Morgunblaðið - 24.12.1993, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBÉR 1993
ATVINNUA UGL YSINGAR
„Au-pair“/ráðskona
í Connecticut, USA
Stúlka 21, árs eða eldri, óskast til þess að
sjá um tvö 12 og 13 ára gömul börn og vinna
almenn heimilisstörf. Verður að vera góður
bílstjóri, reglusöm og má ekki reykja.
Töluvert af íslendingum í nágenninu. Banda-
ríkst vegabréf eða „grænt kort“ æskilegt.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merkt: „Connecticut", fyrir 31. desember
1993.
Sölumaður
Eitt af stærri og þekktari fyrirtækjum lands-
ins hef-ur þörf fyrir að bæta við hæfileikarík-
um og kraftmiklum starfsmanni í söludeild
fyrirtækisins.
Fyrirtækið er leiðandi á sínu sviði, deilda-
skipt innflutnings-, dreifingar- og framleiðslu-
fyrirtæki.
Við ieitum að harðduglegum starfsmanni,
sem hefur til að bera mikla sölumannshæfi-
leika, frumkvæði, áræðni og skipulagskunn-
áttu, ásamt því að vera hugmyndaríkur
sölumaður.
Um mikið álagsstarf er að ræða og koma
því eingöngu til greina aðilar, sem hafa nú
þegar náð miklum árangri í starfi, hafa mik-
inn metnað ásamt brennandi áhuga á að
skila árangri.
Góð starfsreynsla ásamt því að geta vísað
á úrvals meðmælr er skilyrði, ásamt því að
geta unnið á markaðasvæði sem er í Reykja-
vík og á landsbyggðinni.
Umsóknir: Allar umsóknir verður farið með
sem trúnaðarmál. Þær óskast lagðar inn á
auglýsingadeild Mbl. fyrir 31. desember
ásamt nauðsynlegum upplýsingum, merktar:
„Áræðni 1994“.
Hveragerðisbær
- leikskólastjóri
Hveragerðisbær óskar eftir að ráða leikskóla-
stjóra við nýjan leikskóla í Fljótsmörk fyrir
u.þ.b. 20 börn miðað við heilsdagsvistun.
Gert er ráð fyrir að leikskólinn taki til starfa
1. febrúar nk. en leikskólastjóri þarf að geta
hafið störf sem fyrst.
Skriflegar umsóknir sendist undirrituðum í
Hverahlíð 24, 810 Hveragerði, fyrir 5. janúar
nk. ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf.
Fóstrumenntun er áskilin.
Frekari upplýsingar veitir félagsmálastjóri
í síma 98-34150.
Bæjarstjórinn í Hveragerði.
Sjúkrahús Akraness
Yfirlæknir
handlækningadeildar
Staða yfirlæknis í handlækningum við Sjúkra-
húsið á Akranesi er laus til umsóknar.
Sjúkrahús Akraness er deildaskipt svæðis-
sjúkrahús með vaxandi þjónustu í helstu
greinum handlækninga, kvensjúkdóma og
fæðingarhjálpar auk lyflækninga.
Á handlækningadeild eru 16 rúm auk dag-
deildar. Við deildina starfa sérfræðingar í
bæklunarskurðlækningum og þvagfæra-
skurðlækningum.
Umsóknir, með ítarlegri náms- og starfsfer-
ilsskrá, sendist framkvæmdastjóra, Merki-
gerði 9, 300 Akranesi, fyrir 15. febrúar nk.
Búseta á staðnum er skilyrði ráðningar.
Nánari upplýsingar veitir Ari Jóhannesson,
yfirlæknir, í síma 93-12311.
Heilsugæslustöðin Sólvangi
Hafnarfirði
Staða
afleysingalæknis
við Heilsugæslustöðina Sólvangi, Hafnar-
firði, er laus til umsóknar til tveggja ára frá
og með 1. mars 1994. Staðan er fyrst og
fremst hugsuð fyrir lækna í framhalds- eða
doktorsnámi í heimilislækningum.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 1994.
Umsóknargögn sendist til Jóhanns Ág. Sig-
urðssonar, prófessors, Heilsugæslustöðinni
Sólvangi, 220 Hafnarfirði, sem veitir nánari
upplýsingar ef óskað er.
Fasteignasala óskar eftir:
Harðduglegum ritara og einnig áhugasömum
aðstoðarmanni í sölumennsku.
Umsóknir sendist til auglýsingadeild Mbl.
sem fyrst, merktar: „H - 14761“.
ST. JÓSEFSSPlTALI
LANDAKOTI
Aðstoðarlæknir
Aðstoðarlæknir óskast á handlækningadeild
spítalans frá og með 1. febrúar 1994.
Umsóknir sendist til Þorsteins Gíslasonar,
yfirlæknis, sem jafnframt veitir frekari
upplýsingar.
Landakotsspítali.
RAÐA UGL YSINGAR
ATVINNUHUSNÆÐI
Við Hafnarstræti
303 fm á jarðhæð til leigu við Hafnarstræti
7, Reykjavík. Símalagnir, tölvulagnir, loft-
ræstib., vandaðar innréttingar. Laust strax.
Húsnæðinu má skipta í tvo hluta.
Áhugasamir sendi fyrirspurnir til auglýsinga-
deildar Mbl. merktar: „G - 6693“.
OSKAST KEYPT
Bakarar athugiö
Óska eftir að kaupa bakarí í rekstri eða tæki
til brauðframleiðslu og fleira.
Áhugasamir sendi inn upplýsingar til auglýs-
ingadeildar Mbl. merktar: „Bakarí - 789“
Skipstjóra- og
stýrimannafélagið Aldan
heldur félagsfund (aukaaðalfund) þriðjudag-
inn 28. desember kl. 14.00 á Hótel Sögu,
fundarsal, gengið inn að norðanverðu.
Verkstjórar
Munið jólaballið sem haldið verður í Víkinga-
sal Hótels Lofleiða mánudaginn 27. desem-
ber kl. 14.00. Miðar seldir við innganginn.
Stjórn Verkstjórafélags Reykjavíkur.
Sjómannafélag Reykjavíkur
Félagsfundur hjá
Sjómannafélagi Reykjavíkur
Fundur á Lindargötu 9, 4. hæð:
Hjá fiskimönnum þriðjudaginn 28. desember
kl. 14.00.
Hjá farmönnum miðvikudaginn 29. desember
kl. 14.00.
Fundarefni: Kjaramál.
Sjómannafélag Reykjavíkur.
Jólatrésskemmtun
VRáannan íjólum
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur
jólatrésskemmtun fyrir börn félagsmanna í
Perlunni, Öskjuhlíð, sunnudaginn 26. desem-
ber nk. kl. 15.00. Miðaverð er kr. 600 fyrir
börn og kr. 200 fyrir fullorðna.
Miðar eru seldir á skrifstofu VR í Húsi versl-
unarinnar, 8. hæð.
Nánari upplýsingar í síma félagsins 687100.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Y
SJALFSTJEOISFLOKKURINN
r í: I. A (, S S T A R F
Fulltrúaráð Sjálfstæðis-
flokksins f Hafnarfirði
Fulltrúaráðsfundur- verður haldinn í Sjálfstæðisflokkshúsinu á Strand-
götu 29 þriðjudaginn 28. desember kl. 20.00.
Dagskrá fundarins:
1. Tillaga kjörnefndar um frambjóðéndur í prófkjöri vegna komandi
bæjarstjórnarkosninga lögð fram til afgreiðslu.
2. Almennar umræður.
Stjórn fulltrúaráðsins.