Morgunblaðið - 06.11.1993, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993
39
KNATTSPYRNA
Einar Páll fer
í Breidablik
EINAR Páll Tómasson hefur ákveðið að ganga til liðs við
Breiðablik, sem leikur í 1. deildinni á ný næsta sumar. Hann
er samningsbundinn Val til áramóta, þannig að ekki verður
skrifað undir samning fyrr en eftir það, en Einar Páll gekk frá
sínum málum við forráðamenn Breiðabliks í gær.
Einar Páll á 70 leiki í 1. deild
að baki með Val og 5 A-lands-
leiki fyrir ísland. Hann hélt til
Svíþjóðar fyrir síðasta keppnis-
tímabil, þar sem hann lék með
Degerfors um tíma, en var síðan
lánaður þaðan til liðs í Noregi, þar
sem hann lauk keppnistímabilinu.
Hjá Breiðabliki hittir Einar Páll
fyrir fyrrum þjálfara sinn hjá Val,
Inga Bjöm Albertsson, en vamar-
maðurinn lék þrjú ár undir hans
stjórn þar á bæ.
En hvers vegna varð Breiðablik
fyrir valinu? „Þetta er nokkuð
góður kostur. Mér líst vel á mann-
skapinn og þekki þjálfarann vel,“
sagði Einar Páll við Morgunblaðið
í gær. Hann sagði Val hafa verið
fyrsta kostinn, „en það kom upp
leiðindamál milli mín og stjómar-
innar þegar ég fór til Svíþjóðar,
mál sem ekki var hægt að leysa
þegar ég kom heim aftur, þannig
að sá kostur var ekki fyrir hendi
nú.“
Ljóst er, skv. upplýsingum for-
ráðamanna Breiðabliks, að allir
leikmenn liðsins frá því í sumar
verða áfram. Gengið var frá samn-
ingi við Val Valsson í gærkvöldi.
Þrír piltar, Framararnir Þorbjöm Sveinsson og Valur Gíslason, sem
er frá Eskifirði, og Eiður Smári Guðjohnsen, yal, fara til Feyenoord
í Hollandi á morgun á vegum hæfileikanefndar KSI og æfa hjá hollenska
félaginu í tvær vikur. Gert var ráð fyrir að strákamir færu síðar í vetur,
en Feyenoord vildi fá þá núna. Vegna prófa verða þeir ekki lengur en
raun ber vitni, en Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari, fer með þeim og
kynnir sér þjálfunina hjá félaginu.
KSÍ hefur samið við Feyenoord og Stuttgart í Þýskalandi um að taka
við efnilegum knattspyrnumönnum og er ráðgert að senda pilta til Stuttg-
art eftir áramót, en Islandsbanki styrkir æfíngaferðimar.
Einar Pðll Tómasson í Valsbúningnum. Hann klæðist hinum græna og
hvíta búningi Breiðabliks í Kópavogi næsta keppnistímabil.
Kristinn f
herbúðir
Framara
Kristinn Hafliðason, hinn
bráðefnilegi 18 ára knatt-
spyrnumaður úr Víkingi, hefur
ákveðið að skipta yfir í Fram
fyrir næsta keppnistímabil.
Ekki hefur verið gengið form-
lega frá málinu, en Kristinr}
staðfesti við Morgunblaðið í
gærkvöldi að hann hefði gert
upp hug sinn.
ÍAboðiðá
mót í Dubai
í febrúar
Islands- og bikarmeisturum ÍA í
knattspyrnu hefur borist boð
frá Dubai, höfuðborg Sameinuðti"
arabísku furstadæmanna, um að
taka þar þátt í móti 9. til 18. febr-
úar á næsta ári, en Noregsmeistar-
ar Rosenborg verða á meðal liða
í keppninni. Gunnar Sigurðsson,
formaður Knattspyrnufélags ÍA,
sagði boðið áhugavert, en einnig
væri hugur í Skagamönnum að
vera með á móti í Kaupmanna-
höfn, ef tímasetning þeirra stang-
aðist ekki á.
ÍA var með í danska mótinu í
byijun ársins og að fenginni
reynslu vilja Skagamenn halda
uppteknum hætti, en þeir hafa
einnig fengið óformlegt boð í mót
á Kanaríeyjum.
URSLIT
Njarðvík-ÍA 105:82
íþróttahúsið í Njarðvik, úrvalsdeildin í
körfuknattleik, fostudaginn 5. nóvember
1993.
Gangur leiksins: 0:3, 2:3, 4:9, 11:11,
19:17, 33:18, 40:27, 46:28, 52:30, 68:44,
62:46, 70:57, 90:66, 103:68, 105:82.
Stig UMFN: Rondey Robinson 29, Friðrik
Ragnarsson 23, Valur Ingimundarson 18,
Teitur Örlygsson 14, Rúnar Árnason 12,
Isak Tómasson 5, Ástþór Ingason 2, Brynj-
ar Sigurðsson 2.
Stig IA: Einar Einarsson 22, Dwayne Price
18, Haraldur Leifsson 14, Eggert Garðars-
son 10, Jón Þ6r Þórðarson 8, Ivar Ásgríms-
son 6, Dagur Þórisson 4.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Helgi
Bragason.
Ahorfendur: Um 100.
Bikarkeppni karla, leikir í vikunni:
Haukar b - UBK...............46:107
ÍR - Reynir...................85:68
Léttir - UMFN b..............107:98
1. deild karla, B-riðilI:
Reynir S. - Leiknir...........68:74
■Leikurinn var í síðustu viku, en tölumar
snérust þá við í blaðinu, þannig að staðan
varð röng í blaðinu á þriðjudag. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Handknattleikur
Leikir ! gærkvöldi:
1. DEILD KVENNA
Fylkir - ÍBV..................19:32
2. DEILD KARLA
ÍBK-UBK.......................22:29
ÍH -Ármann....................21:19
Knattspyrna
Þýskaland í gærkvöldi:
Gladbach - Hamburger............2.2
(Dahlin 20., Neun 79. vsp.) — (Letschkow
38., von Heesen 87. vsp.)
Kaiserslautern - Wattenscheid...4:1
(Kadlec 26., Roos 54., Sforza 79., Kuntz
80.) — (Buckmaier 41.) 29.182
Schalke - Leipzig............. 3:j
(Eckstein 27. og 56., Anderbrugge 90. vsp.)
- (Rische 88.). 25.000.
Íshokkí
Leikir í NHL á fimmtudag:
Phiiadelphia - Quebec...........4:1
■ Eric Lindros gerði 13. mark sitt fyrir
Philadelphia á leiktíðinni og er markahæst-
ur í deildinni.
Detroit - Toronto...............3:3
■Felix Potvin, markvörður Toronto, varði
45 skot, þar af 20 í þriðja leikhluta.
Boslon - Calgary................6:3
■Cam Neely hjá Boston var með níundu
þrennu sína á ferlinum.
Chicago - New York Islanders .............4:2
HANDKNATTLEIKUR
Úrslvt bikarkeppninnar á Akureyri?
IJJorysta Handknattleikssam-
■ bands íslands hefur rætt
þann möguleika við bæjaryfirvöld
á Akureyri. að úrslitaleikur bikar-
keppni HSI í karlaflokki fari fram
á Akureyri í vor skv. heimildum
Morgunblaðsins. Ekki hefur verið
gengið frá samningi — málið er
enn á viðræðustigi, og var málið
m.a. rætt í gær fyrir norðan í
tengslum við það er skrifað var
undir samsstarfssamning bæjar-
ins og HSÍ vegna heimsmeistara-
keppninnar 1995 — en báðir aðil-
ar hafa mikinn hug á að hug- bæjarfélagið. Rætt hefur verið um
myndin verði að veruleika.
HSÍ hefur verið að leita að
styrktaraðila fyrir bikarkeppnina,
og sú hugmynd kom upp að Akur-
eyrarbær „fjárfesti“ í keppninni;
notaði hana sem auglýsingu fyrir
að semja til allt að þriggja ára.
Ef af verður yrði úrslitaleikurinn
í íþróttahöllinni á Akureyri, en
húsið rúmar hátt I 2.000 áhorf-
endur.
ÍR-ingar í kennslustund
Bidasoa gjörsigraði ÍR-inga með 17 marka mun, 28:11 ífyrri leik liðanna
ÍR-INGAR steinlágu ífyrri Evr-
ópuleiknum gegn Elgoriaga
Bidasoa í Irun á Spáni í gær-
kvöldi, 27:11, eftir að staðan í
leikhléi hafði verið 13:7. Spán-
verjarnir léku frábærlega, að
sögn Brynjars Kvaran þjálfara
ÍR, og enginn betur en sænski
markvörðurinn Thomas Svens-
son, sem varði hvorki fleiri né
færri en 25 skot, þannig að lið
hans næði boltanum.
Eins og tölurnar bera með sér
var munurinn á liðunum mik-
ill. „Það er fátt hægt að segja um
þetta. Þeir voru bara miklu betri.
Við komumst að vísu í 3:1 en eftir
tíu mínútur var staðan orðin 3:3.“
Mörkin hlóðust síðan upp, Svensson
varði ótrúlega vel og Spánveijarnir
beittu hraðaupphlaupum í gríð og
erg. Hann sagði liðið einmitt þekkt
fyrir góða markvörslu og að leika
mjög sterka vörn. Það hefði komið
á daginn, en liðið hefði verið að
leika miklu betur en ÍR-ingar hefðu
séð það gera á myndbandsspólum
sem þeir hefðu skoðað fyrir leikinn.
Brynjar sagði einnig að ÍR-ingum
hefðu borist þær upplýsingar að
Svensson hinn sænski væri í lægð
um þessar mundir, en annað hefði
komið á daginn. „Hann var ótrúlega
góður; það var nánast alveg sama
hvernig færi við fengum. Hann var
hetja liðsins í kvöld," sagði Brynjar
Kvaran.
Branislav Dimitrivits var marka-
hæstur ÍR-inga með 3 mörk í gær-
kvöldi, Magnús Ólafsson og Jóhann
Örn Ásgeirsson gerðu 2 hvor og
Njörður Árnason, Ólafur Gylfason,
Guðmundur Þórðarson og Róbert
Rafnsson gerðu 1 hver.
Fall er...
Brynjar Kvaran sagði, um seinni
leikinn sem verður í dag, að ÍR-ing-
ar stefndu að sjálfsögðu að því að
ná hagstæðari úrslitum en í gær-
kvöldi. „Annars hugguðu Spánveij-
amir okkur eftir leikinn. Vissu að
við erum að taka þátt í Evrópu-
keppni í fyrsta skipti, og sögðu
okkur ekki að örvænta. Þegar þeir
hefðu tekið þátt í keppninni í fyrsta
sinn fyrir nokkrum árum hefðu
þeir dottið út eftir að hafa tapað
22:7 fyrir Essen!“
KORFUKNATTLEIKUR
Öruggur heimasigur
í „Ljónagryfjunni"
NJARÐVÍKINGAR áttu ekki íteijandi erfiðleikum með nýliða
Skagamanna þegar liðin mættust í „Ljónagryfjunni" í Njarðvík í
gærkvöldi. Njarðvíkingar sigruðu nokkuð örugglega 105:82 eftir
að staðan í hálfeik hafði verið 58:44.
Leikur liðanna var æði sveiflu-
kenndur og þá sérstaklega í
upphafí þegar Njarðvíkingar settu
^■■1 stig gegn aðeins
Björn einu stigi Skaga-
Blöndal manna og náðu með
skrílarfrá því 15 stiga forskoti.
Njarðvik Þennan mun náðu
Skagamenn aldrei að vinna upp þrátt
fyrir ágætan síðari hálfleik þar sem
þeir settu Njarðvíkinga út af laginu
um tíma með góðri vörn. Njarðvíking-
ar náðu þó að átta sig og juku for-
skot sitt í 35 stig 103:68, en Skaga-
menn náðu aðeins að klóra.í bakkann
á síðustu mínútunum með því að setja
14 stig gegn 2 stigum heimamanna
sem þá höfðu sett varalið sitt innA-
„Eg er vitaskuld ánægður meo
þennan sigur og get sagt um þá
Skagamenn að þeir eru alls ekki lé-
legir - og það getur enginn verið
öruggur gegn þeim fyrirfram. Við
náðum ekki að halda uppi einbeitingu
allan leikinn, það er hlutur sem við
þurfum að laga og eftil vill hafa
menn verið með Keflavíkurleikinn á
sunnudag í huga,“ sagði Valur Ingi-
mundarson þjálfari og leikmaður
Njarðvíkinga..............