Morgunblaðið - 04.01.1994, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994
51
Kaupmannahafnarskrifstofuna til
dauðadags. Meðan menningarmála-
skrifstofan var við lýði hafði hann
þar sem skrifstofustjóri - um skeið
einnig aðstoðarforstjóri - einkum
stjórnsýsluverkefni með höndum.
Skipulagshæfileikar hans komu m.a.
að notum við tölvuvæðingu skrifstof-
unnar og mótun hagkvæms skjala-
vörslukerfis. Eftir að báðar skrifstof-
ur Ráðherranefndarinnar voru sam-
einaðar í Kaupmannahöfn árið 1985
varð Ove Stenroth sviðsstjóri í hinni
nýju skrifstofu. Seinna annaðist
hann þar m.a. stjómsýsluumsjón
norrænna styrkjakerfa, þar á meðal
Norræna menningarsjóðsins.
Skömmu áður en hann lést hafði
ráðningarsamningur hans verið end-
urnýjaður til langs tíma, og var hon-
um það mikið fagnaðarefni.
Ove Stenroth hafði mikinn áhuga
á listum. Á æskuárum beindist sá
áhugi framar öðru að kvikmyndum
og myndlist - hann skrifaði hluta-
prófsritgerð um franska impressjón-
ismann - og hann var snjall teikn-
ari. Seinna tengdist þessu vaxandi
áhugi á sígildri tónlist, m.a. óperum.
í störfum sínum einkenndist hann
af áreiðanleika, hraðvirkni, kunnáttu
og iðni. Hann gat þó ef þörf krafði
sagt meiningu sína umbúðalaust og
einnig reiðst ef hann varð var við
subbuhátt eða - sér í lagi - yfir svik-
semi, hræsni og yfirgangi. Þeir sem
þekktu hann muna hann umfram
allt sem hógværan, minnugan og
tryggan vin, gæddan hljóðlátu skop-
skyni.
Dag Lindberg.
ÞorgerðurB.
Guðlaugsdóttir
frá Ásholti,
Skagaströnd
Fædd 24. júní 1937
Dáin 21. desember 1993
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Og kallið kom, þegar kær vin-
kona mín, Þorgerður B. Guðlaugs-
dóttir, var kölluð burt 21. desember
sl.
Gerða, eins og hún var alltaf
kölluð, var heilsteypt kona, og hún
var dugleg kona. Hún var trygglynd
og kát, og hafði smitandi og
skemmtilegan hlátur, þannig að
ekki var hægt annað en hlæja með
henni. Hjá henni var alltaf nota-
legt, og gott var að umgangast
hana.
Hún átti því láni að fagna að
eignst góðan eiginmann, Óskar
Axelsson, og eignuðust þau sjö
börn. Hún bjó fjölskyldu sinni nota-
legt heimili, þar sem var gott að
koma.
Þetta eru bara örfá orð frá mér,
ég læt aðra, sem betur eru til þess
fallnir, um rekja ættir Gerðu.
Elsku Óskar, börn, barnabörn og
aðrir ættingjar, Guð gefi ykkur
styrk í ykkar miklu sorg.
Kæra vinkona, ég þakka sam-
fylgdina í .þessu lífi.
Helga Hermaimsdóttiv.
KRIPALUJÓGA
^ieéíie^t ósif
Hefjið nýja árið á jóga. Kripalujóga er líkamleg og andleg
iðkun. Byrjendanámskeið hefjast 10. janúar. Kenndar verða
teygjur, öndunartækni og slökun. Framhaldsnámskeið hefst
6. janúar. Jógatímar fyrir eldri borgara hefjast mánudaginn
10. janúarkl. 10.30.
Verið velkomin á kynningu laugardaginn 8. janúar kl. 14.00.
iogastöðin Hcimsljós skeifunm 19,2. hæð, s. 079181 («. 17-19).
ríUDDSKÓLI RAFNS QEIRDALS
NUDDNÁM
1V2 árs nám hefst 10. janúar nk.
Hægt er að velja um dagnám eða kvöldnám.
Upplýsingarog skráning í símum 676612/686612
alla virka daga.
Smiðshöfða 10,112 Reykjavík.
MA305 er fullkomin lausn fyrir rekstraraðila sem gera
kröfur um ódýran og einfaldan búnað.
Verð aöeins kr. 41.900,- stgr m/Vsk.
MA305 er til afgreiðslu nú þegar!
VERSLUNAREIGENDUR ATHUGIÐ!
ER VASKUR
í VANDA7
Ert þú tilbúinn fyrir tvö viröisaukaskattþrep?
MA305 SJÓÐSVÉLIN
FRÁ TEC ER LAUSNIN!
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665
HafiA samband vió ráögjafa okkar nú þegai
og kynntum okkur það nýjasta sem er að gerast í ætingasölum þar
Þessar nýjungar œtlum við uð kynnu viðskiptavinum okkar strux ú nýju ári
Komdu eða hringdu í síma: 91 -16670 og fáðu nánari upplýsingar
Við óskum öllum
landsmönnum gleði og
farsældar á komandi ári og
þökkum fýrir það liðna.