Morgunblaðið - 06.01.1994, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 06.01.1994, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994 Talhólf geyma símaboð Svokölluð talhólfaþjónusta hefur nú verið tekin í notkun fyrir far- símanotendur. Talhólf er ný þjón- usta Pósts og síma sem er sérstak- lega sniðin að þörfum farsímanot- enda, en hentar öðrum símnotend- um einnig. Talhólf, sem er geymsla fyrir töluð skilaboð, geta allir farsímanotendur hagnýtt sér hvort sem þeir hafa farsíma með eða án tónvals. Þegar ekki er svar- að í farsima, slökkt er á honum eða hann utan þjónustusvæðis, bæta talhólf öll samskipti við farsí- manotendur ti! muna, segir í fréttabréfi frá Pósti og síma. Talhólf eru að grunninum til sím- svarabúnaður sem er tengdur við símstöð og geymir talað mál í tölvu. Þegar hringt er í farsímann og ekki er svarað, tekur talhólfið við skila- boðum og lætur síðan vita um að skilaboð liggi í hólfinu, en eftir að talhólfið hefur tekið á móti skilaboð- um, reynir það að hringja í viðkom- andi farsíma með jöfnu millibili til að láta vita af því. Einnig getur tal- hóflið sent boð um það tii boðtækis. Stofngjald fyrir talhólf er 500 kr. fyrir farsímanotendur og fast afnota- gjald 100 kr. á mánuði. Þegar farsí- manotandi kaupir sér aðgang að þjónustunni, fær hann úthlutað tal- hólfi sem hefur ákveðið símanúmer og er það ávallt það sama og farsíma- númerið, nema að í stað 985 kemur 988. Á næsta ári verða svo faxhólf tekin í notkun sem gera notendum talhólfa fært að taka á móti og senda fax. ■ w/ni • • SLYS A FORVARNIR FYRSTA HJÁLP VÖRN í SÓKN OG BÖRNUM OKKAR FRÁ SLYSUM Rauði kross fslands gengst fyrir tveggja kvölda nám- skeiði um algengustu slys á bömum, hvemig bregðast á við slysum og hvemig koma má í veg fyrir þau. Námskeiðið fer fram að Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, Reykjavík dagana 11. og 13. jan. n.k. kl. 20 - 23. Skráning og nánari upplýsingar em veittar á skrifstofu RKÍ í síma 91-626722 fyrir kl. 12 mánudaginn 10. jan. FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ RAUÐA KROSS ÍSLANDS Rauöarárstíg 18 - Reykjavík - sími: 91 - 626722 Lokkandi og heilsusamlegir grænmetisréttir að loknu jólahaldi GRÆNMETISFÆÐA er eingöngu borin fram á heilsuhæli Dr. Felbermayers í Gaschurn í Austur- ríki. Stúlkan sem bar fram matinn fyrir nokkra blaða- menn sem voru þar í skoðunarferð rak upp stór augu þegar hún var spurð hvort það væri hægt að fá vínglas með matnum. Hún virtist aldrei hafa heyrt á reykingar minnst þegar hún var spurð hvort það mætti reykja í salnum. Flestir gestanna voru í læknis- meðferð á hælinu en nokkrir til að hvíla sig og fasta. 2 Þe>r sem eru ekki á ein- ■ hveijum safa- eða tekúr borða vel á heilsuhæli Leopolds Fel- bermayers. Hann stofnaði það fis 1960 ásamt konu sinni. Þau höfðu fyrst 26 rúm en hafa nú 105, annar sonur þeirra « starfar með þeim sem læknir en hinn sér um reksturinn. ■3 Felbermayer telur vellíðan fólks fyrst og fremst komna undir mataræði þess. Hann hefur enga trú á kjöt- og fiskmeti en því meiri á kornvörum, grænmeti og ávöxtum og eggjum og mjólkurvör- um í litlum skömmtum. Gestum á heilsuhæli hans gefst ekki aðeins kostur á að njóta góðra grænmetisrétta heldur er þeim einnig boðið upp á matreiðslu- kennslu svo að þeir geti haldið áfram að lifa heilsusamlegu lífi eft- ir heimkomu. Walter Swoboda, matreiðslumeistari, starfaði áður á þekktum matstað í Vín en hefur verið i nokkur ár hjá Felbermayer. Hann eldaði þessar uppskriftir í sýnikennslu og réttirnir reyndust ljómandi góðir. Hráefnið á að sjálf- sögðu helst að vera beint úr garðin- um og sem allra minnst unnið. í sýnikennslu hjá Walter Swoboda á heilsuhæli Dr. Flebermayers í Austurríki. Yfirbakaó súkkíni 2 súkkíni 100 g möndlur í bitum eða þunnum skífum 50 g fint rifinn ostur 2 eggjarauður 1 msk sérrí 2 msk rjómi salt og múskat Skerið súkkínið langsum í tvennt. Gufusjóðið, saltið og snöggkælið í köldu vatni. Blandið hinum hráefn- unum saman. Smyijið möndlu- blöndu á súkkínihelmingana og hit- ið í 200 g heitum ofni í 10 til 15 mínútur eða þangað til möndlurnar verða ljósbrúnar. Þessi réttur er góður með hrísgijónarétti eða með heimatilbúinni tómatsósu. Hrísgrjón með súkkím og furuhnetum Eggaldin með bræddum osti og valhnefum 150 g hrísgrjón 300 g grænmetissoð 2 meðalstór eggaldin 100 g furuhnetur 500 g tómatar 2 súkkíni hólfur laukur 1 laukur 2,5 dl tómatsafi 250 g sveppir 1 hvítlauksrif 2 tómatar blóðberg ólífuolía, salt, sítrónusafi, basilikum, hvitlaukur og rifinn ostur ■Sjóðið hrísgijónin í soðinu. Sker- ið laukinn í hringi, súkkínið í stutta og mjóa bita og sveppina í femt. Hitið laukinn í olíu, bætið sveppum í og síðan súkkíninu. Hrærið vel í á breiðri pönnu. Súkkínið má ekki verða of mjúkt. Saltið lítillega og bragðbætið með sítrónusafa. Bætið gijónunum út í og látið hitna. Bæt- ið niðurskornum tómötum, hvítlauk, furuhnetum og basilikum saman við. Dreifið osti yfir en ekki of mikl- um, rétturinn á að vera laus og léttur í sér. GLEÐILEGT AR Kennslahefst ámorgun, 7. janúar. Nemendur mæti á sömu tímum og áður. UPPLYSINGAR I SIMA 72154. Félag íslenskra listdansara. 100 g grófskornar valhnelur mozzorella eóa annar magur bræðsluostur ólífuolía salt Prófið að brúna kartöflur bara upp úr sírópi Á hátíðisdögum brúnar fólk oft kartöflur upp úr sykri og smjöri. Sumir bæta síðan við ijóma á pönn- una. Ekki hitaeiningasnauðar kart- öflur með þeim hætti. Okkur hér á Daglegu lífi barst til eyrna að það væri alveg eins gott en fyrirhafnar- minna að brúna kartöflurnar bara uppúr sírópi. ■ BflLLETSKÓLI SIGRÍOflR flRmflflfl SKÚLAGÖTU 32*34 Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir. Skerið eggaldinin í 1 sm þykkar sneiðar, saltið lítillega og vætið smávegis með ólífuolíu. Veltið þessu saman með höndunum í stórri skál og látið standa í stutta stund. - Dýfíð tómötunum í sjóðandi vatn og afhýðið þá. Skerið í grófa bita. Skerið laukinn smátt. - Setjið egg- aldinin á ofnplötu og hitið í ofni við 200 gr. hita í 10-15 mínútur. - Hitið laukinn í olíu, bætið tómötun- um út í og hellið tómatsafa yfir (smá sérrísletta er ágæt saman við). Bætið niðurskornum hvítlauk út í og bragðbætið með salti og blóð- bergi þegar suðan kemur upp. Hell- ið tómatmaukinu í eldfast mót og setjið eggaldinsneiðar og valhnetur á. Þekið með osti. Rétturinn má bíða í nokkrar klukkustundir áður en hann er endanlega bakaður við 220 gráðu hita í 15 mínútur. Avókadó með radísum og ein- hveiju stönglakenndu grænmeti sem heitir ruccula var í forrétt í hádeginu þegar ég borðaði á heilsu- hælinu. Síðan var létt soðinn grænn aspas með frábærri saffran-sósu. Hafrar með sveppum, blaðlauks- sósu og rauðbeðum voru í aðalrétt og valmúakökur með hindbeijum í eftirrétt. Hádegisverðurinn var 830 kaloríur án aspasins. Meltingarfær- in fundu fyrir að þau þurftu að takast á við eitthvað grófara en venjulega en maturinn var verulega góður og ekkert okkar saknaði kjöt- bita í hádeginu. ■ Annn Bjarnadóttir Kíví til að gera kjötið meyrt Sértu með kjöt og haldir að það sé ekki nægjanlega meyrt höfum við heyrt að kíví komi að góðum notum. Leggið hýðið af kíví ávexti á kjöt- ið og látið grænu hliðina snúa niður að kjötinu. Svona er kjötið látið marínerast í nokkrar klukkustundir. Skítugir legókubbar? ÞEGAR búið er að leika með legókubba svo mánuðum skiptir er ekkert ólíklegt að þeir verði skítugir og að þar leynist kexaf- gangar og annað matarkyns sem tilheyrir að maula með kubbaleik. Það er heillaráð að skella kubb- unum í gamlar nælonsokkabuxur, koddaver eða annað sem þolir þvott og setja þær í þvottavél á þijátíu gráðu hægferð. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.