Morgunblaðið - 24.12.1993, Síða 44

Morgunblaðið - 24.12.1993, Síða 44
44____________MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24, DESEMBER 1993 Á JÓLAVAK TINNI eftir Guðmund Guðjónsson og Kristínu Marju Baldursdóttur Jólin eru helgur tími fjölskyldunnar. Þau eru tími samein- ingar og sátta. Aldrei er betra að vera umvafinn faðmi fjölskyldunnar og þeir sem eiga í slíkan faðm að venda fínna að auður er af fleiru bergi brotinn en hinu verald- lega. Þeir sem ekki eiga slíkt athvarf fínna á sama hátt að fátækt er ekki bara fjárskortur og óleysanlegir skulda- halar. Hvað er svo sem hægt að hugsa sér betra en að slá tvær flugur í einu höggi, að fagna fæðingu frelsar- ans og endurkomu ljóssins í sömu andránni, í hópi sinna nánustu. En ekki eru allir svo heppnir. Af öryggisástæð- um er það nokkur hópur sem má til að vinna um hátíð- irnar. Má nefna lögreglumenn, slökkviliðsmenn, lækna, hjúkrunarfólk, flugumsjónarmenn og fleiri, að ógleymd- um ýmsum stéttum sem alltaf eru á vakt, alla daga, allt árið, svo sem húsmæður og prestar. Þeir sem vinna yfir hátíðirnar eru yfirleitt á vöktum, þannig að það lend- ir ekki endilega á sama fólkinu ár eftir ár. Engu að síð- ur eru margir í þessum hópi fjölskyldumenn sem verða að slíta sig frá heimilinu á þessum helgasta tíma ársins. Þetta er æðrulaust fólk sem segir gjarnan að það hafi vitað hvað beið þeirra og það hafí valið sín störf sjálft og kvarti því ekki. Morgunblaðið ræddi við nokkra ein- staklinga sem eiga það sameiginlegt að vera og hafa verið oft áður á jólavaktinni. Jól í flugturninum Gengur vel ef veðrið er gott Flugumferðarstjórar eiga ekki sjö dagana sæla, alla daga ársins er flogið og það þýðir, að þeir geta ekki allir verið heima í faðmi fjöl- skyldunnar yfir hátíðirnar. Fram eftir aðfanga- degi er flogið stíft og annar í jólum er iðulega erilsamur, jafnvel einn af stærstu dögum ársins, er jólahaldarar sem sótt hafa heim vini og vanda- menn um land allt hellast aftur til síns heima og millilandaflug fer aftur vaxandi. Einn í hópi flugumferðarstjóra sem hvað oftast hefur verið á vakt á hátíð ljóssins er Ingvar Valdemarsson. Hann sagði skýringuna á því að allt flug lægi ekki niðri vera þá að það héldu alls ekki allar þjóðir jól og svo væri alltaf eitthvert herflug og sjúkraflug. En þrátt fyrir jólahald er aðfanga- dagur raunverulega eini dagurinn sem talist getur rólegur. „Það er mikið að gera á aðfangadag jóla og ef veður er bjart og gott fer umferðin að fjara út þegar á daginn líður. Verra er ef veður eru válynd og vellir eru meira og minna lokaðir. En á venjulegum degi er farið að draga úr umferðinni er líður að kvöldi og er þá töluverð spenna afstaðin. Vakta- skipti eru klukkan sjö um kvöldið og er þá reiknað með því að þeir sem koma séu búnir að borða jólas- teikina. Þeir sem eiga yngstu bömin fá að fara fyrr heim ef þess er nokkur kostur. Á aðfangadagskvöld eru fáar'vélár á ferð. Á jóladag er yfirleitt lítið að gera, þó alltaf eitthvert herflug og eitt og eitt sjúkra- flug. Alltaf svolítið millilandaflug. Á öðrum í jólum byijar hins vegar hasarinn aftur og rétt eins og á aðfangadag fer það eftir veðri og færð hversu þung- ur dagurínn er,“ segir Ingvar um eðlilegan gang mála í flugturninum. - En er.ekkert jólalegt hjá ykkur? „Jú, jú, það eru skreytingar hjá okkur og við erum að maula sameiginlegt sælgæti. Menn eru yfírleitt búnir að borða jólasteikina, annaðhvort var henni flýtt"éða frestað eftir stöðu vaktarinnar, því er ekkert jólaborðhald, en það jólalegasta hjá okkur Ingvar Valdemarsson Morgunbiaðið/Svemr er ef til vill skeytaregnið sem streymir til okkar um „teleprinterana". Jólakveðjurnar berast hvaðanæva að. bæði frá innlendum og erlendum aðilum." - Hafa óvæntir hlutir gerst þegar þú hefur verið á jólavakt? „Sem betur fer hef ég ekki lent í neinu misjöfnu. Þá á ég ekki við að veður geta verið slæm og auk- ið álagið verulega eins og ég gat um áðan. En sjúkraflugin eru alltaf til staðar og maður kemst einhvem veginn í nánari snertingu við þau þegar lítið er að gera. Annars er þetta orðið eins og hver önnur „rútínuvinna" hjá okkur. Ég man þó eftir einu eftirminnilegu. Þannig var eitt aðfangadags- kvöldið um klukkan átta, að það birtust hjá okkur tveir þjónar, útsendir af Emil Guðmundssyni sem var veitingasalinn á Hótel Loftleiðum. Ejónarnir vora með glæsilegt kalt borð í farteskinu og þetta var allt hið girnilegasta. Þetta var stórmannlegt af Emil, en gallinn var bara sá, að menn hafa ævin- lega gert ráðstafanir til að geta borðað jólasteikina heima og því vora menn ekki eins svangir og ella. Nýttist þetta kalda borð því ekki sem skyldi, en það var hugurinn sem skipti hér máli. Við þökkuðum því vel fyrir okkur, en þetta var ekki endurtekið," segir Ingvar Valdemarsson flugumferðarstjóri á hátíðarvaktinni. Jól á lögreglustöðinni Og kon- ur fæða JÓLAVAKT lögreglumanna getur oft verið erilsöm því manneskjan er ætíð söm við sig hvort sem er á virkum degi eða á jólum. Vaktin getur byijað rólega á stöðinni með kertaljósum og smákökum en end- að með stórbruna frammi í sveitum eins og Ólafur Ásgeirsson aðstoð- aryfirlögregluþjónn á __ Akureyri hefur fengið að reyna. Ólafur hef- ur verið í lögreglunni á Akureyri í nær þrjátíu ár, byrjaði aðeins átj- án ára gamall og hefur því oft stað- ið vakt á jólunum. Það var nú alltaf sérstakur andi yfír þessari vakt. Það langaði alla heim til fjölskyldunnar. Ég var ein- hleypur þegar ég var fyrst á jólavakt en saknaði auðvitað foreldra minna og systkina. Það kom fyrir að ég skipti við fjölskyldumenn, tók jólavaktina fyrir þá, en þeir unnu í staðinn fyrir mig á nýársnótt. Það var auðvitað mikilvægt á þessum árum að komast á áramótaballið! Eftir að ég varð fjöl- skyldumaður varð það nú hálfdapur- legt að fara frá börnunum og þeim fannst það skrýtið að hafa mig ekki hjá sér á jólunum, en svo komst það upp í vana.“ Á stöðinni er alltaf sett upp jólatré, kveikt á kertum og smákökur hafðar með kaffinu. „Við reynum að hafa þetta svolítið jólalegt. Nú orðið vinnur helmingurinn af Iögregluliðinu yfír jól- in, auk fangavarðanna sem einnig eru hér. Það er orðið meira að gera yfír hátíðirnar núna seinni árin. Umferð hefur aukist og það lenda margir í árekstrum og verða fyrir slysum. Morgunblaðið/Rúnar Þór Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn á Akureyri segir að allt sem gerist á jólavaktinni verði minnisstætt. í raun getur allt gerst á jólanótt. Ég man eftir að við þurftum eitt sinn að fara í mjög leiðinlegt og erfitt ölv- unarútkall þar sem nánast öll fjöl- skyldan slóst. Þarna voru börn í spil- inu og því var þetta átakanlegt. Fyrir nokkram árum var hér líka bruni frammi í sveit á jólanótt og lögreglu- menn voru nánast alla nóttina að bjarga skepnunum. Allt sem gerist á jólanótt verður minnisstætt því þetta er nóttin þegar ríkja á kyrrð og friður í samfélaginu og í hjörtum okkar. En það gengur víst ekki að gefa lögreglumönnum frí á jólunum, því menn lenda í árekstr- um, hús brenna og konur þurfa að fæða þessar nætur eins Qg aðrar.“ Jól í Flugstöðinni EIN Á RÁFI ALLA daga er ys og þys í Leifsstöð, en á jólanótt verður byggingin nær mannlaus ef undanskildir eru þrír eða fjórir starfsmenn. Einn þeirra er Jóna Sigurbjörg Eðvaldsdóttir flugumsjónarmaður, sem situr ein á sínum kontór og sendir flugmönnum skeyti. Jól á sjúkrahúsinu Annar andblær ÞEGAR ég átti að standa jólavakt í fyrsta sinn kveið ég fyrir, og því kom það mér á óvart hversu gefandi það var að vinna á þessu kvöldi,“ segir Guðmunda Þorleifsdóttir, sem hefur starfað sem sjúkraliði I átján ár. Hún er ekki sú eina í fjölskyldunni sem hefur þurft að standa vaktir á jólunum því eiginmaðurinn Jónas Jóhannsson er flugumsjónarmaður og hefur því einnig þurft að sinna starfi sínu yfir hátíðirnar. í Flugstöðinni sjá flugumsjónar- menn um öll gögn áhafnar fyrir hvert flug, fínna út hvar hagstæðir vindar blása, reikna út hleðsluskrár, sjá um að hlaða vélamar og fleira. Flug leggst ekki niður þótt jólin séu komin og því þarf Jóna Sigurbjörg að sinna sínum störfum inni í flugumsjón. „Eftir miðnætti á jólanótt er flug frá New York til Keflavíkur,“ segir hún. „Ég sendi því áhöfninni veður- upplýsingar upp úr ellefu áður en vélin leggur af stað, síðan aftur seinna um nóttina og svo verð ég að taka á móti þeim þegar þeir lenda. Vélin heldur síðan áfram til Lúxem- borgar um morguninn og þá þurfa hleðsluskrár að vera tilbúnar." Jóna Sigurbjörg vann á jóladags- kvöld í fyrra og á annan í jólum, en verður núna að vinna í fyrsta sinn á aðfangadagskvöld. „Ég verð héma ein núna, sem er óvanalegt því yfir- leitt erum við tvö. En við ætlum að gefa hvort öðru frí og reyna að skipta vaktinni. Þetta verður nokkuð ein- manalegt því við verðum ekki nema þijú eða fíögur í allri byggingunni. Auk mín verður héma einn lögreglu- maður, einn tollgæslumaður og ef til vill einn starfsmaður í farþega- þjónustunni. En ef það verður ein- hver óvænt umferð, millilendingar erlendra véla til dæmis, er ég með símanúmer hjá eldsneytismönnum, hlaðdeildinni og fleirum. Við verðum því líklega þijú þama ráfandi um flugstöðvarbygginguna, en hvert á sínum stað reyndar!" Vaktin hjá Jónu Sigurbjörgu hefst um sjöleytið sem þýðir að hún þarf að leggja af stað úr bænum um leið og kirkjuklukkur hringja inn hátíð- ina. Ef engin flugumferð er fyrirsjá- anleg getur hún hins vegar mætt örlítið seinna. Jóna Sigurbjörg er barnlaus en er búin að koma eigin- manninum í mat annars staðar að sögn. En í flugstöðinni verður hún alla nóttina og hvað hefur hún hugs- að sér að gera þegar stund er milli stríða? „Ég horfi á sjónvarpið og mynd- bönd milli þess sem ég sendi skeyt- Morgunblaðið/Sverrir Jóna Sigurbjörg Eðvaldsdóttir flugumsjónarmaður verður á vaktinni því flug leggst ekki niður þótt jólin séu að koma. in,“ segir hún. „En það er lítið jóla- legt hérna, ef frá er talin ein jóla- stjama! Eiginlega finnst mér það ömurlegt að vinna á jólunum, en það tilheyrir víst starfinu. Enda hugsa ég það stundum þegar jólin fara að nálgast að best væri líklega að fá sér vinnu í bakaríi frá níu til sex. Ég var að vinna á jólum í fyrra, vinn á jólum núna og vinn næstu jól og svo hugsa ég ekki lengra fram í tímann!" Þau hjónin eiga fjóra syni sem nú eru uppkomnir, en hvernig var það fyrir þá þegar þeir voru yngri að hafa ekki mömmu heima á jól- unum? „Þeir vora á aldrinum tíu til sextán ára þegar ég var fyrst á jólavakt," segir Guðmunda. „Þá átti ég að vera á kvöldvakt á Þor- láksmessu, aðfangadagskvöld, jóladag og annan í jólum! Sem betur fer var ein einhleyp starfs- systir mín svo elskuleg að skipta við mig og stóð vaktina á aðfanga- dagskvöld en ég stóð næturvaktina hennar í staðinn. Ég var því heima hjá fjölskyldunni fram til miðnætt- is, en ég týndi jólunum í þetta sinn og hefði miklu frekar viljað vinna á aðfangadagskvöld." Guðmunda sem starfar núna á Landsspítalanum en vann lengst af á Landakoti, hefur oft þurft að vera á jólavaktinni. „Þegar maður mætir á þessa kvöldvakt finnur maður strax annan andblæ. Maður skynjar svo mikla jákvæðni bæði hjá starfsfólki og sjúklingum. Ég vann á gjörgæsludeild og hún er auðvitað misþung eins og gefur að skilja. Þar er ekki hægt að hleypa sjúklingum heim eins og reynt er að gera á hinum deild- unum. Það getur verið ömurlegt að vera á vakt á gjörgæslu þegar miklir erfiðleikar eru. Ég man sérstaklega eftir einu fangadags- kvöldi. Jólahátíðin gekk í garð klukkan sex en þá versnaði líðan eins sjúklingsins svo mjög að við urðum að kalla út lækna. Það gleymdu áuðvitað allir jólunum í nokkra klukkutíma. Við áttuðum okkur á því seinna um kvöldið að það var aðfangadagskvöld og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.