Morgunblaðið - 06.11.1993, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993
Foreldrasamtökin standa fyrir námstefnu um einelti
Hugmyndir um leiðir til að
draga úr ofbeldi unglinga
FORELDRASAMTÖKIN standa fyrir námstefnu um einelti í Kennara-
háskólnuma í dag, kl. 10-15. Foreldrasamtökin hafa samvinnu við
ýmsa aðila stofnað vinnuhóp til að koma með tillögur um aðgerðir til
að draga úr ofbeldi meðal unglinga og miðla upplýsingum milli þeirra
sem starfa að þessum málum. Höfuðmál hópsins eru annars vegar
umræða um að reglum um útivistartíma unglinga verði framfylgt, en
hins vegar umfjöllun um leiðir til að draga úr framboði á ofbeldis-
fullu afþreyingarefni.
Á námstefnunni sem haldin er í
samvinnu við Endurmenntunardeild
Kennaraháskólans og Fræðsluskrif-
stofu Reykjavíkur og Reykjaness
munu meðal annars taka til máls
Brynjólfur Brynjólfsson, sálfræðing-
ur hjá Sálfræðideild skóla í Reykja-
vík, sem flallar um einelti og hvernig
á að taka á alvarlegum eineltismál-
um; Sigrún Aðalbjamardóttir sem
kynnir námsefni sem sérstaklega á
að bæta samskipti í skólum og heima;
Guðjón Ólafsson, sérkennslufræðing-
ur sem fjallar um rannsóknir á ein-
elti á Norðurlöndum, helstu tegundir
þess og nokkrar aðferðir til lausnar;
Ólafur Oddsson frá Rauða krossi
íslands sem kynnir skyggnuröð sem
stuðla á að bættum samskiptum á
meðal skólabarna og myndband um
einelti sem væntanlegt er á næst-
unni; Jóhanna Valdemarsdóttir, sér-
kennari í Lækjarskóla á Hafnarfirði,
sem segir frá þróunarstarfí varðandi
einelti sem þar var unnið.
Starfshópur Foreldrasamtakanna
hvetur til að reglur um útivistartíma
séu virtar og minnir á mikilvægi þess
að börn læri frá unga aldri að virða
reglumar, auk þess að vilja stuðla
að samstöðu foreldra um þetta mál.
Hópurinn beinir þeim tilmælum til
fjölmiðla og þá sérstaklega sjónvarps-
stöðva að tekið sé í ríkari mæli til
þess að böm eru gjaman meðal áhorf-
enda að aðalfréttatíma stöðvanna.
Leikur fyrir ungt fólk
Morgunblaðið/Sverrir
CHRISTIAN Lindberg, básúnuleikari, leikur einleik með Sinfóníu-
hljómsveitinni í kvöld, í verkinu Vélhjólakonsert.
Sinfóníuhljómsveit íslands í Háskólabíói
Vélhjólakonsert á tón-
Deilur um verð á Mackintosh-sælgæti á íslandi
Islensk-erlenda hyggst
kæra F&A til RLR
VEGNA fréttar er birtist í Morgunblaðinu um útsöluverð á Mackintosh
Quality Street á íslandi vill fyrirtækið Islensk-erlenda koma á fram-
færi eftirfarandi:
íslensk-erlenda mun kæra F&A til
Rannsóknarlögreglu ríkisins vegna
staðfests gruns um að Mackintosh
sem boðið er til sölu í F&A sé útmnn-
inn og ónýt vara. Dagstimplar hafa
augljóslega verið afmáðir af vörunni
og í sumum tilfellum jafnvel falsaðar
dagsetningar stimplaðar á vöruna.
Yfirlýsing frá versluninni F&A
Okurálagning í
skjóli einokunar
VEGNA staðhæfinga sölustjóra íslensks-erlenda/Danóls, sem er einka-
umboðsaðili fyrir Mackintosh á íslandi, um að við í F&A séum að selja
gamalt sælgæti, vil ég taka eftirfarandi fram:
1. Samkvæmt íslenskum lögum
er þess ekki krafist að hafa dag-
stimpla á sælgæti. Fáar tegundir ís-
lensks sælgætis hafa dagstimpil, en
það mun eldast eins og annað. Eng-
in kvörtun neytenda hefur borist til
okkar, en ef hún berst, munum við
að sjálfsögðu bæta það upp. Allt
erlent sælgæti sem við seljum er
dagstimplað annað en þessar 27 dós-
ir af Mackintosh, sem við höfum tek-
ið úr sölu, vegna ásakana einkaum-
boðsaðilans.
2. Aðalatriðið í þessu máli er verð-
ið til neytandans. Mbl. upplýsti um
heildsöluverð íslensks-erlenda/Dan-
óls og reiknast okkur til að heild-
söluálagningin hjá því sé gífurleg.
Þetta er verðið sem kaupmaðurinn
á horninu fær að greiða. Stórmarkað-
imir fá allt annað verð.
Við skorum á íslensk-erlenda/
Danól að upplýsa neytendur um,
hver hin raunverulega álagning
þeirra er.
Það eina sem við hjá F&A gerum
er að leggja hóflega á vörur, sem
við flytjum sjálfir inn og þess nýtur
neytandinn.
Friðrik G. Friðriksson
leikum fyrir ungl fólk
Sinfóníuhljómsveit íslands heldur tónleika í Háskólabíói í kvöld kl.
20 og eru þeir sérstaklega ætlaðir ungu fólki. Einleikari á tónleikun-
um verður Svíinn Christian Lindberg, básúnuleikari og flytur hann
Vélhjólakonsert, þar sem hljóðfæri hans er í raun í hlutverki vél-
hjóls. Verkið lýsir ferðalagi vélhjólamanns og er komið við í ólíkum
menningarheimum, meðal frumbyggja í Ástralíu, á sólríkum ströndum
Flórída í Ameríku og í miðaldaþorpi í Suður-Frakklandi.
Ráðstefna um húsnæðismál
RÁÐSTEFNA um húsnæðismál verður haldin á vegum Félagsmálaráðs
og Húsnæðisnefndar Reykjavíkur í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.
Markús Örn Antonsson borgar-
stjóri setur ráðstefnuna og Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráðherra
flytur ávarp. Framsöguerindi hafa
Sigurður E. Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar
ríkisins og Ivar Leveraas fram-
kvæmdastjóri Den Norske Stats
Husbank. Að loknu hádegishléi tala
Ingi Valur Jóhannsson deildarstjóri
í Félagsmálaráðuneytinu og Sveinn
Ragnarsson félagsmálstjóri Reykja-
víkurborgar. Jón Kjartansson for-
maður Leigjendasamtakanna og Rík-
arður Steinbergsson framkvæmda-
stjóri Húsnæðisnefndar Reykjavíkur.
hjá ANDRESI
Skólavörðustíg 22A - sími 18250 - póstkröfuþjónusta.
Vönduð jakkaföt...Verð kr. 5.500-14.900
Flauelsbuxur í úrvali.Verðkr. 1790-5.600
Stök vesti.............Verð frá kr. 1.800
Stakarbuxur.......Verðfrá kr. 1.000-6.700
--.—..-..........
Slíkt er að sjálfsögðu ólöglegt og
refsivert samkvæmt reglugerð 44.1
um merkingu neytendaumbúða nr.
408/1988 oggrein 82.8 í Heilbrigðis-
reglugerð nr. 149/1990.
Nestlé Rowntree, sem er framleið-
andi vörunnar hefur staðfest til yfir-
valda að allar Mackintosh vörur fyrir-
tækisins eru dagsstimplaðar við
framleiðslu. . Mackintosh án dags-
setningar á því ekki að sjást í sölu.
í ljósi þessa tók Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur allar ódagsettar Mack-
intosh vörur úr sölu í versluninni
F&A þann 4. nóvember 1993.
Til áréttingar vill íslensk-erlenda
taka það fram að fyrirtækið sé fylgj-
andi heilbrigðri samkeppni, en for-
dæmir það harkalega þegar aðilar
eru farnir að afmá merkingar sem
eiga að tryggja ferskieika vörunnar
og í framhaldi af því farnir að not-
færa sér ljölmiðla til að auglýsa við-
komandi vöru sér til framdráttar.
Það er einfalt mál að kaupa vöru og
selja ódýrt sem er við það að renna
út eða jafnvel útrunnin. Við skorum
á þá aðila sem hafa keypt Mackint-
osh þar sem dagstimplar hafa verið
afmáðir að skila vörunni tafarlaust
í viðkomandi verslun.
Októ Einarsson.
Christian Lindberg er 35 ára
gamall. Hann stundaði nám í Sví-
þjóð, London og Los Angeles og 19
ára lék hann í hljómsveit óperuhúss-
ins í Stokkhólmi. Frá 25 ára aldri
hefur hann ferðast um heiminn sem
einleikari og hefur komið til Islands
þrisvar sinnum áður. Hann segir
mikil ferðalög reyna á fjölskylduna,
en hann er kvæntur og fjögurra
barna faðir. í fyrra hafi hann ferð-
ast í 240 daga, en á þessu ári hafí
hann dregið úr ferðalögunum. Hann
segir hveija tónleika sérstaka og
það eigi einnig við um tónleikana í
kvöld.
Ferðalag á vélhj'óli
„Ég hef leikið með Sinfóníu-
hljómsveit Islands áður, í fyrsta
skipti árið 1986, þegar norrænir
tónlistardagar voru haldnir hér á
landi,“ sagði Christian. „Þá hitti
ég Jan Sandström tónskáld, sem
ákvað að semja verk fyrir mig.
Hann vann verkið út frá því, að
ég væri sífellt á ferð um heiminn,
eins konar Ódysseifur nútímans.
Áður fyrr ferðuðust Ódysseifar
heimsins um á skipum, en Jan sá
nútíma manninn fyrir sér á vélhjóli.
Hann ákvað að láta verkið fjalla
um vélhjólamann, sem ferðast til
ólíkra landa, ólíkra menninga-
heima. Ég spila á básúnuna þannig
að hún hljómar ótrúlega líkt vél-
hjóli.“
Frá árinu 1989 hefur Christian
flutt verkið víða um heim og sagði
hann að því hefði verið mjög vel
tekið. Gagnrýnandi Financial Times
hefði til dæmis talið verkið það
áhugaverðasta sem fram kom á
Barbican-tónlistarhátíðinni í Bret-
landi í fyrra.
„Mér fínnst mjög gott að starfa
með Sinfóníuhljómsveit íslands, en
það háir sveitinni auðvitað að hér
er ekkert tónleikahús," sagði Christ-
ian. „Hljómsveitin hefur tekið mikl-
um framförum frá því að ég lék
síðast með henni, 1989, en það er
mjög erfítt að láta sveitina hljóma
vel í húsi, sem er ekki ætlað til tón-
leikahalds. Það er skaði að íslenskir
tónlistarmenn fái ekki notið sín til
fulls, því íslendingar eiga marga
frábæra tónlistarmenn, suma á
heimsmælikvarða. Þar get ég til
dæmis nefnt Blásarakvintett
Reykjavíkur," segir Christian Lind-
berg, básúnuleikari.
Auk verksins Vélhjólakonsert er
á efnisskrá tónleikanna í kvöld verk-
ið Pomp & Circumstance eftir Edw-
ard Elgar og Bolero eftir Maurice
Ravel. Hljómsveitarstjóri er Finninn
Osmo Vánská, en kynnir er Björn
Jörundur Friðbjömsson. Tónleikarn-
ir í Háskólabíói hefjast kl. 20.
Athugasemd við skrif
Braga Asgeirssonar
eftir Jíicques Vilain
Mér hefur borist gagnrýni sem
birtist í Morgunblaðinu um sýningu
á verkum eftir Rodin sem nú stend-
ur yfir á Kjarvalsstöðum.
Þar kemur í ljós alger vanþekk-
ing höfundarins á bronsmyndagerð,
sem er umfram allt list afsteypunn-
ar.
Hann gefur í skyn að við höfum
sett saman undirmálssýningu fyrir
íslenska áhorfendur sem er sérlega
móðgandi fyrir þá og fyrir mig.
Á sýningunni er að finna brons-
myndir sem voru steyptar í tíð
Rodin (nr. 1, 10, 16, 24, 27, 34,
64, 74, 78, 79) og sem hann gaf
safninu árið 1916.
Auk þess óskaði Rodin eftir því,
og lagði mikla áherslu á það, að
haldið yrði áfram að steypa gifs-
verk sín í brons eftir sinn dag til
að kynna verk hans og í virðingu
við listsköpun hans: „Brons er allt-
af besta efnið fyrir myndir rnínar,
Hugsuðurinn eftir Rodin.
því að það varðveitir betur mynd-
mótun mína“ (bréf frá Rodin til
Fritz Mackensen, 29. desember
1911).
Og það gerir Rodinsafnið í nafni
franska ríkisins, sem verndar laga-
legan rétt myndhöggvarans. Þessar
bronsmyndir eru auðvitað steyptar
í takmörkuðu upplagi svo sem
ákveðið er í frönskum lögum.
Það er svo að gifsmyndirnar, sem
eru módel fyrir bronsmyndirnar,
eru ekki lánaðar nema í undantekn-
ingartilfellum, þar sem þær eru
afskaplega viðkvæmar.
Bronsmyndirnar, sem um þessar
mundir eru sýndar í Reykjavík,
hafa nýlega verið sýndar í söfnum
í Bandaríkjunum, Japan, Kína,
Þýskaiandi og Bretlandi.
Þetta eru þær myndir sem venju-
Iega eru sýndar í sölum Rodinsafns-
ins í París og sem gestir okkar fá
ekki notið um þessar mundir.
Höfundur greinarinnar hefði
mátt sýna þá kurteisi að minnast
þess.
Höfundur er forstöðumaður
Rodinsafnsins og yfirsafnvörður
við frönsku ríkissöfnin.