Morgunblaðið - 20.11.1993, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
11
*
Hafa Islendingar efni á að eiga böm?
eftir Margréti
Sæmundsdóttur
Nú á haustdögum hafa leik-
skólamál verið í brennidepli vegna
sparnaðarhugmynda ríkisstjórnar-
innar. Af hverju verða leikskólamál
svo mikið hitamál? Svarið er ein-
falt, þau eru í megnasta ólestri.
Heilbrigðisráðherra hefur vafa-
laust ekki gert sér grein fyrir því
þegar hann hóf aðförina að leik-
skólum sjúkrahúsanna að hann var
að velta mauraþúfu. Nú er orðið
ljóst það sem allir foreldrar vita,
en ráðherra og sveitarstjórnir loka
augunum fyrir, að börn á leikskóla-
aldri og foreldrar þeirra búa við
óviðunandi ástand. Það lýsir sér
m.a. í því að flest lítil börn eru
alin upp við að vera þvælt á milli
margra gæslustaða allan leikskóla-
aldurinn, þar sem ekki er fyrir
hendi nægjanlega langur vistunar-
tími á leikskólum. Tímasetning
uppsagna á leikskólum sjúkrahús-
anna er líka mjög vafasöm og í
raun hættuleg. Að segja börnum
upp skólavist um miðjan vetur er
óforsvaranlegt.
Langir biðlistar
Börn einstæðra foreldra og
námsmanna eru einu börnin í
Reykjavík sem eiga rétt á heils-
dags leikskólavist. Þó er langur
vegur frá því að öll þau börn eigi
kost á Ieikskólavist og á biðlista
forgangshópsins eru u.þ.b. 400
börn. Stór hópur barna kemst ekki
að á leikskólum fyrr en eftir langa
bið og biðtíminn lengist stöðugt.
„Á biðlista um leik-
skólapláss í Reykjavík
eru nú skráð 1.500
börn. Sá listi segir þó
ekkert um þörfina fyrir
heilsdagsvistun því að
börn giftra og foreldr-
ar í sambúð mega ekki
vera á biðlistum um
heilsdagsleikskóla.“
Það er ekki einu sinni hægt að
anna þörfinni fyrir 4 tíma leik-
skóla hvað þá heldur 8 til 9 tíma
sem flestar fjölskyldur þurfa á að
halda. Heilsdagsplássum á leik-
skólum borgarinnar hefur aðeins
fjölgað um þijú pláss árin 1991-
1992 þó ótrúlegt sé. í ársskýrslu
Dagvistar barna í Reykjavík sem
kom út nýlega kemur fram að
heilsdagspláss á leikskólum borg-
arinnar voru 1.270 árið 1991 en
1.273 áramótin 1992. Á biðlista
um leikskólapláss í Reykjavík eru
nú skráð 1.500 börn. Sá listi segir
þó ekkert um þörfina fyrir heils-
dagsvistun því að börn giftra og
foreldrar í sambúð mega ekki vera
á biðlistum um heilsdagsleikskóla.
Hver ber ábyrgð á vanda
leikskóla barna?
Það er rangt að ráðast á leik-
skóla sjúkrahúsa þó að börn þar
hafa verið svo lánsöm að búa við
eðlilegar aðstæður. Þau eiga ekki
að gjalda þess hve ástandið í leik-
skólamálum borgarinnar er slæmt
og önnur böm búa við óviðunandi
aðstæður. Aðstaða barna sem ekki
eru svo heppin að njóta samfelldr-
ar heilsdagsvistunar eins og gerist
á leikskólum sjúkrahúsanna, mun
ekkert batna þó að leikskólum
sjúkrahúsanna verði lokað. Við
eigum að beina sjónum okkar að
þeim sem bera ábyrgðina á ástand-
inu. Af einhveijum einkennilegum
ástæðum er umræðan um málefni
barna alltaf tengd því að þau kosti
of mikið.
Foreldrar í Reykjavík væru ekki
í þeirri klípu sem þeir eru í dag
ef hluta af milljörðunum sem fóru
í Perluna, Ráðhúsið og bíla-
geymsluhallirnar hefði verið ráð-
stafað í þágu barna.
Skóladagheimili eru
líka í hættu
Leikskólar sjúkrahúsanna eru
ekki einu griðastaðir barna sem á
að fórna. Skóladagheimili, þær
góðu stofnanir sem allt of fá börn
hafa athvarf hjá, eru líka í hættu.
Með hinum svokallaða heilsdags-
KUNERTí
sokkabuxurhnésokkar
HF
v/Nesveg, Seltj.
skóla er stefnt að því leynt og ljóst
að leggja skóladagheimili niður.
Stórar stofnanir eins og grunnskól-
ar geta aldrei aldrei komið í stað-
inn fyrir skóladagheimili sem rekin
hafa verið í litlum einingum í lík-
ingu við heimili.
Kennslustundum í grunnskólum
á hvern nemanda hefur einnig
fækkað. Sú skerðing nemur nærri
því heilu skólaári eða 864 kennslu-
stundum 'samtals á grunnskóla-
tímabilinu. Þar við bætist að nem-
endum hefur fjölgað í flestum
bekkjardeildum.
Af þessari upptalningu sést að
mjög er þrengt að fjölskyldum í
landinu. Foreldrar og fólk í uppeld-
isstéttum er uggandi um hag bama
ef þessi óheillaþróun heldur áfram.
Sparnaður í þessa átt er afar
varasamur og til lengri tíma litið
hreinlega hættulegur. Þó að ljóst
sé að nauðsynlegt sé að spara á
ýmsum sviðum er þarna byijað á
vitlausum enda og hætt við að við
sitjum uppi með ófyrirséðan kostn-
Margrét Sæmundsdóttir
að vegna rangra og óskynsamlegra
ákvarðana sem verður mun hærri
en sú upphæð sem e.t.v. hefði spar-
ast.
Höfundur er fóstra og
varaborgarfulltrúi Kvennalistans.
Æ
Ibúð í Kópavogi óskast
Óskum eftir 4ra-5 herb. íbúð í Kópavogi fyrir ákveðinn
kaupanda í skiptum fyrir 2ja herb. íbúð á Flyðrugranda.
Staðsetning ekki atriði. Má þarfnast standsetningar.
Upplýsingar gefur Ólafur Blöndal.
GIMLI
ÞÓRSGÖTU 26
SÍMI 25099
Félag sjálfstæðis-
manna í Grafarvogi
Áhyggjur
vegna bensín-
afgreiðslu
STJÓRN Félags sjálfstæðis-
manna i Grafarvogi hefur sam-
þykkt ályktun þar sem lýst er
áhyggjum vegna mikilla mót-
mæla íbúa Grafarvogs gegn fyr-
irhugaðri byggingu greiða- og
bensínstöðvar við Gagnveg. Er
borgarráð hvatt til að taka málið
upp á ný.
Ályktunin hefur verið lögð fram
í borgarráði en þar kemur einnig
fram að stjórn sjálfstæðismanna í
Grafarvogi fagni því að einstakling-
ar sýni áhuga sinn á að setja upp
þjónustufyrirtæki í Grafarvog.
Á fundi borgarráðs bókuðu full-
trúar minnihlutans þær Ólína Þor-
vaðardóttir, Nýjum vettvangi, Sig-
rún Magnúsdóttir, Framsóknar-
flokki, og Guðrún Ögmundsdóttir,
Kvennalista, að þær tækju undir
bréf sjálfstæðismanna í Grafarvogi
og minntu jafnframt á fyrri bókan-
ir um málið.
-----» ♦ ♦----
Messa heil-
agrar Sess-
elju í dag
KÓR Langholtskirkju flytur í
dag og á morgun messu heilagr-
ar Sesselju eftir Joseph Haydn.
Tónleikarnir verða í Langholts-
kirkju og hefjast klukkan 16.30.
Einsöngvarar á tónleikunum
verða þau Ólöf Kolbrún Harðardótt-
ir, Elsa Waage, Eiríkur Hreinn
Helgason og Garðar Cortes, en að
auki tekur kammersveit Langholts-
kirkju þátt í flutningi verksins.
Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Sjá grein Halldórs Hansen um
messu heilagrar Sesselju á bls.
6 og 7C.
Freyjugata. 2ja herb. (b. á
jarðhæð 43 fm í tvíbhúsi. Góð lán
áhv. frá Byggsj. 2,2 millj.
Eyjabakki. 3ja herb. ib. 78
fm á 3. hæð. Sérþvottaherb. í ib.
Falleg sameign. Laus.
Næfurás. 2ja-3ja herb. góð
íb. 108 fm á jarðh. Sérlóð. Falleg
sameign.
Stóragerði. 3ja herb. falleg
ib. á 4. hæð. 83 fm auk herb. i
kj. Fallegt útsýnl. Verð 7 millj.
Hrísrimi. 3ja herb. falleg ib.
í nýbyggingu. Sérþvottaherb. i íb.
Góðar innr.
Básendi. 4ra herb. Ib. á 1.
hæð 80 fm. Suðursv. Parket. Bíl-
skúrsr. Laus.
Sörlaskjól. 4ra herb. góö
Ib. á 1. hæð 103 fm auk 30 fm
bílsk. Fallegur garöur. Laus.
Hraunbær. 5 herb. falleg
endaíb. á 3. hæð. Áhv. húsbr.
3,9. Fallegt parket á íb. Suöursv.
Pvottaherb. i ib. Laus.
FÉLAG || FASTEIGNASALA
Gunnar Gunnarsson,
lögg. fasteignasali, hs. 77410
T-Xöföar til
X Xfólksí öllum
starfsgreinum!