Morgunblaðið - 06.01.1994, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994
11
Tríó Reykjavíkur
Verk eftir Beethoven og
Messiaen í Víðistaðakirkju
MIKHALKOV-
KVIKMYNDIR
KVIKMYNDASÝNINGAR hefjast að nýju eftir jólaleyfi í bíósaln-
um, Vatnsstíg 10, sunnudaginn 9. janúar kl. 16. í janúarmánuði
verða sýndar fjórar kvikmyndir, sem allar tengjast leikaranum
og leikstjóranum Nikita Mikhalkov. Hann hefur um árabil verið
einn kunnasti kvikmyndagerðarmaður heims og myndir hans far-
ið víða og hlotið margvíslega viðurkenningu. Á síðustu kvikmynda-
hátíð í Reykjavík var ein af síðustu myndum hans, Úrga, sýnd við
setningu hátíðarinnar.
TRÍÓ Reykjavíkur verður með
tónleika í Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði sunnudaginn 9. jan-
úar klukkan 20. Gestur á tón-
leikunum verður Osmo Vanska
aðalstjórnandi Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands.
Þetta eru þriðju tónleikar af
fjórum í tónleikaröð Tríós Reykja-
víkur og Hafnarborgar, menning-
ar- og listastofnunar Hafnarfjarð-
Geoffrey Hendricks er fæddur
í New Hampshire í Bandaríkjunum
árið 1931 og hlaut listmenntun í
nokkrum háskólum, m.a. Cooper
Union og Columbia, þaðan sem
hann útskrifaðist með masters-
gráðu árið 1962.
Á ferli sínum hefur hann haldið
um 30 einkasýningar um allan
heim, m.a. á Nýlistasafninu 1984.
Hann hefur einnig tekið þátt í fjöl-
mörgum samsýningum, gerning-
um og umhverfislist og gefið út
rit, bækur og myndbönd.
Geoffrey varð einn af meðlimum
ar, en vegna viðgerðar á safninu
fara tónleikarnir fram í Víðistaða-
kirkju. Osmo Vánská mun leika á
klarinett í Kvartett um endalok
tímans eftir Olivier Messiaen.
Einnig verður flutt tríó í Es dúr
óp. 72 nr. 2 eftir Beethoven. Tríó
Reykjavíkur skipa Guðný Guð-
mundsdóttir fiðluleikari, Gunnar
Kvaran sellóleikari og Halldór
Haraldsson píanóleikari.
FLUXUS-hreyfingarinnar í
Bandaríkjunum og Evrópu frá
miðjum sjöunda áratugnum og
hefur síðan starfað í þeim félags-
skap.
Sýningin „Day into night“ er
nokkurs konar yfirlitssýning á
verkum Geoffreys frá þeim tíma
til dagsins í dag og sem slík nær
hún yfir sýningarskrána, málverk,
muni, innsetningar og gerninga.
í kynningu frá Kjarvalsstöðum
segir: „Verk hans eru síst af öllu
einföld því í augum hans er heim-
urinn flókinn og margræður og
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Osmo Vanska.
sem listamaður og einstaklingur
tekur hann ávalit réttu og nauð-
synlegu leiðina fram yfir þá sem
er styst og auðveldust. Þau eru á
margan hátt leið hans til að kanna
samspil sjálfsmyndarinnar og hins
rnikla leyndardóms tilverunnar."
í stórum hluta verka sinna er
Geoffrey Hendricks að fást við
himininn og hefur hann verið upp-
tekinn af honum meira eða minna
í 30 ár. Til að byrja með málaði
hann gjarnan himin á fundna hluti
svo sem skó eða stóla en síðar
meir hefur hann málað málverk
af himnum á striga. Verkin hafa
yfir sér raunsæi, en eru listamann-
inum leið til að fjalla um heiminn,
náttúruöflin og hringrás náttúr-
unnar. Það sem venjulega er í
bakgrunni er sett í forgrunn.
„Hugtök eins og margbreyti-
leiki“ og „margföld lagskipting“
koma gjarnan upp í hugann þegar
verk hans eru skoðuð en að auki
hugtök eins og „umsköpun" og
„hamskipti“,“ segir einnig í kynn-
ingu.
Sýningin er opin daglega frá
kl. 10-18 og stendur til sunnu-
dagsins 13. febrúar.
Þessar Mikhalkov-myndir verða
sýndar í janúar: Sunnudaginn 9.
janúar kl. 16: Einn á meðal ókunn-
ugra, ókunnugur okkar á meðal,
fyrsta kvikmyndin sem Nikita leik-
stýrði. *
Sunnudaginn 16. janúar kl. 16:
Ófullgeit verk fyrir sjálfspilandi
píanó — mynd gerð í leikstjórn
Mikhalkovs, byggð á verkum Tsjek-
hovs, rómuð kvikmynd.
Sunnudaginn 23. janúar kl. 16:
Grimmileg ástarsaga — leikstjóri
Eldar Rjazanov, meðal leikenda
N. Mikhalkov.
Sunnudaginn 30. janúar kl. 16:
Brautarstöð fyrir tvo — leikstjóri
Rjazanov og Mikhalkov meðai leik-
enda.
í febrúarmánuði verða sýndar
þijár rússneskar kvikmyndir sem
allar eru byggðar á verkum eftir
William Shakespeare.
Sunnudaginn 6. febrúar kl. 16:
Þréttándakvöld — mynd frá 1955,
leikstjóri Júríj Fried, tónlist eftir
-Zhivotov.
Sunnudaginn 13. febrúar kl. 16:
Óþelló — mynd frá 1955, leikstjóri
Sergei Jútkevitsj, tónlist eftir Aram
Khatsatúijan.
Sunnudaginn 20. febrúar kl. 16:
Hamlet — mynd frá 1964, leik-
stjóri Grígoríj Kozintsév, tónlist
eftir Dmitri Shostakovitsj.
Loks er að geta árlegs viðburðar
í bíósalnum, Vatnsstíg 10, sem er
„maraþonsýning“ á einhverri
lengstu og íburðarmestu kvikmynd,
sem nokkru sinni hefur verið gerð,
Stríði og friði, sem byggð er á sam-
nefndri skáldsögu Lévs Tolstojs.
Kvikmyndin verður sýnd laugar-
daginn 26. febrúar og hefst sýning
hennar kl. 10 að morgni og lýkur
um kl. 18.40. Myndin er í 4 hlutum
og verða kaffihlé milli 1. og 2. hluta
og 3. og 4. hluta og matarhlé milli
2. og 3. hluta. Aðgangur aðeins
gegn framvísun aðgöngumiða
(matarmiða) sem seldir verða fyrir-
fram, á sunnudagssýningunum í
janúar og febrúar.
Farandsýning á
Kjarvalsstöðum
Sýning á verkum eftir Geoffrey Hendricks
Á KJARVALSSTÖÐUM verður opnuð sýning á verkum eftir Geof-
frey Hendricks laugardaginn 8. janúar kl. 16. Sýning þessi nefn-
ist „Day into night“, er farandsýning og kemur frá Oðinsvéum
en fer svo áfram til Finnlands, Póllands og Noregs síðar á árinu.