Morgunblaðið - 24.12.1993, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 24.12.1993, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993 57 Morgunblaðið/RAX Sunna nostrar mikið við hvern og einn jólasvein og gefur hveijum þeirra sín séreinkenni. LIST Karlamir hafa hver sinn persónuleika Sunna Emanúelsdóttir var hálfn- uð með 43. jólasveininn sinn þegar Morgunblaðið heimsótti hana í Breiðholtið í vikunni. Hún býr þó ekki eingöngu til jólasveina því ver- urnar eru af ýmsum toga. Nokkrar útgáfur eru af Grýlu, Leppalúða og álfabömum, auk allra jólasvein- anna. Verurnar eru allar með sín persónueinkenni og Sunna ákveður sjaldnast fyrirfram hvaða jólasvein hún ætlar að búa til. „Þeir öðlast bara líf smám saman. Stundum verð ég að leggja hálfkláraðan jólasvein frá mér, því ég hef einhvern veginn ekki náð sambandi við hann. Svo kemur að því að mér tekst að ljúka við hann og skapa persónueinkenn- in,“ segir hún og bendir blaðamanni á nokkur sérkenni. Grýla í uppáhaldi Sunna gekkst und- ir aðgerð í haust og er enn að jafna sig eftir hana, þannig að hún hefur stytt sér stundir á haustmán- uðum við að búa til karlana. „Ég hef gengið með það í maganum frá því ég var barn að búa til þessa fjölskyldu. Grýla er sér í lagi mikil vinkona mín og mér fínnst skemmti- legast að búa hana til,“ segir hún. Lítur síðan á blaðamann og heldur áfram: „He- furðu nokkum tím- ann lesið um konu sem hefur verið talað um eins og hana Grýlu? Sjálf ólst ég upp í sveit og heyrði marg- ar sögur af henni. Ég er hér með ljósrit af ýmsum Grýlukvæð- um,“ segir hún um leið og hún nær í nokkur blöð og grípur niður í Grýluljóðum úr bókinni í jólaskapi: ...þríhöfðuð þjófsdóttir þessi er að sjá, faxmikil flagðkonan, flugþykk og há, augun likt sem eldhnettir eyrun sem gjá, kinnurnar sem kýrvömb, kolsvört og grá... Eftir að hafa lesið upp fleiri kvæði um Grýlu — sem Sunna telur að hafi veri mikill kvenskörungur — og rætt um hana litla stund segir hún, að sér finnist leiðinlegt hvað Grýlu hafi verið gerð lítil skil einkum 'undanfarið. Játaði allar syndirnar Það sem ýtti enn undir áhuga Sunnu á að búa til Grýlu og börnin hennar var atburður sem gerðist fyrir mörgum árum_ þegar sonur hennar, Gunnar Bjöm, var lítill. „Hann sá útstillingu í verslunarglugga, þar sem Grýla var með pottinn sinn ásamt Leppalúða og jólasveinunum. Þegar hann sá ósköpin játaði hann margra ára gamlar syndir sínar á staðnum,“ segir Sunna og hefur greinilega gaman af. „Hann grenjaði og gólaði og sagðist aldrei skyldu borða nammið úr skónum hans Magga, yngri bróður síns. Allar gömlu syndirnar fylgdu síðan á eftir. Síðan hef ég hótað Gunnari að ég mundi gefa honum Grýlu og fjölskyldu hennar. Ég held að ég hafi fátt gert um dagana sem er jafn skemmtilegt og þess vegna eru karlanir orðnir eins margir og raun ber vitni.“ Mikil vinna liggur í körlunum og segist Sunna t.d. hafa tekið saman þá tíma sem tók að fullgera Giljagaur. Tímarnir urðu 34 áður en yfir lauk. „Ég pijóna sum fötin eins og peysur, vettlinga, sokka og húfur. Stundum nota ég einhvers konar ullarefni í buxurnar en búkarnir eru fylltir með púðafyllingu.“ Sem dæmi um nostur Sunnu má geta þess að allir vettlingamir eru með tveimur þumlum eins og tíðkaðist fyrr á öldinni og hún hefur saumað bætur á flíkur jólasveinanna. Þá má ekki gleyma sauðskinnsskónum sem saumaðir eru úr leðri, en allt er þetta örsmátt. Andlitin gefa jólasveinunum ekki síst persónueinkenni, því þau eru fyllt á sama hátt og búkarnir. Þannig eru nefin misstór auk þess sem þeir hafa bæði augu og munn. Persónusköpunin erfiðust Þegar Sunna er spurð hvað sé erfiðast við að búa til jólasveinana svarar hún eftir smá umhugsun: „Það er að skapa „karakterinn". Ég verð að vera ein og fá að vera í friði þegar ég er að ganga frá hverjum karli fyrir sig, búa til andlitið og hreyfingarnar. Þeir ganga mjög nærri manni og þegar ég hef lokið við hvern og einn er ég búin að fá nóg að sinni. Jólasveinarnir hafa alltaf verið gjörólíkir. Þótt ég hafi t.d. búið til nokkra Stekkjastaura þá eru þeir aldrei eins. Þegar þeir fara að líkjast hveijir öðrum þá er kominn tími til að hætta, því ég hef aldrei heyrt að Grýla ætti tvíbura," sagði Sunna Emanúelsdóttir. Sunna Emanúelsdóttir hefur búið til 43 jólasveina frá því í haust, auk Grýlu og Leppalúða. Jólítmyndin í 07* finiM*., >» V S99H *:i’- ecrG4lDH) m AKUREYRI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.