Morgunblaðið - 24.12.1993, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 24.12.1993, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993 JOlAfflMIR KWfflMA HŒAMA Strýtulaga; úr gamanmyndinni „Coneheads", jólamynd Laugarásbíós. FJÖLSKYLDAN UTAN UR GEIMNUM Aðaljólamynd Laugarásbíós í ár er gamanmyndin Geímverurnar eða „Coneheads“ með Dan Aykroyd í aðalhlutverki en Ieiksljóri er Steve Barron, sem þekktur varð fyrir að gera fyrstu myndina um stökk- breyttu ninja skjaldbökurnar að metsöluefni. Menn hafa löngum velt fyrir sér spurningunni um hvernig jarðlíf vort kemur fyrir augu íbúa annarra pláneta. Geimverurnar leitast við að svara því. Hin jólamynd bíósins er hin umdeilda mynd Fullkomin áætlun eða „The Program". PP oo 'é Bíóhöllin; Skyttumar þijár eftir sögu Dumas. SKYTTURNAR EFTIR SÖGU DIIMAS Skytturnar þrjár er jólamynd Bíóhallarinnar í ár, ný bíóútgáfa frá Hoilywood á sögunni frægu eftir franska rithöfundinn Alexander Dumas. Leikstjóri er Stephen Herek en með aðalhlutverkin fara margir kunnustu leikarar Bandaríkjanna af yngri kynslóðinni. O O <1—1 PQ , Þeir eru Kiefer Sutherland 'S. (sonur Donalds), Charlie She- en (sonur Martins), Chris O’Donnell, sem síðast lék á móti AI Pacino í Konuilminum, Oliver Platt og Rebecca De Momay. Það erj Disneyfyrir- Stækið sem steijidur að baki mjmdarinnar en/sá sem breytt hefur sögu Dumas í kvik- myndahandrit/ og ekki það fyrsta, er David Loughery. Sagan heiur margoft verið kvikmynduð og síðast af breska leikstjóranum/Richard Lester árið 1974 og fóyu þá Oliver Reed, Ric- hard Charríberlain og Michael York með aðalhlutverkin. Sagan hefur notið geysilegra vinsælda um allan heim en hún segir frá ævintýrum D’Artagnan sem heldur úr sveitinni til Parísar og gengur þar í lið með skyttunum þremur. „Þetta er saga sem fjallar um kjama bræðralags- ins,“ er haft eftir Charlie Sheen. Það hafði lengi staðið til að gera myndina hjá Disney en ekkert varð úr því fyrr en Joe Roth, sem áður stýrði 20th Century Fox, kom að fyrirtækinu og setti myndina í gang. Segir sagan að hann hafi ekki verið lengi að fylla í hlutverkin. Skyttumar þijár er enda tilvalin mynd fyrir ungu Hollywoodleikar- ana, sem áður hafa verið ráðnir í hópum eins og fyrir myndimar „Young Guns“ og „Mobsters". Kief- er og Charlie eru þeirra þekktastir enda með ófáar myndir að baki þrátt fyrir ungan aldur. Platt hefur verið minna áberandi en er líklega þekktastur fyrir leikinn í „FJatliner" og O’Donnell skaust í hóp hinna eftirsóttu af yngri kynslóðinni eftir ágætan leik á móti Pacino. Skytt- umar þijár var næsta mynd hans á eftir Konuilmi og viðbrigðin vora mikil að fara úr háalvarlegu drama í létta ævintýramynd. Það tók sinn tíma að venjast hundruðum auka- leikara og dýram á tökustað. „Þeg- ar tökurnar hófust var ég alveg á taugum," er haft eftir honum. „Vegna þess að þú leikur kannski í sjö sinnum fyrir hvert atriði og ef þú ert heppinn virka tvö eða þijú tæknilega og þú verður bara að vona að í þeim sé leikurinn bærilegur.“ Leikstjórinn, Stephen Herak, á nokkrar myndir að baki en líklega er „Bill and Ted’s Excellent Advent- ure“ þeirra frægust. Líkt og gaman- og metsölu- myndin Veröld Waynes var byggð á gamanatriðum úr bandarísku skemmtiþáttunum „Saturday Night Live“ er Geimveramar byggð á atriðum með Dan Aykroyd úr sam- nefndum þáttum og segir frá •<5^ fjölskyldu utan úr geimnum Osem sest að í Bandaríkjunum. Geimverafjölskyldan verður | ) strandaglópur í Bandaríkjun- um þegar geimfar þeirra brot- lendir en meðlimir hennar era T sendiboðar frá plánetunni Remulak. Fjölskyldan verður að koma sér fyrir á jörðinni og finn- ur sér samastað í úthverfi í New Jersey og reynir hvað hún getur að verða fullkomlega eðlileg bandarísk úthverfafjölskylda með öllu því sem fylgir. Það er þó eitt sem gerir þau strax svolítið útlendingsleg svo ekki sé meira sagt. Höfuð Remulakbúa er strýtulagað og skagar eins og fjallstindur langt út í loftið. Dan Aykroyd er fæddur í Kanada og hóf leikferil sinn sem leikari í Toronto áður en hann varð þekktur í skemmtiþáttunum „Saturday Night Live“. Hann hlaut heimsfrægð með samvinnu sinni við annan skemmti- kraft sjónvarpsþáttanna, John Bel- ushi, en þekktasta myndin sem þeir léku saman í var Blúsbræðumir eft- ir John Landis. Önnur jólamynd Laugarásbíós er myndin Fullkomin áætlun eða „The Program" eftir David S. Ward, sem áður gerði handritið að „The Sting" sællar minningar og hlaut óskars- verðlaun fyrir. Fullkomin áætlun segir frá félögum í háskólaliði í raðn- ingi en myndin inniheldur atriði sem klippt var úr í Bandaríkjunum. Það sýnir félagana í liðinu leggjast út á hraðbraut til að sýna karlmennsku sína en krakkar í Bandaríkjunum hermdu þennan leik eftir með hörmulegum afleiðingum. Kvik- myndaeftirlit ríkisins sá ekki ástæðu til að fjarlægja það atriði fyrir sýn- ingar hér heima. Með eitt aðalhlutverkanna í mynd- inni fer James Caan en hin hlutverk- in skipa leikarar af yngri kynslóð- inni eins og Craig Sheffer, Kristy Swanson og Halle Berry. PQ < O TALSETT DISNEY- MYND UM ALADDÍN Á annan í jólum frumsýnir Sagabíó fyrstu Disneyteiknimyndina sem sýnd er með íslensku tali, Aladdín, nýjustu afurð listamanna Disney- fyrirtækisins sem sent hafa frá sér á undanförnum árum myndir eins og Litlu hafmeyjuna og Fríðu og dýrið. Islenskt tal er orðið fastur lið- ur í barnaefni sjónvarps og kvikmyndahúsin hafa brugðist við kröfunni um talsetningu með því að setja íslenskt tal í auknum mæli á teiknimyndir. Disneyfyrirtækið, sem stendur fremst í heiminum í gerð teiknimynda og á ófáa gull- mola kvikmjmdasögunnar, hefur ekki hingað til samþykkt íslenska talsetningu á myndir sínar en nú er ísinn brotinn með teikni- myndinni Aladdín. Á þriðja tug leikara sér um leik- raddimar í myndinni. Má þar nefna Felix Bergsson, Eddu Heiðrúnu Backman, Jóhann Sigurðarson, Amar Jónsson og Rúrík Haraldson að ógteymdum Þórhalli „Ladda“ Sigurðssyni sem sér um rödd and- ans í lampanum, hlutverk sem Rob- in Williams hefur á frummálinu en enska útgáfan verður einnig sýnd í Sambíóunum. Þorsteinn Eggerts- son snéri söngtextunum yfir á ís- lensku, Randver Þorláksson sá um Sagabíó; Aladdín og andinn í lampanum. leikstjórn talsetningarinnar en upp- tökustjóm var í höndum Júlíusar Agnarssonar. Disneyfyrirtækið hefur kveikt nýtt líf í gerð teikni- mynda hin síðustu ár svo talað er um nýja gullöld teikni- mynda en engin hefur orðið eins vinsæl og Aladdín. Talað er um að hún taki inn tæpa 70 milljarða króna í heimsdreif- ingu. Hún byggir á velþekktu ævintýri eins og klassísku Disney myndimar og tilurð hennar má rekja til ársins 1989. Gert var upp- kast að handriti sem Disneyforstjór- inn Jeffrey Katzenberg hafnaði. Hann kallaði nýja menn í handrits- gerðina; Aladdín skyldi minna á Harrison Ford ungan, Jasmine dótt- ir soldánsins í Agrahah var gerð að sterkari kvenpersónu og óskun- um var fækkað úr ótakmörkuðum fjöldar í þrjár. Fjörugasta persónan er andinn í lampanum og það er ekki heiglum hent að leika hann. Hann tekur sí- felldum stakkaskiptum og leikur sér að herma eftir frægum persónum um leið og hann breytir sér í þær; þannig tekur hann á sig form Amolds Schwarzeneggers, Groucho Marx, Robert De Niros, Arsenio Halls og Jack Nicholsons svo eitthvað sé nefnt. Hugmynda- flugið virðist ótakmarkað. Það er þrælavinna að gera teikni- myndir jafnvel þótt bakgrannurinn sé litaður í tölvum. Einn teiknari er heilan dag að gera eina sekúndu, 24 myndir. Sem dæmi má nefna að sami maðurinn gerði 10.000 teikningar fyrir eitt söngleikjaatriði myndarinnar. Önnur jólainynd Sagabíós er framhaldsmyndin Addamsfjöl- skyldugildin, sem segir af frekari ævintýram hinnar skuggalegu og skrítnu Addamsfjölskyldu (sjá Há- skólabíó).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.