Morgunblaðið - 24.12.1993, Page 10
10
MORGUNBLáÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DRSKMBER 1993
ÁRNAÐ HEILLA
|ára afmæli. Mánu-
daginn 27. desember,
verður áttræð Bergþóra
Baldvinsdóttir, Grandavegi
47, Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Ásgeir Siguijóns-
son, bifreiðasljóri og taka
þau hjónin á móti gestum á
afmælisdaginn í samkomu-
salnum, Grandavegi 47, 10.
hæð frá kl. 18.
ára afmæli. Þann 27.
desember nk. verður
áttræður Haukur Vigfús-
son, fyrrverandi bóndi og
sjómaður. Eiginkona hans er
Steinunn Jóhannsdóttir,
fyrrverandi kennari. Þau
hjón búa nú á Hrafnistu í
Reykjavík.
afmæli. Þriðju-
daginn 28. desember
nk. verður sjötug Jóhanna
Jónsdóttir, fyrrum hús-
freyja í Hnausakoti, Unu-
felli 48, Reykjavík. Hún tek-
ur á móti gestum á heimili
sínu eftir kl. 18, á afmælis-
daginn.
GULLBRÚÐKAUP.Í dag, 24. desember, aðfangadag, eiga
gullbrúðkaupsafmæli hjónin Borghildur Gísladóttir og Jón
Valdimar Kristjánsson, Ásbrún, Stöðvarfirði.
O pTára afmæli. í dag, 24.
O t) desember, er áttatíu
og fimm ára Helga K. Oles-
en, vistmaður á Elliheimil-
inu Grund, áður til heimilis
í Nökkvavogi 10, Reylqa-
vík. Eiginmaður hennar var
Alfred Olesen, en hann er
nú látinn.
OAára afmæli. Á morg-
ÖU un, jóladag, 25. des-
ember, verður áttræður, Ein-
ar J. Thorlacíus, Bjarma-
stíg 11, Akureyri. Eiginkona
hans er Hrund Kristjáns-
dóttir. Þau hjónin taka á
móti gestum á heimili sonar
síns, Ártröð 1, Eyjafjarðar-
sveit, mánudaginn 27. des.
eftir kl. 15.
Qf|ára afmæli. Á annan
O Vf dag jóla, 26. desem-
ber, verður áttræð frú Guð-
munda G. Guðmundsdóttir,
Vesturvegi 13, Seyðisfirði.
Hún verður stödd á afmælis-
daginn á heimili dóttur sinnar
Jennýjar, Engihjalla 3, Kópa-
vogi.
pTára afmæli. í dag, 24.
I desember, er sjötíu
og fímm ára Oddný Gests-
dóttir, Álfalandi 10,
Reykjavík.
7 í"lara Á morg-
I U un jóladag, 25. des-
ember, verður sjötug Anna
Karólína Gústafsdóttir,
Mávabraut 2, Keflavík. Hún
tekur á móti gestum á afmæl-
isdaginn, á heimili sonar síns
í Lágmóa 19, Njarðvík, frá
kl. 16.
í>Oara Á annan
v)\/ dag jóla, 26. desem-
ber, verður sextugur Jón D.
Þorsteinsson, Goðalandi 15,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Dóra Hafsteinsdóttir.
Þau taka á móti gestum á
heimili sínu eftir kl. 17, á
afmælisdaginn.
í GÆR urðu þau mistök að
myndavíxl urðu í dagbókinni
með afmælistilkynningum
Flosa Gunnars Valdimars-
sonar og Gústavs Arnar.
Verða myndirnar því birtar
aftur um leið og beðist er
velvirðingar.
Gestur Steinþórsson, skattsljóri í Reykjavík
Rangt að framlög til
stj óramálaflokka hafi
verið frádráttarbær
GESTUR Steinþórsson, skattstjóri í Reykjavík, segir að fullyrðing
Vilhjálms Egilssonar, alþingismanns og framkvæmdastjóra Versl-
unarráðs íslands um að skattalög hafi verið framkvæmd þannig
áratugum saman að heimilt hafi verið að draga framlög til stjórn-
málaflokka frá tekjuskattsstofni sé röng. Framlög til stjórnmála-
flokka hafi aldrei verið heimilt að færa til rekstrargjalda og þessi
útgjöld hafi ævinlega verið strikuð út þegar slík tilvik hafi komið
upp. Hins vegar sé algengast að þessi framlög séu færð undir
aðra liði og komi því ekki fram nema við skoðun á bókhaldi.
Gestur sagði að þeirri fullyrð-
ingu til stuðnings að áratugum
saman hafi sú framkvæmt gilt að
strika yfír slík framlög geti hann
vísað til tveggja úrskurða ríkis-
skattanefndar meðal annars. Ann-
ar sé frá árinu 1976 og varði 150
þúsund króna framlag fyrirtækis
til stjómmálaflokks. I úrskurðin-
um segi orðrétt: „Augljóst er að
hér hafa verið færð undir nafninu
auglýsingar útgjöld óviðkomandi
rekstri kæranda, sem hvergi er
að fínna heimild í lögum til að
draga frá tekjum áður en skattur
er á þær lagður.“ Hinn úrskurður-
inn væri nr. 470 frá 1988. Þar
væri fallist á kröfu kærenda að
öðru leyti en sem næmi gjöf til
tiltekins stjórnmálafélags út á
landi sem eigi yrði talið frádráttar-
bært.
Aðspurður sagði Gestur að það
hefði aldrei verið heimilt að færa
framlög til stjómmálaflokka til
rekstrargjalda fyrirtækja og aldrei
hefði verið fallist á slíkt. Hins veg-
ar væri auðvelt að færa þessi út-
gjöld undir aðra liði og þá sæjust
framlögin ekki nema farið væri
yfír bókhaldið.
Gestur sagði að annað atriði
væri einnig rangt í viðtalinu við
Vilhjálm sem birtist í Morgunblað-
inu í gær. Þar væri því haldið fram
að fjármálaráðuneytið hefði viður-
kennt að ekki hefði verið gætt
jafnræðis við val þeirra fyrirtækja
sem Ientu í eftirlitsúrtakinu í sum-
ar. Þetta væri rangt og það ætti
Vilhjálmur að vita því í bréfi fjár-
málaráðherra til Verslunarráðsins
frá 30. júlí í sumar segði orðrétt.
„Hins vegar er það rangt að eftir-
litið hafí takmarkast eingöngu við
fyrirtæki með hagnað. Af 1.558
fyrirtækjum sem valin voru í úr-
takið í upphafi voru um 630 eða
40% annað hvort fyrirtæki með
tapi eða einstaklingsrekstur með
neikvæðan rekstrarafgang." Þetta
komi fram í svari fjármálaráðherra
við tveimur bréfum Verslunarráðs-
ins til fjármálaráðherra sem séu
undirrituð af Vilhjálmi Egilssyni.
feoriM mffl
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
Vei, vei, yfir hinni föllnu borg!
Hvar eru þín stræti,
þínir tumar,
og ljóshafíð, yndi næturinnar?
Eins og kórall í djúpum sjó
varst þú undir bláum himninum,
eins og sylgja úr drifnu silfri
hvíldir þú á bijóstum jarðarinnar.
Vei, vei!
í dimmum brunnum vaka eitursnákar,
og nóttin aumkvast yfir þínum rústum.
Jóreykur lífsins þyrlast til himna,
menn í aktýgjum,
vitstola konur í gylltum kerrum.
- Gefið mér salt að eta
svo tungan skorpni í mínum munni
og minn harmur þagni.
Á hvítum hestum hleyptum við upp á
bláan himinbogann
og lékum að gylltum knöttum;
við héngum í faxi myrkursins,
þegar það steyptist í gegnum undirdjúpin;
'"eins og tunglsgeislar sváfum við á bylgjum
hafsins.
Hvar eru þau fjöll, sem hrynja yfir mína sorg,
hálsar, sem skýla minni nekt með dufti?
í svartnætti eilífðarinnar flýgur rauður dreki
og spýr eitri.
Sól eftir sól hrynja í dropatali
og fæða nýtt líf og nýja sorg.
(Jóhann Siguijónsson: Sorg.)
„Hann tók við fjárvarðveizlu,
ok varð honum lítit fyrir því; hann
var hljóðmikill ok dimmraddaðr,
ok féit stokk allt saman, þegar
hann hóaði. Kirkja var á Þór-
hallsst^ðum; ekki vildi Glámr til
hennar koma; hann var ósyngvinn
ok trúlauss, stirfinn ok viðskota-
illr; ollum var hann hvimleiðr.
Nú leið svá þar til er kemr at-
fangadagr jóla; þá stóð Glámr
snimma upp ok kallaði til matar.
síns. Húsfreyja svarar: „Ekki er
þat háttr kristinna manna, at
matask þenna dag, því at á morg-
in er jóladagr inn fyrsti," segir
hon, „ok er því fyrst skylt at fasta
í dag.“ Hann svarar: „Marga
hindrvitni hafi þér, þá er ek sé
til einskis koma; veit ek eigi, at
monnum fari nú betr at heldr en
þá, er menn fóru ekki með slíkt;
þótti mér þá betri siðr, er menn
váru heiðnir kallaðir, ok vil ek
hafa mat minn, en engar refjur.“
(Grettis saga, 32. kafli.)
★
Sjá, ennþá rís stjaman, sem brennur
björtust og mildust
á bládjúpum miðsvetrarhimni hins
snæþakta lands.
Sjá, ennþá nálgast sú hátíð, sem hjartanu
er skyldust
og huggar með fagnaðarsöngvum hvert
angur manns.
Og innan skamms byijar kappát í koti
og höllu,
og klukknahringing og messur og
bænargjörð.
Það er kannski heimskast og andstyggi-
legast af öllu,
sem upp var fundið á þessari voluðu jörð.
Og ger þú nú snjallræði nokkurt, svo
fólkið finni
í fordæmi þínu hygginn og slóttugan
mann:
Með kurteisum svip skaltu kveikja í
. stofunni þinni,
og kauptu svo sóknarprestinn og éttu
hann.
(Steinn Steinarr.)
★
j
Af því myrkrið undan snýr,
ofarfæristisól, |
því eru heilög haldin
hverri skepnu jól.
724. þáttur
Góðri glaðir á stund
gjalla látum róm,
strangan yfír stytztum degi
staupadóm,.
stóradóm.
Nú er jólna sopið sumbl,
sálminn lýk ég við.
Ef drykkurinn er daufur,
drósir, forlátið.
Slítum mjaðar ei mót.
meðan blundar sól;
enginn veit, hvort aftur hittumst
önnur jól.
(Grímur Thomsen.)
★
Jólum mínum uni ég enn,
- og þótt stolið hafí
hæstum guði heimskir menn,
hef ég til þess rökin tvenn,
að á sælum sanni er enginn vafí.
(Jónas Hallgrimsson.)
Ég heyri stundimar. Uni því. Allt um það
er ósk mín sú að ég fyndist.
Gleðiríkt
væri að stíga enn á ný upp, fram í ljósið
af einhverri hendi lyft sem þarf mín við.
% mundi steypa moldinni af mér sem hroða
og mæla, nei kalla hátt, hátt að fyrri sið:
Vox mea est bamba.
Possum depellere Satan!
(Hannes Pétursson:
Ur Klukkukvæði.)
saklausu lömbin í biblíunni
eru lærisneiðar á jólunum
(Einar Már Guðmundsson.)
Umsjónarmaður óskar ykkur
öllum gleðilegra jóla. Næsti þáttur
kemur á gamlársdag.