Morgunblaðið - 03.12.1993, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993
39
Minning
Þorleifur Sigurþórs-
son rafvirkjameistari
Fæddur 26. september 1925
Dáinn 26. nóvember 1993
Þorleifur Sigurþórsson rafvirkja-
meistari lést 26. nóvember síðastlið-
inn. Hann var fæddur í Lambhaga á
Rangárvöllum. Foreldrar hans voru
Sigurþór Þorleifsson bóndi og smiður
og Júlíana G. Guðmundsdóttir hús-
móðir. Hann ólst upp hjá foreldrum
sínum og bróður, Agústi, og fóstur-
bróður, Guðmundi, á Litlu-Strönd á
Rangárvöllum. Hann lærði rafvirkjun
í Reykjavík á árunum 1945-1948 og
tók sveinspróf árið 1949. Þorleifur
kvæntist Margréti Karlsdóttur árið
1947 og eignuðust þau fimm börn,
Ágústu, Sigurþór, Júlíönu, Guðmund
og Karólínu.
Mín fyrstu kynni af Leifa, eins og
hann var alltaf kallaður, urðu þegar
ég kynntist dóttur hans Ágústu og
við hófum búskap í kjallaranum á
Skólavegi 9 árið 1972, en það hús
byggðu þau Magga og Leifi þegar
þau fluttust til Keflavíkur árið 1954.
Hann var rafverktaki í um þijátíu
ár, en árið 1985 hóf hann störf hjá
Rafmagnsverktökum Keflavíkur og
vann hann þar til æviloka.
Allir þekktu Leifa rafvirkja enda
var hann afburða viljugur og fljótur
til ef eitthvað bilaði. Mikil og góð
tengsl eru á milli fjölskyldnanna og
leið varla sá dagur að við hittumst
ekki, enda bjuggum við í sambýli í
tólf ár, fyrst á Skólaveginum og síð-
an á Brekkubrautinni.
Mínar helstu minningar eru frá
kvöldspjallinu okkar á föstudögum
og allar þær ferðir sem við fórum
saman og fy'ölskyldur okkar bæði
innan lands og utan, sérstaklega
tjaldferðirnar sem voru farnar um
hveija verslunarmannahelgi í um
tuttugu ár. En síðustu ferðina fórum
við í haust og var hann þá orðinn
verulega þjáður af sjúkdómnum sem
hann var búinn að beijast við í átta
ár, en Iét þó engan bilbug á sér finna.
Unaðsreit átti Leifi sér í Skorra-
dalnum, en þangað fór hann eins oft
og aðstæður leyfðu.
Þegar rifjaðar eru upp svona end-
urminningar kemur svo margt upp
í hugann að erfítt er að koma því á
blað. Barnabörnin eiga eftir að sakna
afa síns sárt eins og öll fjölskyldan,
því að betri tengdaföður og vin er
vart hægt að hugsa sér.
Kristófer Þorgrímsson.
Þegar hringt var til mín og mér
var tilkynnt að vinur minn Þorleifur
Sigurþórsson væri búinn að kveðja
þennan heim þá fylltist ég söknuði
og trega. Þorleifur var maður dag-
farsprúður og ákaflega ábyggilegur
í orði og verki.
Það var gaman að eiga orðastað
við Þorleif, það var sama hvar maður
bar niður, allsstaðar var hann heima
hvort sem við ræddum um þá um-
rótatíma sem við lifum á í dag eða
—iryv—V
mmoÐ)
Husky Lock
Loksaumavélin (over lock)
Gerð 360 D
Verð frá
33.820,-
kr. stgr.
VÖLUSTEINN
Foxafen 14, Sími 679505
Umboðsmenn um allt lancl
HF
um fyrri tíð. Bónbetri manni hef ég
varla kynnst, alltaf tilbúinn að rétta
fram hjálparhönd ef hann taldi sig
geta orðið að liði.
Þegar hann veiktist og honum var
orðin ljós sú beiska staðreynd að
hann gengi með ólæknandi sjúkdóm
þá tók hann þessu öllu með yfirvegun
og rósemi enda var harin ekki mikið
fyrir að flíka tilfinningum sínum.
Eflaust, þótt það færi fram hjá mér
sem og öðrum, hefur Þorleifur átt
sínar erfiðu stundir eins og gefur að
skilja, að ganga með ólæknandi sjúk-
dóm. Við sem heilbrigð erum getum
vart sett okkur í spor þess sem það
verður að gera.
Hann hafði orð á að það að geta
verið í vinnunni innan um félaga sína
væri honum svo mikils virði að hann
gæti vart lýst því með orðum, enda
var hann alltaf kominn til vinnu
sinnar aftur um leið og hann stóð
upp úr hverri læknismeðferðinni af
annarri.
Þorleifur var lærður rafvirki,
stundaði þá iðju og rak sitt eigið
verkstæði lengst af, en þegar heilsa
hans fór að bila hætti hann sínum
einkarekstri og fór til Rafmagns-
verktaka á Keflavíkurflugvelli, en
hann var meðeigandi í því fyrirtæki.
Hann var ákaflega vandvirkur og
öruggur iðnaðarmaður.
Þorleifur átti því láni að fagna að
eiga yndislega konu og mannvænleg
börn sem urðu til þess að skapa hon-
um gott og hlýlegt heimili og þegar
það fór að halla undan fæti hjá hon-
um, þá gerðu þau ailt sem í mann-
legu valdi stóð, til þess að létta hon-
um stundirnar.
Nú þegar líður að kveðjustund er
mér efst í huga þakklæti fyrir það
að hafa átt hann að vini öll þessi ár
sem við höfum þekkst, það eitt er
stór gjöf í bók minninganna sem ég
mun geyma og varðveita um ókomin
ár.
Því þó að fundum fækki
er fortíð ekki gleymd.
I mínum huga og hjarta
þín minning verður geymd.
Heima í húsi þínu
sig hvíldi sálin mín.
Ég kem nú, kæri vinur,
með kveðjuorð til þín.
Kæra Margrét, ég og konan mín
viljum votta þér og fjölskyldu þinni
okkar dýpstu samúð. Blessuð sé
minning Þorleifs Sigurþórssonar.
Magnús Þór Helgason.
Nýþjónusta!
Fyrirtæki í stærsta
verslunarkjarna borgarinnar
bjóða viðskiptavinum 50 kr. greiðslu
vegna bílastæðiskostnaðar
/ x •
Þessi nýstárlega þjónusta er afrakstur samstarfs
milli Miðbæjarfélagsins, Laugavegssamtakanna og Bflastæðasjóðs.
í boði eru um 1800 bflastæði í bflageymslum og á miðamælastæðum.
Bflageymslur á svæðinu eru í Ráðhúskjallaranum, Kolaporti, Traðarkoti,
Vesturgötu 7, Bergsstöðum, Vitatorgi
og miðamælastæði eru á 17 stöðum.
Til að fá endurgreiðsluna
þarftu einungis að uppíylla eftirtalin skilyrði: - /
versla íyrir lágmark 1000 kr. hjá aðildarfyrirtæki
framvísa kvittun af tímamiða úr miðamæli
eða geymslukvittun úr bílageymslu
Viðkomandi fyrirtæki stimplar kvittunina og
endurgreiðir 50 kr. um leið og viðskipti fara frarn.
Verslanir og fyrirtæki sem taka þátt í þessu samstarfi
eru auðkennd með sérstöku merki.
BÍLASTÆÐASJÓÐUR
Bílastœði fyrir alla
,ÁVl