Morgunblaðið - 24.12.1993, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993
23
Sambandsstjórn FFSÍ
Málshöfð-
un fyrir Fé-
lagsdómi
tefur kjara-
samninga
FUNDUR sambandsstjórnar
FFSÍ lýsti í samjjykkt furðu
sinni á því að VSI skuli hafa
vísað verkfallsboðun samtaka
sjómanna til Félagsdóms. Fund-
urinn telur að með því sé verið
að tefja lausn deilunnar og
herða þann hnút, sem hún er
komin í.
Samþykkt fundarins er frá því
á þriðjudag og er svohljóðandi:
„Fundur sambandsstjórnar FFSÍ,
haldinn 21. desember 1993, lýsir
furðu sinni á því ábyrgðarleysi og
ótrúlegri skammsýni, sem felst í
þeim gjörningi Vinnuveitendasam-
bands Islands, að bregða fæti fyr-
ir viðræður um lausn kjaradeilu
fiskimanna með málshöfðun fyrir
Félagsdómi. Málshöfðun VSÍ mun
ekki leysa þá kjaradeilu, sem aðil-
ar standa að. Þvert á móti mun
málshöfðunin teíja eðlilega lausn
deilunnar og herða þann hnút, sem
deilan er komin í.“
Á fundi sambandsstjórnarinnar
var einnig samþykkt ályktun þar
sem mótmælt er ákvörðun brezkra
stjórnvalda að veita THORP-stöð-
inni í Sellafield leyfi til að endur-
vinna geislavirkan kjarnorkuúr-
gang.
Jafnframt lýsti fundurinn yfir
fullum stuðningi við íslenzkan
skipasmíðaiðnað og skorar á
stjórnvöld að beita sér fyrir því
að gerðar verði víðtækar ráðstaf-
anir til að skipasmíðaiðnaðurinn
geti eflzt á ný og nýsmíði og við-
gerðir skipa verði færðar á innan-
landsmarkað með þeim ráðum,
sem tiltæk séu.
■ JÓLAHRAÐSKÁKMÓT Tafl-
félags Kópavogs verður haldið
sunnudaginn 26. desember, annan
í jólum, kl. 14. Tefldar verða 9
umferðir, tvær skákir í hverri um-
ferð. Telft verður í húsnæði T.K.
að Hamraborg 5, 3. hæð og verða
verðlaun í boði.
■ JÓLAMÓT Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar og Bridsfélags Hafnar-
fjarðar verður haldið í Víðistaða-
skóla þriðjudaginn 28. desember
kl. 17. Að venju verður spilaður
Mitchell með tveimur spilum á milli
pars, alls 42 spil og verða veitt
vegleg verðlaun fyrir fimm efstu
sætin í báðar áttir. Keppnisgjald
er 1500 krónur á spilara og unnt
er að skrá þátttöku hjá BSÍ. Einnig
fer skráning fram á staðnum í upp-
hafi móts og er vissara fyrir þá sem
ekki hafa skráð sig tímanlega að
mæta tímanlega.
■ VINNINGSNÚMER í alman-
akshappdrætti Landssamtak-
anna Þroskahjálpar árið 1993
eru: Janúar 7104 og 17619, febr-
úar 10991 og 17257, mars 5742,
apríl 5287 og 2168, maí 11720 og
5303, júní 9906, júlí 14595, ágúst
10993 og 4282, september 3671
og 8306, október 4778, nóvember
11097 og 7451, desember 10093
og 2219.
(Birt án ábyrgðar)
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
fttttgtsiiMiifrtfe
id óókum viðók ipta vinuni okkar
gleðilegra jóla og faróœLi komandi di\i.
Sér.itakur dœLkeramatneðill d nýárdkvöld.
Skólflbrú
— þar iieni bjartaððlœr
Opid Irá kl. 18.00 • Bordapantanir í síma 62 HH 55
Lokað dagana 24.-27. og 31. desember
■
^ * “5 'j'f'jji*
- 5;'"? :
MISSIÐ EKKI AF
SK ATTAFSLÆTTIN U M!!
Hjón sem auka
hlutabréfaeign sína um
200 þúsund á árinu geta
lækkað tekjuskattinn
um rúmar 82 þúsund kr.
JOÐIRNIR
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9:00-16:00
OPIÐ Á AÐFANGADAG KL. 9:00-12:00
OPIÐ Á GAMLÁRSDAG KL. 9:00-12:00
Nú eru síðustu forvöð að tryggja sér skattafslátt fyrir árið 1993. Hlutabréfa-
sjóðurinn Auðlind er góður kostur fyrir þá sem vilja tryggja sér skattafslátt
Hann fjárfestir í ýmsum hlutabréfum og skuldabréfum og er því um góða
áhættudreifmgu að ræða. Auðlindarbréf eru skráð á Verðbréfaþingi íslands og
eru auðveld í endursölu. Þau fást í sþarisjóðum, Búnaðarbanka íslands, Kaupþingi
Norðurlands hf., Akureyri og Kauþþingi hf., Kringlunni 5.
KAUPÞING HF
Löggi/t verdbréfafyrirtieki
Krirtgluntti 5, sftni 689080
í eigu Búnaöarbanka íslands
og sparisjóðanna