Morgunblaðið - 06.01.1994, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994
Óvenju fá útköll hjá Slökkviliðinu
Engin stórbruni
í 67 útköllum og
ekkert mannljón
ÓVENJU fá útköll urðu hjá Slökkviliðinu á Akureyri á nýliðnu ári
en það var kallað út 67 sinnum og íuleins einu sinni á síðustu 20
árum hefur liðið verið kallað sjaldnar út. Flest hafa útköllin verið
115 árið 1987, en þau voru 90 talsins á síðasta ári. Þá varð engin
stórbruni á liðnu ári og ekkert manntjón.
Einn alvarlegasti atburðurinn á
síðasta ári var þegar gerð var tilraun
til að kveikja í Sjallanum 15. febr-
úar meðan dansleikur stóð yfir, að
því er fram kemur í skýrslu slökkvil-
iðsstjóra um starfið á síðasta ári.
íkveikjur
Af útköllunum 67 var um eld að
ræða í 35 tilvikum og langoftast var
hann í rusli eða sinu og þá voru 8
útköll vegna elds í íbúðarhúsum.
60 braut-
skráðir
FJÓRIR nemar voru brautskráð-
ir frá rekstrardeild Háskólans á
Akureyri í fyrradag, þrír rekstr-
arfræðingar og einn iðnrekstrar-
fræðingur.
Alls hafa nú 60 rekstrarfræðing-
ar verið brautskráðir frá rekstrar-
deild Háskólans á Akureyri,- hinir
fyrstu árið 1989. Um er að ræða
tveggja ára nám, að loknu fyrsta
ári þar sem er sameiginlegt náms-
efni geta nemar valið á milli tveggja
brauta, rekstrarbrautar ,og iðn-
rekstrarbrautar.
Að loknu prófí frá rekstrardeild
skólans er boðið upp á tveggja ára
framhaldsnám í gæðastjórnun og
hafa 8 manns verið brautskráðir
með BS-próf í gæðastjórnun frá
Háskólanum á Akureyri.
Upptök eldsins voru í flestum tilfell-
um rakin til íkveikju. Fram kemur
í skýrslunni að í 30 tilfellum var um
lítið eða ekkert tjón að ræða af völd-
um eldsins. I skýrslunni kemur einn-
ig fram að fólk geti verið í mikilli
hættu þó ekki sé um eld að ræða,
en undir útköll án elds flokkist m.a.
björgun úr bílflökum, hreinsun
hættulegra efna, vatnsdæling og
fleira.
Sjúkraútköll voru 1.086 á síðasta
ári, þar af 196 utanbæjar, en voru
1.987 árið á undan, þar af 165 utan-
bæjar. í 17 útköllum var um að
ræða yfir 100 kílómetra langa flutn-
inga. Varabíll var notaður 58 sinnum
þar sem hinn var upptekinn í öðrum
sjúkraflutningi og er það nokkur
aukning milli ára.
-----*—*—*------
Þrettánda-
gleði Þórs
HIN árlega þrettándagleði Þórs
verður haldin í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 6. janúar og hefst
hún kl. 20.00 með skrúðgöngu
frá félagsheimiiinu Hamri.
Álfar, tröll og púkar verða á
kreiki og jólasveinarnir koma og
kveðja börnin að venju.
Páimi Gunnarsson syngur nokk-
ur lög og einnig Jóhann Már Jó-
hannsson, en í lokin verður vegleg
flugeldasýning.
V erðlaunaþegar
FJÖLMENNI var í hófinu þegar verðlaunin voru veitt.
Viðurkenningar og styrkir
veittir til íslandsmeistara
STYRKIR og viðurkenningar úr Afreks- og styrktarsjóði voru veitt-
ir við athöfn í íþróttahöllinni á Akureyri fyrir áramót. Veitt er
viðurkenning til allra þeirra sem hlotið hafa Islandsmeistaratitil á
árinu auk þess sem sérstakar viðurkenningar eru veittar.
Að þessu sinni var þremur ein-
staklingum veitt sérstök viður-
kenning, Albert Sigurðssyni fyrir
Qölþætt störf að skák- og brids-
málum, Soffíu Guðmundsdóttur
fyrir margþætt störf í þágu brids-
mála og Öðni Árnasyni fyrir óeig-
ingjarnt starf að skíðamálum.
Sex íþróttafélögum var veittur
styrkur úr Afreks- og styrktar-
sjóði, Knattspyrnufélagi Akur-
eyrar, Skautafélagi Akureyrar,
Golfklúbbi Akureyrar, Skátafé-
laginu Klakki, Iþróttafélaginu
Þór og íþróttadeild hestamann-
afélagsins Léttis.
Á liðnu ári urðu fjölmargir
íþróttamenn á Akureyri íslands-
meistarar, einn kom úr röðum
Nökkva, félags siglingamanna,
tveir fijálsíþróttamenn úr Ung-
mennafélagi Akureyrar_ hlutu
titilinn og einnig tveir úr íþrótta-
félaginu Eik. Margir Islands-
meistaranna komu úr röðum
KA-manna, 3. flokkur karla í
handbolta varð íslandsmeistari
sem og einnig 4. og 5. flokkur.
Þá átti félagið fjölmarga meist-
ara í júdó á iiðnum ári. Stefán
Thorarensen úr íþróttafélaginu
Akri hlaut alls 9 íslandsmeistar-
atitla á liðnu ári, en alls hlutu
félagsmenn þess 17 titla á árinu.
Sex skíðamenn hlutu viður-
kenningu en þeir urðu íslands-
meistarar í ýmsum greinum
skíðaíþróttarinnar. Þá urðu Þórs-
arar Islandsmeistarar í innan-
hússknattspyrnu í meistaraflokki
og félagar í Skautafélagi Akur-
eyrar urðu einnig íslandsmeistar-
ar, í flokki 9 ára ,og yngri, 13
til 15 ára, 16 til 17 ára og í
mejstaraflokki.
íþróttadeild hestamannafé-
lagsins Léttis átti einn íslands-
meistara, Bílaklúbbur Akureyrar
fimm, Bridgefélag Akureyrar
þijá og eins Sundfélagið Óðinn.
Þá hlutu tveir vaxtarræktarmenn
slíkan titil, fimm félagar úr Lyft-
ingafélagi Akureyrar og tveir úr
Golfklúbbi Akureyrar.
S
6 MILLJONIR ÓSKIPTAR Á EINN MIÐA 12. JANÚAR
Heppnin
bíður þín hér
Hæsti vinningurinn í hverjum mánuði leggst við
pann hæsta í næsta mánuði efhann gengur ekki út.
Þannig hleðst spennan upp koll afkolli par til
sá heppni hreppir pann stóra... þú? s
Tryggðu þér möguleika
... fyrir lífið sjálft
UMBOÐ I REYKJAVIK OG NAGRENNI:
AÐALUMBOÐ
Suðurgötu 10, sími 23130
ÚLFARSFELL
Hagamel 67, sími 24960
VERSLUNIN
GRETTISGÖTU 26
sími 13665
BÓKABÚÐIN
HVERAFOLD 1-3
Grafarvogi, sími 677757
HAPPAHÚSIÐ
Kringlunni, sími 689780
VERSLUNlN
EITT OG ANNAÐ
Hrísateigi 47, sími 30331
TOPPMYNDIR
MYNDBANDALEIGA,
Arnarbakka 2,
sími 76611
VERSLUNIN SNOTRA
Álfheimum 4, sími 35920
BENSÍNSALA HREYFILS
Fellsmúla 24, sími 685632
BÓKABÚÐIN HUGBORG
Grímsbæ, sími 686145
BÓKABÚÐ ÁRBÆJAR
Hraunbæ 102, sími 813355
VERSLUNIN STRAUMNES
Vesturbergi 76, sími 72800
MMSMSMM3BBÍM
SÍBS-DEILDIN,
REYKJALUNDI
sími666200
BÓKABÚÐIN ÁSFELL
Háholti 14,
sími666620
EI N A
Þ A R SEM
GENG
BORGARBÚÐIN
Hófgerði 30,
sími 42630
VÍDEÓMARKAÐURINN
Hamraborg 20A,
sími 46777
GARDABÆR:
SÍBS-DEILDIN, VÍFILSSTÖÐUM
sími602800
BÓKABÚÐIN GRÍMA
Garðatorgi 3,
sími 656020
imMhiiMMmm
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS
Vilborg Sigurjónsdóttir,
sími 50045
STÓRHAPPDRÆTTIÐ
H Æ S TI VINNINGURINN
UR ÖRUGGLEGA ÚT.
_____V'erð miða er aðeins 600 kr.
( S ' Rjy laX.1 Upplýsittgar um nsesta mnboðmann í sima 91-22150 og 23130