Morgunblaðið - 20.11.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NOVEMBER 1993
7
Barri
Barri getur orðið um einn metri á lengd og þyngdin 8 kíló.
Barraeldi undirbúið á Sauðárkróki
Eldi hlýsjávarfíska
vænlegur kostur
ELDI á hlýsjávarfisknum barra er í undirbúningi á Sauðárkróki og
er það Mákur hf., félag um eldi hlýsjávarfiska, sem að því stendur.
Aðstandendur fyrirtækisins segja að eldi hlýsjávarfiska sé vænleg-
asti kosturinn í fiskeldi en það hefur hvergi verið stundað hér á
landi. Barrinn er vinsæll matfiskur og er verðið hátt.
Barri, sem á heimkynni í Miðjarð-
arhafí og Austur-Atlantshafi, getur
orðið 1 m á lengd og 8 kg. Guð-
mundur Örn Ingólfsson líffræðing-
ur, sem mun hafa yfirumsjón með
fiskeldisstöðinni, sagði barrann
hraðvaxta, hægt væri að hafa hann
í miklum þéttleika í keijum og hann
því hagkvæmur í eldi. Guðmundur
sagði að verð á barra færi mjög
eftir stærð og fengist mest fyrir
fisk sem alinn hefði verið í eitt kg
en markaðurinn væri ótryggur fyrir
300 til 500 g barra. Hann sagði
að það tæki barrann 15 mánuði í
eldi að verða hálft kg en tæplega
tvö ár að fiskurinn næði einu kílói.
Guðmundur sagði að unnið væri
að undirbúningi og yrðu seiði og
hrogn fengin erlendis frá. Hann
sagði að framundan væri þriggja
ára þróunartímabil en stefnt væri
að því að framleiða 30 tonn á ári
þegar stöðin væri komin í fullan
gang. Guðmundur hefur starfað að
eldi hlýsjávarfiska erlendis og sagð-
ist ekki vera í vafa um að eldi á
hlýsjávarfiskum væri vænlegasti
kosturinn í fískeldi um þessar
mundir. Barraeldið væri ekki
vandasamara en annað fiskeldi en
þess þyrfti þó að gæta að hiti eldis-
vatnsins væri ávallt 24 gráður en
fóðrið er nánast það sama og fyrir
lax. Þrír starfsmenn munu annast
rekstur eldisins.
_____STEINAR WAAGE
f SKÓVERSLUN
'N
MADE IN ITALV
Yerð: 12.995,- 0 Stærð: 36-410 Litur: Brúnt
1 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS ■ 5 % STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR 1
Domus Medica, Kringlunni,
Egilsgötu 3; Kringlunni 8-12,
sími 18519 sími 689212
t i I b o ð í bókabúðu m
verd frá og meó
1. desember:
Sniljdarleg
SkáldSaga etur Guð&erg
Benssm
„Söguefnið er vissulega eldfimt og
með því hefur Guðbergur enn einu
sinni víkkað út leyfilegan ramma
íslenskra bókmennta ... Útkoman
finnst fnér vera fullþroskuð
skáldsaga og aðgengileg í bestu
merkingu orðsins."
Ólafur Haraldsson, Pressan
„Auðugt og margbrotið skáldverk
sem eykur nýjum og sérstökum
hljóm í íslenska skáldsagnagerð.“
tu bókabúö
„Höfundurinn tekur dæmi af þeirri frumþörf mannsins sem
vegur þyngst á metunum þegar á hólminn er komið, en það er
kynhvötin. Hún er sá kraftur sem brýtur niður hinar tilbúnu
varnir og mynstur samfélagsins sem einstaklingurinn er
mótaður af... í forboðnum myndum ástarinnar fær sögumaður
bæði að gefa og þiggja á þann máta sem hann aldrei fær
innan viðurkenndrar stofnunar hjónabandsins ... Með Hinni
kvöldu ást sem hugarfylgsnin geyma hefur Guðbergur bætt
enn einu skrautblóminu í höfundarverk sitt...“
Matthías Viöar Sæmundsson,
1 Morgunblaöiö
M Á L O O
Ingunn Ásdísardóttir, RÚV
F O R L A G I Ð
M E N N I N G