Morgunblaðið - 20.11.1993, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.11.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993 39 Þegar bamabömin bættust í hópinn tókst með þeim sama vináttan. Magga og Andrés voru einstaklega samhent um að fegra og bæta heim- ili sitt og umhverfi og ber það þeim fagurt vitni. Það má með sanni segja að Andrés hafi ræktað garðinn sinn í orðsins fyllstu merkingu. Hann hlúði svo vel að öllu, sem hann kom ná- lægt, fjölskyldu sinni ættingjum og vinum. Umhyggja og kærleikur voru hans aðalsmerki. Það lýsir Andrési hvað best sú mikla tryggð og ræktarsemi, sem hann sýndi mörgum gömlum félögum sínum, en við þá hélt hann góðu sam- bandi fram á síðasta dag. Það var því mikið áfall, þegar Andrés greind- ist með krabbamein i janúar síðast- liðnum. Hann varð að hætta að stunda sjóinn og þess í stað að berj- ast við illvígan sjúkdóm, sem að lok- um lagði hann að velli. Fjölskylda hans og vinir stóðu við hlið hans í þeirri baráttu, enginn vildi trúa að tími hans væri kominn, hann átti svo margt eftir ógert. Nú er skarð fyrir skildi og við söknum vinar í stað. Erfitt verður að hugsa sér nágrennið án hans. Við biðjum algóðan Guð að styrkja Sigrúnu móður hans, Möggu, börnin, afabörnin og alla ástvinina í þeirra djúpa söknuði og sorg. Minn- ingin um göfugan og góðan dreng lifir í hjörtum okkar allra. Sigríður og Eyjólfur. Hann Andrés er dáinn, þetta hljóm- ar enn í eyrum mér. Það er svo erf- itt að sætta sig við að hann sé farinn frá okkur, hann sem gaf svo mikið af sér. Andrés var sannarlega vinur vina sinna, það var alltaf svo notalegt að fá Andrés í heimsókn, þá var setið yfir kaffíbolla og spjallað saman, hann var ættfróður, tilfinninganæm- ur og gaf okkur svo mikið, hann var góður drengur. Oft kom það fyrir að hann kom með kleinur eða flatkökur með sér sem hann hafði bakað sjálfur, svo að ég tali ekki um fiskinn sem var settur í vaskinn ef ég var ekki heima. Þá vissi ég strax að Andrés hafði komið. Hann var hörkuduglegur sjó- maður sem sá vel um sitt heimili. eftirlifandi konu sinni Sigurlínu Jóns- dóttur frá Molastöðum, dóttur hjón- anna Sigríðar Guðmundsdóttur og Jóns Sigmundssonar. Árið 1946 hófu þau hjón búskap í Fyrirbarði og bjuggu þar þar til þau fluttust til Sauðárkróks 1990. Lífsbaráttan var oft hörð og hver varð að búa að sínu. Aðstæður allar á annan veg en nú eru. Fljótin voru afskekkt og snjó- þung sveit, samgöngur erfíðar, eng- inn sími og ekkert rafmagn þar til á miðjum sjötta áratugnum. Uppkomin böm þeirra eru: Sigur- björg, búsett í Kópavogi, Erlendur Jón, Siguijóna, Freysteinn, Gylfi, öll búsett í Reykjavík, Guðjón, búsettur á Krossi í Oslandshlíð, Þröstur Már, búsettur í Kópavogi, og Guðrún Fjóla, búsett í Reykjavík. Dreng misstu þau við fæðingu. Björgvin var vel meðalmaður á hæð, ljós yfirlitum og grannvaxinn, hæglátur, en gat þó verið ör. Að ástæðulausu skipti hann sér ekki af málefnum annarra. Hann hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og ræddi það ef svo bar undir. Yndi hafði hann af skepnum sínum, einkum hrossum og átti oft góð hross. Hann var vel lesinn, fróð- ur og víða heima. Rithönd hafði hann skýra og áferðarfallega þannig að margir máttu taka sér til eftirbreytni. Hina síðari áratugi lifði Björgvin mikið í sínum eigin heimi þar sem heyrn hans var mjög skert. Hann las og horfði á sjónvarpið, en útvarp var honum nánast ekki til neins. Hann hafði yndi af spilum og spilaði mikið ef tækifæri gafst og var óragur við sagnir. Björgvin mætti örlögum sínum með styrkri stoð konu sinnar. Síðast- liðið sumar gekkst hann undir aðgerð á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Hann dvaldist síðan heima þar til fyrir skömmu að hann lagðist inn á Sjúkrahús Skagfirðinga á Sauðár- króki. Er ég hafði kvatt Björgvin, nokkru áður en hann lést, þá lyfti hann máttvana hönd sinni og sagði: „Guðmundur þú skilar kveðju." Kveðju Björgvins er hér með skilað til þeirra er hana eiga. Björgvini þakka ég góð kynni. Lína mín, þér og fjölskyldu þinni votta ég samúð mína. Guðm. Oli Pálsson. Þegar við heimsóttum Andrés og Möggu var tekið vel á móti okkur á yndislegu heimili þeirra hjóna, þau eignuðust fimm börn og þrjú barna- böm sem voru Andrési mjög mikil- væg. Hann talaði oft um þau á sinn einlæga hátt. Hann átti einnig aldr- aða móður sem sér nú á eftir drengn- um sínum góða sem fór oft með hana með sér austur í sveit á gamlar slóðir. Það var mikill hugur í Andrési og mikil orka. Þegar hann ætlaði að framkvæma eitthvað var það gert strax og vel. Það kom fyrir að hann hjálpaði til hjá okkur hjónunum og erum við ætíð þakklát fyrir það. Hann átti yndislegan garð í kringum húsið sitt sem ber vinnusemi og natni hans göfugt vitni. Það er erfitt að kveðja svona góð- an dreng, það vantar svo mikið sem verður erfítt að bæta en minningin lifir og við gleymum hlýjunni frá honum aldrei. Elsku Magga, Hrabbý, Þórunn, Sonja, Sigga Lára, Lárus Már, Sigrún og aðrir ástvinir, guð gefi ykkur styrk í sorginni og söknuðinum. Svanhvít og Jóhann. Hefði ég vitað, hefði ég spurt hvar við ættum annan fund. Þitt strið var langt og lífið stutt. Sárt að horfa í eftir þér. Þessar línur úr lagi Rúnars Þórs var eitt af því fyrsta sem mér kom í huga er ég frétti af láti Andrésar Þórarinssonar sem lést 12. nóvember síðastliðinn. Andrés var ávallt kennd- ur við æskuheimili sitt og kallaður Addi í Mjölni. Við Addi vorum skóla- og fermingarsystkini. Fundum okkar bar síðast saman í mars síðastliðnum er við vorum bæði á Landspítalanum. Addi hafði þá um nokkurn tíma háð baráttu við krabbamein. Við Addi eyddum nokkrum kvöldum í rabb. Hann var mjög bjartsýnn á bata og var ákveðinn í að mæta í fermingaraf- mæli okkar næsta sumar sem verður þá haldið í þriðja sinn. Eg var að vísu ekki bjartsýn, en að það skyldi gerast svona skjótt óraði mig ekki fyrir. Ég hafði því miður ekki farið að heimsækja hann í íbúð krabba- meinsfélagsins. Af einhveijum orsök- um kom ég því ekki í verk. Því miður erum við nútímafólk alltaf að eltast við eitthvað sem við jafnvel vitum ekki hvað er, í stað þess að rækta betur það sem gefur lífinu gildi. Ég á alla tíð eftir að iðrast þess sárlega að hafa ekki komið þessu í verk. Á þessum kvöldum sem við Addi eyddum saman á spítalanum bar margt á góma og var þá dauðinn ekki undanskilinn. Öll hljótum við að hræðast hið óþekkta, en hugsunin um að skilja ástvini sína eftir jafnvel í óöryggi var verst. En ég veit að ástvinir Adda og eiginkona hans Margrét Lárusdóttir eiga eftir að hjálpast að og styðja hvert annað í þeirri sorg og þeim söknuði sem ótímabært lát hans hefur í för með sér. Andrés Þórarinsson var fæddur 14. september 1945, yngstur af fimm systkinum. Foreldrar hans voru hjón- in Þórarinn Jónsson frá Ásólfsskála og Sigrún Ágústsdóttir frá Núpi, bæði voru þau ættuð undan Eyjafjöll- um. Þórarinn dó 1959. Sigrún býr nú í Reykjavík. Andrés giftist Margréti Lárusdóttur, þau eignuðust fimm börn: Hrafnhildi, f. 1968, Þórunni, f. 1970, Sonju, f. 1972, Sigríði Láru, f. 1977, og yngstur var Lárus Már f. 1986. Addi átti eina dóttur, Ólöfu Ingu, f. 1964, áður en hann gifti sig. Addi starfaði við sjómennsku lengst af, síðast sem stýrimaður á Baldri VE 24. Við skulum öll hafa það hugfast að það er tími til að syrgja, tími til að gráta og tími til að sakna. En við megum heldur ekki gleyma því að það er líka tími til að gleðjast. Fyrir hönd fermingarárgangs Vestmannaeyja, 1945, votta ég að- standendum samúð okkar. Fríða Einarsdóttir. í dag kveðjum við góðan vin, Andr- és Þórarinsson frá Mjölni í Vest- mannaeyjum. Um hugann líða minn- ingar, Andrés og Magga komin heim eftir gos með dætyrnar Hrafnhildi, Þórunni og Sonju í nýja húsið sem þau voru að byggja, smám saman fjölgar íbúunum á Brimhólabrautinni og maður gleðst við hvert ljós sem kviknar í glugga. Það var gott að vita af góðum nágrönnum á þessum tímum, enda hófst vinátta okkar þeg- ar ég var læst úti með Björk litlu og fékk að hringja hjá Möggu. Þá voru dæturnar Hrafnhildur, Þórunn, Sonja og Sigríður Lára fæddar, strax kom í ljós að kynni okkar við Andrés, Möggu og dæturnar urðu okkur ómetanleg aðstoð og gæfa. Eldri dæturnar tóku að sér barnapíustörfin og pössuðu Siggu Láru litlu systur og Björk dóttur mína sem sótti í að dvelja hjá Möggu og Andrési, enda tekin í hópinn eins og ekkert væri. Hann Andrés mundaði ekki um að bæta einni við. Oft var líf og fjör þegar Andrés skellti öllum stelpunum í bað. Þótt við flyttum um götu og ýmislegt breyttist þá voru tryggða- böndin óbreytt. Árið 1986. Gleðitíðindi, von var á barni. Þá spurði undirrituð hvort ætti að hengja vögguna í loftið því ekki var mikið um laust pláss í hús- inu og var oft hlegið að þessu. En auðvitað sannaðist máltækið að þar sem hjartarúm er þar er húsrúm. Lítill drengur fæddist, augasteinn- inn Lárus Már, og ekki stóð á pabban- um að smíða kassabíl handa syninum. Barnahópurinn stækkaði og barn- börnin fæddust, Steinunn, Andrés Egill og nú sl. apríl Margrét Jóna sem stoltur afínn tók á móti, og sagði að ef Ijósmóður vantaði seinna meir þá mætti bara kalla í hann. Þannig var Andrés alltaf tilbúinn ef aðstoð vantaði, tryggur vinur vina sinn, og ófáir fengu sendar flatkökur eða kleinur frá honum sem hann bakaði í bílskúrnum því að hann gekk í öll verk og það ekki með hangandi hendi, það átti allt að gerast helst í gær þegar honum datt eitthvað í hug. Andrés veiktist í janúar sl. og áfall- ið kom: iilkynja sjúkdómur. Og bar- áttan hófst. Það skiptust á skin og skúrir. Fjölskyldan og vinir stóðu við hlið hans í baráttunni en allt kom fyrir ekki, Andrés lést á Landspítal- anum föstudaginn 12. nóvember. Elsku Möggu, börnin, Sigrúnu, Sigríði og aðra ástvini bið ég Guð að styrkja. Minningin um góðan dreng lifír. Vigdís Rafnsdóttir og fjölskylda. Oft vonir bregðast vilja oss veitir þungt að skilja Guðs voldugt visdómsráð. Þú Guð, sem gleði vekur, þú gefur og þú tekur, en öll þín stjóm er einskær náð. Oft falla fljótt að jörðu í frosti og veðri hörðu hér fíngerð, fögur blóm. Þú forsjón Guðs ert falinn og fegri staður valinn, vér skiljum ei vom skapadóm. (Guðríður S. Þóroddsdótir) í dag, 20. nóvember, kveðjum við æskuvin okkar Andrés Þórarinsson sem lést 12. nóvember sl. eftir langa baráttu við erfiðan sjúkdóm. Minn- ingamar streyma fram. Við ólumst upp í sama hverfi, og æskuárin liðu við leik og ærsl. Ýmislegt var nú brallað enda hressir og hraustir strákar, það var tekist á í fótbolta, og rennt á sleðum á Stakkó. Ógleymanlegt er okkur fjárhúsið heima hjá Andrési, þar fengum við okkar fyrstu kynni af sauðfjárbú- skap, sem kom okkur til góða seinna, þegar við fengum að fara í sveit. En æskuárin liðu fljótt og alvara lífsins tók við. Andrés fór að vinna í Fiskiðjunni hjá föður sínum sém var þá verkstjóri þar. En fljótlega hneigð- ist hugur hans til sjós, og árið 1965 hóf hann nám við Stýrimannaskólann í Vestmannaeyjum, sem var þá undir stjórn Guðjón Ármanns Eyjólfssonar. Hann útskrifaðist þaðan með góðum vitnisburði og verðlaunaður fyrir góða ástundun vorið 1967. Andrés var síðan stýrimaður og skipstjóri á hinum ýmsu bátum. Hann var eftir- sóttur starfskraftur, því að hann var einstaklega ósérhlífinn og vinnusam- ur, og þar fyrir utan alveg sérstakt ljúfmenni. Andrés var mikill fjölskyldumaður og góður heimilisfaðir. Hann átti eitt sérstakt áhugamál heimafyrir, og það var garðurinn. Þar eyddi hann löng- um stundum, og er garðurinn góður minnisvarði um Andrés. Við kveðjum æskuvin okkar með söknuði, en gleðjumst yfir góðum minningum um góðan dreng, og um leið og við þökkum honum samfylgd- ina, biðjum við allt það góða sem til er að styrkja þig, Magga mín, og börnin ykkar, því að ykkar er missir- inn mestur. Öðrum ættingjum og vin- um sendum við samúðarkveðjur. Siguijón, Kristján og Arnór Páll. Guðjón Guðbjartsson frá Húsabæ á Hval- látrum - Minning Fæddur 15. maí 1916 Dáinn 12. nóvember 1993 Sumir eru svo sterkir að manni finnst að þeir muni aldrei falla, en aðrir svo veikir. Guðjón Guðbjartsson var einn af þessum sterku stofnum sem aldrei bugaðist hvað þá æðraðist. Þrátt fyrir margra ára veikindi var aldrei að sjá á honum nokkurn bilbug. Hann hafði ekki fæðst til að bogna og ekki alist upp til að kvarta. Lífs- baráttan var honum eðlileg hvað sem á gekk. Hann var fæddur á Hvallátrum þar sem vindurinn oftast gnauðar og báran brotnar við sandinn. For- eldrar hans voru hjónin Guðmunda Ólafsdóttir og Guðbjartur Þor- grímsson, en þau bjuggu á Húsabæ á Hvallátrum. Börn þeirra voru þrjú og lifir Margrét bróður sinn. Hún er búsett í Reykjavík. Guðjón ólst upp í efnalegri fá- tækt, en lærði því meira um sjálfs- björg og dug og stæltist ungur af átökum við árina og færið, bjargið og þúfnakollana. Ábyggilega hefur hann ungan farið að dreyma um störf á stóru skipunum sem oft sáust sigla fyrir Látrabjargið og út á djúpmiðin. Áður en varði var æskan liðin og Guðjón kominn um borð í „stóran" togara frá Patreks- firði þar sem hann starfaði um margra ára skeið. Þrátt fyrir marga raunina í baráttunni við Ægi kon- ung varð honum þó mest um að missa félaga sinn í skotárás þýskrar flugvélar á togarann Vörð á leið í land af Halamiðum í ágúst 1942. Það vildi Guðjóni til lífs eins og öðrum í áhöfninni að þeir voru inn- andyra þegar árásin var gerð. Guðjón kvæntist Gyðu Jóhannes- dóttur á Patreksfírði og átti með henni fjóra syni. Þau slitu samvist- um. Synir þeirra eru Kristinn J., skipstjóri á Patreksfirði, kvæntur Sigurlín Skaftadóttur, þau eiga þijú böm; Sigurbergur, lögræðingur í Reykjavík, kvæntur Bjamey Njáls- dóttur, þau eiga þtjú börn; Guð- mundur Sævar, framkvæmdastjóri á Bíldudal, kvæntur Sigríði Bjarna- dóttur, þau eiga þrjú börn; og Olaf- ur G., starfsmaður Hagkaupa í Reykjavík, kvæntur Sigríði Sigur- björnsdóttur, þau eiga einnig þijú börn, en fjórða barnið, Guðjón, lést á unga aldri. Guðjón fluttist síðar til Reykja- víkur og hóf þá fljótlega störf hjá Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi, þar sem hann vann þar til að starfs- lokum kom, 1986. Hann hafði þó notað bæði frítíma og tímann eftir að hann hætti í Gufunesi og á meðan heilsan leyfði til að vinna við netagerð, enda al- vanur slíku af togurunum fyrir vest- an. Kynni fjölskyldu minnar af Guð- jóni vom afar góð. Hann var alltaf sá sterki stofn sem aldrei bugaðist. Hjá honum bjuggum við oft og þegar strákarnir okkar þurftu ung- ir að skreppa suður, beið þeirra alltaf uppbúið rúm, jafnvel eftir að amma þeirra var farin. Margrét Þórarinsdóttir móðir mín réðst sem ráðskona til Guðjóns 1970 og héldu þau síðan hús saman þar til hún lést í apríl 1988. Guðjón var seintekinn, en afar traustur maður með góða verk- kunnáttu. Hann hafði mikið yndi af að heimsækja æskuslóðir sínar á Látrum, en síðustu árin hefur ættin verið að endurbyggja íbúðar- húsið. Hann heimsótti okkur nokkr- um sinnum vestur á ísafjörð og mér er það minnisstætt að skömmu eftir að við fluttumst inn í húsið okkar í Sunnuholtinu og lóðin var enn eitt moldarflag að hann hvatti mig til að kaupa þökur. Svo gekk hann í að tyrfa rétt eins og fagmað- ur í fullri þjálfun. Frágangurinn bar svo vitni um þá snyrtimennsku sem var honum svo eðlislæg og sást best á umgengni hans á heimilinu og í bílskúmum við Háaleitisbraut- ina. Árið eftir að mamma dó fór Guð- jón með móðursystrum mínum Kristínu og Rósu í heimsókn til Grétu systur minnar í Bandaríkjun- um. Það var þeim öllum afar skemmtileg ferð og þótti Grétu og fjölskyldu hennar gaman að fá þau í heimsókn. Við vissum að Guðjón hafði ekki gengið heill til skógar síðustu árin, en hann vildi aldrei ræða það frekar, enda kallaði hann ekki á lækni og þá að áeggjan ann- arra fyrr en í vikunni sem hann lést. Um leið og við Úlfar og synir okkar þökkum Guðjóni samveruna sendum við ástvinum hans syðra innilegar samúðarkveðjur. Jósefína Gísladóttir. t Ástkær unnusti minn, sonur okkar, tengdasonur, bróðir, frændi og vinur, GUÐBJARTUR MAGNASON frá Neskaupstað, lést af slysförum miðvikudaginn 17. nóvember sl. Minningarathöfn um hann fer fram í Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. nóv- ember kl. 10.30. Útförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju og verður auglýst síðar. Þórey Haraldsdóttir, SigríAur Guðbjartsdóttir, Magni Kristjánsson, Matthildur Sigursveinsdóttir, Haraldur Jörgensen, Bryndis Magnadóttir, Kristján Magnason og aðrir vandamenn og vinir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.