Morgunblaðið - 20.11.1993, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 20.11.1993, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993 49 „Auk þess 1egg ég til að Karþagó sé eyðilögð“ Frá Steinarí Pálssyni: I umræðuþætti í sjónvarpinu nú nýlega, komu landbúnaðarmál að sjálfsögðu til umræðu og virtust all- ir ætla að verða sammála um að mikið gróðabragð yrði fyrir þjóðina að flytja þessar vörur inn. En þá kom formaður Kennarasambands- ins, alveg óvænt, með þá kenningu að ekki myndi það auka atvinnu í landinu að leggja niður landbúnað og þar með allar þjónustugreinar í sambandi við hann. Það virtist hafa mistekist að heilaþvo Svanhildi Kaaber á sama hátt og mikinn hluta launafólks í landinu. I öðrum umræðuþætti, sem að sjálfsögðu var settur upp til að sanna hve hagkvæmt yrði að flytja land- búnaðarafurðir inn, kom einnig, al- veg öllum að óvörum, einn af við- mælendum, Þórarinn V. Þórarins- son, með þá athugasemd að á tímum minnkandi atvinnu væri kannske ekki rétti tíminn til að fara að auka innflutning á landbúnaðarvörum. Það lítur út fyrir að stundum mistak- ist valið á viðmælendum í sovna þætti. Þessir umræðuþættir sem hafa verið í sjónvarpinu upp á síðkastið hafa verið að sumu leyti dálítið barnalegir. Stundum kemur stjórn- andi og heldur smá tölu og gefur í rauninni í skyn hver niðurstaðan á að verða, þ.e. að ekki borgi sig að stunda landbúnað á íslandi. Niður- staðan verður að sjálfsögðu að miklu ódýrara væri að flytja allt inn. Sem betur fer heyrist þó oft einhver efa- semdarödd sem ekki er tilbúin að samþykkja slíkt. En niðurstaðan á þó að verða að íslenskur landbúnað- ur skuli lagður niður. „Auk þess legg ég til að Karþagó sé eyðilögð,“ sagði Cato eldri. Hér á landi er fleira dýrt heldur en landbúnaðarvörur. Verðmunur á búvörum og fiski var áður fyrr miklu meiri heldur en nú á tímum. Það er aldrei talað um að fiskur sé dýr. En hvað með aðrar vörur? Þótt við höf- um greiðar samgöngur við önnur lönd, eru innfluttar vörur svo miklu dýrari'hér heldur en í nágrannalönd- unum að fólk telur sig græða á að fara til útlanda til að versla. Nú er mér sagt að til standi að flytja inn landbúnaðarvörur, sem búið er að framleiða með ríkisstyrkj- um, tollfrjálsar, í því trausti að aðr- ar Evrópuþjóðir fari að okkar dæmi. STEINAR PÁLSSON í Hlíð. LEIÐRÉTTING Rangur myndatexti í frétt um myndlistarsýningu Ásmundar Ásmundssonar í Gerðu- bergi, sem birt var í blaðinu í gær, slæddist meinleg villa. Nafn Ás- mundar var undir mynd af einu verka hans, eins og þar væri mynd af listamanninum sjálfum. Beðið er velvirðingar á þessu um leið og mynd af Ásmundi er birt. VELVAKANDI HVERKANN ÞULUNA? DÓRA hringdi og spurðist fyrir um hvort einhver kannaðist ekki við þessa barnaþulu og framhald hennar: Segðu mér sðguna aftur söguna frá í gær um litlu stúlkuna ljúfu með ljósu fléttumar tvær. TAPAÐ/FUNDIÐ Svart gleraugnahulstur tapaðist SVART gleraugnahulstur tapaðist með hvítu linsuboxi inní laugardaginn 6. nóvember s.l. í nágrenni við Regnbogann. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 19331. Fundarlaun. Lyklakippa tapaðist SVÖRT lyklakippa með mörgum lyklum tapaðist einhvers staðar á svæðinu Einholti að Hlemmi. Hafi einhver fundið hana er hann beðinn að hafa samband í síma 685679. Karlmannsúlpa fannst GRÁ ullarúlpa fannst í Garðabæ fyrir u.þ.b. hálfum mánuði. Uppl. í síma 657935. Blár íþróttapoki BLÁR íþróttapoki (Pick-up) tapaðist í nágrenni við Grandaskóla fyrir stuttu. í pokanum voru skór, handklæði og bolur. Ef einhver veit um pokann þá vinsamlegast hringið í síma 616888. GÆLUDÝR Oliver er týndur SVARTUR högni, tæplega ársgamall, eyrnamerktur, hvarf frá heimili sínu, Tjarnargötu 41, 17. nóvember sl. Hafí einhver orðið hans var er hann beðinn að hafa samband í síma 21381. Depill frá Eiðsstöðum er týndur AÐFARANÓTT miðvikudagsins 27. október tapaðist hundurinn Depill frá Eiðsstöðum í Blöndudal, A-Hún. Eigandi hans er Jósef Sigurvaldason. Hann hefur gert allt sem hann getur til að finna hundinn sinn en ekki borið árangur. Hugsanlegt er að hann hafí farið fram á Auðukúluheiði. Jósef biður þá sem hafa orðið hans varir að hafa samband við sig. Síminn er 95-27147. Depill er ungur hundur, glaðlyndur og mannelskur. Hann er hvítur, svartur á baki og niður á mið læri. Hann er með svart skott en stórt ljós í því og svartar doppur á augum. Hans er sárt saknað og vonar eigandinn að Depill komist heim áður en vetur konungur gengur í garð. Allar upplýsingar eru kærkomnar. Tvær læður TVÆR læður, 2 ára og 1 árs gamlar, önnur síamsblendingur, vantar gott heimili. Uppl. í síma 73065. Fram til fimmtudagsins 25. nóv- ember mun daglega birtast ein spurning hér á síöu Velvakanda. Til að geta svarað öllum spurn- ingunum rétt þarft þú að hafa Tilboðstíðindi við hendina því í þeim finnur þú öll svörin. Þú ættir því að taka Tilboðstíðindin út úr blaðinu núna og geyma þau á góðum stað. Hinn 25. nóvember birtist svo síðasta sþurningin og mun þá svarseðill fylgja. Þegar þú hefur fyllt svarseðilinn út skaltu ekki draga það að senda hann til Nýherja. Dregið verður úr rétt- um lausnum og nafn vinnings- hafans birt hér á síðu Velvak- anda þann 1. desember næst- komandi. Mundu að þú gætir unnið AMBRA tölvu með því að halda Tilboðstíðindum til haga og svara spurningunum rétt. Þannig fengir þú óvæntan jólaglaðning fró Nýherja. í Tilboöstíöindum Nýherja eru hreint frábær tilboö á ýmiss konar rekstrarvörum. Þar á meðal eru disklingar. Hvað kostar stykkið af ódýrustu disklingunum? ilbods ídindi Þú ©etur unnið /i IM SKAFTAHLÍÐ 24 - SÍMI 69 77 00 AUtaf skrefi á undan íspurn,NGAU|k nvherja NU GETURÞU UKA tli'jiiLiÁ TÖLVU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.