Morgunblaðið - 04.01.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994
13
* ■; ' ■ ' ■ ■
Morgunblaðið/Kristinn
Við afhendingu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins. Jónas Kristjánsson, stjórnarformaður sjóðsins, og
verðlaunahafarnir Ólafur Haukur Símonarson og Guðrún Helgadóttir.
Guðrún og Olafur Haukur
hlutu útvarpsverðlaunin
VINNINGSNÚMER
í Jólahappdrætti
Krabbameinsfélagsins
---- Dregið 24. desember 1993. -
OPEL ASTRA GL: 108385 og 131154
OPEL CORSA GLS:
32214 og 39333
VINNINGAR Á KR. 100.000:
Úttekt hjá BYKO, Heimilistækjum, fataverslun, ferðaskrifstofu eða húsgagnaverslun.
47 16893 .43473 66691 78251 92246 115141 134502
706 21596 44272 67832 80661 93716- 115714 139525
1274 26041 48692 68373 81034 95828 116665 139960
2288 26561 49702 69570 82319 95955 116749 140203
3231 27968 50006 70367 84955 98222 116828 140980
4683 28207 52989 70571 86283 98974 117547 141273
5066 28780 54145 71696 86436 99039 122548 141790
5995 29750 54242 71901 86904 103505 124723 143415
6364 35054 57128 72747 87051 107872 126945 146442
11048 35603 57436 73086 88083 111664 131024 148017
12595 36464 60737 73314 89737 112868 131041 149396
14623 37837 62054 74071 90175 112912 131758 151510
15765 38674 63755 74637 90425 113789 132004 152807
15961 42244 64087 75314 90740 114260 133091 153445
16656 42456 64750 76290 91536 114849 133313 153557
Handhafar vinningsmiða framvisi þeim
á skrifstofu Krabbameinsfélagsins
aö Skógarhliö 8, sími 621414.
Krabbameinsfélagiö
þakkar landsmönnum
veitlan stuöning.
Krabbameinsfélagið
Á GAMLÁRSDAG fór að venju fram úthlutun úr Rithöfundasjóði
Ríkisútvarpsins, að viðstöddum forseta Islands og fleiri gestum.
Styrkinn hlutu tveir rithöfundar á þessu ári, Guðrún Helgadóttir
og Ólafur Haukur Símonarson, og komu 400 þúsund krónur í hvors
hlut. Jónas Kristjánsson, formaður sjóðsstjórnar, gerði grein fyrir
úthlutuninni og sjóðnum, en þetta er í 20. sinn sem kemur í hans
hlut að afhenda þennan styrk.
í ræðu sinni sagði Jónas m.a.
að árlega séu lögð til sjóðsins „rit-
höfundalaun sem Ríkisútvarpinu
ber að greiða höfundum, sam-
kvæmt samningi, en höfundar
finnast ekki að“, og útvarpið bætir
við nokkru framlagi af rekstrarfé
sínu. Dagskrá Ríkisútvarpsins hef-
ur smám saman verið að aukast
og margfaldast síðan þetta ákvæði
var sett fyrir nær fjórum áratugum
og sagði Jónas að hvað sem segja
mætti um sumt af því efni sem
nú dynur í eyrum gegnum útvarp-
ið, þá hafi þessar löngu og marg-
földu dagskrár haft það gott í för
með sér að tekjur sjóðsins hafa
smám saman verið að aukast, því
einlægt fjölgar þeim höfundum
sem eigi finnast þegar inna skal
af höndum skyldar greiðslur fyrir
útvarpsefni. Hin síðari ár hefur
sjóðnum fénast svo vel að hægt
hefur verið að veita tveimur höf-
undum dágóða styrki.
í stuttu samtali sagði Ólafur
Haukur, sem mikið hefur fengist
við leikritaskrif og er nú væntanleg
11. febrúar frumsýning á leikriti
hans Gauragangi, að þörfin á leik-
ritaskrifum hefði aukist mjög með
vaxandi flutningi leiklistar. Til að
mæta þörfinni fyrir íslensk leikrit
þyrftu að koma fram árlega 12
ný leikrit. Og til þess þyrftu að
vera að baki um 30 höfundar að
starfi. Sjálfur kvaðst hann um
þessar mundir vera önnum kafinn
við að fylgjast með og vinna að
Gauragangi í æfingu, en það.er
leikrit með söngvum um ungt fólk
í virku og nánara umhverfi. Næsta
verkefni verður væntanlega skáld-
saga sem hann hefur þegar lagt
drög að.
Guðrún Helgadóttir hefur skrif-
að 15 sérlega góðar og vinsælar
barnabækur, en svo undarlega sem
það kann að hljóma þá hefur hún
ekki áður hlotið viðurkenningu á
íslandi, utan verðlauna Fræðs-
luráðs Reykjavíkur á árinu 1974.
Kvaðst hún því mjög glöð að hljóta
nú þennan styrk úr höfundasjóði
Ríkisútvarpsins. Erlendis hafa
bækur hennar fallið í frjóan jarð-
veg og hlaut hún í fyrra norrænu
barnabókaverðlaunin. Hún hefur
skrifað eitt leikrit, Óvitana, sem
skrifað var eftir pöntun frá Þjóð-
leikhúsinu og flutt 1979 og aftur
1988. En nú er ákveðið að Ovitam-
Nýjar bækur
Islenskar bókmenntir
í enskum þýðingum
NÝLEGA komu út í Bretlandi
fyrstu tvær bækurnar í ritröð
Greyhound Press útgáfufyrir-
tækisins sem ber nafnið Butlers
Wharf Editions og er helguð út-
gáfu á íslenskum bókmenntum í
enskri þýðingu.
Hér er um að ræða bækur ljóð-
skáldanna Lindu Vilhjálmsdóttur
og Siguijóns B. Sigurðssonar, Sjón.
Bókin með ljóðum Lindu er þýdd
af Sigurði A. Magnússyni, en bók
Sjón er þýdd af breska þýðandanum
David McDuff, skáldinu sjálfu og
Hilmari Erni Hilmarssyni.
Á næstunni er væntanleg bók
með ljóðum átta ljóðskálda og hefur
Páll Valsson lektor í Svíþjóð valið
Ijóðin og búið til prentunar, en þýð-
endur eru ýmsir. Skáldin sem hér
um ræðir eru Gyrðir Elíasson, Sig-
fús Bjartmarsson, Kristín Ómars-
dóttir, Einar Már Guðmundsson,
Bragi Ólafsson, Elísabet Jökuls-
dóttir, Linda Vilhjálmsdóttir og
Sjón.
Þá ráðgerir Greyhound Press
útgáfu á íslenskum skáldsögum á
næstu misserum, en það er fyrir-
tæki Password Distribution sem sér
um dreifingu í Evrópu.
ir verði settir upp í Noregi og flutt-
ir um næstu jól í Þrándheimi.
ÍSLENSKUR
LANDBÚNAÐUR
Til móts
við framtíðina
Opinn frœðslufundur um möguleika íslenskra
matvœla á vistvœnum og lífrœnum mörkuðum
Laugardaginn 8. janúar nk. gengst sérstakur starfshópur Bændasamtakanna, sem kannar markaðsmögu-
leika íslenskra matvæla á forsendum hollustu, hreinleika og gæða, fyrir opnum fræðslufundi á Hótel Sögu.
Gestur fundarins verður Carl Haest, sérfræðingur í markaðssetningu lífrænna og vistvænna afurða í Evrópu,
Ameríku og Asíu. Á fúndinum mun Carl Haest flytja fjögur stutt erindi og svara fyrirspumum á milh erinda.
Dagskrá
08.45 Innritun.
09-15 Setning: Jón Helgason, formaður Búnaðarfélags íslands.
Ávarp: Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra.
09.30 Vistvænn landbúnaður, krafa heilbrigðrar skynsemi - lífrænn landbúnaður
frá félagslegu, menningarlegu, vistfræðilegu og efnahagslegu sjónarhomi.
10.30 Kaffihlé.
10.45 Þróun vistvæna og lífræna markaðarins úr sérhæfðum í almennan rnarkað
- hvað er rétt og rangt um þennan hraðvaxandi markað.
12.15 Hádegisverður.
13.15 Skipulagning eftirlits og vottunar - uppbygging eftirlitskerfa, lagaleg atriði.
14.30 Kaffihlé.
15.00 Einstæðir möguleikar íslands - að skipuleggja vistvænan markað heima og heiman.
16.15 Lokaorð: Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda.
Fundarstjórar: Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra og Þorsteinn Tómasson,
forstjóri RALA. Carl Haest flytur erindin á ensku og verða þau þýdd jafhóðum fyrir þá sem vilja.
Þátttökugjald er kr. 1.900, innifalið kaffi og hádegisverður.
Skráning þátttöku er í síma 630300 til 7. janúar nk.