Morgunblaðið - 20.11.1993, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
Voru morðingjar Johns F. Kennedys Bandaríkjaforseta fleiri en einn?
Sérfræðingur segir myndir
af höfði forsetans falsaðar
Clinton
kvartar
undan
fjölmiðlum
í VIÐTALI í nýjasta hefti tíma-
ritsins The Rolling Stone kvart-
ar Bill Clinton, Bandaríkjafor-
seti, undan vinstrisinnuðum
fjölmiðlum sem hann segir að
láti sig ekki njóta sannmælis.
Segja blaðamennirnir sem
ræddu við forsetann honum
hafa verið mikið niðri fyrir er
hann lét þau orð falla að hann
hefði barist meira og fyrir fleiri
málum en nokkur annar forseti
síðustu 20 árin, og téðir fjöl-
miðlar hefðu ekki látið eitt ein-
asta jákvætt orð falla um emb-
ættisgerðir sínar. „Ég er orðinn
hundleiður á þessu og þið getið
alveg birt það í greininni.“
Refsiaðgerð-
um ekki aflétt
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu
þjóðanna ákvað á fimmtudag
að aflétta ekki refsiaðgerðum
gegn írökum sem verið hafa í
gildi í þijú ár. Taldi öryggisráð-
ið að skilyrðin fyrir því að að-
gerðunum yrði aflétt, hefðu
ekki verið uppfyllt.
Gajdar vill
loka verk-
smiðjum
JEGOR Gajdar, fyrsti aðstoðar-
forsætisráðherra Rússlands,
lýsti því yfir í gær að efnahag-
ur landsins myndi hrynja ef
reynt yrði að halda öllum verk-
smiðjum opnum. Gajdar, sem
leiðir Valkostur Rússlands fyrir
þingkosningamar í desember,
sagði að ekki ætti að halda
opnum verksmiðjum, seljist
framleiðsla þeirra ekki.
Noregur og
EB deila um
landbúnað
NORSKI landbúnaðarráðherr-
ann, Gunhild Oeyangen, lýsti
því yfir í gær að ekki væri víst
að hún gæti mælt með inn-
göngu í Evrópubandalagið
(EB), ef afstaða þess í landbún-
aðarmálum væri jafn ósveigj-
anleg og nú, Noregur vill
vemda landbúnað í norðurhluta
landsins en búist er við því að
í næstu viku krefjist EB þess
að innflutningur landbúnaðar-
vara til Noregs verði frjáls.
Ritsljóra
Playboy boðin
fyrirsætustörf
KVENNAHREYFING Afríska
þjóðarráðsins hefur boðið rit-
stjóra hinnar suður-afrísku út-
gáfu Playboy tímaritsins að
sitja fyrir á nærklæðunum ein-
um saman fyrir tímarit hreyf-
ingarinnar. Bjuggust konumar
ekki við svari, enda væri boðið
niðurlægjandi, rétt eins það
sem Playboy byði suður-afrísk-
um konum.
1.433 tegund-
ir í útrýming-
arhættu
MATVÆLA- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna
spáði því í gær að allt að þriðj-
ungur þeirra 4.000 dýrategunda
sem nýttar eru í landbúnað eða
til matar, væru í útrýmingar-
hættu. í stofnum 1.433 tegunda
eru færri er 1.000 kvendýr eða
færri en 20 karldýr.
New York. Reuter.
BANDARÍSKUR sérfræðingur í
geislafræði fullyrti á fimmtudag
að röntgenmyndir sem teknar
voru af höfði Johns F. Kennedy
Bandaríkjaforseta við krufningu
hans, séu falsaðar. Segir hann
að myndunum hafi verið breytt,
mögulega til þess að ekki sjáist
að einnig hafi verið skotið á höf-
uð forsetans framanvert en War-
rennefndin sem rannsakaði
morðið á forsetanum, úrskurðaði
að hann hefði verið skotinn
tveimur skotum í háls og hnakka.
Hann var myrtur 22. nóvember
1963 í Dallas.
Fullyrðing Davids Mantiks, sem
er sérfræðingur í geislafræði og
eðlisfræðingur við Eisenhower
læknamiðstöðina í Rancho Mirage
í Kaliforníu, styður samsæriskenn-
ingar, sem ganga út á að fleiri
hafi verið að verki en Lee Harvey
Osvald, sem Warrennefndin taldi
fullsannað að hefði skotið Kennedy.
Mantik sagði frá þessu við kynn-
ingu á nýjustu bókinni um morðið
á Kennedy.
Mantik segist hafa rannsakað
röntgenmyndirnar fyrir þremur vik-
um með ljósnæmu tæki sem mælir
flæði venjulegs ljóss í gegnum rönt-
genfilmu. í ljós hafi komið að hluti
myndarinnar hafi verið þúsundfalt
bjartari en aðrir. Segist Mantik
aldrei hafa kynnst öðru eins og að
hann álykti sem svo að átt hafi
verið við myndirnar.
Við kynninguna kom einnig fram
Jerrol Custer, röntgenfræðingurinn
sem tók röntgenmyndirnar af höfði
forsetans. Segirhannaðhinaropin-
beru myndir séu ekki þær sömu og
hann tók. Yfirmaður hans, dr. Ja-
mes Ebersole, hafi skipað honum
að líma brot úr kúlum við beinflísar
og taka röntgenmyndir af þem.
Telur Custer að myndirnar af bein-
flísunum hafi verið notaðar til að
í samningum Vesturveldanna og
Samveldisins, arftaka Sovétríkjanna
gömlu, er gert ráð fyrir því að Rúss-
ar yfirtaki öll kjarnavopn gamla
kommúnistaveldisins sem ekki verð-
ur eytt í samræmi við ákvæði START
I. Hvítrússar og Kazakhar hafa þeg-
ar sæst á þessa tilhögun en Ukraínu-
menn hafa spymt við fótum.
búa til nýjar myndir af höfði
Kennedys.
Forsetinn var með
Addison-veiki
í nýjasta hefti Newsweek segir
að Robert F. Kennedy, dómsmála-
ráðherra hafi fyrirskipað að sumar
niðurstöður krufningarinnar á for-
Alls eru um 1.600 kjarnaoddar í
Úkraínu og meðal vopnanna eru um
170 langdrægar eldflaugar, sumar
gamlar og úreltar. Heimildarmenn
hafa fullyrt að úkraínskir vísinda-
menn séu að reyna að finna leiðir
til að ná stjóm á vopnunum en notað-
ir em sérstakir, leynilegir tölvukódar
til þess að senda flaugamar af stað.
setanum yrðu ekki gerðar opinber-
ar, þar á meðal sú að hann þjáðist
af svokölluðum Addison-sjúkdómi,
en einkenni hans em m.a. þreyta
og sérkennilegur húðlitur. Sú
ákvörðun að opinbera ekki alla
þætti krufningarinnar hafi gefið
samsæriskenningum byr undir báða
vængi.
Rússar segja að hætta sé á alvarlegu
slysi í Úkraínu vegna þess að lands-
menn geti ekki sjálfir séð um við-
hald búnaðarins.
Úkraínska þingið samþykkti
START-samninginn með 254 at-
kvæðum .gegn níu en skilyrðin eru
svo flókin og víðtæk að ólíklegt er
að hægt verði að uppfylla þau öll.
Þingmenn sökuðu Vesturveldin um
að eiga sök á því hve lengi hefði
dregist að Úkraína samþykkti samn-
inginn.
í samþykkt þingsins segir að
Úkraína muni smám saman losa sig
við kjarnavopnin en í fyrstu atrennu
verði aðeins 42% af vopnunum látin
af hendi.
Litlar horfur á
árangri á fundi
APEC-ríkjanna
Vonir Bandaríkjamanna um frí-
verslunarbandalag Kyrrahafsríkj-
anna munu ekki rætast í bráð
TILLÖGUM um, að Kyrrahafsríkin mynduðu með sér eitt efnahags-
bandalag var hafnað á fundi APEC, Efnahagsráðs Kyrrahafsrílg'-
anna, í Seattle i Bandaríkjunum í gær. Kom þar til ótti nokkurra
Asíuríkja við, að það leiddi til of mikilla ítaka Bandaríkjamanna í
efnahagslífi þeirra. Ráðstefna APEC-ríkjanna hefst raunar ekki
formlega fyrr en i dag en ljóst er, að með ríkjunum er verulegur
ágreiningur. Bill Clinton Bandarikjaforseti leggur áherslu á, að
strax verði samið um sem víðtækasta fríverslun en aðrir vilja fara
hægar í sakirnar.
Clinton hefur fullan hug á fylgja
eftir sigrinum í NAFTA-málum og
leggur ekki aðeins áherslu á, að
APEC-ríkin myndi með sér form-
legt fríverslunarbandalag, heldur
standi saman að því að þrýsta á
um gerð nýs GATT-samnings um
aukið frelsi í heimsviðskiptum. Lík-
legt er, að samstaða verði um það
síðarnefnda en um fríverslunar-
bandalagið hafa hin ríkin ótal fyrir-
vara.
Tíminn ekki kominn
Jean Chretien, forsætisráðherra
Kanada, notaði tækifærið á sínum
fyrsta fundi með Clinton til að ít-
reka athugasemdir sínar við sum
atriði NAFTA-samningsins, eink-
um hvað varðar niðurgreiðslur og
undirboð, og japanskir embættis-
menn tóku fram, að hvergi yrði
látið undan kröfum Bandaríkja-
stjómar um hrísgijónainnflutning
og lægri skatta í þeim tilgangi að
örva japanskt efnahagslíf og eftir-
spum innanlands. Fulltrúi Indónes-
íu sagði, að endurskoða þyrfti hug-
myndina um fríverslunarbandalag
APEC-ríkjanna og jafnvel Gareth
Evans, utanrikisráðherra Ástralíu,
sem er henni mjög hlynntur, sagði,
að tími hennar væri ekki kominn.
Með helming
heimsframleiðslunnar
APEC var stofnað fyrir fjórum
árum og eru aðildarríkin Ástralía,
Bandaríkin, Brunei, Filippseyjar,
Hong Kong, Indónesía, Japan,
Kanada, Kína, Malasía, Mexíkó,
Nýja Sjáland, Papúa Nýja Gínea,
Singapore, Suður-Kórea, Tæland
og Tævan. Saman standa þau að
helmingi heimsframleiðslunnar og
40% heimsviðskiptanna og að und-
anförnu hefur langstærstur hluti
hagvaxtarins verið í þessum ríkj-
um.
Bandaríkjamenn og Ástralir eru
áköfustu talsmenn þess, að APEC
verði gert að formlegu fríverslunar-
bandalagi enda óttast hvorir-
tveggju, að þeir geti orðið útundan
í hagvaxtarævintýri Asíuríkjanna.
Þeim brá líka nokkuð þegar Malas-
ía fór að reka áróður fyrir sérstöku
efnahagssamstarfi Áustur-Asíu-
Reuter
í heimsókn hjá Boeing1
NOKKRIR fulltrúar APEC-ríkjanna fóru í gær í heimsókn og skoð-
unarferð um Boeing-flugvélaverksmiðjurnar í Seattle. Jiang Zenin,
forseti Kína, var á meðal þeirra og er hér næstur í annarri röð.
ríkja og svarið við því var að leggja
áherslu á að styrkja APEC. Öflugt
APEC drægi úr líkum á sérstöku
bandalagi Asíuríkjanna og tryggði
um leið pólitískt og hemaðarlegt
hlutverk- Bandaríkjanna á Kyrra-
hafssvæðinu. Það gæti líka neytt
Evrópubandalagið til að sýna meiri
sveigjanleika í GATT-viðræðunum.
Ólík sjónarmið
Vonir Bandaríkjamanna um frí-
verslunarbandalag APEC-ríkjanna
munu líklega ekki rætast alveg í
bráð enda eru mjög ólík sjónarmið
uppi meðal ríkjanna. Minni ríkin
óttast að verða gleypt af þeim
stóru, Bandaríkjunum, Kína og
Japan; Japanir hafa meiri áhuga á
GATT-samningunum en hugsan-
legum APEC-samningum og Kín-
veijar virðast fyrst og fremst líta
á APEC sem kjörinn vettvang fyrir
bætt samskipti við Bandaríkja-
menn. Af þessum sökum þykir ekki
líklegt, að fundur APEC-ríkjanna
í Seattle muni verða til að marka
mikil tímamót.
Heimild: Reuter,
The Economist
*
Yfirlýsing Leoníds Kravtsjúks Ukraínuforseta
Vill að öll kjamavopn
verði flutt frá landinu
Kíev, Moskvu. Reuter.
LEONÍD Kravtsjúk, forseti Úkraínu, vill að ríkið losi sig við öll kjarn-
orkuvopn Sovétríkjanna fyrrverandi og hyggst biðja nýtt þing sem
kosið verður á næsta ári að gera Úkraínu að kjarnavopnalausu ríki.
Þetta kom fram á fréttamannafundi í gær en starfandi þing sam-
þykkti í fyrradag START I samninginn um fækkun kjarnavopna
með ströngum skilyrðum. Rússar ráða yfir búnaðinum sem gerir
kleift að skjóta á loft langdrægum eldflaugum sem enn eru í Ukra-
ínu og Kravtsjúk sagði að landsmenn ættu þann kost einan að láta
vopnin af hendi.