Morgunblaðið - 06.11.1993, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NOVEMBER 1993
5
Drög að ályktun miðstjómar Framsóknarflokks
♦
Mælt með tekju-
tengdum gjöldum
í DRÖGUM að stjórnmálaályktun sem lögð voru fram á aðalfundi
miðstjórnar Framsóknarflokksins sem hófst í gærkvöldi eru settar
fram tillögur í tíu liðum um aðgerðir í atvinnu- og efnahagsmálum.
Er þar m.a. lagt til að lagður verði á fjármagns- og hátekjuskattur
og að aukinni fjárþörf háþróaðrar heilbrigðisþjónustu verði mætt
með tekjutengdum gjöldum til að jafna kjörin í landinu. Gerð verði
eignakönnun í landinu og skattaeftirlit stórhert og sönnunarbyrði
verði á ný færð yfir á skattgreiðendur, eins og það er orðað.
Samkvæmt drögunum vilja
framsóknarmenn að breið þjóðar-
sátt verði undirstaða endurreisnar
atvinnulífs og velferðarkerfis og er
lagt til að meðalvextir til fyrirtækja
og heimila verði lækkaðir um 4-5
prósentustig og skammtímalán fyr-
irtækja og heimila verði lengd,
verulegu fjármagni verði varið til
örvunar atvinnulífsins, m.a. með
hagkvæmum lánum til framleiðni-
aukandi framkvæmda og að álögur
á sjávarútveg, ferðaþjónustu og
samgöngur verði felldar niður. Þá
verði erlend lán takmörkuð við fjár-
magn til framleiðslu sem afli eða
spari gjaldeyri og „flutningur fjár-
magns úr landi verði takmarkaður
enn um sinn,“ eins og það er orðað
í ályktunardrögunum.
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, sagð-
ist í ræðu á fundinum í gærkvöldi
að hann efaðist um að vextir myndu
lækka nægilega til að hjól atvinnu-
lífsins færu að snúast á ný. Jafnvel
þótt vextir á útlánum banka lækk-
uðu til jafns við vaxtalækkun ríkis-
skuldabréfa yrðu þeir eftir sem
áður líklega hærri en í nokkru öðru
landi og taldi Steingrímur að vegna
mikilla afskrifta myndi bönkum
reynast erfitt að lækka útlánsvexti
meira en innlánsvexti án verulegrar
lækkunar bindiskyldu og rýmkunar
á lausafjárstöðu.
Listasafn íslands
Sýningu
Bragalýkur
um helgina
YFIRLITSSÝNINGUNNI á graf-
íkverkum Braga Ásgeirssonar,
sem staðið hefur yfir í Listasafni
Islands undanfarnar vikur, lýkur
nú um helgina. Á sýningunni,
sem komið hefur verið fyrir á
efri hæð Listasafnsins, eru hart-
nær 60 grafísk þrykk sem
spanna tímabilið 1951-1993.
Sýningunni fylgir bók um lista-
manninn og verk hans, með
greinum eftir listfræðinga og
listamenn, þ.á m. Braga sjálfan.
Sunnudaginn 7. nóvember, síð-
asta dag sýningarinnar, mun Aðal-
heiður Skarphéðinsdóttir kynna
grafískan miðil sinn, dúkristu, fyrir
gestum og gangandi.
Listasafn íslands er opið kl.
12-18 alla daga nema mánudaga.
Kaffistofa safnsins er opin á sama
tíma, en hún kynnir nú nýjan mat-
seðil.
Slapp út úr logandi húsi
MAÐUR á fertugsaldri bjargað-
ist 'út um glugga þegar hús hans
á Bíldudal brann í fyrrinótt.
Húsið er forskalað timburhús á
einni hæð með kjallara. Maðurinn,
sem býr þar einn, vaknaði um
klukkan fimm um nóttina við það
að eldur var í stofunni. Hann átti
ekki aðra leið út, að sögn Arnar
Gíslasonar, slökkviliðsstjóra á
Bíldudal, en um glugga og slapp
þar ómeiddur út. Slökkviliði var
Vilhjálmur
Pálsson
látinn
VILHJÁLMUR Pálsson, vörður í
Landsbankanum, Laugavegi 77,
lést í St. Jósefsspítala, Hafnar-
firði, í gærmorgun eftir stutta
sjúkrahúslegu.
Hann starfaði ötullega í AA-sam-
tökunum í 25 ár og var stofnandi
fýrstu opnu AA-deildarinnar á Is-
landi. Vilhjálmur hjálpaði miklum
fjölda íslendinga, sem áttu við
áfengisvandamál að stríða, að
breyta til betri vegar.
Vilhjálmur var kvæntur Valgerði
Oddnýju Ágústsdóttur og áttu þau
þrjú uppkomin börn.
gert viðvart og komu tólf menn á
staðinn og unnu við slökkvistarf á
einum dælubíl og var slökkvistarfí
að mestu lokið innan klukkustund-
ar, að sögn Arnars.
Nokkrar skemmdir urðu í húsinu
en einkum á innanstokksmunum
af völdum sóts, elds og reyks, að
sögn Arnars. Eldsupptök voru óljós
í gær en menn frá Rafmagnseftir-
liti höfðu verið á vettvangi við rann-
sókn ásamt lögreglu á Patreksfírði.
Einstakt tækifæri
Glæsiíbúðir
í hjarta borgarinnar
Lækjargötu 4
Fullbúin Mð með húsgögnum M Casa
verður til sýnis í dag,
laugardag, og sunnudag kl. 12-15.
Þessar íbúðir eru til sölu:
2ja herb. á 3. og 4. hæð 63 fm verð 6,7 m.
2ja-3ja herb. á 5. hæð
m.millilofti 73 fm verð 6,7 m.
3ja-4ra herb. á 3. hæð 92,6 fm verð 8,9 m.
Eignimar afhendast fullfrágengnar nú þegar
og í desember nk. Bílastæði í bílageymslu
(innangengt) geta fylgt.
Greiöslukjör íbúða:
Dæmi: 2ja herb. íbúð, verð 6,7 m.
Húsbréf án affalla kr. 5.025.000,-
Við undirritun kaupsamnings kr. 600.000,-
Á 18 mán. skv.
nánara samkomulagi kr. 1.075.000,-
t:i(»\\\iiHi.i\iv,
Sími 67 90 90 - Fax 67 90 95 - Síðumúla 21
♦----t-f
330 fm
skrifstofuhúsnæði
Húsnæðið er á 2. hæð.
Lyfta. Stórir gluggar.
Góð lofthæð.
Greiðslukjör skv. nánara
samkomulagi.
Byggjandi: ístak hf.
Eros UO dnrci
25% afmælisafsláttur í dag — Opið frá kl. 10-17
19S3
Eros,
Laugavegi 87, sími 13350.
1993