Morgunblaðið - 03.12.1993, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993
35
hent í því að koma sér upp heimili.
Garðyrkjustöðin tók til starfa og
var garðyrkjubóndinn ekki einham-
ur um þær mundir. Einnig fór
Skafti nú að vinna hjá Ingimari í
Fagrahvammi, sem á þeim árum
rak blómlegustu stöð landsins í
garðyrkju. Skafti lærði hjá Ingi-
mari og það er mál margra að síð-
ar hafi komið fallegustu rósirnar
frá Skafta Jósefssyni.
Skafti skipti sér ekki mikið af
stjórnmálum þó fast væri leitað á
hann í þeim efnum. En hann var
félagslyndur maður og einkum voru
það bridsspilin, sem áttu hug hans.
Það var mörgum kunningjum unun
að spila við Skafta. Reglumaður var
hann alla ævi en kunni þó svo sann-
arlega að gleðjast með glöðum.
Heimili þeirra Margrétar og
Skafta var til mikillar fyrirmyndar.
Það var ekki í kot vísað að sitja
með þeim á þeirra gestrisna heim-
ili og skrafa við þau um alla heima
og geima, en segja má að þau hafi
ekki látið sitt eftir liggja. Sá sem
þetta ritar lítur til baka á margar
unaðsstundir í þeirra ranni, hjá
Möggu og Skafta.
Margrét og Skafti eiga fjögur
börn. Þau eru: Jóhannes lyfsali,
Jósef læknir og dæturnar tvær,
Hólmfríður húsmóðir í Hveragerði
og Auður húsmóðir á Akureyri.
Margir vinir Skafta Jósefssonar
munu sakna hans og minnast hans
með trega. Sjálfur var hann afar
hlédrægur maður og myndi ekki
hafa óskað eftir því að verða „blaða-
matur“. Við þessu verður ekki gert
en hins vegar skal þessum fátæk-
legu línum hér með lokið.
Stefán. Þorsteinsson.
t
Alúðarþakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför
PÁLMA PÉTURSSONAR
kennara,
Ljósheimum 12a,
Reykjavík.
Kærar þakkir til ykkar í heimahjúkrun
við Barónsstíg og á öldrunardeild í
Hátúni fyrir áralanga aðstoð við umönn-
un hans.
Elísabet Óskarsdóttir,
Þórunn Pálmadóttir, Aðalsteinn Ásgeirsson,
Gerður Páimadóttir,
Jón Arnar Pálmason, Elsa Baldvinsdóttir,
Aðalheiður Pálmadóttir,
Bergljót Pálmadóttir, Gestur Benediktsson,
Hildigunnur Pálmadóttir
og fjölskyldur þeirra.
RAÐ"aUGLYSÍNGAR
Ritari
Óskum eftir starfsmanni frá 1. janúar 1994
til almennra afgreiðslu- og skrifstofustarfa,
svo sem símvörslu, vélritun, ritvinnslu o.s.frv.
Um er að ræða fullt starf janúar-júní, en hluta-
starf 50% (eða samkomulag) júlí-desember.
Starfsreynsla í svipuðu starfsumhverfi
nauðsynleg.
Umsóknir, er tilgreini menntun og fyrri störf,
ásamt venjulegum, persónubundnum upp-
lýsingum, sendist undirrituðum fyrir
10. desember.
Stoð - endurskoðun hf.,
Lynghálsi 9, pósthólf 10095,
130 Reykjavík,
sími 689580, fax 689574.
IHafnarfjörður
Breyting á staðfestu
deiliskipulagi miðbæjar
Samkvæmt ákvörðun skipulagsstjórnar ríkis-
ins, með vísan til 17. og 18. greinar skipu-
laga nr. 19/1964, er lýst eftir athugasemdum
við tillögu að breytingu á staðfestu deiliskipu-
lagi miðbæjar í Hafnarfirði, dags. 1.09. ’93.
Breytingin felst í því að fyrirhugað hringtorg
á gatnamótum Reykjavíkurvegar, Vesturgötu
og Fjarðargötu er fært til og breytir lögun.
Strandgata er tengd inn á þetta endurhann-
aða hringtorg og er nú fyrirhuguð sem tví-
stefnugata að Linnetstíg. Byggingarmagn er
óbreytt á ráðhúsreit, en nú er gert ráð fyrir
u.þ.b. 90 bílstaeðum undir nýbyggingum sem
eru í hönnun. Á þessum reit er gert ráð fyr-
ir stækkun skrifstofu bæjarins, sýslumanns-
embætti og héraðsdómi. Gert er ráð fyrir
lítilli bensínstöð við hringtorgið. Þessi breyt-
ing er sett inn á nýjan kortagrunn, sem sýn-
ir áður samþykktar skipulagsbreytingar og
breytingar á umferðarmannvirkjum vegna
nánari hönnunar og framkvæmda.
Tillagan var samþykkt af bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar 2. nóvember sl. sem breyting á stað-
festu deiliskipulagi miðbæjar í Hafnarfirði frá
2.06. '93. Tillagan liggur frammi á afgreiðslu
tæknideildar Hafnarfjarðarbæjar á Strand-
götu 6 frá 3. desember 1993 til 14. janúar
1994.
Ábendingum og athugasemdum skal skila
skriflega til bæjarstjóra Hafnarfjarðar fyrir
28. janúar 1994. Þeir, sem ekki gera athuga-
semdir við skipulagstillöguna innan tilskilins
frests, teljast samþykkir henni.
Hafnarfirði/Reykjavík, 24. nóvember 1993.
Skipulagsstjóri ríkisins.
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Hamraberg - Vörðuberg
Breyting á deiliskipulagi
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti
19. október 1993 breytt deiliskipulag á svæð-
inu milli Hamrabergs - Vörðubergs - Tinnu-
bergs skv. uppdrætti skipulagsdeildar dags.
6.10. '93.
Breytingin felur í sér að deiliskipulag fyrir
iðnað og þjónustu, sem samþykkt var 1987,
verður að deiliskipulagi íbúðarbyggðar. í stað
tveggja og hálfs hæðar iðnaðarhúsnæðis er
gert ráð fyrir 18 íbúðum í tveggja hæða rað-
og parhúsum. í götustæði Tinnubergs komi
akfær göngustígur.
í samræmi við gr. 4.4.1. í skipulagsreglugerð
nr. 318/1985 er hér með auglýst eftir athuga-
semdum og ábendingum varðandi þessa
breytingu.
Tillagan liggur frammi í afgreiðslu bæjarverk-
fræðings á Strandgötu 6, Hafnarfirði, frá
3. desember 1993 til 2. janúar 1994.
Ábendingum skal skila skriflega til bæjar-
stjórans í Hafnarfirði fyrir 8. janúar 1994.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir við tillög-
una, teljast samþykkir henni.
Hafnarfirði, 30. nóvember 1993.
Skipulagsstjóri Hafnarfjarðar.
SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN
F F I. A (i S S T A R F
Jólateiti sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík bjóða til jóla-
teitis nú á laugardaginn, 4. desember, milli
kl. 16 og 18 í Valhöll v/Háaleitisbraut
(kjallara).
Boðið er upp á jólaglögg og aðrar veitingar.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Markús Örn
Antonsson, flytur ávarp.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
Óðinn, Vörður,
Hvöt og Heimdallur.
Aðalfundur
Félags sjálfstæðismanna
í Hóla- og Fellahverfi
verður haldinn á
morgun, laugardag-
inn 4. desember, og
hefst hann kl. 11.00
í Valhöll, Háaleitis-
braut 1.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Önnur mál.
Gestir fundarins
verða borgarfulltrúarnir Árni Sigfússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
Stjórnin.
SJÁLFSBJÖRG
FÉLAG FATLAÐRA I REYKJAVÍK OG NÁGRENNI
Hátúni 12, pósthólf 5183, simi 17868
Jólabasar Sjálfsbjargar
Hinn árlegi jólabasar, hlutavelta og kaffisala
Sjálfsbjargar verður haldin í félagsheimilinu
og baðstofunni, Hátúni 12, laugardaginn 4.
og sunnudaginn 5. desember kl. 14.00.
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum 1, Sel-
fossi, fimmtudaginn 9. desember 1993 kl. 10.00 á eigninni Hrís-
holti, Laugarvatni, þingl. eig. Sigurður Sigurðsson, gerðarbeiðendur
eru (slandsbanki hf. og Búnaðarbanki íslands.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
2. desember 1993.
Sjómenn athugið
Til sölu eru hlutabréf í fyrirtækinu Mexice.
Fyrirtækið hyggur á fiskveiðar og fiskverkun
í Mexíkó.
Svör leggist inn á auglýsingadeild Mbl.,
merkt: „Mexíkó - 10559.“
SltlCI ougiýsingar
I.O.O.F. 12 = 175123872 = E.K.
I.O.O.F. 1 = 175123872 = E.K.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Kvöldbiblíuskóli kl. 20.
Kennarar Ásmundur Magnús-
son og Jódís Konráðsdóttir.
Efni: Lækning og heilbrigði.
Allir hjartanlega velkomnir!
Jólafundur Húsmæðra-
félags Reykjavíkur
verður á Holiday Inn mánudag-
inn 6. desember kl. 20.30.
Fjölbreytt dagskrá: Telpnakór
Garðabæjar syngur. Hjördís Rós
spilar á píanó. Hattasýning frá
hattabúðinni Höddu. Kristin
Halldórsdóttir flytur hugvekju.
Glæsilegt jólahappdrætti.
Jólafundurinn er öllum opinn.
Stjórnin.
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
heldur skyggnilýsingafund þriðju-
daginn 7. desember, kl. 20.30 í
Akoges-salnum, Slgtúni 3.
Húsið opnað kl. 19.30.
Miðasala við innganginn.
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Skyggnilýsingafundur verður
haldinn í Gerðubergi í kvöld 3.
desember kl. 20.30. Heims-
þekktir miðlar, Coral Polge og
Bill Landis, verða með skyggni-
lýsingu og teikningar af framliðn-
um.
Einsöngur verður í byrjun fund-
arins. Einsöngvari: Alda Ingi-
bergsdóttir, sópran. Undirleik-
ari: Guðni Þ. Guðmundsson.
Bókanir f símum 18130 og
618130.
Stjórnin.
Samtök
um aðskilnað ríkis og kirkju.
Uppl. og skráning stofnenda:
Björgvin, s. 95-22710, kl. 17-19.