólfur Jóhannesson
leikari, sem var giftur Guðnýju,
Gunnar Viðar bankastjóri, giftur
Guðrúnu, Aðalsteinn Friðfinnsson
verslunarmaður, giftur Sólveigu,
Aðalsteinn Norberg ritsímastjóri,
uppeldjsbróðir Eiríks, séra Jón Áuð-
uns, æskuvinur Helgu frá ísafirði,
svo og bræður hennar þeir Sveinn
stórkaupmaður og Þorlákur verk-
fræðingur. Oft var einnig í þessum
boðum náfrændi Helgu, Haraldur
Guðmundsson, sendiherra og fyrr-
um ráðherra, en Helga minntist oft
á þennan frænda sinn og mat hann
mikils.
Helga var mjög ljóðelsk og á
seinni árum lærði hún heilu ljóða-
bálkana utan að, kvað það góða
„gymnastik" fyrir heilann. Einkum
hélt hún upp á Ijóð Páls Ólafssonar
og helst þau sem hann orti til Ragn-
hildar konu sinnar. Hún sagði frá
því að Ragnhildur hefði dvalist um
hríð á heimili Helga föður síns á
ísafirði. Systumar hefðu verið að
pískra um það sín á milli hvemig
í ósköpunum hann Páll Ólafsson
hefði getað verið hrifínn af henni
Ragnhildi, sem þá var orðin gömul
kona. En svona er ellin. Hún er
mikill harðstjóri og eirir engu.
Helga varð 87 ára gömul. Hún
var heilsuhraust utan síðustu
tveggja ára sem urðu henni erfið.
Hennar er sárt saknað af börnunum
og barnabömunum, svo og öllum
sem kynntust henni. Ég minnist
þess að í einu boðinu, sem Helga
hélt þegar hún var upp á sitt besta
og fór á kostum, sagði einn aðdá-
andi hennar: Helga er engri lík. Það
voru orð að sönnu. Helga var engri
lík. Blessuð sé minning tengdamóð-
ur minnar, Helgu Helgadóttur.
Sigurður P. Gíslason.
Hún Helga í Gróðrarstöðinni er
látin. Höfðingi er fallinn frá. Mikil
breyting og söknuður hjá stórri íjöl-
skyldu þegar svo sterkur persónu-
leiki og ættmóðir fellur frá. Á
kveðjustund streyma minningarnar
fram. Áhrifin eru sterk og mikil og
maður skynjar hve djúpstæð þau
eru eftir svo langa og yndislega
viðkynningu. Hún tengdamóðir mín
hafði mikið að gefa öðrum, alltaf
bjartsýn, hugrökk og skemmtileg.
Á mannamótum var hún hrókur
alls fagnaðar. Hún var ákaflega
hreinskiptin og gat verið gagnrýnin
ef henni mislíkaði, en sagði það þá
beint við mann. Hún kunni líka að
hrósa ef við átti. Þannig var Helga.
Það eru 25 ár síðan ég kom í
fjölskylduna í Gróðrarstöð. En því
heimili stjórnaði Helga af einstakri
gestrisni og skörungsskap í 40 ár.
Það var góður skóli að byija búskap
í návist Helgu, svo myndarleg sem
hún var í öllu húshaldi. Ég minnist
með þakklæti hvernig hún gerði
brúðkaupsdag okkar ógleymanleg-
an eins og svo margar aðrar veislur
og athafnir sem hún stóð fyrir í
Gróðrarstöð. Hún var mikil
stemmningsmanneskja og það kom
fram í verkum hennar. Það var
dálítið ævintýri að búa í Gróðrar-
stöð, allar þessar vistarverur með
gömlum frænkum, Ondu og Siggu.
Þetta gamla hús bjó yfir sál og
sögu.
Helga og Eiríkur hófu búskap í
Gróðrarstöð árið 1938, á föðurarf-
leifð Eiríks en hann var sonur hins
merka garðyrkjustjóra Einars
Helgasonar. Eiríkur var arkitekt og
hafði lært í Þýskalandi. Haft var
eftir Kristínu, ekkju Einars, og
Guðrúnu systur hans, sem einnig
bjó þar, að Helga hefði komið eins
og sólargeisli inn á heimilið. Sorg
og söknuður höfðu grúft yfir heimil-
inu um tíma eftir fráfall Einars, en
hann lést fyrir aldur fram árið 1935.
Húsið fylltist af lífi og ljölskyldan
stækkaði. Helga og Eiríkur eignuð-
ust fjögur börn, Kristínu, Margréti
Helgu, Einar og Helga. Helga var
mikil móðir. Hún var alltaf til stað-
ar fyrir börnin sín og fjölskyldu.
Oft hef ég heyrt þau systkinin segja
að þegar hún var ekki heima, eitt
augnablik, þá hafi allt orðið ómögu-
legt. Margir leituðu inn á þetta
gamalgróna heimili í lengri og
skemmri tíma. Algengara var að
hafa útidyrnar ólæstar því að alltaf
gat verið von á næturgesti.
Starfsþrek Helgu var með ólík-
indum. Áuk þess að annast þetta
mannmarga heimili, saumaði hún
mikið og þá ekki síst á nóttunni
þegar ró var komin á. Það kom
víst fyrir að þær mættust í stigan-
um, hún og hin árrisula tengdamóð-
ir hennar, sem var þá að fara í
morgunverkin í gróðurhúsunum.
Helga var ákaflega flink sauma-
kona og rak á yngri árum sauma-
stofu. Hún lærði í Danmörku, enda
talaði hún dönsku betur en flestir
aðrir. Helga upplifði á yngri árum
ýmis ævintýri sem mörg hver ættu
erindi á prent. Með lifandi frásögn
hennar urðu þau svo ljóslifandi að
manni fannst jafnvel að maður hefði
þekkt þessa ungu, hrífandi, rauð-
hærðu stúlku sem hafði svo mikla
útgeislun. Þekktur listmálari lét þá
ósk í ljós að fá að mála Helgu, hún
væri svo malerísk, eða eins og hann
sagði sjálfur: „Það er stemmningin
af yður sem mig langar að mála.“
Dætur Helga Sveinssonar banka-
stjóra vöktu athygli á götum
Reykjavíkur á þessum árum. Þær
þóttu afburða glæsilegar, klæddar
eftir nýjustu tísku Parísarblaðanna
sem þær saumuðu eftir.
Helga talaði oft um æskuheimili
sitt á Isafirði og í Garðastræti 13
í Reykjavík að. Þar ríkti glaðværð
í stórum hópi æskufólks og börnin
sýndu föður sínum og föðursystur-
inni góðu sem hafði gengið þeim í
móðurstað ást og virðingu, en móð-
ir þeirra dó þegar Helga var aðeins
þriggja ára gömul.
Helga var ákaflega ættrækin og
stolt af sínu fólki og hún var mjög
ættfróð. Það sem einkenndi hana
mest var þessi mannlega reisn sem
fylgdi henni alla tíð: Þa’ð var mikil
gæfa fyrir okkur, og ekki síst
barnabömin sem nú eru orðin 13
talsins og langömmubömin sjö, að
t
Eiginkona mín,
HALLDÓRA ÓSKARSDÓTTIR,
Rekagranda 2,
Reykjavík,
andaðist á heimili okkar laugardaginn 30. október.
Einar Sigurðsson.
Faðir okkar. t VALTÝR GUÐMUNDSSON,
til heimilis á
Bergþórugötu 43, Reykjavik,
lést í Borgarspítalanum að kvöldi 1. nóvember.
Gunnlaugur Valtýsson, Stefán Rafn Valtýsson og fjölskyldur.
t
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
MARGRÉT SOFFÍA JÓNASDÓTTIR
frá Siéttu,
Kaldaseli 12, Reykjavík,
lést í Landspítalanum 1. nóvember sl.
Jónas Karlsson, Hrönn Pórðardóttir,
Magnús Jónasson, Ástríður Júlíusdóttir,
Gunnhildur Jónasdóttir, Sigurjón Pálsson,
Þórður Geir Jónasson, Kolbrún Kristjánsdóttir,
Karl Baldvin Jónasson
og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
SIGRÍÐUR ANDRÉSDÓTTIR,
Stóragerði 8,
Reykjavfk,
lést í Landspítalanum, 2. nóvember.
Svavar Guðnason og börn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
frá Patreksfirði,
sem lést 29. október sl., verður jarðsungin frá Patreksfjarðar-
kirkju laugardaginn 6. nóvember kl. 14.00.
Guðrún Jóna Jónasdóttir,
Hafliði óttósson, Valgerður Samsonardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir minn,
MARINÓ ÁSTVALDUR
JÓNSSON,
Fálkagötu 28,
lést í Landspítalanum þann 21. október.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Ingi Jóhann Marinósson.