Morgunblaðið - 03.12.1993, Page 16

Morgunblaðið - 03.12.1993, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993 Sj ónverndarátak Lionshrey fingarinnar eftirJón Bjarna Þorsteinsson Sjónverndarátak Lionshreyfmg- arinnar er fyrsta alþjóðlega verkefni hreyfingarinnar og stærsta þjónustu- verkefnið frá upphafi. Árið 1993-1994 munu augu allra Lionsmanna beinast að einu og sama verkefninu: „Sight First“. Verkefnið er frábrugðið öllu öðru sem hreyfíngin hefur gert hingað til. Þetta er heimsátak, sem fer fram í 177 löndum og verður aðeins ger- legt, ef allir standa saman og hver og einn leggur meira á sig en áður. Takmarkið er að safna 130 millj- ónum Bandaríkjadala til verkefnisins undir markmiðinu: Berjumst gegn blindu. Hvers vegna sjónvernd Lionsklúbbar um allan heim sinna gjaman sjónverndarverkefnum, bæði girm austurlenskt jólahlaðborð éÉtL;,s, „,,111 i É/ítffM ISÍjÍÉÍfil Fordrykkur Dragon kokteill Forréttir Núðlusúpa m/kínversku grænmeti Kropeok Heitir réttir Steiktar núðlur m/sjávarréttum Young Chow m/steiktum hrísgrjónum Luo karrý kjúklingur Nautakjöt m/ostrusósu Svínakjöt m/Yu Siang sósu Hörpudiskur m/hvítlauk Krabbakjöt m/sterkri sósu Smokkfiskur m/grænmeti Siang Su kjúklingur Gao Pao fiskur (sterkt) Chio Chee m/svínakjöti Súrsætar rækjur Gao Pao lambakjöt (sterkt) Char Siu svínarif Kaldir réttir Char Chai grænmeti og salat Agar-agar, kínversk rjómakaka M veitingahúsið á íslandi Laugavegi 28b Sími 16513 - 23535 - Fax 624762 'lffltfl í heimalöndum sínum og í öðrum löndum. Sjónvernd hefur verið eitt af aðalverkefnum hreyfingarinnar frá stofnun hennar 1917. Árið 1925 skoraði Helen Keller á Lionsmenn að verða „riddarar blindra í herferð gegn myrkri“. 1930 fann Lionsmaður upp hvíta stafínn. Lionsklúbbar hafa stúðlað að útbreiðslu hans. 1939 stofnuðu Lionsmenn fyrsta skólann í Bandaríkjunum þar sem var kennd notkun blindrahunda. 1945 var Lionshreyfingin í lykil- hlutverki við stofnun augnbanka. í dag er um 150 augnbankar víða um heim og er meirihluti þeirra styrktur af Lionshreyfingunni. Lionsklúbbar hafa frá upphafi unn- ið mikið fræðslu- og forvarnarstarf vegna augnsjúkdóma og blindu, keypt tæki til augnlækninga og rekið augnspítala. Nú, þegar Lionshreyfingin beitir sér fyrir alþjóðlegu verkefni, þar sem klúbbar frá öllum þjóðlöndum stilla saman strengi sína, var sjónvernd nærtækt verkefni. Berjumst gegn blindu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) áætlar að rúmlega 40 millj- ónir manna séu blindar. Um 80% þeirra, 32 milljónir, eru blindir að óþörfu. Áætlað er að innan 25 ára muni fjöldi blindra verða helmingi meiri. Ef ekkert verður að gert munu 80 milljónir manna verða blindar innan aldarfjórðungs. Lionshreyfingin hef- ur sett sér það markmið að beijast gegn blindu. Vítamínskortur Árlega missa 500.000 börn sjónina vegna A-vítamínskorts. Næstum því 70% þeirra deyja inn- an hálfs árs, fái þau ekki læknishjálp. Á 20-30 sekúndna fresti verður einhver blindunni að bráð, blindu sem hefði verið hægt að koma í veg fyr- ir, eða blindu sem hægt er að lækna. * Á hverri mínútu fjölgar blindum um 2-3. * Á einum degi missa 4.300 manns sjónina. * Á einu ári verða 1,6 milljónir manna blindir og lifa í myrkri eftir það. * Innan 25 ára verða 80 milljónir manna blindar, ef ekkert verður að gert. Það þarf ekki margar krónur til að bjarga sjón einnar manneskju. 30 krónur geta bjargað einu barni í Indó- Jón Bjarni Þorsteinsson nesíu frá blindu vegna A-vítamíns- korts (augnhrímu). 60 krónur geta bjargað einni manneskju í Suður- Ameríku frá því að missa sjónina vegna fljótablindu. 500 krónur duga til að borga augnaðgerð á Indveqa, sem hefur misst sjónina vegna skýs á auga. 10.000 krónur til forvarnar- starfa geta kennt heilu þorpi í Afríku hvernig þeir koma í veg fyrir aug- nytju (trakoma). Flestir þeirra blindu búa í þróunarlöndunum Blinda er heilbrigðisvandamál um allan heim. WHO áætlar að hlutfall blindra í heiminum geti verið 1 af hveijum 10.000 til allt að 1 af hveij- um 500 (þ.e. 1 blindur á móti hverjum 500 heilbrigðumþ Það fer eftir hvar í heiminum barn fæðist hvort það fær að halda sjóninni eða ekki. í mörgum löndum heims vantar fé til að verjast læknanlegum sjúkdóm- um, sem orsaka blindu. Ennfremur vantar fé til að kaupa lyf og tæki til lækninga á augnsjúk- dómum og blindu. Fjáröflun Söfnunarfénu verður skipt niður í verkefni. Hluti íjárins fer til: * Lækninga á augnsjúkdómum og blindu. * Lyfja- og tækjakaupa. * Fræðslu- og forvarnarstarfa. * Rannsókna á augnsjúkdómum og blindu. Lionshreyfmgin biðlar til lands- manna um að taka vel á móti sölu- fólki Lions og styðja baráttu okkar gegn blindu. Höfundur er heilsugæslulæknir. JÓLAPAKKI Baðið í lag fyrir jól 17-20% afsláttur af flísum f og Ifö/Mora hreinlætistækjum Opið laugardag kl. 10-16 Nýkomin sending af glæsilegum gólf- og veggflísum Ps. Það fá allir jólapakka við hæfí í Flísabúðinni mm Stórhöfða 17 við Gullinbrú, sími 67 48 44

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.