Morgunblaðið - 03.12.1993, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993
KNATTSPYRNA
16 liða meistaradeild hjá Knattspyrnusambandi Evrópu:
Smáþjóðum finnst að sér veg-
ið með breyttu fyrírkomulagi
SKAGAMENN verða ekki með í Evrópukeppni meistaraliða
að ári, en taka þess í stað þátt í Evrópukeppni félagsliða
ásamt FH-ingum. Þetta hefur legið í loftinu, en lá endanlega
fyrir í gær, þegar Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, sam-
þykkti breytingará Evrópumótunum. Héðan ífrá verða aðeins
24 þjóðir með í meistarakeppninni og átta þeirra detta úr
keppni eftir fyrstu umferð, en 100 lið verða í keppni félags-
liða. Evrópukeppni bikarhafa verður óbreytt, en Ijóst er að
íslensk lið koma til með að leika íforkeppni Evrópumóts bikar-
hafa og Evrópumóts félagsliða í nánustu framtíð.
Nýja fyrirkomulagið gerir það
að verkum að leikjum fjölg-
ar, sjónvarpstekjur aukast og skýr
mörk eru dregin á milli þeirra
bestu og hinna. Lennart Johans-
son, forseti UEFA, sagði að breyt-
ingin væri óumflýjanleg vegna
fjölgunar liða innan UEFA, en
talsmenn ýmissa smáþjóða sögðu
að þeim vegið. „Þetta er skref
afturábak," sagði Nils Arne Egg-
en, þjálfari Rosenborg í Noregi.
Breytir engu
„Þetta breytir engu,“ sagði
Gunnar Sigurðsson, formaður
Knattspyrnufélags ÍA, við Morg-
unblaðið. Hann benti á að það
væri sérstaklega hagur smáþjóða
að UEFA væri vel rekið, því það
léti fé til þeirra í hlutfalli við af-
komu. ísland hefði hingað til notið
góðs af og með breyttu fyrirkomu-
lagi væri jafnvel von á meiri pen-
ingum til uppbyggingar. Eins
væru meiri möguleikar á að kom-
ast í 1. umferð eins og gerðist hjá
ÍA og Val í haust, en það gæfi
tvöfaldar tekjur.
Átta lið örugg
Evrópumeistararnir og þau sjö
lið, sem hafa náð bestum árangri
í EM undangengin fimm ár, leika
í 16 liða úrslitakeppni meistara-
liða, en leikið verður í flórum riðl-
um. Næstu 16 lið leika um átta
sæti. Leikirnir í riðlakeppninni
verða frá september fram í desem-
ber, en tvö efstu lið hvers riðils
fara áfram í átta liða úrslit að
vori og verður þá leikið með út-
sláttarfyrirkomulagi. Liðin, sem
komast alla leið í úrslitaleikinn,
leika 13 leiki, en hingað til hefur
verið um níu leiki að ræða.
Evrópukeppni bikarhafa verður
óbreytt. Þar eiga nú 48 lið þátt-
tökurétt og er ljóst að íslensku
bikarmeistararnir lenda í for-
keppni, en tekið er mið af árangri
undangengin fimm ár.
100 lið verða í Evrópukeppni
félagsliða og taka 72 þeirra þátt
í forkeppni, en þau 28 lið, sem
hafa náð bestum árangri, byija í
1. umferð. Eins og staðan er nú
verða 24 meistaralið með í keppn-
inni og í sumum tilvikum verða
þau einu fulltrúar landa sinna í
keppninni. Með öðrum orðum
fækkar þátttökuliðum sumra
þjóða í Evrópumótunum úr þremur
í tvö.
Peningamir ráða
Talsmenn UEFA sögðu að pen-
ingasjónarmið hefðu ráðið miklu
í sambandi við breytingarnar. 90%
hagnaðar vegna sjónvarpsauglýs-
inga í beinum útsendingum kæmu
frá fimm löndum — Þýskalandi,
Spáni, Frakklandi, Ítalíu og Eng-
landi — en fyrirtæki í þessum lönd-
um væru ekki ánægð, þegar lið
þeirra féllu snemma úr keppni.
Bent var á að ensk lið hefðu aldr-
ei komist í riðlakeppni meistara-
keppninnar í þau þrjú ár, sem hún
hefur verið við líði. Hefði breyting-
in átt sér stað fyrir nýhafna keppni
hefði Manchester United farið
beint í riðlakeppnina og ekki átt
á hættu að detta strax úr keppni,
eins og raunin varð á.
GLIMA
Jón sigraði
Jón Egill Unndórsson, KR, sigraði
á afmælismóti KR í glímu, sem
fór fram á dögunum í tilefni þess
að 1. desember voru 30 ár frá því
að glímudeild KR var endurvakin,
en 70 ár eru síðan fyrst var byijað
að æfa glímu hjá KR. ..
Jón B. Valsson varð annar og
félagi hans í KR, Fjölnir Elvarsson,
þriðji, en hann er mikið glímu-
mannsefni og lagði sér eldri og
reyndari glímumenn á vel útfærðum
glímubrögðum.
Vesturlandsglíma
Vesturlandsglíman verður í
Bændaskólanum á Hvanneyri
sunnudaginn 12. desember n.k. og
hefst kl. 14. Keppt verður í 18 ára
og eldri flokki karla, 15 til 17 ára
flokkum pilta og kvenna, 12 til 14
,ára flokkum drengja og meyja, 11
ára stúlknaflokki og smásveina-
flokki 11 ára og yngri.
Þátttaka tilkynnist til Höskuldar
Goða í Laugagerðisskóla (s. 93-
56600/56601, fax 93-56603).
í kvöld
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild
Njarðvík: UMFN - Haukar..20
Handknattleikur
2. deild karla
Húsavík: Völsungur - Ármann20.30
HANDKNATTLEIKUR
HSÍ semur við Stod hf.
STOÐ hf. og Handknattleikssamband Islands hafa gert samning þess
efnis að Stoð útvegar HSÍ Rehband hitahlífar, stuðningsumbúðir og hlíf-
ar utan um spelkur fyrir öll landslið HSÍ næstu þijú árin.
Flestir handknattleiksunnendur kannast orðið við þessar Tilífar enda
eru þær mikið notaðar af fremstu handknattleiksmönnum hérlendis og
erlendis. Hlífarnar veija leikmenn höggum og halda liðamótum heitum
og hafa þannig fyrirbyggjandi áhrif, en geta sömuleiðis verið mjög mikil-
væg hjálpartæki þeim sem lent hafa í meiðslum.
Stoð hf., stoðtækjasmiðja í Hafnarfírði, er stærsta fyrirtækið á sínu
sviði á íslandi. Verkefni fyrirtækisins er einkum smíði einstakra stoð-
tækja eftir þörfum hvers einstaklings, í samráði við lækna og sjúkra- og
iðjuþjálfa. Nokkrir af kunnustu handknattleiksstjörnum Iandsins hafa ein-
mitt náð skjótum og góðum bata éftir t.d. krossbandsslit með aðstoð hjálp-
artækja frá Stoð hf. Einnig flytur fyrirtækið inn stoðtæki sem síðan eru
löguð að þörfum viðskiptavina.
Eigendur Stoðar hf. eru Sveinn Finnbogason, Örn Ólafsson, Atli S.
Ingvarsson og Guðmundur R. Magnússon. A myndinni undirrita Sveinn
og Ólafur B. Schram, formaður HSÍ, samninginn á dögunum.
KRAFTLYFTINGAR / HM
ÚRSLIT
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Leikir aðfaramótt fimmtudags:
Boston - Washington.........120:113
■Rick Fox skoraði 25 stig fyrir Boston og
Tom Gugliotta 30 stig fyrir Bullets.
Charlotte - San Antonio.......88:92
■David Robinson gerði 18 af 23 stigum
SA Spurs í fjórða leikhluta og var stiga-
hæstur með 31 stig. Dennis Rodman tók
28 fráköst og Dale Ellis skoraði 24 stig.
Dell Curry gerði 25 stig fyrir Charlotte.
New Jersey - Cleveland........97:82
■Kenny Anderson skoraði 29 stig fyrir
New Jersey og átti 18 stoðsendingar, sem
er persónulegt met. P.J. Brown tók 14 frá-
köst, sem er persónulegt met. Brad Daug-
herty var stigahæstur hjá Cleveland nieð
19 stig.
Orlando - Portland...........114:106
■Shaquille O’Neal skoraði 26 stig og tók
11 fráköst fyrir Orlando, en Scott Skile
skoraði 16 stig og átti 20 stoðsendingar,
sem er met i deildinni í ár. Harvey Grant
skoraði 17 stig fyrir Portland.
LA Clippers - Indiana.......100:120
■Reggie Miller skoraði 35 stig fyrir Indi-
ana, sem er persónulegt met á tímabilinu.
Danny Manning var með 22 stig fyrir LA.
LA Lakers - Dallas...........124:91
■Elden Campbell var stigahæstur hjá
Lakers með 18 stig, en Jim Jackson hjá
Mavericks með 16 stig. Þetta var 10.
tapleikur Mavericks í röð.
Sacramento - Minnesota....101:111
Íshokkí
NHL-deildin
Leikir aðfaramótt fimmtudags:
Hartford - Detroit............5:3
Montreal - Ottawa.............3:6
Tampa Bay - Buffalo...........0:3
Toronto - St Louis............4:2
■Dave Andreychuk hjá Toronto var með
10. þrennu sína á ferlinum og samheiji
hans, Doug Gilmour, átti tvær stoðsending-
ar í 800. leik sínum.
Edmonton - Philadelphia...........3:1
Anaheim - Winnipeg................5:2
FELAGSLIF
Rússar gripnir með
3.500 steratöflur
Tveir keppendur í rússneska
landsliðinu, sem tekur þátt í
heimsmeistaramótinu í kraftlyft-
ingum í Svíþjóð, voru gripnir við
komuna til Gautaborgar með
3.500 steratöflur og 270 glerílát
með steralausnum. Fararstjóri
Rússanna baðst opinberlega af-
sökunar á framferði keppendanna,
en Alþjóða kraftlyftingasamband-
ið, IPF, skipaði þegar nefnd manna
til að ákveða hvemig ætti að refsa
landsliðum í kjölfar svona mála.
Sænsku mótshaldararnir höfðu
fmmkvæðið að því að nefndin var
skipuð eftir að hafa farið yfir regl-
ur IPF og hvergi fundið leið til
að refsa Kraftlyftingasambandi
Rússlands. „Við getum ekki refsað
Rússum fyrir eitthvað, sem tveir
einstaklingar gerðu,“ var haft eft-
ir formanni IPF. „Þetta er innan-
húss vandamál hjá Rússum." For-
maður sænska sambandsins var
ekki á sama máli, sagði að breyta
ætti reglunum svo refsa mætti
landsliði, ef nauðsynlegt þætti, til
að koma í veg fyrir frekara óorð
á íþróttina.
Sjö rússneskir kraftlyftingar-
menn hafa verið uppvísir af stera-
notkun að undanförnu.
Ársþing KSÍ
48. ársþing Knattspymusambands Islands
verður á Hótel Loftleiðum um helgina og
hefst kl. 17 í dag, en verður fram haldið
kl. 10 í fyrramálið og sunnudagsmorgun.
Jólafundur KR-kvenna
Hinn árlegi jólafundur KR-kvenna verður
haldinn í KR-heimilinu kl. 20.30 í kvöld og
eru allir velkomnir.
Aðalfundur KFR
Aðalfundur Karatefélags Reykjavíkur verð-
ur haldinn á morgun, laugardag 4. des. í
húsi ÍSÍ í Laugardal. Fundurinn hefst kl.
13.30 og stendur til kl. 16.
íþróttamaður fatlaðra
íþróttasamband fatlaðra tilnefnir íþrótta-
mann ársins úr röðum fatlaðra í hófi, sem
Hótel Saga býður til þriðjudaginn 7. des.
n.k. kl. 15 I Atthagasalnum.
Keiludeild KR
Aðalfundur keiludeildar KR verður haldinn
þriðjudaginn 7. desember og hefst kl. 20.30
í félagsheimi KR við Frostaskjól. Dagskrá:
Venjuleg aðaifundarstörf.
íHémR
FOLX
■ ERIC Cantona, franski leik-
maðurinn hjá Manchester United,
segist hafa áhuga á að leika með
franska landsliðinu fram yfir HM í
Frakklandi 1998. Hann sagðist
ekki ætla að feta í fótspor Jean-
Pierre Papin og Franck Sauzee,
sem báðir ákváðu að hætta að leika
með landsliðinu eftir leikinn sögu-
fræga gegn Búlgaríu í undan-
keppni_ HM í síðasta mánuði.
■ ÞÝSK blöð eru þegar farin að
„finna“ næsta þjálfara Stuttgart,
en Daum sagði af sér á miðviku-
daginn. Leikmenn liðsins eru ekki
ánægðir með að þjáifarinn ákvað
að hætta.
■ MÖRG nöfn hafa veirð nefnd í
þessu sambandi en hæst ber Jupp
Heynckes, sem þjálfar á Spáni,
Finke, þjálfara Freiburg, Uli Stie-
leke, sem hefur verið að þjálfa í
Sviss undanfarin ár, og Arsene
Wenger, þjálfara Mónakó.
M HM í sprettsundi hófst í Palma
á Mallorca í gær. Margir af bestu
sundmönnum heims eru ekki með
á mótinu. Þeir eru þess í stað að
undirbúa sig fyrir heimsmeistara-
mótið sem fer fram í Róm í septem-
ber á næsta ári. Þar á meðal eru
bestu sundmenn Ungwerja sem eru
í æfingabúðum í Perth i Ástralíu.
Á sama tíma og Ungverjar æfa í
Ástralíu ætlar einn besti sundmað-
ur Finna, Jani Sievinen, að keppa
á móti í Ungverjalandi.
■ NORBERT Rozsa frá Ung-
verjalandi, sem varð heimsmeistari
í Perth 1991, hefur sest að í Ástral-
íu og sótt um ríkisborgararétt.
Hann vill keppa fyrir Ástralíu á
ÓL í Atlanta 1996.
■ JANET Evans, ólympíumeist-
ari, er einn þeirra sjö sundmanna
frá Bandaríkjunum sem taka þátt
í HM í Palma. Tveir aðrir ólympíu-
meistarar eru með í Palma; Spán-
verjinn Martin Lopez-Zubero og
Kyoko Iwasaki frá Japan.
■ ALEXANDER Popov og Evg-
eny Sadovyi, sem eru bestu sund-
menn Rússa og unnu samtals fern
gullverðlaun á OL í Barcelona, eru
að undirbúa sig fyrir rússneska
meistaramótið og HM í Róm.
■ KIEREN Perkins, skriðsunds-
kóngurinn frá Ástralíu og þýska
stúlkan, Franziska van Almsick,
sem er margafaldur Evrópumeist-
ari, verða heldur ekki með. Van
Almsick hætti við á síðustu stundu
vegna veikinda, en Perkins er að
undirbúa sig fyrir HM á næsta ári
eins og Popov og Ungveijinn
Thamas Darnyi.
■ LANNY Wadkins verður fyrir-
liði Ryder-sveitar Bandaríkjanna
árið 1995, en þá fer þessi mikla
keppni næst fram. Wadkins, sem
verður 44 ára á morgun, hefur ver-
ið mjög sigursæll í Ryder undanfar-
in ár, hefur sigraði 20 sinnum, tap-
að 11 sinnum og gert 3 jafntefli.
■ BERNARD Gallacher mun
leiða lið Evrópu í þriðja sinn, en
Bandaríkjamenn hafa hvern fyrir-
liða aðeins einu sinni og hafa gert
síðustu 44 árin.
■ TVÆR svissneskar borgir
hafa sótt um að halda Vetrar-
ólympíuleikana árið 2002. Þetta
eru Interlaken og Sion. Alþjóða
ólympíunefndin mun ákveða hvaða
borg verður fyrir valinu árið 1995.
Vetrarólympíuleikarnir voru síðast
haldnir í Sviss, í St Moritz 1948.
FRJALSAR
Sparisjóðshlaup UMSB
Ungmennasamband Borgarfjarðar efnir
til árlegs 30 km víðavangsboðhlaups, Spari-
sjóðshlaups UMSB, á morgun, laugardaginn
4. desember. Hingað til hefur hlaupið að-
eins verið fyrir UMSB-félaga, en er nú
opið öllum.
Hver sveit er skipuð 10 einstaklingum,
þar af a.m.k. fjórum konum. Hlaupið hefst
hjá félagsheimilinu Valfelli í Borgarhreppi
kl. 13. Hlaupið verður upp Borgarhrepp,
yfir Hvítárbrú framhjá Hvanneyri og í Borg-
ames. Skráningar berist til frisar Grönfeldt
(s. 93-71276, fax 93-72015).