Morgunblaðið - 24.12.1993, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993
35
Utanrfldsráðheirami kall-
ar dóttur Kastrós svikara
Havana. Reuter, The Daily Telegraph.
ROBERTO Robaina, utanríkisráð-
herra Kúbu, sagðist í gær ekki vilja
Ijá sig um flótta Alinu Fernandez
Revuelta, dóttur Fidels Kastrós
Kúbuforseta, til Bandaríkjanna. „Ég
er nýbúinn að frétta af þessu, rétt
eins og þið. Ég legg það ekki í vana
minn að tjá mig um ákvarðanir svik-
ara,“ sagði hann.
Robaina sagðist ekki vita neitt um
hvernig Alina komst frá landinu til Banda-
ríkjanna og að hann sæi ekkert sérstætt
við flótta hennar. „Ég held að margir
hafi flúið land að undanförnu vegna þess
að ástandið í landinu er erfitt. A slíkum
tímum reynir á menn,“ sagði utanríkisráð-
herrann. Fyrr í þessum mánuði líkti Kastró
flóttamönnum við rottur sem yfirgæfu
skip í stormi.
Aðspurður um hver yrðu viðbrögð Kast-
rós við flótta dótturinnar sagði Robaina
að kúbanskir embættismenn væru orðnir
vanir að takast á við erfíðar aðstæður.
Það er þó talið gera málið auðveldara fyr-
ir stjórnvöld að Revuelta hefur um nokk-
urt skeið verið yfírlýstur stjómarandstæð-
ingur og gagnrýnt föður sinn opinberlega.
Ákvörðun hennar nú kemur því ekki mjög
á óvart. Ekki var minnst á málið í fréttum
kúbanska ríkissjónvarpsins.
Alina hélt blaðamannafund í Columbus
Reqter.
Dóttir Kastrós
ALINA starfaði lengi vel sem tískufyrirsæta og sést
hún hér í því hlutverki.
í Georgíu og kvaðst hafa notað spænskt
vegabréf við flóttann. Hún kvaðst enn-
fremur hafa notað hárkollu og andlitsfarða
til að þekkjast ekki, auk þess sem hún
hefði þyngt sig fyrir ferðina svo hún verð-
ir á flugvellinum í Havana bæru ekki
kennsl á hana. Spænskir stjórnarerindrek-
ar í Havana sögðust ekki vita til þess að
Alina hefði fengið spænskt vegabréf eða
áritun.
Alina, sem er 37 ára gömul, er dóttir
Kastrós og leikkonunnar Nataliu „Nati“
Revuelta en þau áttu í ástarsambandi um
miðjan sjötta áratuginn án þess að giftast.
Móðir hennar sagði í gær að fregnirnar
af flótta dótturinnar hefðu komið henni
mjög á óvart. Hún hefði rætt við hana
nokkrum dögum áður og hefði hún þá
ekkert minnst á þessi áform. „Þetta er
hennar ákvörðun. Hún er fullorðin og
ræður sínu lífi. Ég verð bara að sætta
mig við þetta.“
Alina skildi eftir á Kúbu dóttur á tán-
ingsaldri en eiginmaður hennar, sem er
mexíkóskur að uppruna, hafði þegar farið
frá Kúbu. Alina flaug fyrst til Madrid á
Spáni en þaðan til borgarinnar Atlanta í
Bandaríkjunum. Þar bað hún um hæli sem
flóttamaður og var veitt það á þriðjudag.
Er talið líklegt að Alina muni flytja til
Miami líkt og svo margir aðrir kúbanskir
flóttamenn.
Innflytjendayf-
irvöld í Ástralíu
Holdugir
íþyngja
heilbrigð-
iskerfinu
Sydney. Reuter.
BRESKRI konu hefur verið
meinað um leyfi til að setjast
að í Ástralíu nema hún léttist
um 27 kíló. Yfirvöld segja
ástæðuna þá að vegna offitu
sé mikil hætta á því að konan
verði veik og íþyngi því heil-
brigðiskerfi landsins.
Konan, Alison Johns, er ein-
stæð móðir, hún ólst upp í Ástr-
alíu og starfaði sem hjúkrunar-
fræðingur áður en hún giftist
og fluttist til Bretlands. Hún
segist aðeins vera lítið eitt of
þung enda hafi hún verið á
ströngum kúr undanfarna 10
mánuði. „Þetta er misrétti. Það
eru ekki ailir grannvaxnir og
ekki eru allir grannvaxnir jafn-
framt við góða heilsu. Þótt ég
sé of þung er ég mjög heilsu-
hraust".
Fýrir skömmu var breskum
karlmanni, sem kvæntur er ástr-
alskri konu, sagt að létta sig um
32 kíló ef hann vildi fá að flytja
til Ástralíu. Yfírvöld veittu hon-
um undanþágu eftir að málið
komst í fjölmiðla.
Væntanlegt forseta-
kjör í Finnlandi
Aukiii spenna
í kosninga-
baráttunni
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara
Morgunblaðsins.
FINNAR kjósa eftir mánuð
eftirmann Maunos Koivistos
Finnlandsforseta. Kosningarn-
ar eru þær fyrstu síðan í byij-
un sjöunda áratugarins þar
sem veruleg óvissa ríkir um
úrslitin. Er þetta einnig í fyrsta
skipti í 75 ára lýðveldissögu
Finna sem þjóðin kýs forseta
beinni kosningu. Hingað til
hafa sérstakir flokksbundnir
kjörmenn ráðið endanlegum
úrslitum.
Þrír frambjóðendur virðast hafa
nánast jafnmikið fylgi, Martti
Ahtisaari (Jafn.), Paavo Vayrynen
(Miðfl.) og Raimo Ilaskivi
(Hægrifl.). Finnlandsforseti er mjög
valdamikill en mikilvægasta starfs-
svið hans er utanríkismál. Þannig
verða forsetakosningarnar einnig
forboði þjóðaratkvæðagreiðslunnar
um aðild að Evrópubandalaginu,
EB, sem verður að líkindum haldin
næsta haust.
Ekki þykir ólíklegt að Váyrynen,
sem er_ fyrrverandi utanríkisráð-
herra, geti reiknað með vaxandi
stuðningi vegna kosningasigurs
þjóðernissinna í Rússlandi. Hann
er eini frambjóðandinn sem hefur
raunverulega reynslu af utanrikis-
málum.
Hingað til hefur hins vegar
Ahtisaari, sem er ráðuneytisstjóri
utanríkisráðuneytisins, verið efstur
í öllum skoðanakönnunum. Fylgi
Ahtisaaris hefur þó farið stöðugt
minnkandi síðan í sumar. Þá var
talið líklegt að hann næði kjöri í
fyrstu umferð, þ.e. fengi yfír helm-
ing greiddra atkvæða. Stafaði þetta
aðallega af því að Ahtisaari virtist
óspilltari og heiðarlegri en þeir
frambjóðendur sem voru fyrrver-
andi eða jkfnvel starfandi stjóm-
málamenn.
Samtals eru níu karlar og tvær
konur í framboði. Helsta hitamálið í
kosningabaráttunni hefur verið af-
staða manna til aðildar Finna að EB.
Brottför:
26.janúar 3 vikur
- aðeins 8 sæti
I6.febrúar 3 vikur
uppselt
Viðbótarferð
um páskana
23. mars 3 vikur
Verð aðeins frá
kr. 96.600,-
Rio de Janeiro
Þessi frægasta baðströnd heimsins hefur líklega
meira aðdráttarafl en nokkur annar staður í
Suður Ameríku. Hér er búið í hjarta Copacabana
strandarinnar við frábæran aðbúnað og spennandi
ferðir í boði: Sykurtoppurinn með útsýni yfir alla
Ríó, Corcovado, einkenni Ríó með Kristsstyttunni
frægu og stórkostleg danssýning og kvöldverður þar
sem hin fræga samba er dönsuð á ógleymanlegan hátt.
Valmöguleikar
Viðbótargjald fyrir Rio de Janeiro, kr. 9.800,-
5 kynnisferðir í Brasilíu með íslenskri fararstjórn
aðeins kr. I 3.900,-
Innifalið í verði
Flug.ferðir til og frá flugvöllum erlendis.gisting á 4 stjörnu
hótelum í Brasilíu, smáhýsum á Kanarí, morgunmatur í Brasilíu
íslensk fararstjórn allan tímann.
Flugvallarskattar kr. 4.830,-
°g
Salvador de Bahia
Fyrrum höfuðborg Brasilíu þar sem
brasilísk áhrif eru hvað sterkust og afrískir
siðir tíðkast ennþá.
Hér er maturinn kryddaðri, dansinn
heitari og tónlistin dýpri en annars staðar
í Brasilíu og stórkostlegt veður allan ársins
hring. Eftirsóttasti ferðamannastaður Brasilíu
í dag, enda blanda af heillandi menningu
og einstökum ströndum.
Ferðatilhögun
Beint flug til Kanaríeyja og áfram til Brasilíu. 15 dagar
í Brasilíu, í Salvador de Bahia.
Valkostur 2 er að vera viku í Salvador
og 8 daga í Rio de Janeiro.
Aukagjald fyrir Rio er aðeins kr. 9.800,-
Eftir Brasilíudvölina er gist í 6 daga á Kanaríeyjum.
Clpplifðu ccvintýri í
afr europa
HEIMSFERÐIR hf.
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600
|
i TURAVIA