Morgunblaðið - 06.01.1994, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994
21
FOSTUDAGUR
JANUAR
Þú hef ur nokkra
daga til að kaupa faxtæki
með 10-15% afslætti
Styrkur veittur úr Minning-
arsjóði Gunnars Thoroddsen
Gríptu tækifærið og tryggðu þér frábær faxtæki,
Ricoh og Telia, með 10-15% afslætti til 7. janúar. Við bjóðum
góð greiðslukjör og þjónustu um land allt.
Haföu samband við næstu póst- og símstöð, eða
söludeildir í Kringlunni, Armúla og í Kirkjustræti.
STYRKVEITING úr Minningarsjóði Gunnars Thoroddsen fór fram
miðvikudaginn 29. desember í áttunda sinn. Sjóðurinn var stofnaður
af hjónunum Bentu og Valgarð Briem 29. desember 1985, þegar lið-
in voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Sjóðurinn er í vörslu borgarsljór-
ans í Reykjavík, sem ákveður úthlutun úr honum að höfðu samráði
við frú Völu Thoroddsen.
Tilgangur sjóðsins er að veita
styrki til einstaklinga eða hópa,
stofnana eða félaga, eða veita verð-
laun eða lán í sambandi við rann-
sóknir, tilraunir eða skylda starf-
semi á sviði mannúðarmála, heil-
brigðismála eða menningarmála,
sem Gunnar Thoroddsen lét sér-
staklega til sin taka sem borgar-
stjóri.
Að þessu sinni hlaut Nína Mar-
grét Grímsdóttir píanóleikari styrk-
inn fyrir framlag til íslenskra tón-
listarmála.
Nína Margrét Grímsdóttir píanó-
leikari lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
1984 og einleikaraprófi frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík ári síðar,
þar sem hún stundaði nám hjá
Halldóri Haraldssyni. Hún hlaut
styrki frá British Council og Amer-
ican-Scandinavian Foundation til
framhaldsnáms í London og New
York og lauk mastersprófi frá City
University í London 1989 og Pro-
fessional Studies Diploma frá
Mannes College of Music í New
York 1993. Nína Margrét hefur
komið víða fram sem einleikari og
í samleik, m.a. með Kammersveit
Reykjavíkur, í Ríkisútvarpinu og á
vegum EPTA. Hún hefur m.a. skrif-
að um íslenska píanótónlist og gildi
tónlistar fyrir þroska tilfinninga og
vitsmuna. Nína Margrét hlaut styrk
á þessu ári frá Helena Rubinstein
Foundation til doktorsnáms í píanó-
leik við City University of New
York og vinnur m.a. að rannsóknum
um þróun píanóleiks á íslandi.
Nína Margrét hefur oft komið
opinberlega fram á tónleikum að
undanförnu, bæði hér heima og
erlendis og ávallt hlotið góða dóma
og ósjaldan frábæra fyrir leik sinn.
Frú Vala Thoroddsen afhenti
styrkinn, sem að þessu sinni var
að Ijárhæð 250.000 kr. Athöfnin
fór fram í Höfða.
Styrkur afhentur
Á MYNDINNI eru f.v. Ágúst Guðmundsson, Jónina Gísladóttir, Grím-
ur H. Brandsson, Sigríður Ágústsdóttir, Markús Örn Antonsson,
Vala Thoroddsen og Steinunn Ármannsdóttir. Sigríður Ágústsdóttir,
móðir Nínu Margrétar, tók við styrknum fyrir hönd dóttur sinnar,
sem er erlendis.
Dansinn dunar i Danssmiðjuxtni
Skeiiunni 11 B
P
Samkvæmisdansar
Barnadansar
Einkatímar
Hóptímar
\Ms£WmÆk
ammmmsSÉHUKÍBÉBÍmaSBBÍ
SKEIFAN 1 I B SÍMI
Innritun i síma 689797
PÓSTUR OG SlMI