Morgunblaðið - 06.11.1993, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993
Safnaðar starfið
í Hjallakirkju
eftir Kristján Einar
Þorvarðarson
Frá vígsludegi Hjallakirkju í
Kópavogi, hinn 11. apríl sl., hefur
verið unnið að frágangi á aðalhæð
kirkjunnar. Sú bætta aðstaða sem
nú er fyrir hendi gefur möguleika
á aukinni fjölbreytni í safnaðarstarf-
inu. Hér skal í stuttu máli vikið að
því helsta sem um er að vera í safn-
aðarstarfi Hjallakirkju.
Guðsþjónustur
Guðsþjónusta safnaðarins er sá
sameiginlegi vettvangur sem allt
annað starf á vegum kirkjunnar
hlýtur að beinast að. Að öllu jöfnu
fara guðsþjónustur fram á sunnu-
dagsmorgnum kl. 11. Böm og full-
orðnir em saman við guðsþjónustu
fram að prédikun, en þá fara bömin
með sínum leiðtogum úr kirkjusal,
yngri hópur, sen nær til 7 ára ald-
urs, í safnaðarsal og eldri hópur,
sem em böm 8 ára og eldri, í mót-
tökusal. Þá er hugmyndin að kirkju-
gestir geti, að lokinni guðsþjónustu,
staldrað við í safnaðarsal, þar sem
boðið verður upp á hressingu. Einu
sinni í mánuði fer síðan fram fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11, sem er
einskonar sameiginleg guðsþjónusta
allra viðstaddra, og ennfremur fer
fram guðsþjónusta með altaris-
göngu (messa) a.m.k. einu sinni í
mánuði. Auk þessa fara fram guðs-
þjónustur kl. 14, þegar ástæða þyk-
ir til, og þá gjaman af einhveiju
sérstöku tilefni, eins og verða mun
hinn 7. nóvember nk., en þá munu
félagar úr Handknattleiksfélagi
Kópavogs standa fyrir guðsþjónustu
kl. 14, ásamt sóknarpresti.
10-12 ára starf
Kirkjulegt starf fyrir 10-12 ára
börn fer fram á miðvikudögum kl.
17-18.30. Það hófst sl. miðvikudag
og mættu þá um 140 börn. Hlé
verður gert á þessu starfi frá því í
byijun desember og fram í janúar,
en það mun verða auglýst nánar
þeim þátttakendum sem hér eiga
hlut að máli.
Unglingastarf
Sérstakt æskulýðsfélag hefur enn
ekki verið stofnað við kirkjuna, en
það unglingastarf sem boðið verður
upp á í vetur, beinist sérstaklega
að þátttakendum í fermingarstarfí.
Það mun m.a. felast í opnu húsi
með dagskrá þar sem ferming-
arbörnin munu sjálf annast undir-
búning ásamt leiðbeinendum. Um
miðjan nóvember verður farið með
fermingarböm í tveggja daga
fræðsluferð í Vatnaskóg.
Starf fyrir eldra sóknarfólk
Næstkomandi fímmtudag, 4. nóv-
ember, fer af stað opið hús í Hjalla-
kirkju fyrir eldra sóknarfólk og þar
eru ekki dregin nein skýr aldurs-
mörk. Opna húsið stendur yfír frá
kl. 14-17, og verður fyrst um sinn
annan hvern fimmtudag á sama
tíma. Frú Anna Sigurkarlsdóttir
mun hafa umsjón með þessum þætti
safnaðarstarfsins ásamt sóknar-
presti.
Kór Hjallakirkju
Kór Hjallakirkju hefur nú á að
skipa um 20 áhugasömum félögum
og eru fastir æfíngatímar kórsins á
miðvikudagskvöldum kl. 20. Enn er
möguleiki fyrir áhugafólk um söng
að líta inn á kóræfingu eða að hafa
samband við organista og kórstjóra,
Kristínu G. Jónsdóttur, í síma 13704
eða formanns kórsins, Margréti
Björnsdóttur, í síma 641617.
Safnaðarfélag Hjallakirkju
Hlutverk Safnaðarfélags Hjalla-
kirkju er að efia og styrkja safnað-
arstarfíð. Hingað til hefur það stað-
ið fyrir fræðslu og fjáröflun svo eitt-
hvað sé nefnt, og 15. nóvember nk.
heldur félagið fyrsta fund vetrarins
í kirkjunni og hefst hann kl. 21. Á
fundinum verður stofnaður hjóna-
klúbbur innan félagsins, sem mun
m.a. hafa eflingu hjónabandsins að
markmiði, en gestur fundarins, sr.
Þorvaldur Karl Helgason, forstöðu-
maður Fjölskylduþjónustu kirkjunn-
ar, mun ræða um samskipti hjóna.
Kristján E. Þorvarðarson
„Nýja kirkjan okkar,
sem þó á langt í land
með að verða fullgerð,
gefur okkur nýjan
kraft og möguleika til
eflingar öllu safnaðar-
starfi í sókninni“.
Foreldramorgnar verða einnig í
umsjá Safnaðarfélagsins.
Mömmumorgnar/foreldra-
morgnar
Miðvikudaginn 17. nóvember nk.
kl. 10-12 fer af stað opið hús í
safnaðarheimili kirkjunnar fyrir for-
eldra ungra barna. Þetta starf er
raunar ekki nýtt af nálinni innan
safnaðarins, því að veturinn 1991-
1992 var staðið fyrir slíku starfí í
húsi KFUM og K í Lyngheiði 21.
Það er ánægjulegt að geta nú aftur
tekið upp þráðinn þar sem frá var
horfíð.
Helgihald í Sunnuhlíð
Sóknarprestar Kópavogssafnaða
hafa með sér samstarf um guðsþjón-
ustur fyrir vistfólk hjúkrunarheimil-
is aldraðra í Sunnuhlíð á fímmtu-
dögum kl. 16.
Lokaorð
Það hafa orðið mikil stakkaskipti
varðandi aðstöðumál Hjallasafnaðar
á yfirstandandi ári. Nýja kirkjan
okkar, sem þó á langt i land með
að verða fullgerð, gefur okkur nýjan
kraft og möguleika til eflingar öllu
safnaðarstarfí í sókninni.
Engu að síður er mér það vel ljóst,
að starfsmenn við söfnuðina hér í
þéttbýlinu eru víðast hvar alltof fáir
og í raun óskiljanlegt hvers vegna
einum presti er ætlað að þjóna allt
að tíu þúsund manns, eins og dæmi
eru um hér á höfuðborgarsvæðinu.
Um það mál hefði nýafstaðið kirkju-
þing mátt fjalla öðru fremur, og
virðist á stundum sem málsvarar
kirkjunnar séu ekki í nógu góðu
sambandi við þann vettvang þar sem
neyðin er stærst. Það er þó von mín
og bæn að þar megi skipast til betri
vegar.
Að lokum þetta til ykkar, ágæta
sóknarfólk. Aðsóknin að guðsþjón-
ustum og öðrum þáttum safnaðar-
starfsins, sem þegar er hafíð, vitnar
um hversu mikill og almennur áhugi
er á þátttöku í kirkjulegu starfí.
Megi enn fleiri leggja leið sína til
kirkjunnar og finna þar náið og
gott samfélag sem uppbyggist í
anda hins krossfesta og upprisna
Drottins okkar og frelsara, Jesú
Krist.
Höfundur er sóknarprestur í
Hjallaprestakalli.
Einkavæðing tóbakssölu
eftir Eyjólf
Eysteinsson
Einkasala ríkisins á tóbaki hefur
verið samfelld frá árinu 1932. Sér-
stakt fyrirtæki, Tóbakseinkasala
ríkisins, hafði hana með höndum
til ársins 1961 en þá var áfengis
og tóbakssalan sameinuð af hag-
kvæmnisaðstæðum í Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins sem þekkt
er af skammstöfuninni ÁTVR.
Þessi skipan hefur gefist vel.
Tóbakinu er dreift samhliða áfeng-
inu frá birgðastöðinni í Reykjavík
til útsölustaða í öllum landshlutum.
Á aðallager ÁTVR, jafnt sem í út-
sölum víðsvegar um landið, er það
sama starfsfólkið sem annast af-
greiðslu tóbaks og áfengis. Þá sam-
nýtist einnig lagerpláss og dreifíng-
arkerfí fyrir báða vöruflokkana og
verður reksturinn þannig hag-
kvæmari. Birgðahald verður í lág-
marki þar sem hægt er að fylgjast
með heildarbirgðum ÁTVR á einum
stað og haga innkaupum eftir því.
Heildartóbaksbirgðir í landinu eru
því sjaldnast meiri en sem nemur
mánaðarsölu, þegar nýjar birgðir
berast til landsins.
Tekjur ríkissjóðs og sveitarfélaga
af rekstri ÁTVR á árinu 1992 voru
8,8 milljarðar kr. sem er um 8%
af heildartekjum ríkissjóðs. Hlutur
tóbakssölunnar er um einn þriðji
af heildartekjunum. Meðaltalið í
„Fyrirsjáanlegt er að
hækkun á smásöluverði
leiði til þess að hækkun
verði á vísitölu fram-
færslukostnaðar sem
leiðir til hækkunar á
lánskjaravísitölu.
Reiknað hefur verið út
að 16-20% hækkun á
tóbaksverði auki skuld-
ir heimilanna um allt
að 200 milljónir.“
þessari fjárhæð er framlag til jöfn-
unarsjóðs sveitarfélaga að upphæð
327 milljónir kr. Viðskiptavinir
staðgreiða yfirleitt tóbakið við mót-
töku og mjög lítið er um lánsvið-
skipti. I þessu sambandi er rétt að
geta þess að tekjur ÁTVR 1992 af
vörslufé voru 41 milljón króna.
Starfsemi ÁTVR er endurskoðuð
af Ríkisendurskoðun og ekki er vit-
að annað en að fyllstu hagsýni sé
gætt í rekstrinum.
Skoðanir manna um afleiðingar
af tóbaksnotkun eru mjög á einn
veg, um eitur sé að ræða sem er
skaðlegt heilsu manna. Tóbak telst
til hættulegra efna og er því ástæða
til að fara með fyllstu gát við inn-
flutning þess og dreifingu. Rétt
hlýtur að vera að innflutningur
slíkra efna séu á höndum fárra frek-
ar en margra. Benda má á að í
Frakklandi, Spáni, Ítalíu, Austur-
ríki og Svíþjóð, svo og í sumum
fylkjum Bandaríkjanna eru tóbaks-
einkasölur. Ríkissjóður hefur há-
markstekjur af sölunni án þess að
þessari umdeildu vöru sé hampað
um of.
Nú mætti ætla að allir væru
ánægðir með hvaða hætti tóbakinu
væri komið til neytenda, en svo er
ekki. Á síðasta Álþingi lagði fjár-
málaráðherra fram frumvarp um
afnám einkasölu ríkisins á tóbaki.
Þar sem hér er um mikla hagsmuni
að tefla, ekki aðeins starfsmanna
og viðskiptamanna ÁTVR, heldur
og allra skattgreiðenda þá er ekki
óeðlilegt að velta því fyrir sér hvaða
afleiðingar þessar breytingar hefðu
í för með sér.
Ætla mætti að breytingar væru
gerðar með hagsmuni heildarinnar
að leiðarljósi en við athugun er ljóst
að svo virðist ekki vera. Skulu nú
talin upp nokkur atriði þessu til
sönnunar.
Vegna aukins dreifingarkostnað-
ar og birgðahalds mun tóbak hækka
í verði þegar hagkvæmni sem sam-
eiginleg dreifing tóbaks og áfengis
veldur nýtur ekki lengur við. Reikn-
að hefur verið út að smásöluverð
vindlinga muni hækka um 16,3%
að lágmarki, t.d. að einn pakki af
Eyjólfur Eysteinsson
Winston sígarettum sem nú kostar
260 kr. í smásölu hækki í allt að
303 kr. Þá er það álit umboðs-
manna að heildsöluálagningin þurfi
að hækka. í þessu dæmi er ekki
reiknað með að eigendur húsnæðis
á frísvæðum sem muni sjá um
birgðahald fái eitthvað fyrir sinn
snúð.
Tekjur ríkissjóðs af tóbaki munu
ekki innheimtast með jafn skjótum
hætti og áður. Greiðslufrestur á
virðisaukaskatti er tveir mánuðir
og venja er að heildsalar veiti smá-
sölum a.rn.k. 30 daga greiðslufrest.
Tekjur ÁTVR af vörslufé árið 1992
voru 41 milljón króna, þriðjungur
þessara tekna mun glatast ríkis-
sjóði.
Vegna hagkvæmni í dreifingu
hefur verið jafnaðarverð á tóbaki,
pakkinn af sígarettum hefur kostað
það sama í Reykjavík og Grímsey.
Við einkavæðingu mun þetta breyt-
ast.
Fyrirsjáanlegt er að hækkun á
smásöluverði leiði til þess að hækk-
un verði á vísitölu framfærslukostn-
aðar sem leiðir til hækkunar á láns-
kjaravísitölu. Reiknað hefur verið
út að 16-20% hækkun á tóbaks-
verði auki skuldir heimilanna um
allt að 200 milljónir.
Ekki verður séð hvernig tryggt
verði áfram framlag ÁTVR til jöfn-
unarsjóðs sveitarfélaga sem var á
síðasta ári 327 milljónir.
Fjármálaráðherra hefur lýst því
yfír að leggja beri Áfengis- og tób-
aksverslun ríkisins niður. Er breyt-
ing sú sem fyrirhuguð er á sölu
tóbaks skref í þá átt? Áfengis- og
tóbakssalan var af hagkvæmnis-
ástæðum sameinuð árið 1961 eins
og áður var getið.
Rétt er að staldra við og athuga
sinn gang. Ekki verður séð að það
sé í þágu almennings að breytingar
verði gerðar á fyrirkomulegi á sölu
og dreifíngu áfengis og tóbaks. Hér
mætti spyrja hverra hagsmuna sé
verið að gæta. Er ekki verið að
einkavæða einkavæðingarinnar
vegna?
Höfundur er útsölustjóri.