Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994
55
helst að hafa ekki sett okkur betur
inn í blómaskeið afa sem ungs sjó-
manns, skipstjóra og útgerðarmanns.
En árin voru mörg og minningin um
merkan mann lifir.
Nú er afi kominn á fund Þóru
ömmu á ný.
Hjúkru'narfólki á Hrafnistu, svo
og samferðamönnum afa þar kunn-
um við bestu þakkir.
Blessuð sé minning afa okkar,
Steina Júlla.
Guðlaug, Þóra, Ragna
og Björg Ársælsdætur.
Okkur systurnar langar til að
kveðja elsku afa okkar með þessu
erindi:
Er lokast brá og lýkur dagsins önn
er ljúft að hvílast þétt við jarðarskaut.
Þín hönd er köld og hjartað hætt að slá
En hugsunin var djörf og ávallt sönn.
Autt er rúm þitt, afi farinn veg
eftir sitjum við nú hljóð og dapurleg.
(Ingólfur Þórarinsson)
Ingunn, Þórunn og Stein-
unn Ásgeirsdætur.
Steini var mjög áhugasamur um allt
sem við kom vélum og tækjum og
allri smíði, hann var mjög laginn við
allt sem hann tók sér fyrir hendur
og gaf sér jafnan góðan tíma til að
nostra við hlutina og ekkert lét hann
frá sér -fara fyrr en fullkomið var.
Athygli vakti hvað hann var nýtinn
á alla hluti og fór vel með öll verk-
færi og efni sem hann notaði, allt
skyldi vera í röð og reglu og aldrei
var verk búið fyrr en búið var að
ganga frá öllu sem notað var til
verksins. Steini var sérstaklega sam-
viskusamur og nákvæmur í öllu sem
hann gerði, hjálpsamur og tillögu-
góður og var gott að hafa hann í
návist sinni. Nú er komið að leiðar-
lokum, Þorsteinn Júlíusson hefur
kvatt þetta jarðlíf, vil ég þakka hon-
um samfylgdina, hafi hann þökk fyr-
ir allt.
Stefán Jónsson.
MALASKOLI
§26908
Danska, sænska, enska, þýska, franska, spænska, rússneska og íslenska.
Innritun daglega frá kl. 13—19.
Kennsla hefst 17. janúar.
Starfsmenntunarsjóðir ýmissa starfsmannafélaga greiða skólagjöld félagsmanna
fullu og Verslunarmannafélag Reykjavíkur veitir sínum mönnum námsstyrk.
Kennslan fer fram í Miðstræti 7.
HALLDORS
26908
• •
Mér er ávallt minnisstætt hvað
það fiskaðist vel á Björninn, þegar
við bræðurnir keyptum nýja Kelvin-
vél í bátinn 1940, sem þótti á þeim
tíma töluvert átak. Svo vel tókst til
að Björninn sem var á vertíð á Horna-
fírði kom heim á Norðfjörð um páska.
Svo var haldið til veiða og langaði
Þorstein að reyna nýja snurvoð (svo-
kallaða Beggavoð) sem Beggi vinur
hans hafði búið til ásamt Þorsteini.
Þetta var reynt í Loðmundarfírði og
tókst svo vel að báturinn var fylltur
daglega í 7-8 daga. Sá ég um lönd-
um í færeyskar skútur sem sigldu
með aflann til Englands. Þetta gekk
vonum framar og aflaðist fyrir vél-
inni á þessum dögum.
Ég mun minnast þín, elsku bróðir,
hvíldu í friði, friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þinn bróðir,
Ársæll.
Elsku langafi minn.
Mig langar til að kveðja þig með
nokkrum orðum. Ég kom síðast að
heimsækja þig á Hrafnistu á Þorláks-
messukvöld til að óska þér gleðilegra
jóla og gefa þér einn jólakoss. Á leið-
inni til þín sofnaði ég því ég var svo
þreyttur, þannig að ég kom til þín
og fór aftur sofandi. Við sváfum
báðir vært, en þú vaknaðir skarrtma
stund svo að mamma og pabbi gátu
óskað þér gleðlegra jóla. Á meðan
svaf ég í hjólastólnum þínum og þau
létu þig vita af því.
Á jóladagsmorgun sagði mamma
mér að nú gætum við aldrei aftur
farið að heimsækja langafa því að
nú væri langafi dáinn og færi nú til
Guðs. Ég er of lítill til að skilja þetta
alveg en ég veit að þú sefur vært
eins og Þyrnirós gerði og ert kominn
til hennar langömmu og Guð geymir
ykkur á himninum.
Ég mun geyma afmælisdaginn
okkar vel um ókomin ár og minnast
þín.
Hin glaða hátíð blóm sín bindi
í besta kransinn handa þér,
og æska, fegurð, fjör og yndi
þig fái í jólaleik með sér;
og ef þú stjömur átt að telja,
þá óska ég þú mætir tveim,
sem hugur þinn og hjarta velja,
og haldir jól í ljóma þeim.
(Þorsteinn Erlingsson)
Þinn vinur og nafni,
Þorsteinn Andri.
Góður vinur, Þorsteinn Júlíusson,
lést að Hrafnistu 25. des. sl. 88 ára
að aldri. Mig langar að kveðja góðan
vin með örfáum orðum. Steini, eins
og við vorum vön að kalla hann í
daglegu lífí, fluttist til Reykjavíkur
ásamt konu sinni, Þóru, fyrir um 30
árum frá Neskaupstað. Þar höfðu
þeir bræður Þorsteinn og Ársæll
stundað útgerð um margra ára skeið.
Fróðlegt var að heyra Steina segja
frá lífínu hér áður fyrr þegar þeir
bræður stunduðu útgerð sína og
margar sögumar gat hann sagt
manni frá þeim tíma því Steini hafði
gott minni og sagði mjög nákvæm-
lega frá öllu, þannig að heill fróðleik-
ur var á að hlusta. Eftir að þau hjón
fluttu til Reykjavíkur urðu samskipt-
in meiri, sérstaklega hin síðari ár
þegar aldurinn færðist yfir.
Eg átti því láni að fagna að geta
átt samverustundir með Steina á
vinnustað mínum um nokkurt skeið.
BRÉFABINDI
★ ELBA RADO brólabindi 15 gerðir.
★ ELBA RADO plastbréfabindi 4 stæröir.
SJÓÐBÆKUR MEÐ OG ÁN BANKA-
REIKNINGS.
VÖRUTALNINGABÆKUR EINRIT
OG TVÍRIT
KASSAUPPGJÖR.
STAÐGREIÐSLUSÖLULISTAR
REIKNINGAR A4. A5. A6. A7
REIKNINGAR A5. TVlRIT OG ÞRlRIT.
UMSLÖG.
ÁRTALAMIÐAR 1994-1993
KJÖLMIÐAR mjóir og breiðir.
MILLIBLÖÐ I bréfabindi:
1-5 1-15 1-52
1-6 1-20 A-Ö
1-10 1-31 jan. - des.
GATAPOKAR,,* PLASTMÖPPUR
GEYMSLUKASSAR.
DISKLINGAR 3,5" - 5,25“
DISKLINGAGEYMSLUR
TÖLVUPAPPÍR
MÖPPUR FYRIR TÖLVUPAPPIR,
LÍMMIÐAR FYRIR TÖLVU-
PRENTARA.
★ SKRIFBLOKKIR ★ DÁLKAPAPPIR
★ SKÝRSLUBLOKKIR ★ BÓKHALDS-
BÆKUR * MILLIMETRAPAPPÍR
★ RISSBLOKKIR ★ FUNDARGERÐA-
BÆKUR ★ VÉLRITUNARPAPPÍR
★ UÓSRITUNARPAPPÍR ★ REIKNI-
VÉLARtJLLUR ★ BÚÐARKASSARÚLL*
UR★ SKILABOÐA- OG MINNISBLOKKIR
★ GULIR MINNISMIÐAR MEÐ LÍMI
★ BORÐMOTTUR ★ BRÉFAKÖRFUR
★ HEFTARAR ★ PENNASTATÍF,
★ BRÉFABAKKAR ★ BRÉFABAKKA-
SAMSTÆÐUR ★ TÍMARITABOX.
★ VERÐLISTAMÖPPUR
★ SÍMASKRÁ o.fl.
★ KULUPENNAR ★ KULUTUSS-
PENNAR ★ TÚSSPENNAR ★ BLÝ-
ANTAR ★ FALLBLÝANTAR ★ MERKI-
PENNAR ★ ÁHERSLUPENNAR ★
BRÉFAKLEMMUR ★ BRÉFAPRJÓN-
AR ★ LEIÐRÉTTINGALAKK ★ LEIÐ-
RÉTTINGABORÐAR ★ STIMPLAR ★
STIMPILPÚÐAR ★ SKÆRI ★ REGLU-
STIKUR ★ LÍM ★ LÍMBÖND.