Morgunblaðið - 20.11.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
3
Heymetis-
turn
eyðileggst
25 metra hár heymet-
isturn í Einarsnesi í Borg-
arfirði gjöreyðilagðist í
suðaustan hvassvirði í vik-
unni. Turninn lagðist sam-
an í rokinu, rifnaði af
sökklinum og skekktist.
Turninn var tómur. Hann
hefur áður orðið fyrir áfalli
í roki og er ótryggður. Nýr
svona tum kpstar 6-7 millj-
ónir króna. Óðinn Sigþórs-
son, bóndi í Einarsnesi,
sagði að turninn færi lík-
lega alveg í næsta roki.
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Allt að 41 þús. fást í skatt-
afslátt við hlutafjárkaup
EINSTAKLINGUR sem kaupir hlutabréf fyrir næstu áramót má
draga allt að 100 þúsund krónur frá tekjuskattsstofni sínum og
lækka þar með tekjuskatt um allt að 41.340 krónur. Fyrir hjón
er upphæðin 200 þúsund krónur og lækkunin þar með 82.680
krónur.
Ef keypt eru bréf fyrir hærri
upphæð er unnt að nýta það sem
umfram er til lækkunar skatta
næstu fimm árin, samkvæmt nán-
ari reglum.
Kaupandi hlutabréfa þarf að
eiga þau í a.m.k. 3 ár til að halda
skattalækkuninni. Þó getur hann
selt bréfin innan þess tíma enda
kaupi hann ný hlutabréf innan eins
mánaðar. Hafi kaupandinn selt
önnur bréf á undanförnum níu
árum fær hann einungis skatta-
lækkun vegna þeirra hlutabréfa
sem keypt eru umfram framreikn-
að söluverð hinna seldu bréfa.
Á næstu árum skerðast heimild-
ir einstaklinga til hlutabréfakaupa
í þrepum. Vegna fjárfestingar á
árunum 1994-1995 skal frádrátt-
urinn eigi vera hærri en 80% af
kaupverði hlutabréfanna og þetta.
hlutfall lækkar í 50% árin 1996
og 1997. Þannig þarf sá sem vill
fá hámarksfrádrátt, 100 þúsund
krónur, á næsta ári að kaupa hluta-
bréf fyrir 125 þúsund krónur.
Hann fengi sem fyrr 41.340 krón-
ur í afslátt. Þann 1. janúar 1998
falla frádráttarheimildir niður að
fullu.
Byggingar-
vísitala lækk-
ar um 0,1%
HAGSTOFAN hefur reiknað vísi-
tölu byggingarkostnaðar sem
gildir fyrir desember eftir verð-
lagi um miðjan nóvember og
reyndist hún vera 195,6 stig sem
er 0,1% lægra en í október. Síðast-
liðna tólf mánuði hefur vísitala
byggingarkostnaðar hækkað um
3,4% en undanfarna þrjá mánuði
hefur visitalan hækkað um 0,4%,
sem jafngildir 1,7% hækkun á ári.
Lánskjaravísitala fyrir desember
er óbreytt frá því í nóvember sam-
kvæmt útreikningum Seðlabankans,
3.347 stig. Vísitalan hefur hækkað
um 2,1% sl. 3 mánuði, 4,1% sl. 6
mánuði og sl. 3,3% 12 mánuði.
Hagstofan hefur jafnframt reikn-
að út launavísitölu fyrir nóvember-
mánuð miðað við meðallaun í októ-
ber síðastliðnum og er vísitalan 131,5
stig eða óbreytt frá fyrra mánuði.
Samsvarandi launavisitala sem gildir
við útreikning greiðslumarks fast-
eignaveðlána er því einnig óbreytt,
eða 2.875 stig í desember 1993.
Útsvar 6,7%
í Reykjavík
BORGARSTJÓRN samþykkti á
fundi sínum á fimmtudag að út-
svarsgreiðsla í staðgreiðslu fyrir
næsta ár verði óbreytt, 6,7%
Markús Örn Antonsson, borgar-
stjóri, sagði að þarna væri sama til-
laga á ferð og undanfarin ár, en
hafa yrði fyrirvara á um ákvarðanir
ríkisins um tekjustofna sveitarfélaga.
Óvissa um hvaða tekjustofna sveitar-
félög fengju í stað aðstöðugjaldsins
sem fellt var niður væri afar baga-
leg. Þrátt fyrir óvissuna væri hins
vegar lögð fram tillaga um 6,7%
útsvar á næsta ári. Borgarstjóm
samþykkti tillöguna samhljóða.
----------» ♦ ♦
Bræla á síld-
armiðunum
BRÆLA er á síldarmiðunum við
Asuturland en þar hefur verið góð
veiði undanfarna viku. 12 skip
stunda nú síldveiðar en voru um
30 þegar mest var. Um 75 þúsund
tonn af síld hafa borist á land á
vertíðinni og eru rúmlega 25 þús-
und tonn óveidd af síldarkvótan-
um.
Að sögn Jóns Axelssonar skip-
stjóra á Húnaröst RE hefur verið
foráttu veður á síldamiðunum síðan
á miðvikudag.
Aðeins 12 bátar stunda nú síld-
veiðamar. Jón sagði að minni bátarn-
ir hefðu gefist upp á veiðunum enda
hefði sýnt sig að einungis kraftmikil
skip með öflug veiðarfæri næðu sfld-
inni en hún hefur jafnan staðið djúpt
auk þess sem ókyrrt hefur verið á
miðunum. Hann sagði að sæmilega
hefði gengið að ná síldinni í flottroll
og væru bátar sem slíkar veiðar
stunduðu ekki eins háðir tíðarfari.
Öll síld sem nú er veidd fer í vinnslu.
50Ð
r
fimmtudag til sunnudags
J ólaNtj örnur
Úrvalsflokkur 799,-
Sérvaldar 499,-
Toppar 399,*
Jólasería
20 ljósa innisería
299,-
Dagatalakertí Grenilengjur
Minni 79,*
stærri 99,*
ásvalirog handrið
(270 cm), 599,-