Morgunblaðið - 24.12.1993, Side 51

Morgunblaðið - 24.12.1993, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993 51 Eldvarnagetraun bamsins LANDSSAMBAND slökkviliðs- númer, stutt og einfalt, sem auð- Vísbending við 2. spurningu velt er að muna. manna hefur sent Morgunblað- inu „Eldvarnagetraun barnsins", sem er liður í brunavarnaátaki landssambandsins 1993. Get- raunin er 6 spurningaar og fylgja vísbendingar með, sem beina eiga þátttakendum leið að réttu svari. Vísbending við 1. spurningu N eyðarsímanúmer. A neyðarstund er mikilvægt að símanúmer neyðarþjónustu sé ein- falt og auðvelt að muna. Hvernig er neyðarsímsvörun nú háttað í landinu? Núverandi kerfi er þannig að lögreglan hefur síma 0112 í Reykjavík, Seltjarnarnesi og Mos- fellsbæ og slökkvilið og sjúkraflutn- ingar 11100, til vara 0112, og Al- mannavarnir 22040 eða 11150. Vitað er að í landinu eru tugir síma- númera, sumir segja jafnvel 170, sem þjóna því hlutverki að vera neyðarnúmer. í brennandi húsnæði eða við önnur neyðartilvik, t.d. lík- amsárás, er öruggara að hafa eitt _____________Brids___________________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Frá Skagfirðingum Reykjavík Síðasta spilakvöldið á árinu var síðasta þriðjudag, eins kvölds jól- atvímenningur. Yfir 40 spilarar mættu til leiks. Urslit urðu: N/S Benedikt Helgason - Gylfi Jón Gíslason 248 Alfreð Alfreðsson - Viktor Bjömsson 246 Eggert Bergsson - Þorleifur Þórarinsson 233 ErlendurJónasson-ÞórirFlosason 218 \A/V Hjálmar S. Pálsson—Jón Ingólfsson 254 Gísli Tryggvason - Leifur Kristjánsson 236 BirgirOm Steingrimsson - Þórður Bjömsson 234 1 fGupnar Valgeirsson—Júlíus Sigurðsson 229 i Spilamennska hefst á nýju ári þríðjhdagihn 3. janúar, með eins kvölds tvímenningi. Aðalsveita- keppnin hefst síðan í janúar. Skagfirðingar senda spilurum Hvað skal gera ef eldur verður laus? Varið alla við ... Eldur er laus, sjáið um að allir fari út. Hringið í neyðarsímanúmer slökkviliðs. Tilkynnið hvar er að brenna, tak- ið á móti slökkviliðinu er það kemur á staðinn og gefið nánari upplýs- ingar ef þær eru fyrir hendi. Notið slökkvitæki á staðnum til að hefta útbreiðslu eldsins þar til slökkviliðið kemur. Ef tími ieyfir, lokið hurðum og gluggum til að hefta útbreiðslu eldsins þar til slökkviliðið kemur. Foreldrar athugið: Skiljið lítil böm aldrei ein eftir. Setjið límmiða á símtæki á heim- ilinu með neyðarsímanúmeri lög- reglu og slökkviliðs. Kennið börnum og unglingum hvernig og hvenær á að hringja í neyðarsímanúmer sem á við í ykkar heimabyggð. um land allt óskir um gleðilega hátíð og farsælt nýtt ár. Arnóri Ragnarssyni, umsjónarmanni brids- þáttar Morgunblaðsins, sendum við kærar kveðjur, með þökk fýrir sam- starfið á árinu. Bridsfélag Suðurnesja Hið árlega Keflavíkurverktaka- mót, Vanir-óvanir, verður haldið mánudaginn 27. des. í Stapa og á að byija spilamennsku kl. 19.45. Allir eru velkomnir. Bridshátíð Vesturlands Bridshátíð Vesturlands var hald- in í fyrsta sinn í janúar 1993. Með góðum stuðningi Sparisjóðsins og Búnaðarbankans ásamt helgartil- boði frá Hótelinu tókst að halda í Borgamesi myndarlegt stórmót Leikur að eldfærum Börn undir fimm ára aldri eru í verulegri lífshættu vegna eldsvoða sem verða í heimahúsum. Of marg- ir eldar verða vegna leiks barna með eldspýtur og vindlingakveikj- ara sem freista þeirra yngstu, vegna þess meðal annars hve lit- skrúðugir þeir eru. Eru eldspýtur og vindlingakveikj- arar geymdir, þar sem börn ná ekki til, á þínu heimili? Vísbending við 3. spumingu Eldsvoðar vegna matargerðar Eldamennska er algengasta ástæða fyrir eldsvoðum í heimahús- um ekki síst ef verið er að nota feiti við matargerð. Temjið ykkur eftirfarandi. Farið ekki úr eldhúsinu meðan á eldamennsku stendur. Staðsetjið ekki auðbrennanleg efni fyrir ofan eldavélina. Komi upp eldur í potti eða pönnu á eldavél- inni, þá ijúfið strauminn að hell- unni og rennið loki yfir pottinn eða pönnuna til að kæfa eldinn. Hringið í slökkviliðið. Hellið aldrei vatni á feitield. Algengasta orsök bruna er vegna mannlegra mistaka frekar en að eldavélar og rafmagnstæki bili og valdi íkveikju. Vísbending við 4. spurningu Þekktu til útgönguleiða á þínu heimili Eldsvoðar á heimilum eru al- gengastir eldsvoða og flestir þeirra sem farast í eldsvoða verða fyrir því á heimilum. Reykingar í rúmi eða annars staðar á heimilinu eru algengasta orsök eldsvoða sem hef- ur dauða í för með sér. Of margir farast í þessum elds- voðum. Flestir þessara elda kvikna í stofum, skálum og svefnherbergj- um vegna þess að glóð fellur í sófa eða rúmföt. Reykurinn er í flestum tilvikum hættulegri en eldurinn. Þeir sem reykja eru raunverulega að leika sér með eldinn. Með því að vera varkár í meðhöndlun á vindlum, vindlingum og eldspýtum er meiri möguleiki á að þið getið varast eldsvoða vegna þeirra. Þetta eru dauðir hlutir, þeir valda ekki eldsvoða, það eruð þið, fólkið sem notar þessa hluti, sem eruð upphaf- ið að eldinum. Verið varkár. Vísbending við 5. spurningu Reykskynjarar Reykskynjarar hafa stundum verið kallaðir ódýrasta líftrygging sem fólk getur keypt. Meira en helmingur alira elda í heimahúsum kviknar að nóttu þegar fólk er í fasta svefni. Ef eldur kemur upp þegar fjölskyldan er sofandi, vekur reykskynjarinn þig. Reykskynjari getur skilið á milli lífs og dauða í eldsvoða. Prófið reykskynjara einu sinni í mánuði. Ef hann virkar ekki, skiptið þá um rafhlöðu. Ef það dug- ar ekki er skynjarinn að öllum lík- indum ónýtur. Kaupið þá nýjan og setjið hann strax upp. með þátttöku á annað hundrað manns, þar á meðal þáverandi heimsmeisturum. Bridshátíðin er komin til að vera. Sú næsta fer fram helgina 15 og 16. janúar nk. í Hótel Borgarnesi. Laugardaginn 15. janúar kl. 9 verður spiluð hraðsveitakeppni, 10 spila leikir, sjö umferðir eftir Monrad-kerfinu. Á sunnudeginum kl. 10 er spilað- ur Mitchell-tvímenningur, tvær 28 spila lotur. Þátttökugjald er kr. 1.200 fyrir spilara pr. dag. Mola- kaffi innifalið. Gisting fyrir tvo í eina nótt kost- ar kr. 1.400 á mann og tvær nætur fyrir tvo kr. 2.500. Hádegisverður býðst á kr. 850 og veislumatur á laugardagskvöldið kr. 2.000. Skráning er í Hótel Borgarnesi s. 93-71119. Nánari upplýsingar gefur Þórður í s. 93-71703. Ath! Gott er að hafa fyrir reglu að skipta um rafhlöðu í reykskynj- aranum t.d. í desember ár hvert. Vísbending við 6. spurningu Augnslys barna og unglinga um áramót Á undanförnum árum hafa augnáverkar af völdum flugelda orðið alvarlegri en áður. Algengast er mar á auga, yfirleitt með blæð- ingum inni í auganu. Oft er um varanlega skemmd að ræða með sjónskerðingu. Samfara þessu geta fylgt brot í andliti og í verstu tilfellum hefur þurft að fjarlægja augað. í rannsókn sem augnlæknarnir Haraldur Sigurðsson, Guðmundur Viggósson og Friðbert Jónasson gerðu og birt var í Læknablaðinu desemberhefti 1991, kemur fram að algengasta orsök augnáverka um áramót voru flugeldar. Tív- olíbombur, blys og hvellhettur deildu öðru sæti. Flestir hinna slös- uðu voru börn og unglingar. Flest slysanna urðu um áramótin 1987-1988 í kjölfar notkunar öfl- ugra skotelda, svokallaðra tív- olíbomba. Þá slösuðust fimm ein- staklingar alvarlega á auga, þar af þrír vegna tvívolíbomba. Töluverðar umræður og blaðaskrif urðu þá um hættuna af notkun flugelda og í framhaldi af því voru tívolíbombur bannaðar. Foreldrar Látum lítil börn aldrei bera eld að flugeldum og blysum Minnispunktar Landsamband ið segir að lokum að aldrei verði of brýnt fyrir foreldrum að fýlgjast vel með börnum, bæði þeim sem sjálf eru að verki og hinum sem nærstödd eru þegar farið sé með flugelda, blys eða sprengjur. Má í því sambandi einnig benda á nokkrar grundvallarreglur sem hafa ber í huga við upphaf nýs árs. Fyrst er að nefna að aldrei skal haldið á blysum nema leiðbein- ingar segi að það sé í lagi. Standið þá þannig að vindurinn sé í bakið og beinið blysinu frá ykkur. Gætið að því að enginn verði fyrir neista- flugi eða eldkúlum sem koma úr blysum og notið hanska. Þá skal minnt á að skjóta flugeldum jafnan úr stöðugri undirstöðu og víkja vel frá. Beygið ykkur ekki yfir skoteld sem þið ætlið að kveikja í. Verið til hliðar og víkið vel frá. Þegar búið er að brenna út gamla árið er sjálfsagt að taka til og kasta í rusl- ið öllum umbúðum og óbrunnum hlutum. Geymið flugelda á örugg- um stað og þar sem börn ná ekki til. Flugelda á ekki að geyma á milli ára. Ef ykkur tekst ekki að skjóta öllu upp um áramótin, ljúkið því þá á þrettándanum. ________m eftirréttir! Áramótaheitið er með NUPO LÉTT næst besta megrunarkúrnum! Brunavarnaátak 1993 Eldvarnargetraun barnsins! 1. Hvert er neyðarsímanúmer í þínu byggðarlagi ef eldsvoða, slys eða önnur óhöpp ber að höndum? 2. Telur þú að leikur að eldspýtum og/eða vindlinga kveikjurum geti orsakað alvarlegan eldsvoða, brunasár og jafnvel dauða? já-------- nei-------- 3. Má yfirgefa eldunartæki og önnur rafmagnstæki þegar þau eru í notkun? já-------- nei-------- 4. Hefur þú gert ráð yfrir neyðarútgönguleið, komi upp eldur hjá þér að nóttu? já-------- nei-------- 5. Er búið að skipta um rafhlöðu í reykskynjaranum á þínu heimili? já-------- nei-------- 6. Er notkun flugelda, blysa og hvellhettna algengasta orsök augnslysa um áramót? já--------- neí------- 20 VERÐLAUN Öryggishjálmur, blikkandi eldurskinsmerki á reiðhjól ^ og reykskynjari og sérstakt viðurkenningarskjal Lands- sambands slökkviliðsmanna. Svör þarf að póstleggja fyrir miðnætti 31. desember 1993. Sendisttil Landssambands slökkviliðsmanna, pósthólf4023,124 Reykjavík. NAFN: ------------------------------------------- HEIMILI ----------------------------------------- PÓSTNÚMER: ----------------- SKÓLI: ---------------------------------—........ QRKIN 2160-11-21

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.