Morgunblaðið - 03.12.1993, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993
43
gamlárskvöldið, sem við eyddum
saman hjá henni, sagði dóttir mín
við mig: „Mamma, nú eru bara tvö
ár þangað til við fáum aftur svína-
hrygginn hjá henni Assí.“ I framtíð-
inni munum við geyma minninguna
um þessi kvöld í hjörtum okkar og
vonum að Assí verði þá ekki langt
undan.
Vinátta okkar varaði í þijátíu ár
og bar aldrei skugga á hana alla
tíð. Við hlógum oft að „þráðlausa“
sambandinu okkar en það var ekki
svo sjaldan sem ég settist niður við
símann og ætlaði að fara að hringja
í hana að síminn hringdi og Assí var
á línunni — eða öfugt. Hlýlegt við-
mót hennar, brosmildi, góðar gáfur
og tryggð hennar gagnvart mér og
íjölskyldu minni snart mig ávallt og
ég vissi að þar átti ég sannan vin.
Með þessum fátæklegu orðum
langar mig til að kveðja hana hinstu
kveðju. Með þakklæti og virðingu
þakka ég henni samfylgdina og bið
góðan Guð um að styðja hana og
styrkja í nýjum heimkynnum.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku Jónas minn, Helga, Erling-
ur, Hulda og aðrir ástvinir, ég votta
ykkur einlæga samúð mína og eins
bið ég þaftn sem öllu ræður að
styrkja ykkur í sorginni og geyma
um alla framtíð.
Margrét Gunnlaugsdóttir.
Hún Assí, kærasta vinkonan mín
er dáin, sorgarfrétt.
Kynni okkar hófust í MR, en þar
var ég svo lánsamur að komast í
klíku þeirra Assíar, Nönnu, Helgu,
Stubbu, Auðar Ingu o.fl. Það var
eins og að anda að sér ferskum blæ
komandi tíma að kynnast þessum
stúlkum, þar sem öll mannleg sam-
skipti voru rædd opinskátt og jafn-
rétti kynja var sjálfsagður hlutur.
Oft var glatt á hjalla í þessum hópi
og var Assí þá ætíð fremst í flokki.
Hispursleysi hennar var viðbrugð-
ið og oft velti hún upp nýjum og
skemmtilegum hliðum í umræðum
og kom þá vel fram að hún studdist
við traustan bakgrunn úr foreldra-
húsum.
Fyndist Assí umræðan vera orðin
of lágkúruleg gat hún fundið uppá
að vitna til ömmu sinnar Hönnu
Davíðsson sem tók til að mála vænt-
anlega soðningu á eldhúsborðinu í
stað þess að tilreiða matinn, enda
hafði hún ekki séð fallegri þorsk-
haus! Afi hennar Ólafur Davíðsson,
var henni líka hugleikinn og fengum
við margar frumlegar sögur um
þann merka mann.
Vinaböndin treystust síðan enn
frekar, þegar Assí giftist vini mínum
Jónasi á stúdentsárunum og átti ég
margar; ánægjulegar stundir með
þeim, enda voru þau höfðingjar heim
að sækja.
Við Gerða minnumst sérstaklega
groddahófa og utanlandsferða, þar
sem Assí lék á als oddi.
Ásthildur átti við erfiðan sjúkdóm
að stríða síðustu árin, en bar hann
vel og hélt reisn sinni fram til þess
síðasta.
Við Gerða sendum aðstandendum
hugheilar samúðarkveðjur og þá sér-
staklega Huldu, Helgu, Erlingi og
Jónasi.
Ólafur Gíslason.
„Dáinn, horfinn!" — Harmafregn!
Hvílíkt orð mig dynur yfir!
En eg veit, að látinn lifir.
Það er huggun harmi gegn.
Hvað væri annars guðleg gjöf,
geimur heims og lífið þjóða?
Hvað væri sigur sonarins góða?
Illur draumur, opin gröf.
Þessi orð Jónasar Hallgrímssonar
í erfikvæði um Tómas Sæmundsson
komu mér í hug, er ég frétti, að
Ásthildur Erlingsdóttir væri dáin,
aðeins 55 ára að aldri. Ásthildur er
í mínum huga einstök manneskja,
og hún reyndist mér og mínum afar
vel, er á þurfti að halda. Ég mun
minnast hennar hér fáeinum orðum.
Ásthildur Erlingsdóttir var einkar
glæsileg kona, gædd skýrum og
hvössum gáfum, og einstakur höfð-
ingi heim að sækja. Það var afar
ánægjulegt að ræða við hana um
margvísleg málefni, en hún var vel
heima í mörgu og mjög víðlesin.
Margar góðar stundir höfum við
Dóra, og dætur okkar, átt heima
hjá þeim Ásthildi og Jónasi í Eski-
hlíðinni, og hugsunin um þær sam-
verustundir veita nokkurn yl, þegar
kólnar hið ytra.
Um þessar mundir eru 75 ár lið-
in, frá því að ísland varð fijálst og
fullvalda ríki, og Stúdentafélag
Reykjavíkur hefur oft minnst þess-
ara merku tímamóta. Við Jónas El-
íasson vorum um skeið saman í
stjórn þess félags, og margt minnis;
stætt gerðist á þeim vettvangi. Á
það m.a. við um samkomurnar til
þess að minnast fullveldisins. Þar
áttum við Dóra með þeim hjónum
margar ánægjustundir. Fyrir rúmum
áratug sótti fullveldisfagnaðinn
kunnur áhrifamaður í íslensku sam-
félagi. Ásthildur ræddi við hann um
stund. Hún talaði þá um hið fagra
mál, dönskuna, og um leiðir til þess
að efla dönskukennslu hér á landi.
Málefnið var henni afar hugleikið,
og mér er harla minnisstætt, hve
sannfærandi hún var í orðum sínum
um mikilvægi dönskukennslunnar
og gildi dönskunnar í menningarlegu
tilliti.
Stúdentafélagið tók ásamt öðrum
á móti hinum heimsfræga Dana,
Victor Borge, og hann kom m.a.
fram á vegum félagsins í Háskóla-
bíói í maímánuði árið 1983. Hann
fór þar á kostum og kunnugir segja,
að hann hafi sjaldan eða aldrei verið
betri en þar. Honum var boðið í ferð
til Þingvalla og víðar. Leiðsögumað-
ur í ferðinni varð að vera traustur,
og því var Ásthildur Erlingsdóttir
fengin til þessa starfs, og þessi ferð
er ógleymanleg. Borge sjálfur var
greinilega djúpt snortinn af fegurð
landsins og snjallri leiðsögn Ásthild-
S-r, og er það ekki að undra.
Ásthildur átti við erfið veikindi
að stríða hin síðari misseri. í síðasta
skipti, sem ég sá hana, var henni
mjög brugðið. Hún var þó glöð í
bragði og hlýleg, og hún kvaddi
okkur Dóru einkar alúðlega. Ekki
vissi ég þá, að þetta var í raun
kveðjústund í dýpri merkingu en ég
hugði. En hvað sem því líður er víst,
að kynnin af Ásthildi Erlingsdóttur
auðguðu og dýpkuðu skilning á verð-
mætum lífsins. Hún minnti mig
stundum á sumar kvenpersónurnar
í íslendingasögunum, og er þar átt
við glæsileika og skörungsskap. En
hún var einnig hjartahlý og hjálpleg,
þegar á þurfti að halda, og minning-
in um hana er björt og fögur.
Við Dóra sendum eiginmanni og
öðrum vandamönnum innilegar sam-
úðarkveðjur. — Guð blessi minningu
Ásthildar Erlingsdóttur.
Olafur Oddsson.
í fyrrasumar fórum við Ásthildur
Erlingsdóttir í strandgöngu í Herdís-
ai’vík. Það var dumbungur og ýrði
af suðri. Hún vildi setjast á stein-
garð og njóta kyrrðarinnar í náttúr-
unni, sagði að sér fyndist gott að
horfa út á hafið. Hún gat heldur
ekki hugsað sér annan bústað í
Reykjavík en þann sem bauð upp á
útsýn til Snæfellsjökuls. „Er kannski
ekki dýpt í þessu?“ spurði Ásthildur
einu sinni þegar ég var með einhveij-
ar efasemdir um íslenska ljóðlist.
Síðan fór hún með upphafið að Norð-
urljósum eftir Einar Bertediktsson:
„Veit duftsins son nokkra dýrðlegri
sýn / en drottnanna hásal í rafur-
loga..." Þetta voru allt eðlisein-
kenni, Ásthildur horfði hátt og langt.
Þótt hún reyndist manna kænust að
koma smáum hlutum dagsins í
sómasamlegt far átti hún stóra ver-
öld. Ásthildur Erlingsdóttir var
heimskona, hafði víða komið og tam-
ið sér góða siði og smekk. Úr heima-
húsum bar hún stíl, reisn og stolta
lund sem prýða foreldrana. Um 20
ára skeið hafði ég séð Ásthildi
bregða fyrir á mannamótum, hnar-
reistri og glæsilegri, en fundist hún
alvarleg í bragði. Eftir að við kynnt-
umst svo fyrir nokkrum misserum
átti ég því láni að fagna að verða
skjólstæðingur hennar og uppgötva
glaðværðina og ljúfmennskuna. Bar-
áttan við lítt bærileg veikindi kom
aldrei í veg fyrir ánægjuna sem hún
kappkostaði að vekja. Kennslustörf-
in, félagsmálaþátttakan og fjöl-
skyldulífið mótuðust af því að veita,
efla og setja skraut á tilveruna.
Maður varð alltaf þiggjandi.
Ásthildur starfaði að gagnkvæm--
um samskiptum íslendinga og Dana.
Það fór vel á því að hún og eiginmað-
ur hennar Jónas Elíasson skyldu
verða fylgdarmenn Margrétar Dana-
drottningar og Hinriks prins hér á
landi 1986, lífræn, drífandi og gagn-
kunnug landi og sögu. Ásthildur
hefði verið ágæt drottning sjálf. Hún
bar sig vel, var hreinskiptin og
sköruleg kona, opin og fundvís í
samræðum, fjörug og vakandi, fjöl-
fróð um marga hluti og lét vel að
segja frá, gat verið beinskeytt, en
dró fram góðar hliðar mála. Þótt
Ásthildur hefði mótað sér ákveðnar
skoðanir var húmjafnan tilbúin að
ræða þær og endurmeta í nýju ljósi.
í því efni birtist nákvæmni hennar
og kannski ekki síður. ábyrgðartil-
finningin og umhyggjan sem ætt-
menni og stór vinahópur þekktu
vel. Hún sýndi ræktarsemi og vildi
samfagna. Ásthildur Erlingsdóttir
var víðfrægur höfðingi heim að
sækja, natin og nákvæm um matar-
gerðarlist og allan búnað. Væri far-
ið af bæ hafði hún þann undirbúning
að hver máltíð varð að veislu. Þótt
hún gæti ekki sjálf notið veitinga
nema í afar takmörkuðum mæli
sparaði hún sig hvergi í því að und-
irbúa gestaboð með sama glæsibrag
og fjölbreytni og áður.
Við héldum að núna væri brött-
ustu göngunni farsællega að ljúka
og að við mundum hitta hana innan
tíðar með brosið sitt góða og hlýj-
una. Skelfilega snöggt er höggvið á
þráðinn. Minningin lifir og er góð
um þessa göfugu konu, sein hafði
þann styrk að gefa okkur samferða-
fólkinu alltaf meira en við gátum
endurgoldið. Megi Guð blessa Ást-
hildi Erlingsdóttur og veita stuðning
foreldrunum, Huldu Davíðsson og
Erlingi Þorsteinssyni, eiginmannin-
um Jónasi Elíassyni, börnunum
Helgu Guðrúnu og Erlingi, tengda-
dótturinni Maríii Vilhjálmsdóttur,
sonardótturinni Ásthildi Erlingsdótt-
ur og öðrum ættingjum og ástvinum.
Votta ég þeim innilega samúð mína
og þakkir fyrir liðnar stundir.
Ólafur H. Torfason.
Ásthildur Erlingsdóttir lektor er
látin. Hún var fædd í Kaupmanna-
höfn 17. mars 1938, dóttir Erlings,
síðar yfirlæknis, Þorsteinssonar
skálds Erlingssonar og konu hans
Huldu Davíðsson. Ásthildur varð
stúdent frá Menntaskólanum á Ak-
ureyri 1957. Stundaði síðan nám í
dönsku og ensku við Háskóla íslands
svo og nám í uppeldis- og kennslu-
fræði. Einnig nám í dönsku við
Kaupmannahafnarháskóla og Dansk
Lærerhoyskole. Námsferill hennar
var glæstur svo sem vænta mátti.
Sumarvinna hennar á námsárum var
flugfreyjustarf hjá Loftleiðum og
síðar var hún leiðsögumaður á sumr-
um. Hún var lektor í dönsku við
Kennaraháskólann frá 1973 og próf-
dómari í dönsku við Háskóla ís-
lands. Hún stýrði ljölda námskeiða
hérlendis og erlendis og sótti nám-
skeið um nýjungar í kennslutækni.
Ásthildur var mikil félagsmála-
kona og gegndi fjölda trúnaðarstarfa
fyrir stétt sína. Lengi var hún full-
trúi kennara í launamálaráði ríkis-
starfsmanna innan BHM og formað-
ur þess um skeið.
Ásthildur giftist Jónasi Elíassyni
síðar prófessor við Háskóla íslands.
Þau eignuðust tvö börn, Helgu Guð-
rúnu upplýsingafulltrúa landbúnað-
arins og Erling byggingaverkfræð-
ing.
Ásthildur var einstaklega glæsileg
kona og fluggáfuð. Hitt var þó meira
um vert hve góðan mann hún hafði
SJÁ NÆSTU SÍÐU.
ERFIDRYKKJUR"
ItTEL ESJA
. sími 689509
V J
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
EGGERT E. GUÐNASON
framreiðslumaður,
Mávahlíð 34,
andaðist á heimili sínu 29. nóvember.
Valborg Gisladóttir
og aðstandendur.
t
Ástkær eiginkona, móðir, dóttir og systir,
INGA HEIÐA LOFTSDÓTTIR STENT,
lést á heimili sínu í Kaliforníu 30. nóvember sl.
Dr. Gunther S. Stent,
Stefán Loftur Stent,
Ingveldur Ólafsdóttir,
Ólafur Loftsson,
Loftur Loftsson,
Júlíus H. Loftsson,
Rósa Loftsdóttir.
t
Móðir mín,
ÞÓRUNN ELÍSABET BJÖRNSDÓTTIR,
Skólastfg 11,
Akureyri,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn
1. desember.
Útför hennar verður gerð frá Akureyrarkirkju föstudaginn
10. desember kl. 13.30.
Björn Sigurðsson.
Bróðir minn, t HALLDÓR GUÐMUNDSSON
frá Þórðarkoti,
Selvogi,
verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 4. desem-
ber kl. 14. Sigríður Guðmundsdóttir.
t
HLÖÐVER ÞÓRÐUR HLÖÐVERSSON,
Björgum,
Ljósavatnshreppi,
verður jarðsunginn frá Þóroddsstaðakirkju laugardaginn 4. des-
ember kl. 14.00.
Ásta Pétursdóttir og fjölskylda.
t
Eiginkona mín, dóttir okkar, móðir, tengdamóðir og amma,
ÁSTHILDUR ERLINGSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, föstudaginn 3. desem-
ber, kl. 15.00. ^
Jónas Elíasson,
Hulda Davfðsson, Erlingur Þorsteinsson,
Helga Guðrún Jónasdóttir, Kristinn R. Sigurbergsson,
Erlingur Jónasson, María Vilhjálmsdóttir,
Áshiidur Erlingsdóttir.
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug við
andlát og útför föður okkar, tengdaföð-
ur, afa og langafa,
HALLDÓRS BÁRÐARSONAR,
Hvammi,
Húsavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkra-
húss Húsavíkur og Hvamms.
Brynjar Halldórsson, Ólöf Hallgrímsdóttir,
Bárður Halldórsson, Jóhanna M. Kristjánsdóttir,
Sigurður Halldórsson, Laila Valgeirsdóttir,
Lissý Hatldórsdóttir,
Halldór Halldórsson, Birna Sigbjörnsdóttir,
Sigurbjörg Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.