Morgunblaðið - 24.12.1993, Page 56
56
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993
h
fclk i
fréttum
Morgunblaðið/Emilía
„Frá Karmelklaustri sendum við ykkur kærleiksyl Guðs og okkar
stöðugu heitu bæn fyrir hverju hjarta á þessu fallega eylandi,“ segja
Karmelsystur.
• Morgunblaðið/Rúnar Þór
POLITIK
Er ráðherrann kominn með hom?
Það er engu líkara en Össur Skarphéðinsson umhverfísráðherra sé kominn með hom á meðfylgjandi mynd
og virðist alsæll með það. Kannski hefur hann í huga að láta alfriða öll hreindýr á landinu? Ekki er hægt að
sjá annað á glotti Gísla Braga Hjartarsonar sem stendur og rabbar við ráðherrann en honum líki vel útlit Össurar.
TRUARLIF
*
I Karmelklaustri
er beðið daglega
fyrir íslendingum
Nunnurnar í Karmelklaustri í
Hafnarfirði biðja á hveijum
degi fyrir íslensku þjóðinni, ekki
síst nú á fæðingarhátíð frelsarans.
Fara hér á eftir hlý orð fTeirra til
allra íslendinga:
„Á nóttu fæðingar Guðs umlykj-
um við ykkur með sérstaklega heitri
bæn og óskum ykkur mikillar gleði
af komu Guðs. Megi María mey
leggja í hjörtu okkar Jesús Guðs
barn sitt sem er friður og kærleik-
ur. Megi með nýjum krafti umlykja
okkur Ijós voilar, trúar og kærleika.
Frá Karmelklaustri okkar í Hafnar-
firði sendum við ykkur kærleiksyl
Guðs og okkar stöðugu heitu bæn
fyrir hveiju hjarta á þessu fallega
eylandi, sem Island er. Við þökkum
fýrir gæsku ykkar, vinsemd og hjálp
í garð okkar. Megi barn Guðs blessa
ykkur.“
PLOTUUTGAFA
Platína og gnll
Plötusala fyrir jól er nú í há- plata þeirra hefur selst í gullsölu, er því nóg að gera í rammagerðum,
marki og nokkrir listamenn 5.000 eintökum, og sumar jafnvel þar sem gengið er frá gull- og plat-
hafa náð þeim eftirsótta áfanga að í platínusölu, 10.000 eintökum. Það ínuplötunum.
Bubbi Morthens heldur velli sem
vinsælasti tónlistarmaður lands-
isn og fyrir helgi tók hann við
viðurkenningu fyrir platínusölu
á plötu sinni Lífið er ljúft. Hér
tekur Bubbi lagið fyrir grúa
manns í Kringlunni.
Morgun
Fyrsta sólóskífa Siggu Beinteins, Desember, hefur selst afskaplega
vel og hér tekur Sigga við gullviðurkenningu fyrir rúmlega 6.000
eintaka sölu. Með henni á myndinni eru f.v. Pétur Hjaltested, sem
fékk aðra gullplötu sína þennan dag, Jón Kjell Seljeseth, sem vann
að plötunni með Siggu, Birgir Skaftason og Ásmundur Jónsson hjá
Japís.
Barnaplatan Barnabros hefur náð gullsölu og þar sem margir komu
að gerð hennar þarf margar gullplötur. Hér má sjá kampakáta að-
standendur Barnabross með gullplöturnar, en með á myndinni eru
aðstandendur Japís sem dreifir piötunni. Frá vinstri eru Eydís Bene-
diktsdóttir, sem tók við plötunni fyrir hönd Siggu Beinteins, Ásmund-
ur Jónsson, María Björk Sverrisdóttir, Pétur Hjaltested, Sara Dís
Hjaltested, Helga Möller, Egill Ólafsson, Edda Heiðrún Backman
og Birgir Skaptason.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Happdrætti
bókaútgefenda
Vinningsnúmer í happdrætti
bókaútgefenda eru 9954,
55892,66476, 64020,86406,
8841,19932,26418,1856,
87407,18454,19512, 3324,
70297, 79904, 30475, 89409,
29509, 46092, 49051, 76678,
72332,52184 og 33241. Happ-
drættisnúmerin eru á baksíðu
íslenskra bókatíðinda. Vinn-
ingshafar geta vitjað vinninga
sinna, bókaúttektar að andvirði
10 þúsund krónur, í næstu bóka-
búð.