Morgunblaðið - 06.11.1993, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993
Matuönuversl-
anir á Norður*
Verðkönnun á Norðurlandi eystra
38% mun-
ur er milli
verslana
Lægsta verð = 100
KEA, Nettó, Ak. 1100
Hagkaup, Ak. □ 107,9
M.M. Kaupangi, Ak.
Þingey, Húsavík
KEA, Hrisalundi, Ak.
Matbær KÞ, Húsavík
KEA Byggðav., Ak.
KEA Sunnuhlíð, Ak.
Svarfdæiabúð, Daivík
Valberg, Ólafsfirði
KEA, Ólafsfirði
Matvöruv. Kópaskeri
Versl. Brynja, Ak.
Lundakjör, Ak.
Kf. Langan., Þórshöfn (U
Búrfell, Húsavik
Versl. Ásbyrgi I
Verslunarf. Raufarh.
Sæland, Ak.
Siða. Ak. I
111,1
111,6
112,4
116,8
121,5
121,8
121,8
123,8
125,9
KEA-NETTÓ er ódýrasta verslun-
in á Akureyri og raunar í öllu
kjördæminu, samkvæmt verð-
könnun Samkeppnisstofnunar.
Hagkaup er tæplega 8% dýrari en
KEA-Nettó og Matvörumarkaður-
inn í Kaupvangi 11% dýrari.
Samkeppnisstofnun bar saman
verð innan allra landshiutanna. Lang
mesti verðmunurinn reyndist vera í
Norðurlandskjöræmi eystra. Dýrustu
verslanimar samkvæmt þessari
könnun eru verslanirnar Síða og
Sæland á Akureyri, með liðlega 38%
hærra verð en KEA-Nettó. Þess bera
að geta að Sæland hefur nú lokað.
Bónus opnar verslun á Akureyri í
dag og er ekki með í þessari könnun.
■ KARLAKÓR Akureyrar-Geys-
ir verður með tónleika í Skúlagarði
í Kelduhverfi á morgun, sunnudag-
inn 7. nóvember kl. 17.00 og í ídöl-
um í Aðaldal kl. 21.00. Á söngskrá
eru lög eftir innlenda og erlenda
höfunda. Einsöngvarar með kómum
eru þeir Ingvi Rafn Jóhannsson og
Eggert Jónsson, stjómandi Roar
Kvam og undirleikari Richard
Simm.
■ GALLERÍ Borg og Listhúsið
Þing halda málverkauppboð á Hótel
KEA sunnudaginn 7. nóvember kl.
20.30. Alls verða boðin upp um 60
verk m.a. eftir Jóhannes Kjarval,
Ásgrím Jónsson, Kristínu Jónsdóttur,
Kristján Davíðsson, Jón Þorleifsson,
Þorvald Skúlason, Nínu Tryggva-
dóttur, Gunnlaug Blöndal, Erró, Lou-
isu Matthíasdóttur, Svein Þórarins-
son, Pétur Friðrik, Jón Engilberts,
Eyjóif Eyfells og Eggert Guðmunds-
son. Verkin verða sýnd í Listhúsinu
Þingi, Hólabraut 13, laugardag og
sunnudag frá kl. 14-18.
■ ALMENNIR kynningarfundir
um sameiningu sveitarfélaga verða
haldnir í Alþýðuhúsinu á Akureyri
og félagsheimilinu Þórsveri á Þórs-
höfn á morgun, sunnudaginn 7. nóv-
ember, og hefjast þeir báðir kl. 16.
Tillögur umdæmanefndar um sam-
einingu verða kynntar, en þær fela
í sér að öll sveitarfélög í Eyjafirði
verði sameinuð í eitt og Norður-Þin-
geyjarsýslu verði skipt upp í þijú
sveitarfélög.
■ STOFNFUNDUR Verðandi á
Akureyri verður haldinn sunnudag-
inn 7. nóvember næstkomandi í
Lárusarhúsi við Eiðsvallagötu 18
og hefst hann kl. 20.30. Landssam-
tök Verðandi voru stofnuð síðastlið-
ið vor og eru aðildarfélag að spretta
upp víðsvegar um landið. Þetta eru
samtök ungs alþýðubandalagsfólks
og óflokksbundins félagshyggju-
fólks. Eitt af meginmarkmiðum
Verðandi er að stofna til víðtækra
skoðanaskipta og umræðna og mál-
efnavinnu sem byggir á grunnhug-
myndum jafnaðarstefnunnar um
jafnrétti, lýðræði og félagslegt rétt-
læti, segir í fréttatilkynningu frá
félaginu.
■ TVEIR írskir tónlistarmenn,
Martin O’Donohoe og John Daly,
leika í Blómahúsinu um helgina.
Þeir munu leika írska tónlist um
miðjan daginn bæði á laugardag og
sunnudag og þá verða þeir einnig á
ferðinni í kvöld, laugardagskvöld og
gefst þeim fjölmörgu sem sótt hafa
Irland heim tækifæri á að rifja upp
góðar minningar við undirleik þeirra
félaganna. '
íslendingar fara í sund
og útlendingar á söfn
SUNDLAUGAR njóta mestra vinsælda íslenskra ferðamanna í Eyja-
firði hvað afþreyingu varðar, en flestir útlendingar heimsækja söfn.
Þetta er m.a. niðurstaða könnunar sem gerð var meðal ferðamanna
í Eyjafirði síðastliðið sumar, en hana gerði Þorbjörg Þráinsdóttir
fyrir Akureyrarbæ.
Útlendir ferðamenn virðast al-
mennt virkari en íslendingar á með-
an á dvöl þeirra stendur. Sundlaug-
arnar njóta augljóslega mestra vin-
sælda meðal íslendinga en 39%
þeirra sem tóku þátt í könunninni
höfðu nýtt sér sundlaugar. Þá heim-
sóttu 24% þeirra Lystigarðinn, 22%
fóru í Kjamaskóg, 24% skoðuðu söfn
og 25% sóttu skemmtistaði eða krár.
Nonnasafn vinsælt
Um 45% útlendra gesta skoðaði
söfn á ferð sinni um Eyjafjörð. Þau
söfn sem njóta mestra vinsælda
meðal þeirra eru Nonnasafn og Nátt-
úrfræðistoínun sem um 19% heim-
sóttu og 17% fóru á Minjasafnið.
Þá skoðuðu 35% einhveija af þeim
kirkjum sem í firðinum eru, flestir
Akureyrarkirkju, 34% fóru í Lysti-
garðinn, 20% fóru í gönguferðir um
fjöll og 27% þeirra nýttu sér sund-
iaugarnar. Höfundur skýrslunnar
segir það mest hafa komið á óvart
hversu margir þeirra fóru á
skemmtistaði eða krár eða um 20%.
Fram kemur í skýrslunni að höfða
mætti enn frekar til útlendinga hvað
þennan þátt varðar, með auglýsing-
um á helstu gististöðum og umferð-
armiðstöð, þar sem áhersla yrði lögð
á kynningu á lifandi íslenskri tón-
list. Haft er eftir einum ferðalang-
anna í skýrslunni að það besta við
Akureyri sé að koma til bæjar þar
sem í boði er fjölbreytt þjonusta og
skemmtanalíf eftir ferðalag um
sveitimar.
Síðuskóli
Frágangur
sé hættulaus
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Keramiknámskeið
UM þijátíu nemendur í Glerárskóla hafa síðustu vikur verið á námskeiði hjá
Gretu Hasselberg Klementsen frá Horten í Noregi en það er liður í verkefn-
inu „Norræn æska - norræn list“. Sýning var haldin á þeim munum sem
nemendumir gerðu, en um var að ræða námskeið í svokallaðri ragubrennslu.
Á myndinni em þær íris Björk, Heiða Brynja og Hrafnhildur Guðrún.
Á AÐALFUNDI Foreldra- og
kennarafélags Síðuskóla sem
haldinn var fyrir skömmu var
samþykkt ályktun þar sem bygg-
ingaverktakar, tæknideild bæjar-
ins og aðrir sem bera ábyrgð á
framkvæmdum í skólahverfinu
eru hvattir til að sjá til þess að
umgengni og frágangur við ný-
byggingar, tæki og gatnagerð sé
algjörlega hættulaus.
Jafnframt beinir aðalfundurinn því
til foreldra í hverfinu að þeir brýni
fyrir bömum sínum að þau séu alls
ekki að óþörfu á nýbyggingasvæðum
og annars staðar, þar sem fram-
kvæmdir em í gangi.
Kosið í Oddeyrarskóla
Á FUNDI bæjarráðs Akureyrar á fimmtudag var lagt fram bréf
frá yfirkjörstjórn Akureyrar þar sem fram kom sú samþykkt
hennar að hafa 5 kjördeildir við kosningar um sameiningu sveit-
arfélaga 20. nóvember næstkomandi. Kjörstaður verður í Oddeyr-
arskóla og kjörfundur mun standa frá kl. 10 til 22.
Fjögur tilboð
Á fundinum kynnti bæjarlög-
maður einnig tilboð í vátryggingar
Akureyrarbæjar sem boðnar hafa
verið út. Fjögur tilboð bámst en
afgreiðsiu málsins var frestað.
Sorpeyðing Eyjafjarðar
Bæjarlögmaður kynnti einnig
drög að þremur samningum milli
Sorpeyðingar Eyjafjarðar og Ak-
ureyrarbæjar, þ.e. um fram-
kvæmdastjóm og daglegan rekstur
Sorpeyðingar Eyjafjarðar, um af-
not lands undir sorphauga og um
rekstur þeirra. Afgreiðslu þessa
máls var einnig frestað.
Oddeyrarskóli
Bæjarráð vísaði til tæknideildar
erindi Foreldra- og kennarafélags
Oddeyrarskóla þar sem því var
beint til bæjaryfirvalda að gerðar
verði úrbætur á aðkomuleiðum að
skólanum til öryggis fyrir skóla-
böm. Félagið hefur einnig ítrekað
áskomn um að bygging íþrótta-
húss við Oddeyrarskóla verði for-
gangsverkefni í skólaframkvæmd-
um bæjarins. Bendir bæjarráð á
að húsnæðismál skólans em nú í
athugun.
Laxá
Bæjarráð samþykkti á fund-
inum á fímmtudag að leggja til
að Akureyrarbær kaupi hlutabréf
í Fóðurverksmiðjunni Laxá fyrir
rúmar 600 þúsund krónur, þ.e.
arðgreiðsla þessa árs af hlutafjár-
eign bæjarins.
Lyftuhús
Kynnt vom á fundi bæjarráðs
tilboð sem borist hafa í byggingu
lyftuhúss við Lundarskóla. Kostn-
aðaráætlun hönnuðar hljóðaði upp
á 2.417.136 krónur. Tvö tilboð
bámst, Vör hf. bauð 2.158.752
krónur og Pan hf. bauð 2.242.236
krónur. Bæjarráð samþykkti að
gengið yrði til samninga við Vör
hf. um verkið.
Messur
■AKUREYRARPRESTAKALL:
Hádegistónleikar í dag. Guðs-
þjónusta verður á FSA kl. 10.
Sunnudagaskólinn verður í
safnaðarheimilinu kl. 11. Börn-
in fá að föndra og eru beðin
að hafa með sér liti. Munið
kirkjubílana. Guðsþjónusta
verður í Akureyrarkirkju kl. 14.
Fullskipaður kór Akureyrar-
kirkju syngur. í messunni verð-
ur látinna minnst. Kvenfélag
Akureyrarkirkju verður með
kirkjukaffi í safnaðarheimilinu
eftir messu. Messað verður í
Seli kl. 14. Æskulýðsfundur
verður kl. 17. Biblíulestur á
mánudagskvöld kl. 20.30.
■GLERARKIRKJA: Biblíulest-
ur og bænastund kl. 13. í dag,
laugardag 6. nóvember. Allir
velkomnir. Sunnudaginn 7.
nóvember barnasamkoma kl.
11. Allra heilagra messa kl.
14. Kirkjukaffi kvenfélagsins
verður í safnaðarsalnum að
messu lokinni. Fundur æsku-
lýðsfélagsins kl. 17.30.
■HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Samkoma fyrir ungt fólk annað
kvöld kl. 20.30. Barnakirkjan
kl. 11 á morgun, sunnudag.
Samkoma með þátttöku fé-
laga úr Gídeonfélaginu. Ræðu-
menn Níls Jakob Erlingsson
og Frímann Ásmundsson
kristniboði. Samskot tekin til
Gídeonfélagsins. Barnagæsla
meðan á samkomu stendur.
■ MUNKAÞVERÁRKIRKJA:
Messa annað kvöld, sunnu-
dagskvöld kl. 21. Altarisganga
á allraheilagramessu. Ein-
söngur Jóhannes Gíslason.
NOVEMBER
Ljúffeng mcfiltfó á lágu verði
Píta með buffi, frönskum og kók kr. 520/“
Hamborgarar með frönskum og kók kr. 420/“
Ath. tilboðið gildir ekki
f/rir heimsendingar-
þjónustu og afsláttarkort
Pílubrauðin eru nýbökuð og laus viS öll rotvarnar-
efni. Grænmeti, kjöt og fiskur, ferskt og bragS-
gott. Pítan er því ekki bara góð og sa&söm
máltíð, heldur líka mjög holl.
Heimsendingarþjónusta alla virka
daga frá kl. 5.00-22.00.
Laugar- og sunnudaga
kl. 11.30-22.00
Fjölskyldupakki:
Tvær pítur m/buffi, tvær barna-
pítur (eSa barnahamborgarar)
m/ frönskum, sósu og tveggja
lítra kók kf | ,75Qa-
opn'
,una'