Morgunblaðið - 20.11.1993, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
25
Reuter
Fasistar og kommúnistar sigurvissir
ALESSANDRA Mussolini, frambjóðandi nýfasista í Napólí, á loka-
spretti kosningabaráttunnar á Ítalíu en á morgun, sunnudag, kjósa
ítalir sveitarstjórnir og borgarstjóra. Er Alessandra, barnabarn einvalds-
ins Benitos Mussolini, sigurstranglegust frambjóðenda í borginni. Stjórn-
málaskýrendur telja að kristilegir demókratar, sem verið hafa burðarás-
inn í stjórnmálum landsins eftir stríð, verði að búa sig undir enn eitt
áfallið. Flest bendir til þess að flokkar nýfasista og arftaka gamla
kommúnistaflokksins verði sigursælir.
Clinton og Chrétien deila um NAFTA
Auknar líkur á
niðurstöðu í GATT
Washington, Genf. Reuter.
PETER Sutherland, framkvæmdastjóri GATT, almenna samkomulags-
ins um tolla og viðskipti, sagði í gær að líkurnar á að niðurstaða næðist
í GATT-viðræðunum fljótlega hefðu aukist, í kjölfar þess að fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings samþykkti Fríverslunarsáttmála Norður-Amer-
íku, NAFTA, á miðvikudag. Sagði Sutherland mikilvægt að helstu deilu-
aðilar í GATT-viðræðunum, Bandaríkjastjórn og Evrópubandalagið,
legðu fram tillögur til lausnar á deilunni.
Samningamenn sumra ríkja hafa
haft áhyggjur út af orðrómi um að
Bill Clinton Bandaríkjaforseti hefði
gert ýmis konar samninga við þing-
menn í fulltrúadeildinni vegna at-
kvæðagreiðslunnar um NAFTA, sem
gætu stefnt GATT-samkomulagi í
hættu. John Schmidt, aðalsamninga-
maður Bandaríkjastjórnar, vísaði því
hins vegar á bug í gær og sagði
engar málamiðlanir hafa verið gerðar
sem skertu möguleika Bandaríkja-
manna til sveigjanleika í viðræðun-
um.
Clinton og Chrétien deila
Clinton átti á fimmtudag sinn
fyrsta fund með Jean Chrétien, for-
sætisráðherra Kanada. Chrétien hef-
ur krafist þess að NAFTA-sáttmá-
lanum verði breytt en því hefur Clint-
on hafnað. Vilja Kanadamenn að
hugtökin „niðurgreiðsla" og „undir-
boð“ verði skilgreind með skýrari
hætti og að ákvæðum sáttmálans
um orkumál verði breyttt.
Að loknum fundinum, sem fram
fór í borginni Seattle, sagði Chrétien
að Clinton hefði sýnt sjónarmiðum
Kanadamanna skilning og að hann
teldi líklegt að málamiðlun myndi
nást. Hann hafði þó uppi efasemdir
um að samkomulag myndi nást áður
en NAFTA á að taka gildi um næstu
áramót.
Embættismenn ríkjanna munu á
næstu dögum reyna að finna lausn
sem báðir geta sætt sig við. Talið
er líklegast að gerður verði viðauki
við sáttmálann þar sem Bandaríkja-
stjórn útilokar að semja aftur um
sáttmálann sjálfan.
í næstu viku halda þeir A1 Gore
varaforseti og Thomas McLarty,
skrifstofustjóri Hvíta hússins, til
Mexíkó til að ræða framkvæmd
NAFTA við Carlos Salinas Mexíkó-
forseta og ríkisstjóm hans.
í gær var einnig skýrt frá því að
Clinton hefði sent leiðtogum allra
ríkja rómönsku Ameríku og Karíba-
hafs skeyti þar sem hann segir að
NAFTA muni skapa forsendur fyrir
fríverslun og jákvæðri efnahagsþró-
un um allan þennan heimshluta.
Könnun meðal þúsunda kanadískra kvenna
• •
Onnur hver kona
orðið fyrir ofbeldi
Toronto. Reuter.
HELMINGUR kanadískra kvenna hefur orðið fyrir ofbeldi, líkam-
legu eða kynferðislegu, og fjórðungur kvenna þar í landi hefur orð-
ið fyrir ofbeldi af hálfu maka sinna. Þetta kom fram í könnun sem
gerð var á vegum kanadísku hagstofunnar og tóku 12.300 konur,
18 ára og eldri, þátt í henni. I eitt af hverjum fimm skiptum hlutu
konurnar teljandi meiðsli. Segja aðstandendur könnunarinnar hana
vera mikið áhyggjuefni og líktu ofbeldinu við farald.
Aðeins var talið um ofbeldi að
ræða sem talið er að brjóti í bága
við lög og sem konurnar höfðu orð-
ið fyrir frá 16 ára aldri. Konurnar
höfðu meðal annars verið lúbarðar,
teknar kyrkingartaki, þeim nauðg-
að og þeim ógnað með hnífi eða
byssu.
45% kvennana höfðu orðið fyrir
árás manns sem þær þekktu og 25%
fyrir árás óþekktra manna. Tveir
þriðju þeirra sem þekktu ofbeldi af
eigin raun höfðu oftar en einu sinni
orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. í
44% þeirra tilvika sem makinn var
ofbeldishneigður, notaði hann vopn,
og hann var drukkinn í 40% tilvika.
Aðeins 14% tilvika sem konurnar
sögðu frá voru kærð til lögreglu.
Þær reyndust úr öllum stéttum
þjóðfélagsins þó að flestar væru
ungar konur í láglaunastörfum og
byggju í þéttbýli.
Uppljóstrarinn Buscetta og guðfaðirinn Riina í réttarsal
Segir „skrímslið“ á
bak víð mafíumorðín
Róm. Reuter.
SALVATORE „Toto“ Riina,
guðfaðir mafíunnar á Sikiley,
hitti í gær augliti til auglitis
uppljóstrarann Tommaso
Buscetta, þann mann, sem
gefið hefur yfirvöldum mest-
ar upplýsingar um starfsemi
glæpasamtakanna. Bar fund-
um þeirra saman í réttarsal
í Róm og þar sakaði Buscetta
Riina um að hafa skipað fyrir
um flest mafíumorðin, þar á
meðal morð 36 ættingja
sinna.
„Þessi maður ber ábyrgð á
dauða ættingja minna,“ sagði
Buscetta og sneri sér síðan að
Riina og spurði: „Hvar er sam-
viska þín?“ Þeir Buscetta hafa
ekki sést í 13 ár en Riina, sem
hefur viðurnefnið „Skrímslið",
var handtekmn í janúar á þessu
eftir að hafa verið eftirlýstur í
23 ár. „Hann var potturinn og
pannan í öllu saman,“ sagði
Buscetta um Riina. „Þegar ein-
hvern átti að drepa var það bor-
ið undir hann.“
36 úr fjölskyldunni myrtir
Buscetta, einn æðsti mafíós-
inn, sem gengið hefur lögregl-
unni á hönd, býr nú í Bandaríkj-
unum þar sem hans er stranglega
gætt og sagt er, að andliti hans
hafi verið breytt með skurð-
„Skrímslið"
aðgerð. Hann fór að starfa með
lögreglunni á síðasta áratug og
hefur síðan veitt miklar upplýs-
ingar um mafíuna og tengsl
hennar við ítalska stjómmála-
menn. í hefndarskyni hefur maf-
ían myrt 26 ættingja hans, þar
á meðal bróður hans og tvo syni.
Buscetta tilheyrði áður einni
þeirra mafíufjölskyldna, sem
Corleone-íjölskyldan upprætti
Uppljóstrarinn
næstum því í blóðugri baráttu
um völdin.
Buscetta vann sér það til
óhelgi innan mafíunnar á sínum
tíma, að hann hélt ýmsar hjákon-
ur en það er bannað innan maf-
íunnar af öryggisástæðum. Er
talin hætta á, að eiginkonurnar
reyni að hefna þess með því að
ljóstra upp um leyndarmál fjöl-
skyldunnar.