Morgunblaðið - 24.12.1993, Side 31
Cavalleria
Rusticana
eftir
Pietro Mascagni
með Kristjáni Jóhannssyni
og Shirley Verrett
í aðalhlutverkum
á Aðalstöðinni 90.9
jóladag kl. 13.00.
Gleðileg jól
VISA
VISA ISLAIMD
LANDSBRÉF H.F.
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM RÉR LEIÐ
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
FM90.9TFM9Q.9
AÐALSTÖÐIN
ABVmEmt • lOIREYIUWlK • SlMlffitSÍOogmm
Skíðasvæðið á Seljalands-
dal við ísafjörð opnað
Vonast til að opnað verði í Bláfjöllum milli jóla og nýárs
SKÍÐASVÆÐIÐ á Seljalandsdal við ísafjörð var opnað um síðustu
helgi og er það eina skíðasvæðið sem hefur opnað. Vonast er til að
hægt verið að opna skíðasvæðið I Bláfjöllum milli jóla og nýárs en
töhivert vantar uppá að skíðasvæðin í Hlíðarfjalli og Oddsskarði
geti opnað.
„Hér er allt á fullu, við opnuðum
19. desember og höfum verið í
fullum gangi síðan,“ sagði Haf-
steinn Ingólfsson umsjónarmaður
skíðasvæðisins í Seljalandsdal.
Hann sagði að ekki hefði verið
mjög margt um manninn. Ekki
væri mikill snjór á svæðinu ennþá
og aðeins ein lyfta í gangi. Haf-
steinn sagði að stefnt væri að því
að hafa tvær lyftur í gangi annan
í jólum.
Vantar lítið uppá
„Það vantar sára lítið á að við
getum opnað en það er of lítill
snjór efst í brekkunum,“ sagði
Þorsteinn Hjaltason umsjónarmað-
ur skíðasvæðisins í Bláfjöllum. Þar
hefur þó verið opið fyrir æfínga-
krakka í vikunni en Þorsteinn sagði
að þó komin væri nothæf braut
niður með stólalyftunni væri ekki
hægt að opna fyrir almenning.
Hann sagðist vona að hægt yrði
að opna milli jóla og nýárs. Blá-
fjallasvæðið var opnað snemma í
nóvember í fyrra en oftast hefur
það ekki verið opnað fyrr en í byrj-
un janúar.
„Þetta lítur ekki allt of vel út
eins og er en við erum þó ekki
búnir að afskrifa að opna á milli
jóla og nýárs,“ sagði ívar Sig-
mundsson umsjónarmaður skíða-
svæðisins í Hlíðarfjalli, en á Akur-
eyrarsíðu Morgunblaðsins á mið-
vikudag var sagt, að stefnt væri
að því að opna svæðið 27. desem-
ber. í fyrra var skíðasvæðið í Hlíð-
arfjalli opnað um miðjan nóvember
en í venjulegu árferði hefur verið
opnað þar um áramót.
Lítill snjór í Oddsskarði
„Það er ósköp lítill snjór hjá
okkur og mjög hæpið að við getum
opnað fyrr en eftir áramót," sagði
Ómar Skarphéðinsson umjónar-
maður skíðasvæðisins í Odds-
skarði. Hann sagði að í nóvember
hefði ekki vantað mikið uppá að
nógur snjór væri kominn en síðan
hefðu verið hvassar norðanáttir og
mikið fokið af fjallinu. Ómar sagði
að það þyrfti eina góða hríð til að
hægt væri að opna svæðið en það
hefur venjulega verið opnað uppúr
áramótum. Metið var sett í fyrra
þegar skíðasvæðið var opið 101
dag en þá var það opnað 21. nóv-
ember. -
Opnunartimi yfir hátíöirnar:
Aðfangadagur....kl. 8-15
Jóladagur...........- lokað
Annar í jólum...Jkl. 9-19
Gamlársdagur.. ailHMIIM kl. 9- 15
Nýársdagur......... - lokað
ÖíJriwm f)lfímah.úA..
□
SKÓLAVÖRÐUSTÍG12, BERGSTAÐASTRÆTISMEGIN, SÍMl 19090
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Helgileikur í Landakirkju
BÖRN úr Hamarsskóla flytja helgileik í Landakirkju.
Böm undirbúa jól í Landakirkju
Vestmannaeyjum.
BÖRN í sunnudagaskólanum í
Landakirkju voru með sérstaka
jólastund á síðasfa sunnudegi í
aðventu. Sungin voru jólalög,
leikin tónlist og helgileikur flutt-
ur.
Sóknarprestarnir, Bjarni Karls-
son og Jóna Hrönn Bolladóttir,
ásamt aðstoðarfólki stjórnuðu
helgistundinni. Eftir bænir og sam-
söng kirkjugesta kom fram kór
barna af Gulu deildinni á leikskólan-
um Kirkjugerði og söng tvö jólalög.
Þijár stúlkur úr Tónlistarskólanum
í Eyjum léku síðan jólalög á þver-
flautur nokkur og að því loknu
fluttu börn úr Hamarsskóla helgi-
leik.
Landakirkja var þétt setin af
börnum og foreldrum þeirra og var
greinilegt að flestir voru komnir í
jólaskap og tilhlökkunarglampi var
komin í augu barnanna.
Grímur