Morgunblaðið - 06.01.1994, Page 11

Morgunblaðið - 06.01.1994, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994 11 Tríó Reykjavíkur Verk eftir Beethoven og Messiaen í Víðistaðakirkju MIKHALKOV- KVIKMYNDIR KVIKMYNDASÝNINGAR hefjast að nýju eftir jólaleyfi í bíósaln- um, Vatnsstíg 10, sunnudaginn 9. janúar kl. 16. í janúarmánuði verða sýndar fjórar kvikmyndir, sem allar tengjast leikaranum og leikstjóranum Nikita Mikhalkov. Hann hefur um árabil verið einn kunnasti kvikmyndagerðarmaður heims og myndir hans far- ið víða og hlotið margvíslega viðurkenningu. Á síðustu kvikmynda- hátíð í Reykjavík var ein af síðustu myndum hans, Úrga, sýnd við setningu hátíðarinnar. TRÍÓ Reykjavíkur verður með tónleika í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði sunnudaginn 9. jan- úar klukkan 20. Gestur á tón- leikunum verður Osmo Vanska aðalstjórnandi Sinfóníuhljóm- sveitar íslands. Þetta eru þriðju tónleikar af fjórum í tónleikaröð Tríós Reykja- víkur og Hafnarborgar, menning- ar- og listastofnunar Hafnarfjarð- Geoffrey Hendricks er fæddur í New Hampshire í Bandaríkjunum árið 1931 og hlaut listmenntun í nokkrum háskólum, m.a. Cooper Union og Columbia, þaðan sem hann útskrifaðist með masters- gráðu árið 1962. Á ferli sínum hefur hann haldið um 30 einkasýningar um allan heim, m.a. á Nýlistasafninu 1984. Hann hefur einnig tekið þátt í fjöl- mörgum samsýningum, gerning- um og umhverfislist og gefið út rit, bækur og myndbönd. Geoffrey varð einn af meðlimum ar, en vegna viðgerðar á safninu fara tónleikarnir fram í Víðistaða- kirkju. Osmo Vánská mun leika á klarinett í Kvartett um endalok tímans eftir Olivier Messiaen. Einnig verður flutt tríó í Es dúr óp. 72 nr. 2 eftir Beethoven. Tríó Reykjavíkur skipa Guðný Guð- mundsdóttir fiðluleikari, Gunnar Kvaran sellóleikari og Halldór Haraldsson píanóleikari. FLUXUS-hreyfingarinnar í Bandaríkjunum og Evrópu frá miðjum sjöunda áratugnum og hefur síðan starfað í þeim félags- skap. Sýningin „Day into night“ er nokkurs konar yfirlitssýning á verkum Geoffreys frá þeim tíma til dagsins í dag og sem slík nær hún yfir sýningarskrána, málverk, muni, innsetningar og gerninga. í kynningu frá Kjarvalsstöðum segir: „Verk hans eru síst af öllu einföld því í augum hans er heim- urinn flókinn og margræður og Morgunblaðið/Arni Sæberg Osmo Vanska. sem listamaður og einstaklingur tekur hann ávalit réttu og nauð- synlegu leiðina fram yfir þá sem er styst og auðveldust. Þau eru á margan hátt leið hans til að kanna samspil sjálfsmyndarinnar og hins rnikla leyndardóms tilverunnar." í stórum hluta verka sinna er Geoffrey Hendricks að fást við himininn og hefur hann verið upp- tekinn af honum meira eða minna í 30 ár. Til að byrja með málaði hann gjarnan himin á fundna hluti svo sem skó eða stóla en síðar meir hefur hann málað málverk af himnum á striga. Verkin hafa yfir sér raunsæi, en eru listamann- inum leið til að fjalla um heiminn, náttúruöflin og hringrás náttúr- unnar. Það sem venjulega er í bakgrunni er sett í forgrunn. „Hugtök eins og margbreyti- leiki“ og „margföld lagskipting“ koma gjarnan upp í hugann þegar verk hans eru skoðuð en að auki hugtök eins og „umsköpun" og „hamskipti“,“ segir einnig í kynn- ingu. Sýningin er opin daglega frá kl. 10-18 og stendur til sunnu- dagsins 13. febrúar. Þessar Mikhalkov-myndir verða sýndar í janúar: Sunnudaginn 9. janúar kl. 16: Einn á meðal ókunn- ugra, ókunnugur okkar á meðal, fyrsta kvikmyndin sem Nikita leik- stýrði. * Sunnudaginn 16. janúar kl. 16: Ófullgeit verk fyrir sjálfspilandi píanó — mynd gerð í leikstjórn Mikhalkovs, byggð á verkum Tsjek- hovs, rómuð kvikmynd. Sunnudaginn 23. janúar kl. 16: Grimmileg ástarsaga — leikstjóri Eldar Rjazanov, meðal leikenda N. Mikhalkov. Sunnudaginn 30. janúar kl. 16: Brautarstöð fyrir tvo — leikstjóri Rjazanov og Mikhalkov meðai leik- enda. í febrúarmánuði verða sýndar þijár rússneskar kvikmyndir sem allar eru byggðar á verkum eftir William Shakespeare. Sunnudaginn 6. febrúar kl. 16: Þréttándakvöld — mynd frá 1955, leikstjóri Júríj Fried, tónlist eftir -Zhivotov. Sunnudaginn 13. febrúar kl. 16: Óþelló — mynd frá 1955, leikstjóri Sergei Jútkevitsj, tónlist eftir Aram Khatsatúijan. Sunnudaginn 20. febrúar kl. 16: Hamlet — mynd frá 1964, leik- stjóri Grígoríj Kozintsév, tónlist eftir Dmitri Shostakovitsj. Loks er að geta árlegs viðburðar í bíósalnum, Vatnsstíg 10, sem er „maraþonsýning“ á einhverri lengstu og íburðarmestu kvikmynd, sem nokkru sinni hefur verið gerð, Stríði og friði, sem byggð er á sam- nefndri skáldsögu Lévs Tolstojs. Kvikmyndin verður sýnd laugar- daginn 26. febrúar og hefst sýning hennar kl. 10 að morgni og lýkur um kl. 18.40. Myndin er í 4 hlutum og verða kaffihlé milli 1. og 2. hluta og 3. og 4. hluta og matarhlé milli 2. og 3. hluta. Aðgangur aðeins gegn framvísun aðgöngumiða (matarmiða) sem seldir verða fyrir- fram, á sunnudagssýningunum í janúar og febrúar. Farandsýning á Kjarvalsstöðum Sýning á verkum eftir Geoffrey Hendricks Á KJARVALSSTÖÐUM verður opnuð sýning á verkum eftir Geof- frey Hendricks laugardaginn 8. janúar kl. 16. Sýning þessi nefn- ist „Day into night“, er farandsýning og kemur frá Oðinsvéum en fer svo áfram til Finnlands, Póllands og Noregs síðar á árinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.