Morgunblaðið - 04.01.1994, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994
ATVIN N1MAUGL YSINGA R
Sölumaður
Óskum að ráða sjálfstæðan og söluglaðan
starfskraft í verslun okkar með leikfimifatn-
að. Vinnutími kl. 16-20 mánud. til föstud.
Umsóknareyðublöð á staðnum.
ÁGÚSTUOG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 FSEYKJAVÍK S. 68 98 68
Þroskaþjálfar
Deildarstjórastaða á sambýliseiningu endur-
hæfingar- og hæfingardeildar Landspítalans
í Kópavogi er laus frá og með 1. janúar 1994.
Á heimilinu búa 6 einstaklingar. Við leitum
að framsýnum þroskaþjálfum sem eru tilbún-
ir að leggja okkur lið við þau verkefni sem
eru fyrirhuguð í nánustu framtíð.
Nánari upplýsingar veita Sigríður Harðar-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, og Hulda
Harðardóttir, yfirþroskaþjálfi, í síma 602700.
Ferðaskrifstofa
f Stokkhólmi
Islandsresor í Stokkhólmi óskar eftir að ráða
starfsmann í farmiðútgáfu og sölu á ferðum
til íslands. Ráðningartími frá 1. mars.
Viðkomandi þarf að hafa lATA-próf og minnst
tveggja ára reynslu og hafa staðgóða kunn-
áttu um ísland.
Við bjóðum þér áhugavert starf í örvandi
vinnuumhverfi.
Sendið bréf eða faxið í síðasta lagi fyrir
10. janúar 1994 til:
Islandsresor,
Söderhallarna 131, 104 72 Stockholm,
fax 90 46 8 640 70 71.
Flutningaþjónusta
Fyrirtæki á sviði flutningaþjónustu óskar
að ráða starfsmenn.
Sölumaður (273)
Starfssvið sölumanns: Almenn tilboðs- og
samningagerð við fyrirtæki, skipulagning
heimsókna og gerð markaðs- og söluáætl-
ana. Dagleg sala og þjónusta við viðskipta-
vini.
Við leitum að manni með reynslu af sölu-
störfum og með góð tengsl í viðskiptalífinu.
Viðkomandi þarf að hafa frumkvæði, geta
starfað sjálfstætt og skipulega við sölu-
mennsku. Sölumaður þarf að hafa vald á
ensku og helst einu Norðurlandamáli. Einnig
er æskilegt að þekking eða reynsla sé fyrir
hendi á flutningamálum almennt.
Fulltrúi (366)
Starfssvið fulltrúa: Dagleg innheimtustörf.
Samningagerð. Skipulagning og framkvæmd
innheimtuaðgerða. Samskipti við lögfræð-
inga. Upplýsingamiðlun og skýrslugerð.
Við leitum að manni með viðskipta/lögfræði-
menntun eða með reynslu af störfum við
innheimtu. Gerð er krafa um traust, heiðar-
leika og sjálfstæð vinnubrögð.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar
númeri viðkomandi starfs, fyrir 11. janúar nk.
Hagva ngurhf
C—7 Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Laust embætti
héraðsdýralæknis
Embætti héraðsdýralæknis í Austur-Eyja-
fjarðarumdæmi er laust til umsóknar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist landbúnaðarráðuneyt-
ingu, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík, fyrir
1. febrúar 1994.
Landbúnaðarráðuneytið,
30. desember 1993.
Skipstjóri
á frystitogara
Grandi hf. auglýsir eftir skipstjóra á frystitog-
arann Snorra Sturluson, sem gerður verður
út til veiða utan 200 sjómílna fiskveiðilög-
sögu íslands.
Umsóknir sendist til útgerðarstjóra Granda hf.
fyrir 7. janúar nk.
BORGARSPÍTALINN
Hjúkrunarfræðingar
Á Borgarspítalanum eru lausar stöður hjúkr-
unarfræðinga á nokkrum deildum. Á spítal-
anum vinnur stór hópur hjúkrunarfræðinga,
sem leggur metnað sinn í að veita sem besta
hjúkrun. Mikið er lagt upp úr góðri sam-
vinnu, tækifærum til símenntunar og þróun
hjúkrunar.
Möguleiki er á barnaheimilisplássi.
Nánari upplýsingar veitir Erna Einarsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri starfsmanna-
þjónustu, í síma 696356.
Skurðlækningadeildir
Ákveðið hefur verið að auka aftur starfsemi
skurðlækningadeilda Borgarspítalans frá og
með 10. janúar 1994. Okkur vantar hjúkrunar-
fræðinga til að taka þátt í áhugaverðri upp-
byggingu hjúkrunar á deildunum. Eftirtaldar
sérgreinar eru á skurðlækningadeildum:
Almennar skurðlækningar.
Slysa- og bæklunarlækningar.
Háls-, nef-, og eyrnalækningar.
Heila- og taugaskurðlækningar.
Þvagfæraskurðlækningar.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Tómas-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
696364.
Lyflækningadeild
Á lyflækningadeild A-6 eru lausar stöður
hjúkrunarfræðinga. Á deildinni fer fram hjúkr-
un sjúklinga með meltingar- og innkirtlasjúk-
dóma, nýrnasjúkdóma og lungnasjúkdóma.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Björns-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
696354.
Öldrunarlækningadeildir
Á deild B-4, sem er öldrunarlækningadeild
með lyflækningarog bæklunarskurðlækning-
ar sem sérgreinar, eru lausar stöður hjúkrun-
arfræðinga nú þegar.
Starfshlutfall samkomulagsatriði.
Á deild B-5 eru lausar stöður hjúkrunarfræð-
inga nú þegar.
Starfshlutfall samkomulagsatriði.
Sjúkraliðar
Á deildum B-4 og B-5 eru lausar stöður sjúkra-
liða nú þegar.
Starfshlutfall samkomulagsatriði.
Nánari upplýsingar veitir Anna Birna Jens-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
í síma 696358.
Fyrirtæki og
stofnanir ath.
Tek að mér ritvinnslu skjala og handrita í heima-
vinnu eða íhlaupavinnu. Skjót og góð þjónusta.
Uppl. í síma 39476. Geymið auglýsinguna.
íp
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun
óskast til starfa á neðangreindan leikskóla:
Rofaborg v/Skólabæ, s. 672290.
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi
leikskólastjóri.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
RÍKISSPÍTALAR
Reyklaus vinnustaður
GEÐDEILD LANDSPITALANS
Fulltrúi
óskast sem fyrst á skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra geðdeildar Landspítalans á Kleppi.
Um er að ræða fullt starf sem m.a. er fólgið
í starfsmannabókhaldi, ritvinnslu o.fl. Mennt-
unarkröfur stúdentspróf eða sambærileg
menntun.
Upplýsingar gefur Ragnheiður Jónsdóttir,
skrifstofustjóri, í síma 602641.
Staða hjúkrunarfræðings
í vaktavinnu við áfengisdeildina á Vífilsstöð-
um er laus til umsóknar. Góð vinnuaðstaða
og góður starfsandi við skapandi störf.
Fræðsla og aðlögunartími eru í boði.
Upplýsingar veitir Jóhanna Stefánsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í símum
602890, 602600 eða 601750.
HANDLÆKNINGADEILD 3 (11-G)
Lausar eru tvær stöður hjúkrunarfræðinga
frá áramótum og tvær frá 1. mars 1994.
Handlækningadeild 3 er brjóstholsaðgerða-
deild sem er í örri þróun m.a. vegna fjölgun-
ar hjartaaðgerða hér á landi.
Byrjað var með einstaklingshæfða hjúkrun
um miðjan september sl.
Haldin hafa verið námskeið fyrir nýtt starfs-
fólk í hjúkrun hjarta- og lungnasjúklinga með
góðum árangri og mun það verða endurtek-
ið í mars. Námskeiðið samanstendur af
markvissri aðlögun með leiðsögn reyndra
hjúkrunarfræðinga. Jafnframt eru fyrirlestrar
einn eftirmiðdag í viku í 6 vikur.
Nánari upplýsingar veita Steinunn Ingvars-
dóttir, hjúkrunardeildarstjóri, í síma 601340
og Ánna Stefánsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 601300.
BRAÐAMOTTAKA
Vegna aukinnar starfsemi óskum við eftir
hjúkrunarfræðingi á næturvaktir. Starfshlut-
fall og ráðning samkomulagsatriði.
Nánari upplýsingar gefa Gyða Baldursdóttir,
hjúkrunardeildarstjóri, sími 601010 eða
Lovísa Baldursdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 601000.
RÍKISSPÍT ALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaöur á íslandi meö starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sór fyrir markvissri
meðferö sjúkra, fræðslu heilbrigöisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferö allra þeirra, sem viö störfum fyrir og með,
og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguö þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni aö leiðarljósi.