Morgunblaðið - 04.01.1994, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994
Morgunblaðið/Árni Sæberg
UNNIÐ er af krafti þessa dagana við ýmsan frágang innanhúss í Þjóðarbókhlöðunni, en stefnt er
að því að Landsbókasafn og Háskólabókasafn flylji þangað síðar á árinu.
Stefnt að vígslu Þjóðar-
bókhlöðu 1. desember
EFNT hefur verið til forvals meðal verktaka og vörusala vegna
húsbúnaðar í Þjóðarbókhlöðuna. Á þessu ári verður varið um 415
milljónum króna til framkvæmda og er stefnt að því að Þjóðarbók-
hlaðan taki formlega til starfa hinn 1. desember næstkomandi.
Útboðið nú nær til mjög veru-
legs hluta lausra innréttinga, að
sögn Egils Skúla Ingibergssonar
framkvæmdastjóra og fulltrúa í
byggingarnefnd Þjóðarbókhlöð-
unnar. „Við byijum á að kanna
undirtektir innanlands til að kanna
að hve miklu leyti íslensk fyrir-
tæki ráða við þennan verkþátt,“
sagði Egill Skúli.
Á þessu ári verða innheimtar
340 milljónir með sérstökum eign-
arskatti til Þjóðarbókhlöðunnar,
auk þess sem 75 milljónir færast
frá fyrra ári, að hluta til vegna
ólokinna verkþátta. Framkvæmdir
við Þjóðarbókhlöðuna hafa staðið
með mismiklum krafti í um 20 ár,
undanfarin þijú ár hefur þó verið
unnið af fullum krafti við bygging-
una. „Núverandi menntamálaráð-
herra hefur beitt sér fyrir því að
það fé sem bókhiaðan á af inn-
heimtum gjöldum komi í hennar
hlut. Þetta.er þriðja árið sem við
þetta er staðið og hefur það hleypt
ferskum vindum í vinnuna," sagði
Egill Skúli.
Nú er unnið að frágangi og
prófunum á loftræstingu hússins,
frágangi rafmagnstaflna, milli-
veggja, hússtjórnarkerfis og gólfa.
V erkfallsheimild
samþykkt hjá SVR
HEIMILD til verkfallsboðunar hjá SVR hf. var samþykkt með um
90% atkvæða þeirra sem þátt tóku. Á kjörskrá voru 128, atkvæði
greiddu 93 eða 73% og já sögðu 83 eða 90%. 6 greiddu atkvæði
gegn verkfallsheimild og auðir seðlar voru fjórir.
Sjöfn Ingólfsdóttir, formaður
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar, segir að þetta sé afgerandi
niðurstaða, nú sé vitað hver vilji
starfsmanna sé. Fundað verði í dag
og á morgun um framhaldið en það
sé ljóst að eitthvað verði að gerast
tiltölulega fljótt. Hún sagði að ef
til verkfalls kæmi yrði það boðað
með viku fyrirvara samkvæmt
ákvæðum laga um stéttarfélög og
vinnudeilur.
Sverrir Arngrímsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri SVR hf., sagði
að Starfsmannafélag Reykjavíkur-
borgar hefði ekki umboð til að
semja fyrir starfsmenn. Því hefði
lokið 1. desember þegar fyrirtækið
SVR hf. hefði tekið til starfa. Við-
semjendur þeirra síðan væru félög
innan ASÍ. Þá dró hann í efa tölur
um fjölda þeirra sem hefðu verið á
kjörskrá í kosningu um verkfalls-
heimildina þar sem að ráðningar-
samningar hefðu verið gerðir við
86 af um 190-200 starfsmönnuin
SVR hf.
Skattur breytir ekki eldsneytisverði
Bensín stendur í stað
og gasolía lækkkar
OLÍUFÉLÖGIN lækkuðu gasolíuverð um 60 aura á gamlársdag í
samræmi við verðlækkun á heimsmarkaði og ákváðu að bensínverð
héldist óbreytt þrátt fyrir að um áramót lagðist 1,40 kr. skattur
á bensínlítrann.
Skatturinn miðast við 5% hækk-
un á bensíngjaldi og að vörugjald
á bensíni hækkar úr 90% í 97%.
Gasolíuverð í Rotterdam á gamlárs-
dag var 140 dollarar tonnið, verð á
98 okt. bensíni var 140,5 dollarar
tonnið og verð á 92 okt. bensíni var
129,5 dollarar tonnið. „Lækkun
verðs á heimsmarkaði vegur upp
hækkunina vegna skattlagningar-
innar, þó að undir eðlilegum kring-
umstæðum hefðu 1,40 kr. lagst á
verðið,“ sagði Kristinn Björnsson,
forstjóri Skeljungs, í samtali við
Morgunblaðið.
150 milljónir kr. sparast í
útgerð
Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag-
fræðingur LÍÚ, segir að lækkun
gasolíuverðs muni leiða til 125-150
milljóna króna sparnaðar fyrir út-
gerðina, miðað við um 210 milljóna
, ~ ~ , * ’ti* lítra ársnotkun og segir þessa lækk-
Viðskiptaraðherra um mun a voxtum verðtryggðra og overðtryggðra lana un vera fagnaðarefni
Vaxtastefnan ekki náð fram að
ganga fyrr en nafnvextir lækka
SIGHVATUR Björgvinsson, viðskiptaráðherra, segir að engin efnisleg
rök séu lengur fyrir þeim mismun sem sé á verðtryggðum og óverð-
tryggðum útlánsvöxtum bankanna, en vextir óverðtryggðra lána eru
um fjórum prósentustigum hærri en vextir verðtryggðra lána. Skýring-
arnar geti ekki verið nema tvær, annað hvort sé tap bankanna svo
mikið að þeir verði að hafa vextina svona háa eða þeir hafi gert samn-
inga við fjármagnseigendur, til dæmis líleyrissjóðina, um svo háa innl-
ánsvexti að þeir þurfi þessa háu útlánsvexti. Vaxtastefna ríkisstjórnar-
innar hafi ekki náð fram að ganga fyrr en vextir á óverðtryggðum
lánum hafi lækkað til samræmis við vexti á verðtryggðum lánum. „Ef
bankarnir geta ekki framkvæmt það sjálfir, þá þarf kannski hand-
leiðslu ríkisstjórnarinnar í því kerfi eins og í verðtryggða kerfinu,"
sagði Sighvatur.
Meðalvextir vísitölubundinna
lána banka og sparisjóða eru 7,5%
en meðalvextir óverðtryggðra
skuldabréfalána eru 11,7%. Meðal-
vextir afurðalána í íslenskum krón-
um eru 11,4% og forvextir víxla eru
að meðaltali 11,8%. Meðalvextir á
yfirdráttarlánum eru að meðaltali
14,2% og fastir vextir á visa-skipti-
greiðslum eru á bilinu 15,95-
16,75%. Dráttarvextir í janúarmán-
uði samkvæmt ákvörðun Seðla-
bankans eru 16%. Seðlabanki ís-
lands spáir engri verðbólgu næstu
Þrotabú Hótels Norðurlands
100 millj. kröfum lýst í búið 34
Aldamótabílinn
Aldamótabíllinn verður háþróaðri,
flóknari og líklega dýrari en nú-
'tímabílar 37
Nýársúvarp forseta íslands
Kjölfesta samfélagsins-heimilið og
fjölskyldan 38-39
Leióari
Heimilið, fjölskyldan og samfélagið
38
IHF segir HlW-nefndinni aöx
semja uerði fyrir mánaðarmóf
íþróttamaður árskift útn«(ixlur
Pricefrá Skaganum
Iþróttir
► IHF setur HM-nefndinni
tímamörk - Skagamenn skipta
um erlendan leikmann í körfu-
boltanum - Aldrei fleiri þátt-
takendur í Gamlárshlaupi ÍR.
fjóra mánuði. Lánskjaravísitala
lækkaði milli desember og janúar
og spáð er frekari lækkun vísi-
tölunnar milli janúar og febrúar
vegna lækkunar virðisaukaskatts á
matvælum úr 24,5% í 14% um ára-
mót.
Sighvatur sagði að það væri allt-
of mikill munur á verðtryggðum og
óverðtryggðum vöxtum, þó búast
mætti við að það yrði alltaf einhver
munur þarna á einkum hvað varð-
aði neysiulán til skamms tíma. „Það
eru ekki nema tvær skýringar á
þessu. Annað hvort er það slæm
afkoma bankanna sem þeir taka þá
útr á sínum viðskiptamönnum og
láta þá borga hærri vexti en ella
væri, eða þá hitt að þeir séu með í
ávöxtun í nafnvaxtakerfinu mjög
mikla peninga á mjög háum samn-
ingsvöxtum. Það eru ýmsar vísbend-
ingar um það svo sem eins og mjög
rúm lausafjárstaða bankanna.
Bankarnir eru með mjög mikið af
peningum sem þeir geta ekki afsett
sem þýðir einfaldlega að það eru
einhveijir innlánseigendur sem eru
með mikið innistæðufé í bönkun-
um, “ sagði Sighvatur.
Hann sagði að það væri eðlilegt
að menn spyrðu sig hvort eitthvert
samband væri á milli þessa og
tregðu lífeyrissjóðanna til þess að
kaupa húsnæðisbréf með 5% ávöxt-
un. „Þetta er hlutur sem maður
veit ekkert um, þar sem það hvílir
bankaleynd yfír þessum viðskiptum
en mér er sagt að það sé ekki óal-
gengt að lífeyrissjóðunum sé boðið
7,5% vextir á innistæðufé í bönkun-
um sem ekki sé bundið til langs
tíma,“ sagði hann. Ef þetta væri
rétt væri auðvitað komin skýring á
því af hveiju lífeyrissjóðirnir vildu
ekki kaupa húsnæðisbréf með 5%
ávöxtun.
Sighvatur benti á að það væru
engin efnisleg rök fyrir því að nafn-
vextir banka væru svo háit'. Verð-
bólga væri lág og vextir á skamm-
tímabréfum ríkissjóðs lágir. Ávöxt-
unarkrafa á óverðtryggðum ríkis-
bréfum til tveggja ára væru 6,4%,
sem þýddi að verðbólga mætti ekki
vera yfir 1,4% hvort árið um sig ef
menn ætluðu sér að ná fimm pró-
sent raunvöxtum. „Það eru engin
rök sem standa lengur til þess að
nafnvextirnir lækki ekki,“ sagði
Sighvatur.
Efni á
disklingum
Allmikið hefur færst í vöxt,
að efni, sem birtast á í Morgun-
blaðinu, sé tölvusett og berist á
disklingum. Til þess að tryggja
að yfirfærsla efnisins gangi án
vandkvæða, eru höfundar beðnir
að athuga eftirfarandi atriði:
1. Skrifið ávallt nöfn greina á
merkimiðann sem límdur er
á disklinginn.
2. Skrifið á sama miða nafn
forritsins sem notast er við.
3. Látið fylgja útprentun af
greininni.
AðstoðarvarnarmálaráðheiTa Bandaríkjanna
Sérfræðingur
í vopnakerfum
WILLIAM J. Perry, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna sem kom til Islands í gær til viðræðna við stjórnvöld, er
á 67. aldursári, fæddur 11. október 1927. Hann sór embætti-
seið sem aðstoðarvarnarmálaráðherra 5. mars sl.
Perry var aðstoðarmaður
varnarmálaráðherra á árunum
1976-81 og hafði þá yfirumsjón
með rannsóknar- og þróunar-
verkefnum á vegum ráðuneytis-
ins og lagði mat á hvaða vopna-
kerfi heraflinn þyrfti á að halda.
Var hann nánasti ráðgjafi varn-
armálaráðherrans á sviði hvers
kyns tækni, fjarskiptatækni,
njósnamála og kjarnorkumála.
William J. Perry tók háskóla-
próf í stærðfræði við Stanford-
háskólann í Paalo Alto í Kalifor-
níu og doktorsgráðu í sömu grein
við Penn State-háskólann. Hann
var um tíma prófessor við verk-
fræðideild Stanford-háskólans
og er félagi í bandarísku vísinda-
akademíunni. Hann hefur verið
heiðraður af opinberri hálfu
bæði í Þýskalandi og Frakklandi.
William J. Perry og kona hans
Lee eiga fimm uppkomin börn,
þijá syni og tvær dætur.